Morgunblaðið - 03.08.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.08.2010, Blaðsíða 8
ÚR BÆJARLÍFINU Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbær Svipaður fjöldi erlendra ferða- manna hefur spókað sig í Reykja- nesbæ í sumar og gerði sumarið 2009 en aukning hefur verið á heimsóknum Íslendinga, að sögn Kristjáns Páls- sonar hjá Markaðsstofu Suðurnesja. Reykjanesbær er gjarnan fyrsta og/ eða síðasta stopp ferðamanna á leið til og frá landi og þá er gjarnan spurt hvað hægt sé að gera í bænum og næsta nágrenni. Áhugi á náttúru Reykjaness er alltaf mikill og staðir eins og Gunnuhver, Valahnjúkur, Reykjanesviti, Álfubrúin, Hafnarberg og Stóra Sandvík vinsælir áningar- staðir. Þá er alltaf vinsælt að spóka sig um í miðbæ Reykjanesbæjar og ganga meðfram sjónum.    Fjölmargir Reykjanesbæingar og nærsveitamenn hafa slegist í för með leiðsögukonunni Rannveigu Garðarsdóttur í sumar og gengið um Reykjanesskagann. Skaginn er Rann- veigu mjög kunnur en hún hefur geng- ið um Reykjanesið í mörg sumur, fyrst undir merkjum Strandgönguhópsins en nú Reykjanesgönguferða. Tvær ferðir eru eftir af þeim 10 sem boðið verður upp á í sumar. 11. ágúst verður fjórði og síðasti hluti Reykjavegar genginn og hinn 18. verður gengið yfir Þorbjörn og endað í Bláa lóninu. Sú ferð er lengri, enda eins og konar uppskeruhátíð sumarsins.    Ný afþreyingarfyrirtæki í ferða- þjónustu er meðal tækifæra sem fólk í ferðaþjónustu sér fyrir svæðið. Ekki er lengur hægt að fara í hvalaskoðun frá Keflavíkurhöfn eftir að hætt var með hvalaskoðunarfyrirtækið Moby Dick og ekki býðst heldur að fara í sjó- stangaveiði. Þetta eru hins vegar ferðaþjónustuþættir sem erlendir ferðamenn sækja mjög gjarnan í.    Veiðistangir hafa hins vegar verið í röðum við Keflavíkurbryggju í sum- ar, en þar hafa veiðimenn á öllum aldri staðið þétt og veitt makríl. Þó mesta veiðin sé að baki freista menn enn gæfunnar og um nýliðna verslunar- mannahelgi mátti sjá litskrúðugan hóp veiðimanna. Eitthvað er um að veiðimenn hafi selt trilluköllum aflann en flestir fara með sína veiði heim. Að sögn veiðimanns sem blaða- maður vatt sér að á Keflavíkur- bryggju hafa menn steikt makrílinn, reykt eða jafnvel grillað. „Hann er feitur makríllinn og minnir eilítið á silung á bragðið. Fólk hefur líka not- að hann í beitu til að veiða silung.“    8-12 ára börn í Reykjanesbæ eru duglegust að sækja sund. Þetta, ásamt þeirri staðreynd að mikil aukn- ing hefur orðið í aðsókn grunnskóla- barna í sund í Reykjanesbæ eftir að aðgangur varð ókeypis fyrir börn, kemur fram í lokaverkefni Þórunnar Magnúsdóttur í íþróttafræðum við Háskóla Íslands. Þórunn kannaði áhrif á hreyfingu grunnskólabarna í Reykjanesbæ við það að gefa frítt í sund og notaði spurningalista sem starfsfólk lagði fyrir börn sem sóttu sundstaði bæjarins. Fjögur ár eru lið- in síðan bæjarráð tók þá ákvörðun að afnema aðgangseyri fyrir börn í sund og jók sú ákvörðin einnig aðsókn full- orðinna að sundstöðunum. Veður- blíðan í sumar hefur bara hvatt íbúa Reykjanesbæjar til að spóka sig um í Vatnaveröld og láta sólina leika við líkamann. Makríll á grillið  Þétt staðið við Keflavíkurbryggju Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Makrílveiðar Keflavíkurbryggja hefur iðað af lífi í sumar. 8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2010 Ýmsir hafa viðrað þá skoðun aðrétt sé að farið sé að lögum og ekki í kringum þau í tengslum við fjárfestingu í Hitaveitu Suðurnesja.     