Fréttablaðið - 03.12.2011, Side 82
3. desember 2011 LAUGARDAGUR54
Friðrik Ómar og Jógvan Hansen
Barnalög fyrir börn á öllum aldri
Umslag: Ólöf Erla
„Eru ekki einhver ákvæði í barnalögum
um vernd gegn þessu?“ Stígur Helgason
„Þessi mynd er ofur fótósjoppuð. Mér
finnst það ekki passa fyrir börn. Það er
eitthvað krípí við þetta.“
Hildur Hermannsdóttir
„Var ekki hægt að ná af þeim mynd
þar sem þeir litu ekki út fyrir að vera
á leiðinni að bróka aumingja feita
strákinn í hinum bekknum?“
Kolbrún Björt Sigfúsdóttir
Björk Biophilia
Umslag: M/M (Paris)
„Björk er mannlegt sól-
kerfi. Hönnun, stílisering
og ljósmynd undirstrika
það.“
Gréta V. Guðmundsdóttir
„Íburðarmikill og fram-
andi klæðnaður og
hárkolla Bjarkar laða fram
sterka tilfinningu fyrir
undraheimi plötunnar.
Þetta er undirstrikað
með líkamstjáningu og
myndvinnslu. Hvítar svífandi doppur og skýjuð strik tengja
við geiminn (stjörnur, stjörnuþokur, stjörnuryk). Svartur
bakgrunnur innrammar glæsileikann.“ Jens Guð
Hjálmar Órar
Umslag: Bobby Breiðholt
„Umslag sem passar ekki
músíkinni – merkilega
ólífrænt umslag miðað
við hvað Hjálmar er
lífrænt band. Þetta fær
mann til að hugsa og það
er gott.“ Dr. Gunni
„Hjálmar leika sér meira
með hljóðgervla á
plötunni og umslagið er
því einstaklega viðeigandi.
Litirnir eru líka töff og
skipulögð hrúgan af rafrásum kemur vel út.“
Atli Fannar Bjarkason
Björgvin Halldórsson Gullvagninn
Umslag: Villi Warén
„Leturgerð og mynd spila illa saman.
Útkoman verður gamaldags og flöt.“
Gréta V. Guðmundsdóttir
„Ekkert sérlega slæmt, þannig séð. Ég
bara skil ekki af hverju það er mynd af
Agli Ólafssyni framan á umslaginu!“
Dr. Gunni
UMDEILDASTA UMSLAGIÐ
Gus Gus
Arabian Horse
Umslag: Paul McMenamin
„Hrikalega flott mynd, svalir litir og
frábær týpógrafía. Geðveikt umslag.“
Atli Fannar Bjarkason
„Það gæti verið vond hugmynd að
skella hrossi framan á plötu sem heitir
Arabian Horse. Það gæti líka verið
snilld.“ Kolbrún Björt Sigfúsdóttir
„Að ná augnsambandi við arab-
ískan gæðing utan á plötuumslagi er
hrikalega svalt eins og afurðin í heild
sinni. Glæsileg leturgerð og óheyrilegt
jafnvægi í myndbyggingunni, þó svo
að þar sé allt á iði. Myndin af hljóm-
sveitinni á bakhlið vínilútgáfunnar
er með þeim flottari og einstaklega
„erlendis“. Kristinn Pálsson
„Úff. Þetta er sjúklegt umslag. Mig
langar svo að eiga þennan hest þó ég
sé skíthrædd við skepnuna. Hann er
svo fallegur. Dramatískt umslag. Ég
elska dramatík.“
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Bestu og verstu plötuumslögin
Að gömlum og góðum sið fékk Fréttablaðið hóp valinkunnra andans manna til að velta fyrir sér kostum og göllum íslenskra
plötuumslaga sem komið hafa út á árinu. Fjölmörg umslög voru nefnd til sögunnar og niðurstöðurnar gefur að líta hér.
ÁLITSGJAFAR
Addi Knútsson,
veiðimaður og fram-
leiðandi
Arnór Bogason, graf-
ískur hönnuður
Atli Fannar Bjarka-
son, á Fréttablaðinu
Bertel Andrésson,
tónlistaráhugamaður
Bergþóra Jónsdóttir,
grafískur hönnuður
Dr. Gunni, tónlistar-
gagnrýnandi
Gréta V. Guðmunds-
dóttir, grafískur
hönnuður
Hildur Hermanns-
dóttir, grafískur
hönnuður
Jens Guð, grafískur
hönnuður
Jón Agnar Ólason, á
Morgunblaðinu
Kolbrún Björt Sigfús-
dóttir, tónlistaráhuga-
maður
Kristinn Pálsson, tón-
listaráhugamaður
Lilja Katrín Gunnars-
dóttir, ritstjóri
Rán Flygenring, graf-
ískur hönnuður
Stígur Helgason, á
Fréttablaðinu
Tryggvi Þór Hilmars-
son, grafískur hönn-
uður
Sykur
Mesópótamía
Umslag: Siggi Odds
„Flottasta umslagið í ár. Fallegt,
ágengt og ævintýralegt listaverk sem
gefur fyrirheit um spennandi, fjöl-
breytta og metnaðarfulla músík. Lita-
áferðin er þægilega mött.“ Jens Guð
„Einstaklega litríkt og hresst umslag
Sykur ættbálksins sem skilar vel
stemningu plötunnar. Loforð um
blússandi fíling og dansalgleymi.“
Bergþóra Jónsdóttir
„Svalastir í bransanum í dag, bæði
umbúðir og innihald.“ Addi Knútsson
„Þetta huggulega symmetríska
furðuportrett er dáleiðandi. Galdurinn
er í frekjuskarðinu.“ Stígur Helgason
Birgitta Haukdal Straumar
Umslag: Björgvin Guðnason
„Fótósjoppklisja með augljósum erlendum fyrirmyndum. Fær þó plús fyrir að
vera í samræmi við innihaldið.“ Tryggvi Þór Hilmarsson
„Frú Haukdal hádramatísk og slepjuleg í sjónum. Upp úr með hana, nýja letur-
gerð og fisk í sullið, þá væri þetta allavega fyndið.“ Rán Flygenring
„Heillandi kona en ekki eins heillandi umslag.“ Bertel Andrésson
„Æi nei.“ Kolbrún Björt Sigfúsdóttir
BESTA UMSLAGIÐ VERSTA UMSLAGIÐ
ANNAÐ SÆTI
ANNAÐ SÆTI
ÞRIÐJA SÆTI
ÞRIÐJA TIL FJÓRÐA SÆTI
Lay Low Brostinn strengur
Umslag: Bobby Breiðholt
Jafn margir álitsgjafar voru hrifnir og lítið hrifnir af umslagi plötu Lay Low.
„Einstaklega fallegt hulstur sem gefur tóninn fyrir tónlistina á plötunni. Lay
Low beinir sjónum að kveðskap annarra kvenna og því viðeigandi að athyglin
er dregin að bókinni á myndinni með því að hafa hana í afgerandi rauðum lit.
Myndbygging og áferð fyrsta flokks.“ Jón Agnar Ólason
„Mér finnst þetta eitt mest „boring“ plötuumslag sem ég hef séð lengi, sem er skítt því innihaldið er svo langt frá
því að vera „boring“. Söngkona með lokuð augu, haldandi á bók í svörtum sófa. Í alvöru? Var ekki hægt að finna eitthvað
betra? Þornuð málning máske?“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir