Fréttablaðið - 11.11.2011, Síða 48
11. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR28
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars -
dóttur
Bæti mig sífellt
Kristján Magnús Karlsson þroskahamlaður
íþrótta maður og starfsmaður Vífilfells æfir íþróttir
alla daga vikunnar.
Meðal annars efnis:
Nýtt líf fyrir munaðarlausa risa
Fílar í Kenía eiga sérstöku munaðar-
leysingjahæli líf sitt að launa.
Varð að skrifa þessa bók
Steinunn Sigurðardóttir fetar nýjar
slóðir í Jójó.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Klúður, pabbi!
Þú áttir að
hitta hattinn!
Hatturinn
fauk af,
50 stig!
Verð ég að fara
í skólann í dag,
mamma?
Af hverju?
Ertu
veikur?
Þú ert ekki
með hita.
Þetta er
örugglega
bara snertur
af lærdóms-
ofnæmi.
Já.
Eigin-
lega.
Þannig
Séð.
Heyrðu, mér datt í hug
annað gælunafn fyrir þig. Auli Aulmundur Aulgrímur Aulason Jæja, góðu fréttirnar eru þær að það er bara
31 stafur eftir í stafrófinu.
Takk fyrir
að horfa á
Dáleiðslu-
tímann. Við
sjáumst að
viku liðinni,
góðar
stundir.
LÁRÉTT
2. umstang, 6. fíngerð líkamshár, 8.
for, 9. heyskaparamboð, 11. þurrka út,
12. skrípaleikrit, 14. starfsaðferð, 16.
bókstafur, 17. skörp brún, 18. tunna,
20. þófi, 21. glufa.
LÓÐRÉTT
1. skaut, 3. skóli, 4. vesalingur, 5.
knæpa, 7. eilífð, 10. útsæði, 13.
gerast, 15. liðormur, 16. krot, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ómak, 6. ló, 8. aur, 9. orf,
11. má, 12. farsi, 14. tækni, 16. pí, 17.
egg, 18. áma, 20. il, 21. rifa.
LÓÐRÉTT: 1. klof, 3. ma, 4. aumingi,
5. krá, 7. óratími, 10. fræ, 13. ske, 15.
igla, 16. pár, 19. af.
Þegar David Lowe, breskur leikari búsettur í Frakklandi, setti á sig kúlu-
hattinn og hélt til vinnu einn bjartan dag
í júní síðastliðnum benti fátt til þess að
dagurinn yrði frábrugðinn öðrum. David
hafði að atvinnu að leika kómíska útgáfu
af hinum „steríótýpíska“ Breta – blöndu af
Karli Bretaprins, Mr. Bean og Churchill –
Frökkum til kátínu. Þennan tiltekna júní-
dag var Frökkum hins vegar ekki hlátur í
hug.
DAVID hafði verið ráðinn til að látast vera
breskur kokkur á matarmarkaði í þorpinu
Castelnaudary. Hann skyldi kynna breska
útgáfu af hinni frægu frönsku „cassoulet“
kássu, m.a. með marmelaðibragði. Uppá-
tækið var grín kássuframleiðanda á staðn-
um, sem hugðist taka hlátrasköll markaðs-
gesta upp á falda myndavél og nota í
auglýsingu. Myndefnið varð þó annað.
Er David sagði brandara um að breska
kássan væri þeirri frönsku æðri því hún
ylli ekki jafnmiklum vindgangi var
engum skemmt. En þegar hann
ýjaði að því að hún væri upphaf-
lega bresk en ekki frönsk ætlaði
allt um koll að keyra. Karlmenn
veittust að leikaranum. Konur,
börn og ellilífeyrisþegar hreyttu
í hann fúkyrðum. David átti
fótum sínum fjör að launa.
UM SÍÐUSTU helgi skrifaði Atli
Fannar Bjarkason bakþanka í
Fréttablaðið þar sem hann segist ekki ætla
að kaupa Neyðarkall björgunarsveitanna
í ár, m.a. vegna þess að hann getur keypt
lyklakippu sem rúmar „helmingi fleiri lykla
á helmingi lægra verði í næstu lágvöru-
verðsverslun“. Pistillinn er augljóst grín.
Kaldhæðni 101. Margir tóku skrifin hins
vegar óstinnt upp.
ÞAÐ er engin tilviljun að hugtakið „Vælu-
bíllinn“ fór sem eldur um sinu í sömu
andrá og góðærið fuðraði upp. Ísland eftir-
hrunsáranna einkennist af krónískri sjálfs-
vorkunn í bland við nístandi skinhelgi sem
endurspeglast í algjörum skorti á kímni-
gáfu. Þjóðin hefur verið fórnarlambsvædd.
Enginn er maður með mönnum nema hann
hafi yfir einhverju að „væla“: Karlmenn eru
ofsóttir af nokkrum ungmeyjum sem kenna
sig við femínisma; skattgreiðendur eru
píndir til þess eins að Steingrímur Joð geti
ferjað peningana í hjólbörum í skjóli nætur
heim til auðjöfra sem grafa þá í jörð í óhóf-
lega stórum bakgörðum sínum; sértækar
aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru ekki í sömu
skóstærð og ég. Vogi sér einhver að fara
gegn nýjustu múgæsingunni ausa vælarar
úr skálum reiði sinnar svo að úr verður
syndaflóð eins og það sem fyrrnefndur Atli
Fannar fékk að baða sig í á dögunum.
SKORTUR íbúa Castelnaudary á skopskyni
er helsta aðhlátursefni á Youtube um þessar
mundir. Það er okkur Íslendingum til happs
að ekki er hægt að mynda þjóðarsálina.
Annir hjá Vælubílnum