Morgunblaðið - 03.08.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.08.2010, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2010 10 Daglegt líf Sunny Jarðarberjadrykkur gerður úr ferskum jarðarberjum og söfum. mín ástríða að elda hollan og góðan mat. Í 15 ár var ég eigið tilraunadýr og bý vel að allri þessari reynslu sem mig langar nú að miðla til fólks. Mér leið betur af því að borða meira grænmeti en ég hafði gert og minnka unnar mat- vörur. Ég sleppti líka kjöti og fiski en skil að það á ekki við alla þó svo að það henti mér mjög vel. Fólk þarf að læra að hlusta á eigin líkama því við höfum allar upplýsingarnar innra með okkur en oft á tíðum er djúpt á þeim. Það er misjafnt hversu langt á veg menn eru komnir hér í Englandi en í Brighton er í það minnsta hæsta hlutfall grænmet- isætna í landinu. Við erum ágætlega dugleg að borða grænmeti á Íslandi en auðvitað líður Ísland dálítið fyrir það að vera eyja þar sem meira vesen er í kringum innflutning,“ segir Auður Ingi- björg. Fræði á mannamáli Kyle hefur sömu reynslu og Auður Ingibjörg en hann þurfti að takast á við veikindi og tókst þá á við mataræði sitt og greindi niður í frumeindir. Kyle hef- ur stundað mikla rannsóknarvinnu þessu tengda en hann er lærður í nær- ingarfræði og heimspeki. Síðastliðin ár hefur hann unnið við það að halda nám- skeið og fyrirlestra og tekið fólk til sín í einkatíma og ráðgjöf. „Við erum svo sterkt teymi því að á námskeiðunum sem við höldum saman talar hann um allt það sem maturinn gefur okkur en ég kem og sýni uppskriftir þannig að fólk sér að þetta þarf ekki að vera flókið. Í dag fær fólk svo mikið af María Ólafsdóttir maria@mbl.is Auður Ingibjörg Konráðs-dóttir fluttist til Brighton íEnglandi nú í vor. Hún erheilsukokkur sem hefur það fyrir atvinnu að halda námskeið í heilsusamlegri matargerð og er nú að setja á laggirnar fyrirtækið Vitality Chef Ltd. Fljótlega eftir að Auður Ingibjörg fluttist út kynntist hún Kyle Vialli, sem er einn helsti fyr- irlesari og heilsugúrú Englands. Þau sáu að þau væru alveg á sömu blað- síðu og ákváðu að taka höndum sam- an við að breiða út boðskapinn um breytt og betra mataræði. Hlustað á eigin líkama „Það eru svo margir í sömu sporum og ég var, hafa þurft að ganga í gegnum veikindi og snúa við blaðinu. Ég fékk ofnæmi þegar ég var að klára að læra kokkinn og neyddist því til að staldra við og hugsa hvað ég væri að setja ofan í mig. Þá byrjaði ég að snúa blaðinu við og líðanin gjörbreyttist en ég bjó vel að því að vera kokkur þar sem ég var alltaf að gera tilraunir og það er Kenna Ís- lendingum að elda úr arfa Auður Ingibjörg Konráðsdóttir heilsukokkur sneri við blaðinu og umbylti mataræði sínu fyrir nokkrum ár- um. Hún býr nú í Bretlandi þar sem hún er í sam- starfi við einn þekktasta heilsugúrú landsins en sam- an munu þau heimsækja Ísland í byrjun september og kenna Íslendingum að elda hollan og góðan mat, meðal annars úr berjum, arfa og fjallagrösum. Heilsugúrú Kyle hefur stundað mikla rannsóknarvinnu tengda mataræði. Ljósmynd/Hrund Jakobs Hollt út í gegn OFURSÚKKULAÐI Þau Auður Ingibjörg og Kyle Vialli eru nú að hefja fram- leiðslu á súkkulaði sem er líf- rænt og gert úr kókossykri sem gefur sætuna. Kókossykur hefur hvað lægstan sykur- stuðul af öllum náttúrulegum sætuefnum og byggir upp heil- brigða þarmaflóru. Auður Ingi- björg segir að um sé að ræða ofursúkkulaði í anda ofurfæðu sem sé bæði gott