Fréttablaðið - 03.12.2011, Blaðsíða 109
LAUGARDAGUR 3. desember 2011 81
Scarlett Johansson hefur viður-
kennt í viðtali við Cosmopolitan
að vinnuálagið hafi eyðilagt sam-
band hennar og Ryans Reynolds.
Þar að auki hafi hún ekki verið
reiðubúin til að færa þær fórnir
sem hjónaband krefjist.
Johansson og Reynolds slitu
samvistum í lok 2010 og gengu
frá skilnaðinum í júlí á þessu ári.
Hann vakti mikla athygli enda
voru hjónakornin ákaflega áber-
andi á meðal hinna ríku og frægu
í Hollywood.
„Sambönd eru flókin og að vera
í hjónabandi er samstarf. Ég var
ekki fyllilega meðvituð um allir
hæðirnar og lægðirnar og ég
var ekki reiðubúin til að takast á
við það síðarnefnda. Við höfðum
bæði ótrúlega mikið að gera og
vorum mikið í sundur,“ segir leik-
konan kunna.
Johansson sér hins vegar ekk-
ert eftir hinu stutta sambandi.
„Ég trúi á að þegar manni finnst
eitthvað rétt þá eigi maður að
gera það. Ég trúi á innsæið. Að
giftast var rétt því það kom
af sjálfu sér. Hjónabandið var
ávöxtur ástar og rómantíkur og
löngunar til að eiga framtíð með
einhverjum. Og ég var heppin að
giftast manni sem reyndist vera
nákvæmlega sá sem ég hélt að
hann væri.“
Vinnan eyðilagði allt
SÁTT Scarlett Johansson kveðst sátt við
bæði hjónaband sitt og skilnað í nýju
viðtali við Cosmopolitan.
Elton John segir löngu tímabært
að fólk hætti að tengja sjúkdóm-
inn AIDS við samkynhneigða,
slíkar tengingar heyri sögunni til
og eigi lítið skylt við staðreyndir.
Það séu í raun bara fasistar og
hálfvitar sem haldi slíku fram.
„Þetta er alheimsfaraldur,“
sagði Elton á samkomu í Ástralíu
á dögunum. „Við skulum útrýma
þessari fáranlegu bábilju og láta
þessa fasista og hálfvita skilja
að þetta fólk hefur
rétt á því að lifa
með sæmd.“
Laga-
höfundur inn
og poppstjarn-
an bætti
því við að
vísinda-
mönnum
hefði
tekist
að króa
þennan
sjúk-
dóm af
en menn
mættu
alls ekki
slaka á
klónni. „Við
skulum losa
okkur við
þessa vá í eitt
skipti fyrir
öll.“
Elton John
bálreiður
FASISTAR OG
HÁLFVITAR
Elton John sagði
fólki til syndanna í
Ástralíu.
Russell Brand viðurkenndi í
spjallþætti Ellen DeGeneres að
hann langaði að eignast barn
með eiginkonu sinni, banda-
rísku söngkonunni Katy Perry.
Þær sögusagnir hafa lengi verið
á kreiki að hjónaband þeirra
tveggja stæði á brauðfótum en
annað hefur komið á daginn því
Fréttablaðið greindi nýverið frá
því að þau hefðu fengið sér húð-
flúr saman.
Og Brand segist gjarnan langa
í fjölskyldu. „Við Katy erum guð-
foreldrar tveggja barna. Í fyrstu
voru þau reyndar bara leiðinleg
og virtust bara framleiða vökva.
En núna eru þau virkilega áhuga-
verð, þau brosa og rannsaka
mann. Og ég rannsaka þau eins
og vísindamaður,“ segir Brand.
Langar í barn
Í BARNAHUGLEIÐINGUM Katy Perry og
Russell Brand virðast vera að hugsa um
barneignir.
Eitt það skemmtilegasta sem
prakkarar á Twitter stunda er að
lýsa yfir dauða einhvers frægs
leikara eða poppstjörnu. Charlie
Sheen er nýjasta fórnarlamb
slíks hrekks, en hann átti að hafa
slasast alvarlega á snjóbretti
í skíðaferðlagi með fjölskyldu
sinni í Sviss. Fréttin fór fyrst af
stað á vefsíðunni Media fetcher,
en þar kom fram að Sheen hefði
klesst á tré á miklum hraða. Vef-
síðan birti einnig ógreinilega
mynd af sjúkraliðum að hjúkra
sjúklingi en seinna kom í ljós að
Sheen hefði ekki einu sinni verið
í Sviss á þessum tíma.
Sögðu Sheen
látinn í Sviss
EKKI FARINN Charlie Sheen dó ekki í
skíðaslysi í Sviss í gær eins og vefsíðan
Mediafetcher greindi frá.