Aðrir benda á að erlend fjárfest-ing sé í sjálfu sér æskileg, ekki síst núna. Hún sé jafnvel svo æski- leg að rétt sé þess vegna að gera minni kröfur en ella um að farið sé að lögum.     Og svo kemur þriðji hópurinn ogsegir að við verðum að aðhlát- ursefni í útlöndum, ef við höfum uppi sérsjónarmið sem menn hafa aldrei heyrt af utanlands, eins og þau að rétt sé að fara að lögum. Þessi hópur telur það sérstaklega flott að segja að „útlendingar“ hlæi að okkur ef við gerum ekki það sem óskað er eftir. (Ekki það sem „út- lendingarnir“ vilja heldur þeir sem hóta hinum hræðilegu hlátrasköll- um).     Og þegarþarna er komið er orðið stutt í ógnunina um „banana- lýðveldið“. Hún er jafnvel enn þá hræðilegri en hlæjandi útlendingar.     Það var að vísu fremur óheppi-legt að gera þá sem vilja að varúðar sé gætt við að afhenda mikilvægustu auðlindir í erlenda eigu að bananalýðveldismönnum.     Nokkur ríki Suður-Ameríkufengu þetta vafasama heiti og sennilega með réttu, því þau höfðu glatað forræði eigin mála í hendur erlendra auðhringa.     Megineinkennið var talið vera aðlög og rétt í þeim löndum varð hverju sinni að sveigja að hags- munum fjárfestanna, hvað svo sem lögbækurnar segðu. Ban ana áfram Veður víða um heim 2.8., kl. 18.00 Reykjavík 16 rigning Bolungarvík 15 skýjað Akureyri 14 skýjað Egilsstaðir 16 skýjað Kirkjubæjarkl. 12 rigning Nuuk 12 skýjað Þórshöfn 12 þoka Ósló 20 skýjað Kaupmannahöfn 18 skúrir Stokkhólmur 16 skýjað Helsinki 23 heiðskírt Lúxemborg 21 skýjað Brussel 17 skúrir Dublin 16 skýjað Glasgow 17 léttskýjað London 20 léttskýjað París 17 skýjað Amsterdam 20 léttskýjað Hamborg 21 skýjað Berlín 26 heiðskírt Vín 29 léttskýjað Moskva 37 skýjað Algarve 28 heiðskírt Madríd 33 heiðskírt Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 28 heiðskírt Róm 30 heiðskírt Aþena 30 léttskýjað Winnipeg 23 skýjað Montreal 25 léttskýjað New York 27 skýjað Chicago 26 alskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR KL. 12 Í DAG 3. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:42 22:27 ÍSAFJÖRÐUR 4:26 22:52 SIGLUFJÖRÐUR 4:08 22:36 DJÚPIVOGUR 4:06 22:02 Búið er að fella meira en 70 hrein- dýrstarfa frá því að veiðar hófust 15. júlí sl. Það er heldur meira en í fyrra. Um helgina mátti hefja veiðar á hreinkúm og taldi Jóhann G. Gunn- arsson, starfsmaður Umhverfis- stofnunar á Egilsstöðum, að innan við tugur veiðimanna hefði farið til að veiða hreinkýr á sunnudag. Þoka hamlaði þó veiðum á fjörð- unum um tíma um helgina. Jóhann sagði að frá því að tarfatíminn byrj- aði hefðu komið margir góðir veiði- dagar og hefði mátt nýta þá betur, að hans mati. En hvernig eru dýrin framgengin? „Ég held þau séu bara væn,“ sagði Jóhann. Hann taldi að veiðarnar færu að byrja af krafti ef veðrið yrði gott á næstunni. Sú breyting var gerð á hreindýra- veiðunum þetta árið að veiðitími á hreinkúm mun standa til 20. sept- ember í stað 15. september eins og venjan var. Þá er nú óheimilt að fella hreinkálfa en áður var farið fram á að kálfar sem gengu undir kúm sem voru veiddar væru einnig felldir. gudni@mbl.is Hreindýraveiðar fara vel af stað Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Hreindýr Veiðimenn komnir vel af stað ásamt leiðsögumönnum. Yfir 70 tarfar komnir í hús og byrjað að veiða kýrnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.