Fréttablaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 25.11.2011, Blaðsíða 64
25. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR48 sport@frettabladid.is VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 Hvar verður þú þegar margar af stærstu stjörnum golfheimsins, t.d. Rickie Fowler, Greg Norman, Adam Scott og Darren Clark, sigurvegari Opna breska 2011, mæta til leiks á Ástralska PGA meistaramótinu? Tryggðu þér áskrift! Föstudagur 2. hringur 16:30 endursýnt 2. hringur 21:30 endursýnt 3. hringur 01.00 BEINT Laugardagur 3. hringur 08:55 endursýnt 3. hringur 23:00 endursýnt 4. hringur 01.00 BEINT Sunnudagur 4. hringur 08:55 endursýnt 4. hringur 20:15 endursýnt snjótennur Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ. Sími 480-0000 · www.aflvelar.is - sala - varahlutir - þjónusta ÍSLENSKA KVENNALANDSLIÐIÐ í handbolta mætir Tékklandi í æfingaleik í Vodafone-höllinni á Hlíðarenda klukkan 19.30 í kvöld. „Við erum að fara inn í erfiða leiki á móti sterku liði og þetta er prófsteinn á liðið. Það er ótrúlega mikilvægt að leikmenn finni fyrir góðri stemningu hérna heima og ég vona að fólk fjölmenni á Hlíðarenda á bæði föstudag og laugardag. Að fara héðan eftir að hafa náð góðum leikjum á móti Tékkum fyrir framan fulla Vodafone-höll skiptir ótrúlega miklu máli,” sagði Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari. ÍÞRÓTTIR Það er alls ekki ókeypis fyrir íslensk handboltalið að fá erlendan leikmann til landsins. Handboltafélögin þurfa að greiða fáránlegar upphæðir til að fá leik- mann til landsins á meðan það kostar nánast ekki neitt í fótbolt- anum. Hátt í hálfa milljón króna kostar að fá samningsbundinn, erlendan handboltamann til lands- ins á meðan það kostar fastan 100 þúsund kall að fá erlendan körfu- boltamann. Þá á eftir að greiða flug fyrir leikmanninn, útvega honum bíl og íbúð sem og að greiða honum laun. Þessi álagning í handboltanum hefur skilað sér í því að aðeins þrír erlendir leikmenn spila í N1-deild karla sem stendur. „Það var Hassan Moustafa, for- seti IHF, sem sá til þess að þetta félagaskiptagjald var hækkað upp úr öllu valdi. Það er í raun og veru allt vitlaust yfir þessu,“ segir Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ, og er þar ekki bara að vísa til Íslands. Félög úti um alla Evrópu eru ósátt við þess- ar breytingar. „Ég var á fundi hjá Evrópusam- bandinu um daginn þar sem þetta mál var rætt. Þá vildu menn losa sig undan þessari ákvörðun IHF og taka upp gjald sem EHF ákveð- ur. Þetta mál er á borði lögfræð- inga og verið að skoða hvort EHF hafi leyfi til þess að breyta þessu.“ Hækkunin á félagaskiptagjaldi samningsbundinna erlendra leik- manna er 160.000 kr. en fyrir ósamningsbundna 40.000 kr. „Þetta er klárlega ekki að hjálpa íslenskum félagsliðum þar sem við erum með lélegan gjaldmiðil og liðin hafa lítið milli handanna eftir bankahrunið.“ Nýbúið að hækka hjá KKÍ KKÍ hækkaði gjaldið hjá sér fyrir erlenda leikmenn fyrir tímabilið upp í 100.000 kr. sem er helmings- hækkun. KKÍ var þess utan nánast ekki að taka neitt af gjaldinu í sinn rekstur fyrir þetta tímabil. „Það fóru áður um 90 prósent til FIBA Europe. Við vorum bara að taka nokkra þúsundkalla til okkar. Hugmyndin var síðan að nýta þessa peninga sem við tökum til okkar í landsliðsmálin. Það fara líklega 80 prósent af 50 þúsund kallinum sem við fáum í landsliðin en hitt fer í vinnuna,“ segir Friðrik Ingi Rún- arsson, framkvæmdastjóri KKÍ. Upprunalega hugmyndin var að hækka gjaldið í 200.000 kr. en félögin sammæltust um að hafa það slétt 100.000. „Við erum líka nýbyrjaðir að rukka 10 þúsund fyrir innlenda leikmenn en það gjald hafði verið 5.000 kr. frá því að elstu menn muna.