Fréttablaðið - 11.11.2011, Page 10

Fréttablaðið - 11.11.2011, Page 10
11. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR10 MIÐENGI AUGLÝSIR TIL SÖLU FASTEIGNAFÉLAG Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði til þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, einstaklingum sem hafa verulegan fjárhagslegan styrk og viðeigandi þekkingu, auk fyrirtækja sem höfðu eiginfjárstöðu sem var hærri en sem nemur 150 m. kr. í árslok 2010. Móttaka trúnaðaryfirlýsinga og afhending viðeigandi gagna hefst mánudaginn 14. nóvember 2011. Síðasti frestur til að skila inn tilboði vegna þátttöku í söluferlinu er föstudaginn 25. nóvember 2011 kl. 16.00. Allar nánari upplýsingar um söluferlið verður að finna á vef Miðengis undir slóðinni www.mengi.is frá kl. 10.00, 14. nóvember 2011. Sími 527 3060 • Lækjargötu 12 • 155 Reykjavík • mengi@mengi.is Hlíðasmári 3 ehf Fasteignin Hlíðasmári 3, Kópavogi. Fasteignin er að stórum hluta í útleigu. HJÁLPARSTARF Fjölskylduhjálp Íslands úthlutaði 23.784 matar- gjöfum til 3.562 einstaklinga og fjöl- skyldna þeirra frá 1. júní 2010 og út maí á þessu ári. Þetta kemur fram í úttekt sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir Fjölskylduhjálp. Konur voru í meirihluta þeirra sem fengu úthlutað, eða um 55 pró- sent. Af þessum 3.562 einstaklingum áttu 1.399 börn. Tveir þriðju skjól- stæðinganna á þessu tímabili voru íslenskir ríkisborgarar, fimmtungur með pólskt ríkisfang og tólf prósent með annað erlent ríkisfang. Hlutfall karla var hærra meðal útlendinga. Mikill meirihluti hópsins var utan vinnumarkaðar, eða 93 prósent. Þá var þriðjungur með skráða örorku. Langflestir, eða 86 prósent, höfðu lokið grunnskólaprófi eða minni menntun. Tæpur þriðjungur fólksins fékk einu sinni úthlutað matargjöf, 28 prósent komu tvisvar til fjórum sinnum, tæpur fimmtungur fimm til níu sinnum og fjórðungur hópsins leitaði tíu sinnum eða oftar til Fjöl- skylduhjálparinnar á þessu eina ári. - sh Úttekt á starfsemi Fjölskylduhjálpar: Flestir utan vinnumarkaðar SJÁVARÚTVEGUR Faxi RE, skip HB Granda, hefur náð 700 tonna síldarafla á Breiðafirði í einu til tveimur köstum. Aflinn fer til vinnslu hjá frystihúsi fyrirtækis- ins á Vopnafirði sem er sérhannað fyrir uppsjávarfisk. Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram í viðtali við skipstjór- ann á Faxa, Albert Sveinsson, að aðstæður hafa verið góðar á sund- unum í Breiðafirði og veiðarnar gengið vel. Hann segir erfitt að átta sig á hversu mikið af síld er á þeim slóðum sem veiðarnar fara fram því síldin gengur inn á grunnsævi við eyjar og hólma þar sem skipin komast ekki að henni. Síldin er væn. Meðalvigt í síð- ustu veiðiferð reyndist vera 326 grömm en í fyrri veiðiferðinni gáfu mælingar til kynna meðal- vigt upp á um 340 grömm. Ingunn AK og Lundey NS hófu leit að loðnu á Vestfjarðamiðum á föstudag og áfram í átt að Kol- beinseyjarhrygg. Aðeins varð vart við smáloðnu. Slæmt veður er og hefur verið á miðunum á Grænlandssundi og komið í veg fyrir loðnuveiðar. Vart hefur orðið við loðnu á þessum slóðum og er þess nú aðeins beðið að veðrið gangi niður þannig að hægt verði að hefja veiðar. - shá Vel gengur að ná síld á Breiðafirði en loðnuveiðar liggja niðri vegna brælu: Væn síld veiðist á Breiðafirði FAXI, SKIP HB GRANDA Landar síldarafla sínum í sérbúnu frystihúsi á Vopnafirði. Veiðar ganga vel. MYND/HG GRANDI GRIKKLAND, AP „Ég er ekki stjórn- málamaður en ég hef varið megn- inu af starfsævi minni í að hrinda í framkvæmd efnahagsstefnu stjórnvalda bæði í Grikklandi og Evrópu,“ sagði Lúkas Papademos, sem í dag tekur við embætti for- sætisráðherra Grikklands af Georg Papandreú. Hann fær nú það erfiða verkefni að hrinda í framkvæmd óvinsæl- um aðhaldsaðgerðum sem fylgja björgunarpakka Evrópusambands- ins. Stjórn Papandreús hraktist frá völdum ekki síst vegna þess að henni tókst ekki að ná samstöðu á þingi um þessar sömu aðhalds- aðgerðir, en nú er forysta stjórn- arandstöðunnar komin til liðs við stjórnina og ætlar að tryggja framgang þeirra. Papademos segist ætla að leggja alla áherslu