Fréttablaðið - 03.12.2011, Side 6
3. desember 2011 LAUGARDAGUR6
Styrkir til náms
og rannsókna
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar
auglýsir styrki til náms og rannsókna
á sviði umhverfis- og orkumála.
Til úthlutunar eru 58 milljónir króna.
Styrkir til nemenda í meistara- eða doktorsnámi
Styrkir til efnilegra nemenda sem áforma eða
stunda meistara- eða doktorsnám á sviði
umhverfis- eða orkumála.
Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og orkumála
Almenn rannsóknarverkefni á sviði umhverfis-
og orkumála. Styrkir eru veittir fyrir hluta þess
kostnaðar sem hlýst af vinnu sérfræðinga, þátttöku
meistara- og doktorsnema og öðrum útgjöldum.
Sérstaklega er hvatt til
umsókna sem stuðla að
því að minnka umhverfis-
áhrif jarðvarmavirkjana
með nýtingu eða förgun á
gastegundum og afrennsli.
Umsóknareyðublöð og
nánari upplýsingar er að
finna á www.landsvirkjun.is.
Fyrirspurnir má senda á
orkurannsoknasjodur@lv.is.
Umsókn ásamt fylgigögnum
skal skila rafrænt á
orkurannsoknasjodur@lv.is.
Umsóknarfrestur er til
9. janúar 2012. Öllum
umsóknum verður svarað
og farið með þær sem
trúnaðarmál.
www.landsvirkjun.is
Senn líður að jólum og fagnar FAAS því með árlegum jólafundi
sem að þessu sinni verður haldinn í safnaðarheimili Áskirkju
við Vesturbrún, fimmtudaginn 8. desember og hefst hann
kl. 20.00
Gestir fundarins verða:
• Svavar Knútur, söngvari/gítarleikari og lagasmiður
• Sr. Lena Rós Matthíasdóttir, prestur í Grafarvogssókn
• Ólafur Gunnarsson, rithöfundur sem les úr bók sinni
Meistaraverkið og fleiri sögur
• Vilborg Dagbjartsdóttir, ljóðskáld sem kynnir og les úr
ævisögu sinni Úr þagnarhyl
Félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til að
mæta. Allir eru hjartanlega velkomnir. Kaffi og smákökur verða
í boði FAAS
FAAS - Félag aðstandenda alzheimersjúklinga og annarra
skyldra sjúkdóma
SKÁK Tíu af efnilegustu skákmönnum þjóðarinnar
munu tefla fjöltefli við stórmeistarann Friðrik
Ólafsson í Hörpu í dag. Uppákoma þessi er á
vegum Skákskóla Íslands og Skákakademíu
Reykjavíkur.
Helgi Ólafsson, skólastjóri Skákskólans, segir í
samtali við Fréttablaðið að krakkanna bíði erfitt en
skemmtilegt verkefni að tefla við Friðrik.
„Hann er auðvitað stórmerkilegur skákmaður
eins og ferill hans sýnir. Hann varð fyrst Íslands-
meistari fyrir tæpum sextíu árum og varð
Norðurlanda meistari árið eftir. Hann náði hápunkti
ferilsins á árunum 1958 til 59 þegar hann komst
á áskorendamótið um heimsmeistara titilinn. Þar
mætti hann mönnum eins og Bobby Fischer, sem
var þá unglingur, Tal, Petrosjan og fleirum. Þessir
þrír urðu allir síðar heims meistarar, þannig að
þetta má kalla eins konar gullöld skáklistarinnar.“
Helgi segir Friðrik hafa haft mikil áhrif á sína
kynslóð, sem er skipuð mörgum stórmeisturum, en
Friðrik sjálfur hafi einnig notið góðs af afrekum
íslenskra sporgöngumanna í skákinni.
„Það voru margir góðir skákmenn hér á Íslandi
á tuttugustu öldinni en Friðrik er skákmaður
aldarinnar, á því er enginn vafi.“ Fjölteflið hefst
stundvíslega klukkan 13 og mun standa í um tvær
klukkustundir. Allir eru velkomnir að fylgjast með
krökkunum takast á við stórmeistarann. - þj
Skákmaðurinn Friðrik Ólafsson teflir fjöltefli við efnilega krakka:
Takast á við stórmeistarann
STÓRMEISTARI Friðrik Ólafsson mun mæta tíu efnilegum skák-
mönnum í fjöltefli í Hörpu á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRÉTTASKÝRING
Hvað er að gerast í ráðherraskiptum?
Enn er óvíst hvaða breytingar
verða gerðar á ríkisstjórninni.
Ljóst er að tilkynning um breyt-
ingar verður ekki gefin út fyrr en
í fyrsta lagi eftir samþykkt fjár-
laga, sem koma til þriðju umræðu
á þriðjudag. Eins líklegt er að ein-
hverjar vikur séu í breytingar.
Ýmsar hugmyndir hafa heyrst
um hvað í vændum sé. Stefnt hefur
verið að sameiningu ráðuneyta;
að skipta iðnaðarráðuneytinu upp,
sameina hluta þess umhverfis-
ráðuneyti í nýju umhverfis- og
auðlindaráðuneyti og hluta þess
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neyti í nýtt atvinnuvegaráðuneyti.