“ Þó svo að félagaskiptagjald- ið hafi hækkað hefur komum erlendra körfuboltamanna lítið fækkað. „Ég hef heyrt það frá félögunum að launin til erlendra leikmanna hafi lækkað. Svona miðað við það sem ég heyri þá er mjög almennt að þessir erlendu leikmenn séu að fá tæplega 200 þúsund krón- ur í mánaðarlaun. Einhverjir eru kannski að fá aðeins meira,“ segir Friðrik en viðurkennir þó að það hafi komið fyrir að leikmenn hafi verið að fá um 350-400 þúsund krónur. Það sé þó búið núna eftir því sem hann viti best. Leikmennirnir eru einnig að fá frítt húsnæði og í flestum tilvik- um einnig bifreið. Ekki er samt óvenjulegt að tveir til þrír leik- menn búi saman. Kostnaðurinn sé því ekkert óyfirstíganlegur hjá körfuknattleiksdeildunum. Ólíkt umhverfi í fótboltanum Félagaskiptagjaldið í fótboltanum er langódýrast eða aðeins 2.000 kr. Skiptir þá engu hvort leikmenn eru að skipta um lið innanlands eða koma að utan. Sú tala er aftur á móti ekki marktæk því KSÍ er með stuðla- kerfi fyrir leikmenn þar sem grunngjald félagaskipta er 100.000 kr. Þegar leikmenn skipta um félag verður þá annaðhvort að greiða leiðbeinandi upphæð sam- kvæmt reglum KSÍ eða komast að samkomulagi. Þá getur verðið bæði lækkað og hækkað. Ef við tökum dæmi þá þurfti Fylkir að greiða ÍBV að minnsta kosti 300.000 kr. fyrir Finn Ólafs- son samkvæmt reglugerð KSÍ en Finnur var samningsbundinn ÍBV. Liðin komust þó að samkomulagi um kaupverð og sú tala kemur aldrei inn á borð til KSÍ. Talan gæti í raun verið hver sem er. Að sama skapi á Fylkir heimt- ingu á því að fá 100.000 kr. fyrir Val Fannar Gíslason sem er genginn í raðir Hauka. Þó svo að Valur hafi verið samnings- laus getur Fylkir neitað að skrifa undir félagaskipti ef það fær ekki greiðsluna. Einnig gátu liðin kom- ist að samkomulagi um ákveðna eða enga upphæð. Málin eru í raun í höndum félaganna en reglur KSÍ eru leiðbeinandi. Þó verður alltaf að greiða að lágmarki 2.000 kr. Þannig að þótt félagaskipta- gjaldið svokallaða sé lágt geta upphæðirnar vegna félagaskipta á endanum orðið frekar háar. Aðeins þarf þó að greiða 2.000 kr. gjaldið fyrir leikmenn sem koma að utan. henry@frettabladid.is Það er allt vitlaust út af þessu Gríðarlegur munur er á félagaskiptagjaldi í stóru íþróttunum þremur. Á meðan það getur kostað hátt í hálfa milljón að fá mann að utan til Íslands í handboltanum er grunngjaldið í fótboltanum aðeins 2.000 kr. KKÍ er nýbúið að hækka gjaldið vegna útlendinga en það er þó fjarri félagaskiptagjaldi HSÍ. ÚTLENDINGAR Í ÚTRÝMINGARHÆTTU Haukamaðurinn Nemanja Malovic er aðeins einn þriggja erlendra leikmanna í N1-deild karla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI Ólafur Stefánsson lék sinn fyrsta leik með danska liðinu AG Kaupmannahöfn þegar hann skoraði þrjú mörk í átta marka sigri á Lemvig-Thyborøn í dönsku úrvalsdeildinni í fyrrakvöld. „Ég er rosalega ánægður. Þetta var engin frábær frammistaða en ég var bara ánægður að geta loks- ins spilað,“ sagði Ólafur í viðtali við heimasíðu AG. „Ég tek einn leik í einu en leik- æfingin kemur ekki fyrr en eftir nokkra leiki. Mér líður mjög vel núna og fæ vonandi að spila mikið á næstunni. Þetta var fyrsta skref- ið og nú er ég kominn á ferðina,“ sagði Ólafur, en það eru frábærar fréttir fyrir íslenska karlalands- liðið að landsliðsfyrirliðinn sé kominn af stað á ný. Fram undan er síðan Meistaradeildarleikur við Ademar Leon um helgina. - óój Ólafur Stefánsson hjá AG: Fæ vonandi að spila mikið á næstunni ÓLAFUR STEFÁNSSON Búinn að ná sér af hnémeiðslunum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Körfubolti Ísland: Leikmenn yngri en 20 ára 1.000 kr. Leikmenn eldri en 20 ára sem spila í efstu deildum, 1 deildum og B-liðum meistaraflokksliða 10.000 kr. Erlendir leikmenn: Samningsbundnir eða ósamningsbundnir 100.000 kr FIBA Europe fær 40-50.000 kr. og KKÍ fær afgang. Hluti af gjaldinu fer í landsliðs- starf KKÍ. Handbolti Ísland: Leikmenn sem fara á milli liða (rukkað fyrir 18 ára og eldri og leikmenn sem eru á samningi) 10.000 kr. Samningsbundnir sem koma að utan: HSÍ 42.500 kr. EHF 196.700 kr. Sérsamband þaðan sem leikmaður kemur 196.700 kr. Samtals: 435.900 kr. Samningslausir sem koma að utan: HSÍ 42.500 kr. EHF 64.000 kr. Sérsamband þaðan sem leikmaður kemur 64.000 kr. Samtals: 170.500 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.