Fréttablaðið - 03.12.2011, Side 42
3. desember 2011 LAUGARDAGUR42
M
enn hafa áskap-
aða hæfileika
til máltöku í
æsku, enda á
mannlegt mál
sér líffræðileg-
ar forsendur. Í vinstra heilahveli
eru sérhæfðar málstöðvar sem sjá
um mismunandi þætti móðurmáls-
ins. Þessar málstöðvar þarf að
örva á tilteknu tímaskeiði til þess
að máltakan gangi eðlilega fyrir
sig. Máltökuskeið manna hefst á
síðustu vikum meðgöngu, þegar
fóstrið fer að heyra, og því lýkur
þegar börn komast á kynþroska-
aldur. Börn eru hins vegar lang-
næmust í upphafi máltökuskeiðs-
ins, fram til um sex ára aldurs.
Sigríður Sigurjónsdóttir, pró-
fessor við Íslensku- og menn-
ingardeild Háskóla Íslands, telur
mikilvægt að ung börn hafi góðar
málfyrirmyndir, hvort sem litið
er til heimilis eða skóla, og fái
nauðsynlega málörvun. „Við erum
aldrei jafn móttækileg fyrir máli
eins og á þessum fyrstu sex árum.
Við búum að þeirri tilfinningu,
sem þróast með okkur á þessum
árum, alla ævina. Máltækið „lengi
býr að fyrstu gerð“ á vel við hér.
Það gildir hvort sem við erum að
tala um að reisa hús eða leggja
grunn að málkennd barna. Mál-
notkunin sem barn elst upp við
á fyrstu sex árunum mótar mál-
kennd þess fyrir lífstíð.“
Börn sem eru heilbrigð og eiga í
samskiptum við fullorðna ná valdi
á máli, að því er virðist ósjálfrátt
og án nokkurrar fyrirhafnar. Það,
hversu góðir málnotendur þau
verða, fer hins vegar eftir mál-
uppeldinu sem þau hljóta. „Gott
máluppeldi veltur að miklu leyti á
því hversu mikinn tíma við gefum
börnunum okkar. Lykilatriði til
þess að örva þau eru gagnkvæm
samskipti í samtölum, þar sem
barnið talar og sá fullorðni bregst
við með því að umorða eða endur-
segja það sem barnið sagði. Að
lesa fyrir börn og ræða við þau um
það efni sem lesið er, eflir einnig
málþroska barna. Samskipti er
lykilhugtak.“
Áhrif tungunnar á heilann
Eftir því sem rannsóknum á sviði
málvísinda fleygir fram kemur
betur í ljós hversu djúpstæð
áhrif tungumálið hefur á fólk.
Það hefur alvarlegar afleiðingar
ef máltaka móðurmáls gengur
ekki sem skyldi. „Það er margt
sem bendir til þess að máltakan
sjálf hafi áhrif á heilann, svo sem
verkaskiptingu heilastöðva. Það
hefur lengi verið þekkt að ef eitt-
hvað kemur fyrir málstöðvarnar í
vinstra heilahveli hefur það áhrif
á máltökuna. En þessu má einnig
snúa við. Ef eitthvað kemur fyrir
máltökuna, við fáum til dæmis
ekki nauðsynlega málörvun eða
eigum ekki samskipti við fólk á
máltökuskeiðinu, þá hefur það
bein áhrif á gerð heilans.“
Mikið sjónvarpsáhorf er einn
utanaðkomandi þátta sem virð-
ist geta truflað málþroska barna.
„Á mörgum heimilum er alltaf
kveikt á sjónvarpinu. Erlendar
rannsóknir benda til að börn sem
horfa og hlusta mikið á sjónvarp
séu seinni til máls en jafnaldrar
þeirra. Börn yngri en tveggja ára
virðast ekkert græða á því í mál-
þroska að horfa á sjónvarp og það
er jafnvel hætta á að það valdi
þeim skaða,“ segir Sigríður.
