Morgunblaðið - 03.08.2010, Blaðsíða 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2010
Sumarhús
Rotþrær frá 2300 l, siturlagnir,
leiðbeiningar, heildarlausnir.
Vatnsgeymar staðlaðar stærðir.
Jarðgerðarílát/moltukassar.
www.borgarplast.is
Mosfellsbæ,
s. 561 2211.
Sumarbústaðalóðir
Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á
Skeiðum, 50 km frá Rvk. í stærðunum
0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til
gróðursetningar og er með fallega
fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja
fasa rafmagn að lóðarmörkum, til
afhendingar strax, hagstætt verð og
góð kjör. Verið velkomin.
Hlynur í síma 824 3040.
www.kilhraunlodir.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Verslun
Trúlofunar- og giftingarhringar
Auk gullhringa eigum við m.a. tita-
nium og tungstenpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerða-
þjónusta. ERNA, Skipholti 3,
s. 552 0775, www.erna.is.
Óska eftir
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílaþjónusta
!
"
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i. Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Fellihýsi
Sel nánast ónotað 9 feta
Palomino Colt fellihýsi
með fortjaldi og tilheyrandi búnaði.
Nýskráð sumarið 2009 og notað í alls
13 nætur. Verð 1.7 m.kr.
Uppl. í síma 665 6102.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVIÐHALD
Getum bætt við okkur vinnu í
flísalögnum og almennu múrviðhaldi.
Vinsamlega hafið samband í síma
698 6009.
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Þjónustuauglýsingar 5691100
HÁGÆÐI
Sími: 565-7070
www.husavidgerdir.is
info@husavidgerdir.is
100% endurgreiddur vsk af vinnu
Húsaviðgerðir.is
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
ÓSKUM EFTIR ÞVOTTAVÉLUM
Fjarlægjum gömlu þvottavélina
ókeypis. Borgum allt að 2.000 kr. fyrir
góðar vélar. Sími 847 5545. Vistvæn
endurnýting.
✝ Úndína Árna-dóttir var fædd
12. okt. 1923 á Ak-
ureyri. Hún lést hinn
23. júlí 2010 á
Hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópa-
vogi.
Foreldrar hennar
voru Árni Hall-
grímsson fiskimats-
maður frá Hrísey, f.
17.8. 1888, d. 17.6.
1937 og Ingibjörg
Sigríður Þorsteins-
dóttir húsmóðir frá
Bæ á Höfðaströnd, f. 14.4. 1890,
d. 1.6. 1943. Systkini Úndínu voru
Hallgrímur Óli, f. 1914, d. 1927,
Björgvin, f. 1916, d. 1985, kvænt-
ur Sigrúnu Sigurpálsdóttur, Jó-
hanna Elín, f. 1922, d. 2008, fyrri
maður hennar var Sveinn Berg-
mann Bjarnason, f. 1918, d. 2000,
seinni maður hennar var Einar
Jónsson, f. 1913, d. 2008.
Úndína giftist árið 1943 Sveini
Kristjánssyni skrifstofumanni á
Akureyri, f. 21.11. 1922, d.
13.4.1994. Þeim varð 7 barna auð-
fljótlega búskap í sama húsi og
foreldrar hans í Eiðsvallagötu 22.
Síðan byggja þeir feðgar ásamt
Antoni bróður Sveins hús í Rán-
argötu 17 og bjuggu þau þar
lengst af eða þar til börnin fara
að heiman, þá fengu þau sér
minni íbúð í Seljahlíð 7 og undu
þau sér þar vel eða allt þar til
Sveinn lést árið 1994. Skömmu
síðar fréttir Úndína af því að til
sölu sé íbúð í sama húsi og Jó-
hanna systir hennar á að Furu-
grund 34 í Kópavogi og keypti
hún þá íbúð og flutti suður en
þær systur voru mjög samrýmdar
þótt ólíkar væru. Hún bjó þar allt
til þess að hún fór á hjúkrunar-
heimilið Sunnuhlíð í Kópavogi
sökum heilsubrests fyrir um 3 ár-
um.
Úndína fór snemma að vinna,
fyrst sem vinnukona á heimilum
en síðan helgaði hún sig barna-
uppeldinu en er þau stækkuðu fór
hún að vinna hjá Útgerðarfélagi
Akureyrar í fiskvinnslu en síðar
hóf hún störf sem matráðskona
hjá Landsbankanum á Akureyri
og endaði sinn feril í útibúi bank-
ans í Kaupangi.