Afar hæpið er að í þessar breyt-
ingar verði farið til að mæta þeirri
kröfu að Jón Bjarnason víki úr
ráðherrastóli. Alþingi samþykkti
í haust breytingar á lögum um
stjórnarráð og þar var tillögu for-
sætisráðherra um að það væri í
hans valdi að sameina ráðuneyti
og koma nýjum á fót hafnað. Nú
þarf samþykkt Alþingis til þess.
Sá kvittur hefur komist á kreik
að vilji sé til þess að færa efna-
hags- og viðskiptaráðuneytið
undir fjármálaráðuneytið. Um það
gildir hið sama og hinar breyting-
arnar; samþykki Alþingis þarf til
þess. Allsendis óvíst er að meiri-
hluti sé fyrir slíkum breytingum,
ekki síst ef einhverjum verður
bolað óviljugum úr ráðherrastól-
um.
Hvað síðastnefndu hugmynd-
ina varðar virðist hún ekki komin
langt. Ljóst er að slíkar breytingar
væru fullkominn viðsnúningur á
stefnu ríkisstjórnarinnar svo sem
sjá má í stjórnarsáttmálanum:
„Til að tryggja markvissa
framkvæmd efnahagsaðgerða
stjórnvalda og endurnýja traust á
fjármálakerfi landsins mun ríkis-
stjórnin ráðast í skipulagsbreyt-
ingar í stjórnkerfinu, m.a. með
stofnun sérstaks efnahags- og við-
skiptaráðuneytis.“
Ljóst er að allur dráttur á
ákvörðun verður til þess að skapa
frekari óróa. Heimildarmenn
Fréttablaðsins töldu það ekki til
marks um mikinn skörungsskap
hjá formönnum flokkanna að
málið væri í jafn mikilli óvissu og
raun ber vitni.
Hugmyndir varðandi aflagn-
ingu efnahags- og viðskiptaráðu-
neytisins sýna, svo ekki verður
um villst, að skoðanir eru skipt-
ar innan Samfylkingarinnar, eins
og hjá Vinstri grænum. Þær þykja
aðför að Árna Páli Árnasyni, enda
yrði ráðuneyti hans lagt af. Þá er
hægri armur flokksins í ýmsu
orðinn leiður á þeim vandræðum
sem fylgja stjórnarsamstarfinu og
er farinn að velta öðrum kostum
fyrir sér. kolbeinn@frettabladid.is
Deilt innan beggja
flokka um ráðherra
Engar ákvarðanir hafa verið teknar um uppstokkun í ríkisstjórn. Innan beggja
flokka eru deilur um næstu skref. Eigi að sameina ráðuneyti og búa til nýtt þarf
samþykki þingsins. Ekkert verður tilkynnt fyrr en eftir samþykkt fjárlaga.
EFTIR KOSNINGAR Fjölmargar breytingar hafa verið gerðar á ráðherraliði stjórnar-
flokkanna. Menn hafa komið og farið og jafnvel komið aftur og ráðuneyti hafa verið
sameinuð undir einn hatt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UMHVERFISMÁL Fyrsti jarðvangurinn,
Katla-jarðvangur, fékk í byrjun sept-
ember inngöngu í Evrópusamtök jarð-
vanga (European Geoparks Network)
og í alþjóðasamtök jarðvanga hjá Sam-
einuðu þjóðunum (UNESCO Global
Geopark Network). Svæði jarðvangs-
ins er Rangárþing eystra, Mýrdals-
hreppur og Skaftárhreppur. Undir-
búningur stóð yfir í tvö ár.
Þetta er meðal þess sem rætt verð-
ur rætt á fræðslu- og umræðufundi
í dag í félagsheimilinu Breiðabliki í
Eyja- og Miklaholtshreppi. Tilefnið
er að í aðalskipulagi Eyja- og Mikla-
holtshrepps og aðalskipulagi Helga-
fellssveitar fyrir sama tímabil eru
hugmyndir um stofnun jarðvangs í
sveitarfélögunum. Þá verður einnig
sagt frá undirbúningi að stofnun Jarð-
vangs á Reykjanesi.
Hugmyndafræðin að baki jarðvöng-
um er áhersla á jarðfræðilega fjöl-
breytni, sögu og menningu tiltekins
svæðis, sem kalla má samþættingu
mannlífs og náttúru. Áhersla er lögð
á sjálfbærni, varðveislu fornminja og
náttúru minja og öflugt atvinnulíf, sér-
staklega ferðamennsku.
Nú hafa verið stofnaðir 87 jarð-
vangar í 27 löndum og þeim fjölgar
hratt um allan heim. - shá
Tvö sveitarfélög á Snæfellsnesi hafa hugmyndir um stofnun jarðvangs inni á aðalskipulagi:
Katla-jarðvangur viðurkenndur alþjóðlega
FRÁ SNÆFELLSNESI
Hugmyndir um stofnun
jarðvangs verða ræddar í
dag í Breiðabliki.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ert þú búin(n) að setja upp
jólaskraut?
Já 61%
Nei 39%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Tekur þú strætó?
Segðu skoðun þína á Visir.is.
KJÖRKASSINN