Fréttablaðið - 11.11.2011, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 11.11.2011, Blaðsíða 32
2 föstudagur 11. nóvember Grensásvegur 8 Opið mán–fös 12–18, laugard 12–17 SOHO/MARKET Á FACEBOOK Dúnúlpa (S-XL) Verð kr. 15.990 núna ✽ Munið að brosa Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 meðmælin HREINAR HENDUR Verbena Liquid Sápan frá L‘Occitane er mild og því tilvalin fyrir þurra húð. Þvoið burt óhreinindi dagsins með þessari mildu handsápu sem inniheldur meðal annars shea butter og aloe vera til að vernda og næra húðina. Lyktin er engu síðri, hún er létt og sítruskennd. Undiralda í Hörpu Tónleikar númer tvö í tónleika- röðinni Undiraldan verða haldnir í Kaldalóni í Hörpuí dag. Undiraldan er samstarfsverkefni Hörpu og 12 Tóna og er ætlunin að kynna gras- rótina í íslenskri tónlistarmenn- ingu og um leið gefa ungu tónlist- arfólki tækifæri til að koma tónlist sinni á framfæri. Í dag koma fram hljómsveitirnar Nolo og Mamm- út og hefjast tónleikarnir klukk- an 17.30 og lýkur klukk- an 19. Aðgangur er ókeypis og ættu tónlistarunnendur ekki að láta þenn- an viðburð fram hjá sér fara enda full- komin leið til að hefja helgina. Sænskt, já takk Sænska verslanakeðjan Lindex opnar verslun í Smáralindinni á morgun. Lindex er ein stærsta tískufatakeðja Svíþjóðar með versl- anir víða um heim og er mörgum Íslendingum kunn. Verslunin býður upp á fatnað á börn og full- orðna á góðu verði og má því búast við því að margir leggi leið sína í Smára- lindina á morgun. V ið vissum að það væri dýrt að fara út í starfsnám og ákváðum því að taka hönd- um saman og hanna töskur og boli til að selja og reyna þannig að fjármagna ferðina okkar út,“ segir Áslaug Sigurðardóttir, nemandi á fyrsta ári í fatahönnun í Listaháskóla Íslands. Áslaug og bekkjarsystur hennar munu selja vörurnar á opnum degi í skólanum á morgun. Venja er að nemendur fari í starfsnám til Parísar og verði sér þar úti um dýrmæta reynslu. Þeir dvelja í borginni í alls sex vikur og vinna launalaust fyrir ýmsa nafntogaða hönn- uði og kynnast í leiðinni ólíkum hliðum á tísku- iðnaðinum. Þar sem ferðin út getur kostað sitt ákváðu stúlkurnar að vera duglegar að safna fyrir ferðinni og eru nú í óða önn að sauma tautöskur og prenta á boli. „Nýleg rannsókn á plastpokainnkaupum fólks sýndi að það eyddi rosalegum upphæðum í plastpoka. Okkur fannst þess vegna sniðugt að búa til taupoka til að selja því þeir eru bæði endurnotanlegir og umhverfis- vænir. Við saumum töskurnar sjálfar og prent- um svo myndir á þær,“ útskýrir Áslaug, sem segir myndina á töskunum vera túlkun nem- endanna á hinu fræga kennileyti Parísarborgar, Eiffelturninum sjálfum. „Við fórum á netið í leit að innblæstri og fundum nokkrar skemmti legar myndir af Eiffelturninum sem við ákváðum að vinna með áfram.” Alls eru átta stúlkur í bekknum og því mikil vinna sem liggur að baki því að sauma sextíu töskur og prenta myndir á þær og bolina. Áslaug segir þær þó duglegar að hjálpast að og deila á milli sín verkefnum. Stúlkurnar munu selja vörurnar á opnum degi Listaháskólans í húsnæði skólans við Laugarnesveg á milli 11 og 16. Í leiðinni er hægt að skoða skólann og kynnast starfsemi hans nánar. Allar deildir skólans verða viðstaddar á opnum degi og meðal þess sem hægt verður að skoða eru veggspjöld og leturhönnun frá nem- endum í grafískri hönnun og verkefni nemenda í vöruhönnun og arkitektúr. Auk þess munu nemendur úr myndlistardeild vera með leið- sögn um húsið og vinnustofur sínar, nemendur í tónlistardeild skólans munu flytja lifandi tón- list og nemar á leikarabraut og samtímadans- braut verða með kynningardagskrá á klukku- tíma fresti. sara@frettabladid.is Nemendur í fatahönnun sauma töskur og prenta á boli: SELJA EIGIN HÖNNUN FYRIR NÁMSFERÐ Vinnusamar Stúlkurnar á fyrsta ári í fatahönnun í Listaháskólanum sauma töskur og prenta á boli og munu selja varninginn til að safna fyrir starfsnámi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Meðlimir hljómsveitarinnar Steed Lord leikstýrðu auglýsingu fyrir tískumerkið WeSC og Standard- hótelin í Bandaríkjunum. Svala Björgvinsdóttir, söngkona sveitarinnar, segir þau hafa leik- stýrt auglýsingunni, tekið hana upp, samið tónlistina og séð um alla eftirvinnslu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem liðsmenn Steed Lord koma að leikstjórn því hljóm- sveitin hefur búið til eigin tónlistar- myndbönd frá upphafi. Þau héldu til New York á miðvikudaginn til að kynna auglýsinguna og heyrnar- tólin góðu og komu líka fram. - sm Steed Lord leikstýrir auglýsingu: Í leikstjórastólinn Leikstýra Svala Björgvins og bræðurn- ir Einar og Eddi Egilssynir leikstýrðu aug- lýsingu fyrir WeSC- og Standard-hótelin. Söngkonan skrautlega Lady Gaga mun breyta heilli hæð í versluninni Barneys í sér- staka vinnustofu. Risavaxið skrímsli mun prýða innganginn að versluninni frá 21. nóvember til 2. janúar. Verkefnið er samstarf Lady Gaga, hönnuðar ins Nicola Formichetti, sjónlista- mannanna Eli Sudbrack og Christophe Hamaide Pierson og Barneys-verslunarinnar. Formichetti sagði hugmyndina á bak við verkefnið vera þá að viðskiptavinurinn ætti að fá á tilfinninguna að hann væri hluti af æskuminningum Lady Gaga. Meðal þess sem hægt verður að sjá í Barneys frá 21. nóvem- ber er könguló með andlit söng konunnar, sælgætis skúlptúr og risastór hárkolla sem mun hýsa verslun með gervinöglum og snyrtivörum. - sm Risahárkollur og sælgæti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.