Útför Úndínu fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju þriðjudaginn 3.
ágúst 2010 kl. 14.
ið. Þau eru; 1) Rafn,
f. 3.10. 1941, maki
Kristín Jónsdóttir. 2)
Árni Kristján, f.
10.6. 1946, d.
8.3.1951. 3) Sveinn
Brynjar, f. 23.1.
1952, maki Að-
alheiður Stef-
ánsdóttir. 4) Ívar
Matthías, f . 6.4.
1956, maki Sjöfn
Magnúsdóttir. 5)
Árni Viðar, f. 24.12.
1952, maki Margrét
Sigmundsdóttir. 6)
Ingibjörg Hrönn, f. 27.6. 1959,
maki Pétur S. Kjartansson. 7)
Kristján Arnar, f. 27.6. 1959,
maki Gullveig Kristinsdóttir.
Barnabörnin eru 16 og lang-
ömmubörnin eru orðin 17.
Úndína ólst upp á Akureyri í
foreldrahúsum, fyrst í Grund-
argötunni en svo í Laxagötu 2 en
ung missir hún föður sinn og að-
eins 19 ára gömul missir hún
móður sína líka en þá hafði hún
kynnst mannsefninu sínu, honum
Sveini Kristjánssyni, og hófu þau
Elsku besta mamma, nú ert þú
farin og ert laus við allar þján-
ingar. Ég hef þá trú að að þú sért
búin að hitta pabba og þið séuð
saman eins og mig dreymdi áður
en þú andaðist.
Aldei kvartaðir þú yfir því að
þurfa að fara í nýrnavélina 3
sinnum í viku, þú varst alveg
ótrúlega dugleg, fórst norður á
meðan þú gast og það var bara í 4
daga þá þurftir þú að koma aftur
til að fara í vélina. Oftast fórst þú
með rútunni eða einhverjum úr
fjölskyldunni ef einhver var á
ferðinni.
Margar minningar koma upp í
hugann, til dæmis þegar ég var
bara krakki fórst þú að vinna á
frystihúsinu allan daginn og
komst heim kl. 11, til að búa til
matinn handa öllu þínu fólki, svo
komstu ekki heim fyrr en kl. 17,
eða 19, og fórst kannski aftur eft-
ir kvöldmat. Þú varst ótrúlega
dugleg og alltaf var hreint og fínt
heima í Ránargötunni.
Ég gæti haldið endalaust áfram
t.d. þegar þú áttir heima fyrir
norðan þá komst þú svo oft í
heimsókn til okkar. Allar þessar
góðu minningar um þig mun ég
geyma með mér, takk fyrir allt,
elsku besta mamma mín.
Þín dóttir
Ingibjörg.
Elsku besta amma mín.
Ég á einungis góðar minningar
um þig og ég geymi þær allar á
góðum stað í hjarta mínu, þú
varst alltaf svo góð við alla og all-
ir elskuðu þig.
Þegar við komum í heimsókn til
þín varstu alltaf tilbúin með eitt-
hvað gott að borða eins og pönnu-
kökur, vöfflur og kex, svo þegar
þú fórst á Sunnuhlíð var alltaf til
nammi í ísskápnum og þú tókst
helst ekki nei fyrir svar, þegar þú
bauðst mér upp á konfekt sem
mér finnst ekkert sérlega gott, en
ég borðaði það samt til að þú
myndir ekki verða sár.
Ég man einu sinni þegar
mamma og pabbi voru í útlöndum
og þú varst að passa okkur Val-
dísi, þá spurðum við þig hvort við
mættum fara í Smáralindina sem
var nýbúið að opna, en þú vildir
ekki leyfa okkur að fara einum,
þannig að þú fórst með okkur, við
tókum strætó en rötuðum ekki al-
veg og enduðum með því að rúnta
með strætó í einhverja 3 tíma, ég
held að þú hafir ekki verið voða-
lega ánægð þá.
