Fréttablaðið - 03.12.2011, Síða 54
KYNNING − AUGLÝSINGSpjaldtölvur og myndavélar LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 20114
Sumir eru á því að sjón-varps- og útvarpsstöðvar muni heyra sögunni til um
miðja öldina. Fólk muni sjálft setja
saman eigin dagskrá og hlaða
niður í sjónvarp eða tölvu ásamt
bókum, tímaritum og dagblöðum
sem verða ekki lengur til á prent-
tæku formi.
Ökumenn eru í síauknum mæli
farnir að nota staðsetningartæki í
bíla sem vísa þeim veginn. Í fram-
tíðinni er talið að tölvur muni ekki
aðeins segja ökumönnum til vegar
heldur bókstaflega stýra bifreið-
um sem eigi eftir að fyrirbyggja
umferðarslys. Hvað samgöng-
um viðvíkur er jafnframt talið að
fólk muni ferðist um í tölvustýrð-
um geimflugvélum á ógnarhraða
milli áfangastaða.
Vélmenni munu leysa fólk af
hólmi í verksmiðjum framtíðar-
innar. Eigendur sjá marga kosti við
nýju „starfskraftana“ enda litlar
líkur á að þeir fari fram á launa-
hækkun eða í verkfall
auk þess að vinna
sleit ulaust a l lan
sólar hringinn.
Um miðja öld
verða vélmenni
jafnframt alls
staðar sýni-
leg, ekki að-
eins í verk-
smiðjum
heldur á spítöl-
um, í skólum, versl-
unum og á vel-
flestum heimil-
um.
Heyrnar-
tæki hafa
verið á markaði um nokkurt skeið
og er talið að á næstu áratugum líti
dagsins ljós betrumbættar græjur
sem hjálpi heyrnarlaus-
um að öðlast fullkomna
heyrn. Sömu sögu verð-
ur að segja um
sjónskerta og blinda sem sjá með
til þess gerðum hjálpartækjum.
Sýndarveruleiki verður ríkjandi
og reiðir ekki eingöngu á mynd og
hljóð eins og þekkist heldur einn-
ig lykt og áferð. Þannig munu
notendur beinlínis geta lyktað
og snert á því
s e m f y r i r
augu ber og
þannig öðlast
sýndarveruleiki
aðra og dýpri merk-
ingu.
Lífið eftir hálfa öld
Ýmsir spekúlantar eru farnir að spá fyrir um hvernig líf á jörðinni komi til með að verða
eftir um hálfa öld. Margir eru á því að í samfélagi framtíðar muni menn reiða sig enn
frekar á tölvur og tækni sem hafi þá tekið örum framförum.
Sjónvarpsefni verður hlaðið beint niður í tölvu og sjónvarpsstöðvar heyra sögunni til.
Vélmenni munu ganga í ýmis störf.
FRÉTTUNUM DREIFT MEÐ MYNDSÍMA
Æ algengara verður að myndskeið sem nást á myndsíma séu fyrstu
fréttamyndirnar sem sendar eru út þegar stórviðburðir eiga sér stað.
Jarðskjálftarnir við Indlandshaf árið 2004 voru fyrsti stórviðburð-
urinn sem sýndur var með myndskeiðum úr myndsímum
í fréttum um allan heim og það markaði þáttaskil þar
sem stórfréttir voru nú ekki skjalfestar af atvinnumönn-
um heldur stuðst við upptökur hins almenna borgara.
Síðan hefur notkun slíkra myndskeiða orðið nánast dag-
legur viðburður í fjölmiðlum, en eitt af eftirminnilegustu
myndskeiðunum er aftaka Saddams Hussein,
sem vörður tók upp án leyfis á símann
sinn og dreifði á internetinu. Vörðurinn
var reyndar handtekinn nokkrum
dögum síðar, en skaðinn var
skeður og myndskeiðið fór
sem eldur í sinu um net-
heima.
FRÆGUSTU LJÓSMYNDIR SÖGUNNAR
Alveg eins og til eru nokkrar kvikmyndir sem taldar eru hvað þekktastar
í heiminum eru til ljósmyndir sem hafa náð augum heimsbyggðarinnar.
Þetta eru myndir af öllum gerðum, allt frá því að vera þekktar fréttaljós-
myndir af stríðshrjáðum svæðum upp í glamúrmyndir af Hollywood-
stjörnum, svo sem Marilyn Monroe. Af nokkrum þekktum myndum
má nefna ljósmynd sem ljósmyndari National Geographic tók af 12 ára
gamalli afganskri stúlku árið 1984 og prýddi forsíðu blaðsins ári seinna.
Mynd sem tekin var af Albert Einstein árið 1951 hefur líka öðlast mikla
frægð en á henni þykist sjást vel hvernig snillingurinn leit á lífið og
afneitaði viðteknum hegðunarreglum. Þá er ljósmyndin sem prýddi
plötualbúm Bítlanna, Abbey Road, með þeim eftirminnilegustu. Á henni
sjást Bítlarnir ganga yfir gangbraut Abbey Road í London.
Margir minnast sjálfsagt með hlýhug bílsins úr
Back to the Future-myndunum. Sú bifreið var líka
tímavél en spekúlantar láta sér nægja að spá því
að tölvur muni stýra bílum framtíðarinnar.
Sýndarveruleiki öðlast dýpri
merkingu í framtíðinni.
FJÖLBREYTTIR MÖGULEIKAR
Spjaldtölvurnar þykja hafa opnað ýmsa möguleika í tölvunotkun.
Vegna þess hversu létt hún er, er auðvelt fyrir börn að halda á henni og
á lengri og styttri ferðalögum er hún til dæmis sniðug til að taka með
í handfarangri því bæði er hægt að spila myndbönd á henni, tónlist
og ýmis forrit. Þá eru margir
skemmtilegir þroskaleikir í
boði, bæði til að æfa þekkingu
barna á litum, formum, tölu-
stöfum og fleiru skemmtilegu.
Þá má koma sér notalega fyrir
við gluggann, jafnvel sitjandi á
gluggakistunni og semja ljóð
í afslappaðri stellingu með
útsýni jafnvel út á hafið.
BÓKIÐ AUGLÝSINGAR
TÍMANLEGA:
ÍVAR ÖRN HANSEN
S: 512 5429, GSM: 615 4349
ivarorn@365.is
NÓTTIN
VAR SÚ
ÁGÆT EIN
Sérblaðið OPIÐ 24/7 fylgir Frétta-
blaðinu mánudaginn 12. desember.
o.fl. o.fl.
sögur
uppskriftir
leikirgjafir