Fréttablaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 64
25. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR48
sport@frettabladid.is
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Hvar verður þú þegar margar af stærstu stjörnum golfheimsins, t.d. Rickie Fowler,
Greg Norman, Adam Scott og Darren Clark, sigurvegari Opna breska 2011,
mæta til leiks á Ástralska PGA meistaramótinu? Tryggðu þér áskrift!
Föstudagur
2. hringur 16:30 endursýnt
2. hringur 21:30 endursýnt
3. hringur 01.00 BEINT
Laugardagur
3. hringur 08:55 endursýnt
3. hringur 23:00 endursýnt
4. hringur 01.00 BEINT
Sunnudagur
4. hringur 08:55 endursýnt
4. hringur 20:15 endursýnt
snjótennur
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- sala
- varahlutir
- þjónusta
ÍSLENSKA KVENNALANDSLIÐIÐ í handbolta mætir Tékklandi í æfingaleik í Vodafone-höllinni á Hlíðarenda klukkan 19.30 í kvöld.
„Við erum að fara inn í erfiða leiki á móti sterku liði og þetta er prófsteinn á liðið. Það er ótrúlega mikilvægt að leikmenn finni fyrir góðri
stemningu hérna heima og ég vona að fólk fjölmenni á Hlíðarenda á bæði föstudag og laugardag. Að fara héðan eftir að hafa náð góðum
leikjum á móti Tékkum fyrir framan fulla Vodafone-höll skiptir ótrúlega miklu máli,” sagði Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari.
ÍÞRÓTTIR Það er alls ekki ókeypis
fyrir íslensk handboltalið að fá
erlendan leikmann til landsins.
Handboltafélögin þurfa að greiða
fáránlegar upphæðir til að fá leik-
mann til landsins á meðan það
kostar nánast ekki neitt í fótbolt-
anum. Hátt í hálfa milljón króna
kostar að fá samningsbundinn,
erlendan handboltamann til lands-
ins á meðan það kostar fastan 100
þúsund kall að fá erlendan körfu-
boltamann. Þá á eftir að greiða
flug fyrir leikmanninn, útvega
honum bíl og íbúð sem og að greiða
honum laun.
Þessi álagning í handboltanum
hefur skilað sér í því að aðeins þrír
erlendir leikmenn spila í N1-deild
karla sem stendur.
„Það var Hassan Moustafa, for-
seti IHF, sem sá til þess að þetta
félagaskiptagjald var hækkað
upp úr öllu valdi. Það er í raun
og veru allt vitlaust yfir þessu,“
segir Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, og er þar ekki
bara að vísa til Íslands. Félög úti
um alla Evrópu eru ósátt við þess-
ar breytingar.
„Ég var á fundi hjá Evrópusam-
bandinu um daginn þar sem þetta
mál var rætt. Þá vildu menn losa
sig undan þessari ákvörðun IHF
og taka upp gjald sem EHF ákveð-
ur. Þetta mál er á borði lögfræð-
inga og verið að skoða hvort EHF
hafi leyfi til þess að breyta þessu.“
Hækkunin á félagaskiptagjaldi
samningsbundinna erlendra leik-
manna er 160.000 kr. en fyrir
ósamningsbundna 40.000 kr.
„Þetta er klárlega ekki að hjálpa
íslenskum félagsliðum þar sem
við erum með lélegan gjaldmiðil
og liðin hafa lítið milli handanna
eftir bankahrunið.“
Nýbúið að hækka hjá KKÍ
KKÍ hækkaði gjaldið hjá sér fyrir
erlenda leikmenn fyrir tímabilið
upp í 100.000 kr. sem er helmings-
hækkun. KKÍ var þess utan nánast
ekki að taka neitt af gjaldinu í sinn
rekstur fyrir þetta tímabil.
„Það fóru áður um 90 prósent til
FIBA Europe. Við vorum bara að
taka nokkra þúsundkalla til okkar.
Hugmyndin var síðan að nýta þessa
peninga sem við tökum til okkar í
landsliðsmálin. Það fara líklega 80
prósent af 50 þúsund kallinum sem
við fáum í landsliðin en hitt fer í
vinnuna,“ segir Friðrik Ingi Rún-
arsson, framkvæmdastjóri KKÍ.
Upprunalega hugmyndin var
að hækka gjaldið í 200.000 kr. en
félögin sammæltust um að hafa
það slétt 100.000.
„Við erum líka nýbyrjaðir að
rukka 10 þúsund fyrir innlenda
leikmenn en það gjald hafði verið
5.000 kr. frá því að elstu menn
muna.“
Þó svo að félagaskiptagjald-
ið hafi hækkað hefur komum
erlendra körfuboltamanna lítið
fækkað.
„Ég hef heyrt það frá félögunum
að launin til erlendra leikmanna
hafi lækkað. Svona miðað við það
sem ég heyri þá er mjög almennt
að þessir erlendu leikmenn séu
að fá tæplega 200 þúsund krón-
ur í mánaðarlaun. Einhverjir eru
kannski að fá aðeins meira,“ segir
Friðrik en viðurkennir þó að það
hafi komið fyrir að leikmenn hafi
verið að fá um 350-400 þúsund
krónur. Það sé þó búið núna eftir
því sem hann viti best.