Þegar kveikt sé á sjónvarpi,
með hljóðinu á, tali börn og full-
orðnir minna saman og börnin fá
minna mállegt áreiti. Að þessu
sögðu tekur Sigríður fram að börn
sem eru eldri en tveggja ára geti
lært ný orð af sjónvarpi, sérstak-
lega ef þau horfa á sjónvarpsefni
sem miðast sérstaklega við þeirra
aldurshóp og er gert til að auka
orðaforða þeirra.
Mikilvægustu kennararnir
Þar sem börn eru næmust á
fyrstu sex árum ævinnar má
auðveldlega færa fyrir því rök að
leikskólakennarar séu mikilvæg-
ustu móðurmálskennarar barna,
í það minnsta þegar kemur að því
að efla málkennd og máltilfinn-
ingu þeirra. „Í rauninni má segja
að framtíð íslenskrar tungu velti
á þessum fyrstu árum,“ segir Sig-
ríður. Hún segir skjóta skökku við
að í núverandi skipulagi fái leik-
skólakennaranemar ekki næga
kennslu í íslensku máli og mál-
notkun. Þá sé áhyggjuefni hversu
stór hluti starfsmanna á leikskól-
um hafi ekki íslensku að móður-
máli. „Auðvitað er gott að leik-
skólar landsins nýti þann auð
sem felst í starfsfólki af erlend-
um uppruna. Það kynnir börn-
unum aðra menningu og tungu-
mál. En til þess að ung börn nái
góðum tökum á íslensku verða
þeir sem móta málkennd barna á
þessum tíma, þegar þau eru hvað
móttækilegust, að tala íslensku.
Út frá þessu sjónarmiði má segja
að meginþorri starfsmanna á leik-
skólum verði að hafa íslensku að
móðurmáli.“
Þessi fyrstu ár eru líka mikil-
væg þegar kemur að því að læra
að lesa. „Móðurmálið sprettur
fram sjálfkrafa, en það gegnir
öðru máli um lestur. Við tileink-
um okkur ekki lestur á sama hátt
og talmál. Þegar börn læra að lesa
búa þau að þeirri málkunnáttu og
málskilningi sem þau hafa þegar
tileinkað sér. Rannsóknir sýna að
þegar börn eru að byrja að læra
að lesa geta þau ekki lesið orð sem
þau skilja ekki. Þess vegna er svo
mikilvægt að það sé unnið mark-
visst að því í leikskólum að byggja
upp orðaforða ungra barna og efla
málskilning þeirra. Leikskóla-
kennarar gegna þarna lykilhlut-
verki. Þeir þurfa að þekkja mál-
kerfið og vita hvernig máltaka
barna gengur fyrir sig, til að geta
örvað málþroska barna á frjóan
og skapandi hátt.“
Áhyggjur af íslenskunámi
Íslenskukennarar við Háskóla
Íslands sendu nýlega frá sér
ályktun, þar sem þeir hvöttu til
þess að fylgt verði eftir tillög-
um Íslenskrar málnefndar um
að hlutur íslenskukennslu verði
aukinn í menntun kennara. Í
íslenskri málstefnu, sem var sam-
þykkt á Alþingi árið 2009, var
komið inn á mikilvægi þess að
leik- og grunnskólakennarar séu
góðar málfyrirmyndir og þeir fái
nauðsynlega kennslu í íslensku í
kennaranámi sínu. Árið 2007
voru gerðar breytingar á skipu-
lagi grunnskólakennaranáms
þar sem íslenska var tekin út úr
kjarna námsins. Eins og staðan
er nú geta grunnskólakennara-
nemar, sem ekki velja íslensku
sem kjörgrein, fengið full kenn-
araréttindi, án þess að hafa tekið
nokkurt íslenskunámskeið. Þeir
hafa þó réttindi til að kenna hvað
sem er, þar með talið íslensku,
upp í 10. bekk.
