Fréttablaðið - 03.12.2011, Page 106

Fréttablaðið - 03.12.2011, Page 106
3. desember 2011 LAUGARDAGUR78 folk@frettabladid.is * Gildir á meðan birgðir endast. Jólaandinn er hjá Vodafone Þín ánægja er okkar markmið vodafone.is Frábær tilboð á snjöllum símum Samsung Galaxy Y 24.990 kr. staðgreitt eða 2.083 kr. á mánuði í 12 mánuði Fjölskyldu ALIAS fylgir * Nokia 700 59.990 kr. staðgreitt eða 4.999 kr. á mánuði í 12 mánuði Fjölskyldu ALIAS fylgir * Hlutverkum hefur verið víxlað í tískuheiminum þar sem ritstjórar tískutímarita eru farnir að prýða forsíður og ganga niður tískupallana. Hlutverk ritstjóra hinna ýmsu blaða og tímarita er meðal ann- ars að velja forsíðufyrirsætur og fjalla um hvaða fyrirsætur tísku- húsin velja í auglýsingaherferðir. Nú hefur hlutverkunum verið víxl- að, því allt í einu eru ritstjórarn- ir sjálfir komnir í hlutverk fyrir- sæta. Á ljósmyndum, forsíðum og jafnvel á tískupöllunum. Anna Dello Russo er fastagestur á síðum annarra blaða en hennar eigin, en hún er ritstjóri japanska Vogue. Dello Russo er fræg fyrir íburðarmikinn fatastíl og fékk H&M hana til að ganga tískupall- inn fyrir Lanvin-sýningu sína í fyrra. Einnig hefur fataskápur hennar, sem í eru um fjögur þús- und pör af skóm, verið myndaður bak og fyrir af ljós myndaranum fræga Juergen Teller fyrir W Magazine. Nú síðast sýndi Dello Russo sumarlínu fatamerkisins Ungaro á nýafstaðinni tískuviku í París. Ritstjóri bandaríska Vogue, Anna Wintour, hefur einnig gerst sek um að prýða forsíður annarra blaða en hún er nú á forsíðu nýja breska tímaritsins Industrie þar sem einnig má sjá ritstjóra Love, Katie Grand, inni í blaðinu. Kate Lanphear, tískuritstjóri breska Elle, er fyrirsætan í aug- lýsingaherferð skartgripafram- leiðandans Eddie Borgo. Þessa þróun í tískuheiminum má lík- lega rekja til tískublogganna en daglega má þar sjá myndir af rit- stjórum stærstu blaðanna með greinargóðri lýsingu á því hvaða merkjum þeir klæðast. Ritstjór- arnir Carine Roitfeldt, Emmanu- elle Alt hjá franska Vogue, Anna Wintour og Anna Dello Russo hafa tekið við sem tískufyrirmyndir og fyrirsætur dagsins í dag. alfrun@frettabladid.is Ritstjórar verða fyrirsætur TÍMAR Á SÓLARHRING starfsfólks söngkonunnar Rihönnu fara í að gæta heilsu hennar. Hún ku vera dauðþreytt eftir vinnutörn síðustu mánaða og þarf að vera undir eftirliti allan sólarhringinn. GENGUR VEL Stúlknasveitin The Charlies gaf nýverið frá sér svokallað mixteip með sex lögum sem hefur meðal annars lagst vel í MTV-bloggarann Bradley Stern. MYND/GRÉTAKAREN Tónlist íslensku stúlknasveitarinn- ar The Charlies hefur vakið eftir- tekt víða eftir að þær Klara, Alma og Steinunn sendu frá sér mixteip- ið Start a Fire í byrjun nóvember. Í vikunni útnefndi MTV blogg- arinn Bradley Stern lag sveitar- innar, Let That Body Breathe, sem eitt af lögum vikunnar. Stern nefnir fimm lög og eru stúlkurn- ar í The Charlies þar í hópi með Britney Spears, Rihönnu, bresku sveitinni The Saturdays og sænska dúóinu Rebecca og Fiona. Stern er hrifinn af öllum lög- unum á mixteipinu svokallaða, en það inniheldur sex lög með stúlk- unum, og tekur sérstaklega fram að honum þyki útgáfa sveitarinn- ar á laginu Yellow með Coldplay yndis legt. Vefsíðan Sosogay.org hefur einn- ig tekið ástfóstri við nýja tóna The Charlies og hvetur lesendur sína eindregið til að hlusta á mixteip- ið. Vefsíðan líkir tónlist The Char- lies við Britney Spears og segir að lag þeirra Monster (Eat Me!) sé svo gott að sjálf popp drottningin hefði átt að taka sér það til fyrir- myndar þegar hún gerði plötuna sína Femme Fatale. The Charlies eru því að fá góða viðtökur netverja en flest lögin þeirra eru unnin í samvinnu við íslenska upptökuteymið StopWa- itGo sem einnig er að hasla sér völl vestanhafs. Íslenskir aðdáendur sveitarinnar ættu ekki að örvænta því í samtali við Fréttablaðið fyrr í haust sögðust stúlkurnar ætla að eyða jólunum á Íslandi. - áp Líkja The Charlies við Britney Spears 24 Í SVIÐSLJÓSINU Anna Wintour, ritstjóri bandaríska Vogue (efst) prýðir forsíðu nýja breska tímaritsins, Industrie. Kate Lanphear ritstýrir tískuumfjöllun í breska Vogue en hún sat fyrir í auglýs- ingaherferð fyrir skartgripaframleið- anda. Ritstjóri japanska Vogue, Anna Dello Russo (t.h.) hefur gengið eftir tískupöll- unum fyrir bæði Ungaro og H&M. NORDICPHOTOS/GETTY
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.