Fréttablaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 34
4 föstudagur 25. nóvember Opið virka daga kl. 10-18 - Laugardaga kl. 11-16 Hornsófar Ný sending af 429.000.- Ver› a›eins kr. Afar vanda›ur hornsófi sófasettum Stökum sófum Svefnsófum og hornsófum Lukka Sigurðardóttir er nem- andi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Hún var í hópi myndlistarmanna sem tók þátt í listasýning- unni InterMost „Elusive Intimacy“ í Gallery K4 í Prag. Sjö íslenskir og fjórir tékk- neskir myndlistarmenn tóku þátt í sýningunni, sem lauk hinn 20. nóvember og ferðast nú alla leið til Íslands þar sem hún verður sýnd í Kaffistofunni Nem- endagallery LHÍ í desember. Lukka býr ásamt manni, börnum, kött- um og gullfiskum í fallegu húsi í Bústaðahverfinu. Heimilið er notalegt, bækur þekja alla veggi og fallegum minningum er gert hátt undir höfði. Föstudagur leit í heimsókn til Lukku. Aldur: 31 árs Í hvaða hverfi býrðu og hver er helsti kostur hverfisins? Ég bý í Bústaðahverfinu, eða Casablanca eins og vinkona mín kallar það. Það á sér fullt af kostum og göll- um eins og flest hverfi. Fossvogs- og Elliðaárdalurinn hér í næsta ná- grenni og Víkingur er ágætis lið, allavega flottir búningar. Valur er samt alltaf bestur. Hér er rólegt en ekki alveg eins rólegt og flestir halda. Nágrannarnir eru indælis fólk upp til hópa en stundum eftir myrkur fara dópdílerarnir á kreik á bílaplaninu við Bústaðakirkju, það er svona aðal „get together“ planið ef þú vilt skora dóp hér í 108. Þá er best að halda sig inn- andyra og loka kisulúgunni því stundum er stór span- gólandi Rottweiler-hundur með í för! Fyrir utan það og svifrykið, já og haglabyssu- árásina síðasta aðfangadag, er Bú- staðahverfið frábært hverfi. Hvað einkennir heimili þitt? Heimili mitt er frekar svona „lived in“ býst ég við enda erum við sex á heimilinu með kisunum, átta með gullfiskunum en það fer að vísu ekki mikið fyrir þeim. Hér eru hlutir sem eru okkur kærir, mikið af minningum og myndum úti um allt. Hvernig er týpískur laugar- dagsmorgunn hjá þér? Við skipt- umst á að sofa út um helgar, ég og maðurinn minn. Sá sem sefur er vakinn í bröns um brönsleytið og svo gerum við skemmtilega fjöl- skylduhluti það sem eftir er dags. Eða höngum heima eins og við höfum gert mikið af upp á síðkast- ið þar sem Dýri Angantýr, sonur okkar, er búinn að vera meira og minna lasinn síðan hann byrjaði í leikskóla í ágúst. Lukka Sigurðardóttir býr ásamt fjölskyldu og gæludýrum í Bústaðahverfinu: Huggulegt hverfi með skuggahlið Uppáhaldsskartið mitt er giftingarhringurinn – augljós- lega. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Tulip-borðið og -stólarnir eru uppáhaldshúsgögnin mín. Tulip-stóllinn var ástæðan fyrir því að ég fór í hönnun í Iðn- skólanum í Hafnarfirði. Ég ætlaði að verða húsgagnahönnuður áður en ég áttaði mig á því að myndlistin er málið. Ég er mikill safnari og safna meðal annars fallegum myndum. Hérna er dýra- myndaveggurinn sem er í miklu uppáhaldi núna. Uppáhaldshornið mitt er leshornið, þar líður mér vel. Ég og sonur minn, Dýri Angantýr, sitjum hér oft og lesum og skoðum saman bækur. Svo er líka gott að vinna í tölvunni hér því þá fæ ég ekki illt í axlirnar. Það ríkir stundum smá samkeppni því kisunum Gutta og Robba þykir líka afskaplega gott að vera hér. Elsku tölvan mín er uppáhaldshluturinn minn. Ég verð að vera hreinskilin, tölvan er mikilvægasti og þar með uppáhaldshluturinn minn! Ég gæti ekki án hennar verið. Uppáhaldsflíkin mín er blái Havaí-kjóllinn minn af því að ég gifti mig í honum hinn 8. ágúst árið 2005 á leynistað á Waikiki-ströndinni á Havaí. Innlit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.