Sigríður stendur fyllilega á
bak við ályktunina. „Uppeld-
is- og kennslufræðin er orðin
svo ríkjandi í kennaranámi,
með þeirri stefnu að það eigi að
mennta kennara til að kenna. Það
er að sjálfsögðu mjög mikilvægt.
En það segir sig sjálft að kenn-
arar verða að hafa nauðsynlega
málfræðiþekkingu til að geta
miðlað henni áfram til nemenda
og eflt færni þeirra í móðurmál-
inu. Þess vegna skiptir ekki síður
máli að faggreinin sé kennd.
Íslenska er þjóðtunga okkar.
Þetta er í raun og veru spurn-
ing um hvort við ætlum að tala
íslensku í framtíðinni eða ekki.“
Fyrstu sex árin mikilvægust
Segja má að leikskólakennarar séu mikilvægustu móðurmálskennarar barna, að mati Sigríðar Sigurjónsdóttur, prófessors við
Íslensku- og menningardeild HÍ. Sigríður útskýrði fyrir Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur hvernig grunnurinn er lagður að mál-
tilfinningu barna strax á síðustu mánuðum í móðurkviði og fram til sex ára aldurs. Þetta séu lykilárin í málþroska barna.
SIGRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR Leikskólakennarar og aðrir sem koma að máluppeldi barna þurfa að vita hvernig máltaka barna
gengur fyrir sig, að mati Sigríðar Sigurjónsdóttur, prófessors við Íslensku- og menningardeild HÍ. Aðeins þannig geti þeir örvað
málþroska barnanna á frjóan og skapandi hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1. Talaðu mikið við barnið þitt
Mikilvægt er að gefa sér tíma til að
tala við börn um það sem þeim
liggur á hjarta. Lykilatriði í því að
örva málþroska barna er að skiptast
á orðum við þau í samtali, þar sem
barnið talar og sá fullorðni bregst við
með því að umorða eða endursegja
það sem barnið sagði. Slík endur-
gjöf virðist skila mestum árangri
þegar hún miðast við þroskastig
barnsins. Til dæmis þegar barn
segir: „Hundurinn hlaupti“ svarar sá
fullorðni með því að segja: „Hvað
segirðu, hljóp hundurinn?“
2. Lestu bækur fyrir og með
barninu
Að lesa bækur fyrir börn sem hæfa
þroska þeirra og áhugasviði er
áhrifaríkt máluppeldi. Það er hins
vegar ekki nóg að lesa, heldur
þarf að staldra við iðulega, ræða
við barnið um efni bókarinnar og
útskýra þau orð sem það ekki skilur.
Það er ekki síður mikilvægt að halda
áfram að lesa fyrir börn eftir að þau
eru sjálf orðin læs. Þá má lesa fyrir
þau bækur á erfiðara máli en þau
ráða við sjálf. Orðaforði barna eykst
þegar lesið er fyrir þau.
3. Slökktu á sjónvarpinu
Erlendar rannsóknir sýna að börn
sem horfa og hlusta mikið á sjón-
varp eru seinni til máls en jafnaldrar
þeirra. Börn eldri en tveggja ára
geta að vísu lært ný orð af sjón-
varpi, en það sama á ekki við um
yngri börn og mikið sjónvarpsgláp
getur beinlínis skaðað málþroska
þeirra. Þegar kveikt er á sjónvarpi,
með hljóðinu á, tala foreldrar og
börn minna saman og mállegt áreiti
í umhverfi barnanna verður þar af
leiðandi minna. Þar sem samskipti
eru lykilatriði fyrir eðlilegan mál-
þroska er því farsælast að takmarka
sjónvarpsáhorf barna.
HVERNIG GETUR ÞÚ STUÐLAÐ AÐ GÓÐUM MÁLÞROSKA BARNSINS ÞÍNS?