Fréttablaðið - 03.12.2011, Side 8

Fréttablaðið - 03.12.2011, Side 8
3. desember 2011 LAUGARDAGUR8 * Gildir á meðan birgðir endast. Þú kemst í samband við jólaandann Þín ánægja er okkar markmið vodafone.is Frábær tilboð á snjöllum símum Samsung Galaxy W 64.990 kr. staðgreitt eða 5.416 kr. á mánuði í 12 mánuði Fjölskyldu ALIAS fylgir * LG Optimus Hub 39.990 kr. staðgreitt eða 3.333 kr. á mánuði í 12 mánuði Fjölskyldu ALIAS fylgir *og 2.000 kr. inneign á Tónlist.is i i i i . 1. Hvaða fjárfestingarfélag átti félagið Rákung? 2. Hvaða land heimsótti Hillary Clinton á fimmtudag og föstudag? 3. Hver fékk Litla fuglinn fyrir stuðning sinn við íslenska tónlist á fimmtudag? SVÖR 1. Milestone, félag Karls og Steingríms Wernerssona. 2. Búrma. 3. Þorgeir Ástvaldsson. DÓMSMÁL Dómari Héraðsdóms Reykjavíkur, Arngrímur Ísberg, hafnaði í gær að loka þinghaldi til hlífðar sakborningnum Agné Krataviciuté, sem ákærð er fyrir að hafa veitt nýfæddum syni sínum tvo skurðáverka á andlit með bit- vopni og banað honum síðan með því að þrengja að hálsi hans uns hann lést af völdum kyrkingar. Þetta átti sér stað laugardaginn 2. júlí 2011 á vinnustað konunnar, Hótel Fróni í Reykjavík. Í ákærunni segir enn fremur að þar hafi hún fætt fullburða og lif- andi sveinbarn sem síðan fannst dáið í ruslageymslu í nágrenni hótelsins. Verjandi konunnar hafði krafist þess að þinghaldið yrði lokað, en dómarinn tekið sér frest til að taka ákvörðun. Hann hefur nú ákveðið að þinghaldið skuli vera opið á þeirri forsendu að ekki séu rök til að víkja frá meginreglunni um að þinghald í sakamálum skuli opið. Öllum sé erf- itt að sitja sem sakborningar í þing- höldum og ekki hafi verið færð fram nein rök fyrir af hverju ætti að hlífa þessum sakborningi umfram aðra. Verjandi konunnar kærði ákvörðun ina til Hæstaréttar. - jss Verjandi kærði ákvörðun dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur til Hæstaréttar: Kröfu um lokað þinghald var hafnað DÓMSALUR Sakborningur ásamt verjanda sínum á leið í dómsal. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM REYKJAVÍKURBORG Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ætlar að taka tuttugu milljóna króna lán til að kaupa aðgangs- stýrikerfi svo unnt verði að taka gjald í bílakjallaranum undir Höfðatorgi. Borgin ætlar að selja sínu starfsfólki aðgangskort á sama verði og gildir í bílakjallara Ráðhússins. „Þannig næst meira jafnræði og eins er með þessu framfylgt samgöngustefnu Reykjavíkur- borgar varðandi aukna gjald- skyldu á stæðum,“ segir í greinargerð með tillögunni sem borgarráð samþykkti á fimmtudag með fyrirvara um að samkomulag næðist við aðra rekstrar aðila Höfðatorgs. - gar Gjald í bílakjallara Höfðatorgs: Aðgangsstýring á 20 milljónir HÖFÐATORG Borgin vill gjaldtöku í bílakjallarann. UMHVERFISMÁL Bleikjuveiði á veitu- leið Blönduvirkjunar er að meðal- tali fimm til átta sinnum minni en í viðmiðunarvötnum á sömu slóðum. Fiskurinn er jafnframt mun minni vegna breytinga á æti. Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri skýrslu Veiðimála stofnunar sem þau Guðni Guðbergsson og Eydís Heiða Njarðardóttir eru skrifuð fyrir, en áhrif virkjunar- framkvæmdanna hafa verið metin með vöktun bleikjustofna um langt árabil. Guðni, sem er sviðsstjóri auðlinda sviðs VMST, metur niður stöðurnar sem svo að þróun lífríkis ins sé eins og við var búist. Vitað hafi verið að með virkjunar- framkvæmdum yrði breyting. „Rannsóknin miðaði að því að kom- ast að því hvert hið nýja ástand væri,“ segir Guðni. Við virkjun Blöndu, sem er jökulá, var Blöndulón myndað árið 1991 en það er um 56 fer kílómetrar að stærð og með þrettán metra miðlunarhæð. Þaðan er miðlað að jafnaði 39 sekúndulítrum af vatni um veituleið sem breytti nokkrum tærum stöðuvötnum í vötn með gegnumstreymi jökulvatns. Guðni útskýrir að þegar gruggugu jökulvatni sé veitt í tært heiðar vatn nái ljós styttra niður og frumframleiðsla verði minni. „Þegar heil á eins og Blanda rennur í gegnum þessi vötn verður einnig töluverð útskolun.“ Í skýrslunni kemur fram að fisk- magn varð fljótt mikið í Blöndu- lóni, en fimm árum eftir myndun þess fór vaxtarhraði bleikju og stærð við kynþroska að minnka. Þær breytingar sem urðu með til- komu Blönduvirkjunar hafa í flestu verið svipaðar því sem sést hefur í öðrum miðlunarlónum með svip- aðar aðstæður hér á landi. Þá segir Guðni að þessar niðurstöður geti nýst síðar við að spá fyrir um áhrif framkvæmda á borð við virkjanir, sem sé afar mikilvægt, sérstak- lega á tímum þegar allmiklar um- ræður hafi verið um áhrif vatnafls- virkjana á lífríki. Í einu af viðmiðunarvötnunum utan veituleiðar, Mjóavatni, hefur verið fylgst með bleikjustofninum frá 1988 og hafa breytingar komið fram í stofnstærð og samsetningu bleikjustofnsins á þeim tíma. „Það er mjög dýrmætt að hafa þessi gögn, ekki síst á tímum þegar breytingar eru að verða eins og hnattræn hlýnun. Hér höfum við viðmið um hvernig þetta hefur þró- ast á breytingartímum. Samfelld vöktun lífríkis er afar mikilvæg til þess að nema og skilja breyt- ingar sem verða og til að aðgreina áhrif framkvæmda og náttúru- legra breytinga.“ svavar@frettabladid.is Blönduvirkjun hafði mikil áhrif á bleikjustofna vatna Eins og búist var við hafa bleikjustofnar á veituleið Blönduvirkjunar látið mjög á sjá. Rannsóknir á svæðinu nýtast afar vel við mat á áhrifum annarra virkjana. Hliðarafurðir rannsókna eru mjög forvitnilegar. BLANDA Á YFIRFALLI Sem laxveiðiá breyttist Blanda mikið til batnaðar þegar hún var virkjuð. Nú er oft talað um veiði fyrir og eftir yfirfall í Blöndulóni, en þá litast Blanda og verður erfið til stangveiða. MYND/JÓNAS SIGURGEIRSSON REYKJAVÍK Suðurgata í Reykja- vík verður áfram einstefnugata fyrir akandi umferð til suðurs frá Kirkjugarðsstíg að Skothúsvegi. Hjólandi umferð verður á sér- stökum hjólastíg sem hefur verið afmarkaður austan megin á göt- unni. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar komst að sam- komulagi við lögreglu um loka- framkvæmdir götunnar í gær, að því er fram kemur í tilkynningu frá borginni. Umferðareyjum verður komið fyrir og merkingar bættar. - sv Samkomulag við lögreglu: Suðurgata helst einstefnugata VEISTU SVARIÐ?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.