Þegar ég kom í heimsókn til þín
einn daginn í Sunnuhlíð var lítill
kusu-bangsi á rúminu þínu og ég
var að skoða hann og þú sagðir:
„Hjördís mín, viltu ekki bara eiga
hann?“ En ég sagði bara: Nei nei,
þetta er allt í góðu, en eins og
alltaf tókstu ekki nei fyrir svar og
sagðir: „Jú, þú hefur svo gaman
af svona tuskudýrum,“ þannig að
ég tók hann með mér heim og
hengdi hann á spegilinn í bílnum
mínum. Alltaf þegar ég horfi á
hann minnir hann mig á þig og
núna verndar þú mig meðan ég
keyri, sem mér finnst ótrúlega
gott.
Mér líður svo vel að vita af þér
á betri stað með afa gamla, ég
mun alltaf elska þig, elsku amma
Únda mín.
Hvíldu í friði, ástin mín.
Þín
Hjördís Ósk Kristjánsdóttir.
Það er ekki auðvelt að setjast
niður og skrifa minningargrein
um elskulegu ömmu mína, það er
líka erfitt að hugsa til þess að ég
eigi ekki eftir að sjá hana aftur.
Þegar ég var lítil, þá geymdi
hún brjóstsykur í náttskúffunni
sinni, þau voru ófá skiptin sem ég
laumaðist í náttborðsskúffuna
hennar og náði mér í einn eða tvo
mola. Svo þegar ég var komin á
unglingsaldurinn þá keypti ég
svona mola handa henni og játaði
allar ferðirnar í náttborðsskúff-
una og hún var mjög ánægð með
það.
Alltaf þegar við systur fórum í
pössun til ömmu, þá löbbuðum við
allar saman í Nóatún, keyptum
tilbúinn kjúkling og franskar og
löbbuðum svo aftur heim og borð-
uðum þessa ljúffengu máltíð sam-
an. Svo spiluðum við á spil, horfð-
um á sjónvarpið, svo settum við
svefnsófann upp og fórum að
sofa. Þetta eru ljúfar minningar.
Eftir að Gullveig Katrín kom í
heiminn, og við fórum í heimsókn
til hennar, þá varð hún alltaf svo
glöð og ánægð þegar hún sá hana
og var alltaf að búa eitthvað til
handa henni sem var svo fallegt.
Amma var einstaklega gjafmild
og góð kona, alltaf að bjóða
manni upp á nammi eða gos og ef
maður sagði nei takk, þá bauð
hún bara aftur þangað til maður
sagði já takk.
Góðu stundanna mun ég minn-
ast með gleði í hjarta og með
miklu þakklæti fyrir þann tíma
sem við áttum saman. Ég kveð
þig með söknuði, elsku amma
mín. Þín verður sárt saknað.
Hvíldu í friði, elsku amma mín.
Þín,
Valdís Arna
Kristjánsdóttir.
Elsku besta og fallegasta amma
mín, mér finnst mjög erfitt að
hugsa til þess að þú sért farin úr
þessum heimi en ég hughreysti
mig við það að ég veit að þú ert
komin til afa á himnum og ég get
alveg ímyndað mér hvað þið hafið
það gott saman.
Einnig hughreysti ég mig við
það að vita að þú þurfir ekki leng-
ur að fara í nýrnavélina sem þú
varst alltaf svo dugleg að fara í
þó að það hafi örugglega verið
mjög erfitt en aldrei kvartaðir þú.
Fyrir mér ert þú hetja fyrir að
hafa þolað þessa vél svona lengi,
duglega amma mín.
Elsku amma þú átt svo stóran
stað í mínu hjarta og mun ég allt-
af geyma þig þar og allar mínar
minningar um þig sem eru ótelj-
andi margar og yndislegar.
Ég elska þig alltaf, elsku amma
mín.
Þín ömmustelpa,
Emelía Margrét
Pétursdóttir.
Úndína Árnadóttir
Elskulegi faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐNI HANS BJARNASON
múrari
Miðtúni 20,
lést að kvöldi laugardagsins 31. júlí á lungnadeild
Landspítalans í Fossvogi.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigmar Þór Óttarsson, Helga Konráðsdóttir,
Guðrún Sóley Guðnadóttir, Helgi Harðarson,
Garðar Guðnason, Sigríður Sigurðardóttir,
Friðrik Guðnason, Elísa Sigrún Ragnarsdóttir,
Ásgeir Ævar Guðnason, Guðbjörg Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.