á að halda Grikklandi áfram inni á evrusvæðinu. „Þátttaka lands okkar í evru- svæðinu tryggir peningalegan stöðugleika landsins,“ sagði hann í gær og bætti því við að evran myndi auðvelda aðlögun gríska hagkerfisins andspænis þeim erfið leikum sem enn blöstu við. Papademos verður forsætisráð- herra bráðabirgðastjórnar þriggja flokka af hægri og vinstri væng stjórnmálanna, sósíalistaflokks- ins Pasok, íhaldsflokksins Nýs lýð- ræðis, og lítils þjóðernisflokks af hægri vængnum sem nefnist Laos. Leiðtogar þessara þriggja flokka hafa átt erfitt með að komast að samkomulagi um það hver verði forsætisráðherra, en niðurstaðan varð sú að Papademos yrði fyrir valinu. Papademos var seðlabankastjóri Grikklands frá 1994 til 2002, en þá tók hann við sem aðstoðarbanka- stjóri Seðlabanka Evrópusam- bandsins. Því starfi gegndi hann þangað til á síðasta ári, þegar Pap- andreú kallaði hann heim til að aðstoða sig við glímuna við ríkis- skuldirnar. gudsteinn@frettabladid.is Papademos leiðir Grikki Eftir fjögurra daga viðræður hefur lokst tekist sam- komulag um að Lúkas Papademos verði forsætisráð- herra þjóðstjórnar Grikklands. Stjórnarinnar bíður það verkefni að leysa úr efnahagsvanda landsins. VERÐUR FORSÆTISRÁÐHERRA Lúkas Papademos og þriggja flokka bráðabirgðastjórn hans taka formlega við völdum í dag. NORDICPHOTOS/AFP Hugmyndir um tvískiptingu Evrópusambandsins, í evruríkin sautján og hin ríkin tíu, virðast hafa fengið byr undir báða vængi í þeim hremmingum evrunnar, sem nú er glímt við. Evruríkin hafa nú þegar ákveðið að samhæfa mun betur fjármálastjórn sína, til að draga úr líkunum á öðru eins hruni á næstunni. Strangara eftirlit verður með fjármálum ríkjanna og unnt verður að beita þau ríki sem standa sig ekki refsiaðgerðum. Ekki sér þó fyrir endanum á vandræðum Grikklands og annarra evruríkja, og því hafa komið upp kröfur um enn nánara samstarf á evrusvæðinu, sem margir líta á sem kröfur um að útiloka þurfi þau ríki sem standa utan evrusvæðisins. Óformlegar viðræður hafa nú þegar verið haldnar milli þeirra tíu ESB-ríkja sem standa utan evrusvæðisins, þótt ekki standi til að svo stöddu að efla samstarf þeirra sérstaklega. Á miðvikudagskvöld varaði José Manuel Barroso, forseti framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, við því að Evrópusambandið klofni hreinlega í tvennt. Evrópusambandið standi nú á krossgötum og taka þurfi ákvörðun um hvort það eigi að leysast upp eða styrkja samstarfið enn frekar. „Tvískipt samband myndi ekki virka,“ sagði hann. „Evrópusambandið í heild og evrusvæðið heyra hvort öðru til.“ Vandinn sé fólginn í því að tryggja að hægt verði að styrkja enn frekar samstarf evruríkjanna án þess að klofningur verði meðal þeirra ríkja sem enn standa utan evrusvæðisins. Varar við klofnun Evrópusambandsins KEPPIR Í TRJÁBOLABURÐI Meira en þúsund suður-amerískir frumbyggjar frá 38 þjóðernishópum kepptu í frum- byggjaleikum í Brasilíu, þar sem keppt er í mörgum keppnisgreinum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MENNTUN Umsóknir um fjarnám í Háskólabrú Keilis eru orðnar þrefalt fleiri en á sama tíma í fyrra. Umsóknarfrestur rennur út í desember. Háskólabrú er nám fyrir þá sem ekki hafa lokið stúdents- prófi og stunda rúmlega 300 nemendur það hjá Keili. Helm- ingur er í fjarnámi. Inga Sveina Ásmundsdóttir, verkefnastjóri námsins hjá Keili, segir í sam- tali við Víkurfréttir að ljóst sé að umsóknir fari á biðlista. - þeb Háskólabrú Keilis vinsæl: Þrefalt fleiri vilja í fjarnám SVEITARSTJÓRNIR Smábátafélagið í Vogum telur illvilja í garð félags- ins hafa ráðið því að nafn þess var ekki á lista sem nefnd á vegum bæjarins sendi Magma Energy um hentuga styrkþega. Bæjarráðið segir að þegar Magma hafi óskað eftir uppástungum hafi nefndin horft til íþrótta- og líknarfélaga sem og félaga sem óskuðu styrkja í sérstök verkefni. „Bæjarráð hafn- ar því að persónuleg óvild í garð Smábátafélagsins í Vogum hafi ráðið ákvörðun nefndarinnar.“ - gar Styrkjatillögur til Magma: Ekki óvild gegn smábátafélagi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.