Leikmennirnir eru einnig að fá
frítt húsnæði og í flestum tilvik-
um einnig bifreið. Ekki er samt
óvenjulegt að tveir til þrír leik-
menn búi saman. Kostnaðurinn
sé því ekkert óyfirstíganlegur hjá
körfuknattleiksdeildunum.
Ólíkt umhverfi í fótboltanum
Félagaskiptagjaldið í fótboltanum
er langódýrast eða aðeins 2.000
kr. Skiptir þá engu hvort leikmenn
eru að skipta um lið innanlands
eða koma að utan.
Sú tala er aftur á móti ekki
marktæk því KSÍ er með stuðla-
kerfi fyrir leikmenn þar sem
grunngjald félagaskipta er 100.000
kr. Þegar leikmenn skipta um
félag verður þá annaðhvort að
greiða leiðbeinandi upphæð sam-
kvæmt reglum KSÍ eða komast
að samkomulagi. Þá getur verðið
bæði lækkað og hækkað.
Ef við tökum dæmi þá þurfti
Fylkir að greiða ÍBV að minnsta
kosti 300.000 kr. fyrir Finn Ólafs-
son samkvæmt reglugerð KSÍ en
Finnur var samningsbundinn ÍBV.
Liðin komust þó að samkomulagi
um kaupverð og sú tala kemur
aldrei inn á borð til KSÍ. Talan
gæti í raun verið hver sem er.
Að sama skapi á Fylkir heimt-
ingu á því að fá 100.000 kr. fyrir
Val Fannar Gíslason sem er
genginn í raðir Hauka. Þó svo
að Valur hafi verið samnings-
laus getur Fylkir neitað að skrifa
undir félagaskipti ef það fær ekki
greiðsluna. Einnig gátu liðin kom-
ist að samkomulagi um ákveðna
eða enga upphæð. Málin eru í raun
í höndum félaganna en reglur KSÍ
eru leiðbeinandi. Þó verður alltaf
að greiða að lágmarki 2.000 kr.
Þannig að þótt félagaskipta-
gjaldið svokallaða sé lágt geta
upphæðirnar vegna félagaskipta
á endanum orðið frekar háar.
Aðeins þarf þó að greiða 2.000 kr.
gjaldið fyrir leikmenn sem koma
að utan. henry@frettabladid.is
Það er allt vitlaust út af þessu
Gríðarlegur munur er á félagaskiptagjaldi í stóru íþróttunum þremur. Á meðan það getur kostað hátt í
hálfa milljón að fá mann að utan til Íslands í handboltanum er grunngjaldið í fótboltanum aðeins 2.000 kr.
KKÍ er nýbúið að hækka gjaldið vegna útlendinga en það er þó fjarri félagaskiptagjaldi HSÍ.
ÚTLENDINGAR Í ÚTRÝMINGARHÆTTU Haukamaðurinn Nemanja Malovic er aðeins
einn þriggja erlendra leikmanna í N1-deild karla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson lék
sinn fyrsta leik með danska liðinu
AG Kaupmannahöfn þegar hann
skoraði þrjú mörk í átta marka
sigri á Lemvig-Thyborøn í dönsku
úrvalsdeildinni í fyrrakvöld.
„Ég er rosalega ánægður. Þetta
var engin frábær frammistaða en
ég var bara ánægður að geta loks-
ins spilað,“ sagði Ólafur í viðtali
við heimasíðu AG.
„Ég tek einn leik í einu en leik-
æfingin kemur ekki fyrr en eftir
nokkra leiki. Mér líður mjög vel
núna og fæ vonandi að spila mikið
á næstunni. Þetta var fyrsta skref-
ið og nú er ég kominn á ferðina,“
sagði Ólafur, en það eru frábærar
fréttir fyrir íslenska karlalands-
liðið að landsliðsfyrirliðinn sé
kominn af stað á ný. Fram undan
er síðan Meistaradeildarleikur við
Ademar Leon um helgina. - óój
Ólafur Stefánsson hjá AG:
Fæ vonandi
að spila mikið
á næstunni
ÓLAFUR STEFÁNSSON Búinn að ná sér af
hnémeiðslunum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Körfubolti
Ísland:
Leikmenn yngri en 20 ára 1.000 kr.
Leikmenn eldri en 20 ára sem spila í
efstu deildum, 1 deildum og B-liðum
meistaraflokksliða 10.000 kr.
Erlendir leikmenn:
Samningsbundnir eða ósamningsbundnir
100.000 kr
FIBA Europe fær 40-50.000 kr. og KKÍ fær
afgang. Hluti af gjaldinu fer í landsliðs-
starf KKÍ.
Handbolti
Ísland:
Leikmenn sem fara á milli liða (rukkað
fyrir 18 ára og eldri og leikmenn sem eru
á samningi) 10.000 kr.
Samningsbundnir sem koma að utan:
HSÍ 42.500 kr.
EHF 196.700 kr.
Sérsamband þaðan sem leikmaður kemur
196.700 kr.
Samtals: 435.900 kr.
Samningslausir sem koma að utan:
HSÍ 42.500 kr.
EHF 64.000 kr.
Sérsamband þaðan sem leikmaður kemur
64.000 kr.
Samtals: 170.500 kr.