og hollt út í gegn. Þau Auður Ingibjörg og Kyle munu koma með súkku- laði með sér í farangrinum í haust til að gefa Íslendingum að smakka. Það er gaman að fara í útilegu í góðra vina hópi. Hvort sem farið er í tjaldútilegu, í ferð með hjólhýsi eða í bústað þá þarf að hafa með sér nesti. Það er ýmislegt sem við þurfum að hafa í huga þeg- ar við tökum saman nesti. Fyrir utan hollustu nestisins er rétt meðhöndlun á matvælunum afar mikilvæg. Það vill enginn enda skemmtilega ferð með matarsýkingu. Áður en byrjað er að útbúa nestið er mikilvægt að þvo sér vel um hendur og hafa öll áhöld hrein. Eins er góð regla að þvo sér alltaf eftir að hafa snert hrá matvæli eins og kjöt, fisk, egg o.s.frv. Krossmengun einna algengust Með krossmengun er átt við að örverur berist frá einni tegund matvæla í aðra og úr hrávöru í fullunnin matvæli. Slíkt smit milli matvæla á sér stað m.a. ef við notum óhrein áhöld, illa þvegin bretti og borð eða notum sömu áhöld fyrir hrá og fullunnin mat- væli. Kæling matvæla hjálpar til við að halda örverum í skefjum, þannig að þær fjölgi sér ekki. Hráum og fullelduðum matvælum og matvælum sem merkt eru „Kælivara 0-4°C“ þarf að halda köldum svo þau séu örugg. Hafið í huga að ef kælivörur eru ekki geymdar í kæli þá minnkar geymsluþol þeirra til muna. Örverur fjölga sér hratt við stofuhita og því er mikilvægt að hafa mögu- leika á að geyma matvæli við 0-4°C. Ef enginn ísskápur er til stað- ar má t.d. nota kælibox. Hitun getur drepið hættulegar örverur. Matvæli þurfa að ná meira en 75°C hita við eldun til að vera örugg. Ef halda þarf mat heitum verður hitinn að haldast yfir 60°C. Mjög mikilvægt er að vanda meðhöndlun tilbúinna mat- væla, þar sem þau verða ekki hituð eða elduð áður en þeirra er neytt. Notið aðeins umbúðir/ílát sem eru sérstaklega framleidd fyrir matvæli. Röng notkun umbúða/íláta getur leitt til þess að óæski- leg efni berist í matvæli sem geta hugsanlega valdið heilsutjóni. Það er misjafnt hvaða umbúðir henta ákveðnum matvælateg- undum. Álpappír hentar vel fyrir ost, kjöt, smjör o.þ.h. matvæli en ekki fyrir súr matvæli eins og appelsínur, sítrónur og ávaxta- grauta. Matarfilmur henta vel fyrir ávexti, grænmeti og brauð. Athugið leiðbeiningar frá framleiðanda umbúða/íláta en á þeim ætti að vera tekið fram fyrir hvaða matvæli umbúðirnar/ílátin henta best. Sesselja María Sveinsdóttir, matvælafræðingur hjá Matvælastofnun Örugg matvæli – allra hagur! Örugg matvæli í útileguna Kælivara Best er að geyma samlokurnar í ísskáp. www.mast.is Ný heyrnartæki - helmingi minni en tvöfalt öflugri! G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | S í m i : 5 6 8 6 8 8 0 | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s Pantaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 og prófaðu Agil Njóttu orkunnar sem fylgir því að heyra betur! Agil eru einstök heyrnartæki sem voru þróuð með það markmið í huga að bæta talgreiningu við allar aðstæður og draga úr hlustunarþreytu. Agil heyrnartækin eru þau fullkomnustu frá Oticon fram til þessa en segja má að þau hafi tæknilega sérstöðu umfram önnur tæki. Þrátt fyrir að Agil séu um helmingi minni en hefðbundin bak við eyra tæki þá búa þau yfir öflugustu örflögunni en vinnsluhraði hennar er helmingi meiri en áður hefur þekkst. Eins og önnur heyrnartæki frá Oticon þá eru Agil með þráðlausa tækni og veita þrívíddarhljómgæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.