Fréttablaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 48
3. desember 2011 LAUGARDAGUR48
S
vona lagað er fremur sjaldgæft
og oft mjög erfitt viðureignar,“
segir Ólöf Loftsdóttir, dýralæknir
á Dýraspítalanum í Víðdal. Ólöf er
ein þeirra sem gerði aðgerð á Kolku,
fimm mánaða gamalli border collie-
tík, í síðasta mánuði.
Ástæða þess að gera þurfti aðgerð á Kolku
var misvöxtur á beinum í öðrum framfætin-
um. Vaxtalína annarrar pípunnar í fætinum
lokaðist og þvingaði þannig vöxt hinnar píp-
unnar, sem sveigðist og byrjaði að afmynda
fótinn. Án aðgerðar hefði komið sífellt meiri
sveigja á beinið eftir því sem það stækkaði.
„Aðgerðin gekk út á að losa um þessa
spennu,“ segir Ólöf. „Við söguðum í sundur
pípuna sem var of stutt svo hin pípan geti rétt
úr sér. Vonandi hefur tekist að rétta þessa
afmyndun á framfætinum, en líklega gengur
þetta aldrei alveg til baka. Sennilega á Kolka
alltaf eftir að finna eitthvað fyrir þessu.“
Eigandi Kolku er Þórhildur María Bjarna-
dóttir, fimmtán ára nemi í Hvassaleitisskóla,
sem er mikill dýravinur og útilokar ekki að
leggja dýralækningar fyrir sig í framtíð-
inni. Bergþóra Arnarsdóttir, móðir Þórhildar
Maríu, segir dóttur sína ítrekað hafa beðið
um hund á heimilið síðustu ár, en sjálf segist
Bergþóra ekki sérlega mikil hundamanneskja.
„Ég var á leiðinni út í búð eitt kvöldið þegar sá
mjög fallegan hund og eigandi hans gaf mér
símanúmer hjá fólkinu sem hann fékk hund-
inn hjá. Daginn eftir skelltum við okkur upp í
Hvalfjörð og þá kom þessi litli engill hlaupandi
beint í fangið á okkur og knúsaði. Það var ást
við fyrstu sýn, því hún Kolka er alveg yndis-
leg. Eftir aðgerðina líður henni vel þótt hún
verði líklega alltaf örlítið hölt, en Kolka bætir
það bara upp með öllu öðru,“ segir Bergþóra.
ÞOLINMÓÐ „Kolka er mikil félagsvera. Hún heilsar öllum og leikur sér oft við læðuna Lúffu sem dvelur
stundum á heimili okkar. Stundum hleypur Lúffa upp í tré og þá skælir Kolka,“ segir Bergþóra Arnarsdóttir.
UNDIRBÚNINGUR Dýralæknarnir Ólöf Loftsdóttir og Katrín Harðardóttir búa sig undir að létta Kolku lífið.
Alls starfa sex dýralæknar á Dýraspítalanum í Víðidal og auk þess fjórir aðstoðarmenn.
Í VÍÐIDAL Jóhanna Íris Hjaltadóttir, aðstoðarmaður á Dýraspítalanum, tók vel á móti Kolku þegar hún kom í aðgerðina.
Kolka í
aðgerð
Kolka, fimm mánaða gömul
tík, þjáðist vegna misvaxtar á
beinum í framfæti og gekkst
undir aðgerð á Dýraspítalan-
um í Víðidal. Anton Brink ljós-
myndari fylgdi henni þangað.
FRAMHALD Á SÍÐU 50
Fleiri myndir má sjá á visir.is
RÝNT Í MYNDIRNAR Dýralæknarnir ráða ráðum
sínum yfir röntgenmynd af framfæti Kolku, en mis-
vöxtur beina hamlaði eðlilegum vexti.