Fréttablaðið - 11.11.2011, Blaðsíða 40
6 föstudagur 11. nóvember
Upplýsingar á www.mk.is
og á skrifstofu skólans
í síma 594 4000
WWW.MK.IS
STÚDENTSNÁM
Félagsfræðabraut
Listnámsbraut
Mála- og ferðafræðibraut
Náttúrufræðibraut
Viðskipta- og hagfræðibraut
FRAMHALDSSKÓLABRAUT
MATVÆLANÁM
Grunndeild matvælagreina
Bakaranám
Framreiðslunám
Kjötiðnaðarnám
Matreiðslunám
Almenn braut matvælagreina
– fyrir þá sem stefna á nám í
matvælagreinum.
Eingöngu er tekið við umsóknum á
menntagátt til 22. nóv.
Hvert skal stefna í lífinu?
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á WWW.MK.IS
T ímaritið Dazed & Confused hélt upp á tuttugu ára afmæli sitt um síðustu helgi. Fjöldi fólks
mætti til að fagna þessum áfanga ásamt stofnend-
um blaðsins.
Dazed & Confused byrjaði sem lítið blað í svarthvítu
en er nú orðið leiðandi í umfjöllun um tísku, tónlist
og list. Jefferson Hack, annar af tveimur stofnendum
blaðsins, sagðist ánægður með árangurinn enda hefðu
þeir félagar runnið blint í sjóinn þegar tímaritið var
stofnað árið 1991. Á meðal gesta voru fyrrverandi for-
síðustúlka blaðsins Kate Moss, hönnuðurinn Sarah
Burton og tónlistarmaðurinn Michael Stipe. - sm
Dazed & Confused hélt upp á 20 ára afmæli:
SMEKKLEGT
AFMÆLISBOÐ
Góðir vinir Fyrirsætan Kate Moss, fyrr-
verandi forsíðustúlka Dazed & Confused
og barnsmóðir Hack, ásamt Marlon Rich-
ards, syni rokkarans Keith Richards.
Brosandi gestir Jess Morris og hönn-
uðurinn og leikkonan Sadie Frost voru á
meðal gesta í veislunni.
Góðar stundir Breska fyrirsætan Erin
O’Connor ásamt góðvinum sínum.
Ritstjórinn og tónlistarmaðurinn Jefferson Hack, ritstjóri og stofnandi blaðs-
ins, var glaður að sjá er hann spjallaði við Michael Stipe, fyrrum söngvara REM.
Fyrirmyndarsystur Systurnar og fyrir-
sæturnar Cara Delevingne og Poppy
Delevingne voru ófeimnar fyrir framan
myndavélina.
Dýrsleg Pixie Geldof, dóttir Bob Geldof,
lét sig ekki vanta í veisluna.
Litrík Breska leikkonan Jaime Winston
var litrík er hún fagnaði áfanganum með
mannskapnum.
Dúskar Söngkon-
an Paloma Faith
mætti í þessum
skemmtilegu skóm
í veisluna.
Ánægður
starfsmaður
Tísku skríbent
Dazed &
Confused,
Katie Shilling-
ford, mætti að
sjálfsögðu og
fagnaði með
sínu fólki.