Fréttablaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 86
3. desember 2011 LAUGARDAGUR58
Krossgáta
Lárétt
1. Senda útlim kínversks veitingamanns til
ungmennis (7)
7. Fylgja dyn fjallsnafar á slóð skíthæls (7)
11. Last er ekki létt (8)
12. Gjörbylti rekstri sjoppa (9)
13. Kusum hann aldrei en sendum þrisvar
á Ólympíuleika þrátt fyrir innbyrðis
átök (10)
14. Uppnefna útigangsmann eftir núðlu (9)
15. Hinn fúli afþakkar með ljóði (8)
16. Skrapaði fléttu (4)
17. Kippur undir Hvalfjörð (6)
18. Gangið um bakdyrnar síðdegis (8)
23. Gift biður bæn (5)
24. Slyng, en fáið þó ekki flúið fjöllin
fyrir rest (8)
26. Ber bolann og apann (8)
28. Sveltu týpuna í eldamennskuna (12)
30. Þetta bar Gunnar litli í æsingnum (7)
32. Leita reglulegra, viðtekinna brota á
reglum (13)
35. Mikilvægust eru klúr og kviknakin
smáaldin (10)
36. Fikta við þetta gamla bras og finn blóm
fyrir ungviði (9)
37. Ráfa á rolluskít, það er
meðalvegurinn (10)
38. Rennifærið í færibandaframleiðslu (10)
Lóðrétt
1. Ganga hægt því taut truflar (8)
2. Snyrtum harðhaus með litlum skærum (12)
3. Er sælkerinn með tóman sælusekk? (15)
4. Skjótur riðlar skrauti úr strái (14)
5. Anna starfaði í skugga áminninga (9)
6. Öflugt mælitæki í þyngra lagi (9)
7. Hinn óviðeigandi óri um stund og stað (9)
8. Fjölmiðill sendi staðfestingu með
símbréfi (7)
9. Sæki plögg lon en ekki don (10)
10. Elti skyggna skutlu frá Skagaströnd upp á
fjall en dett í lokin (11)
19. Er sá stórskrítni afhuga vökva? (11)
20. Detox-meðferð felst í áti gimbrar í
fituflokki A (8)
21. Fyrirgefir þeim sem þú fangaðir fyrir
háttatíma (5)
22. Talandi il í eilífðarþrasi (7)
25. Sólarhringsmótið ræður úrslitum (10)
27. Óvitlaus merki fædd börn (9)
29. Greiningin sýnir að þetta er
rassfiskurinn (8)
31. Sætta sig við andvara ef þau fá stigið (7)
32. Óbeint farartæki ógnar konungi (6)
33. Borðaði allt, jafnvel augnkvilla (6)
34. Ylfa Björns rífur kjaft á barnum (5)
36. Hlæ upphátt að þessari auðveldu vís-
bendingu (3)
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
11
12 13
14
15
16
17 18 19 20 21
22 23
24 25
26 27
28 29
30 31
32 33
34
35
36
37
38
V Í S V I T A N D I Ó S K I L V Í S A
O Ú N N F E I R
R R N D S T É T T L K
K V Í A R N A R L L Ú Ð U L A K I
E N É G A Ö T R
N T A B G G S A B
N Á B Í T U R L A K J Ö R B Ú Ð
I L A G R Á B R Ó K K Ó S
Ó B T Ú L S Ú L A
H Á M E R I S Ö L V A F J A R A Ó
A S N A I G U Ð
S T R O K K I N N L S Ð G
K Ó U B A K G R U N N U R
A S M Á P O L L A R U Ó A Á
M A S I Á T R Ö S K U N T
M I N N I S M I Ð I V A T U
S D T P Í V E I F A R
Ý E Ó O R Ð R Æ Ð A N N
N A G L A L A K K Æ T A
I A L I Ð I Ð E N G I F E R
B L Ó Ð -
B A N K I N N
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist nokkuð sem
er á borðum fjölmargra Íslendinga þessa dagana. Sendið lausnarorðið fyrir 7.
desember næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „3. desember“.
Lausnarorð síðustu viku var
blóðbankinn.
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum
og fær vinningshafi
gjafakörfu frá Te og kaffi
að verðmæti 5.000 kr..
Vinningshafi síðustu viku
var Gunnur Ringsted,
Strandgötu 41, Akureyri.
Á þessum degi fyrir réttum 22 árum, hinn 3. desember árið 1989, urðu sannkölluð straumhvörf í samskiptum stórveldanna. George
Bush Bandaríkjaforseti og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtogi Sovétríkjanna,
gáfu þá út yfirlýsingar um að ósættið sem lá að baki kalda stríðinu
væri að mestu búið.
Margir hafa kallað þessar yfirlýsingar, sem komu í kjölfar fundar
leiðtoganna tveggja á Möltu, hin formlegu lok kalda stríðsins, þó að
engar formlegar samþykktir þess efnis hafi verið samþykktar.
Stórviðburðir höfðu átt sér stað í aðdraganda fundarins þar sem fall
Berlínarmúrsins bar hæst, kommúnistastjórnir í Tékkóslóvakíu og
Austur-Þýskalandi hrökkluðust frá völdum og Ungverjaland opnaði
landamæri sín til vesturs. Skömmu síðar var harðstjórinn Ceausescu
settur af í Rúmeníu og tekinn af lífi og Þýskaland var sameinað árið
eftir. Sovétríkin áttu svo eftir að liðast í sundur áður en langt um liði.
Þar áður höfðu Gorbatsjev og Ronald Reagan átt nokkra fundi,
meðal annars í Reykjavík, og samið um takmörkun á notkun meðal-
drægra kjarnaflauga.
Á blaðamannafundi sögðust Bush og Gorbatsjev hafa samið um enn
frekari afvopnun og fækkun í herliði í Evrópu. Bush sagði að stefnan
hafi verið tekin á samvinnu milli austurs og vesturs í stað átaka og
Gorbatsjev sagði að nýir tímar væru fram undan.
„Við erum nú við upphaf langrar vegferðar í átt að varanlegum friði.
Ógn um valdbeitingu, vantraust og átök, hvort sem þau eru sálfræðileg
eða hugmyndafræðileg, ættu að heyra fortíðinni til.“ - þj
Heimildir: BBC og History.com
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1989
Leiðtogarnir tveir boðuðu
endalok kalda stríðsins
Gorbatsjev og Bush sömdu frið milli stórveldanna á fundi á Möltu
EINTÓM HAMINGJA Fundur Mikaíls Gorbatsjev og George Bush við strendur Möltu
árið 1989 er talinn marka lok kalda stríðsins, enda var járntjaldið svo gott sem fallið.
NORDICPHOTOS/AFP