Morgunblaðið - 07.08.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.08.2010, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 7. Á G Ú S T 2 0 1 0  Stofnað 1913  182. tölublað  98. árgangur  TEKUR FACE- BOOK MIKINN TÍMA FRÁ ÞÉR? GOTT AÐ VERA GLAÐUR Á ÍSLANDI KALLAÐ Á HVALI MEÐ HVALA- HLJÓÐUM SUNNUDAGSMOGGINN PRUFUTÍMI Í HVALASKOÐUN 10VEGFARENDUR SPURÐIR 14 Lög um skil á fasteignum, sem tóku gildi um mánaðamótin, samrýmast ekki yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar um úrræði til handa heimilum í skuldavanda frá því í mars. Tilgangur laganna er að aðstoða þá sem eiga tvær fasteignir ætlaðar til heimilis- nota og eiga í skuldavanda. Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar fyrr á árinu átti að gefa þeim sem í þessari stöðu eru færi á því að afskrifa skuldir um- fram söluverð á annarri eigninni, en sú sem haldið væri eftir skuldsett í samræmi við greiðslugetu lántakans. Í því samhengi var talað um skuldsetningarhlutfall á bilinu 80-110%. Lögin sem nú hafa tekið gildi kveða hins vegar ekki á um neina hámarksveðsetningu eignarinnar sem haldið er eftir. Kjósi eigandi tveggja fasteigna, að uppfylltum vissum skilyrðum, að skila annarri eign til láveitanda, er heimilt að færa umfram veðsetningu eignarinnar yfir á þá sem eftir verð- ur. Þá getur sú staða komið upp að eign sem á hvíldu veðbönd, sem voru lægri en söluvirði, verði yfirveðsett við tilfærsluna. Lán- veitandinn fær á sama tíma eign á markaðsvirði, án þess að verða af þeim afborgunum sem hvíldu á eigninni um- fram það. Hækki eignin í verði nýtur lánveitandi jafn- framt góðs af því. »20 Ekkert þak á veðsetningu  Yfirfærsla veða vegna fasteignaskila geta verið óhagstæð Fjöldi fólks var mættur á Dalvík í gær til að taka þátt í Fiskideginum mikla og að sögn Júlíusar Júl- íussonar, framkvæmdastjóra hátíðarinnar, var stemningin afar góð. „Það er róleg og fín stemning og allt hefur gengið alveg hreint dásamlega. Allar götur eru fullar af fólki, bærinn er vel skreyttur og fjölskyldur saman að skoða sig um.“ Búist er við að gestafjöldi verði svipaður og í fyrra en þá er talið að um 36 þúsund manns hafi mætt. Hátíðin var sett í gær og var þá m.a. 5.000 frið- ardúfublöðrum sleppt og tóku þúsundir manna þátt í risaknúsi í lok setningarinnar. Í kjölfarið hófst súpukvöldið vinsæla þar sem íbúar bjóða gestum upp á fiskisúpu. Einn þeirra sem aðstoðaði við að ausa súpu í mál var Arne Vagn Olsen og að sögn nærstaddra var súpan með eindæmum góð. Ljósmynd/Helgi Fólk fyllir götur á Fiskidegi Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Seðlabanki Íslands sendi frá sér minnisblað til fjölmiðla í gærkvöld vegna umfjöllunar DV um að Seðlabankanum hefði vorið 2009 verið kunnugt um að gengistrygging lána væri ólög- mæt. Seðlabankinn áréttar að ein- ungis eitt lög- fræðiálit hafi tal- ið það „ekki ólíklegt“ að lánin væru ólögmæt en álit ýmissa ann- arra lögfræðinga hafi gengið í aðra átt. Jafnframt kemur fram að aðallögfræðingur Seðlabankans hafi upplýst viðskiptaráðuneytið um nið- urstöðu álitsins. Seðlabankinn áréttar þá að hann sé ekki dómstóll og geti því ekki skorið úr um lögmæti gjörninga. Það væri þannig í „hæsta máta óviðeigandi“ ef hann hefði á þess- um tímapunkti gefið frá sér yfirlýsingar þar að lútandi að því er fram kemur á minnisblaði til fjölmiðla. Þá bendir Seðlabankinn á að hann hafi ekki heimild til að afhenda fjölmiðlum umrætt álit án samþykkis viðkomandi lögfræðistofu en bankinn kannar nú hvort slíkrar heimildar verður aflað. Sigurður Líndal lagaprófessor kveður það rétt að ekki megi birta álit nema að gefnu leyfi lögfræðings sem samdi það. Þá telur Sigurður það rétt hjá Seðlabank- anum að tala varlega í þessum efnum. „Auðvit- að verður Seðlabankinn að tala varlega. Þetta er óskaplega viðkvæmt. Lögfræðilegu álitin stangast á. Seðlabankinn sér að þetta er álita- mál og telur að það sé rétt að bíða því þetta er dómsmál. Eins og málið liggur fyrir mér er það rétt niðurstaða að bíða bara eftir dómi.“ Álitin orkuðu tvímælis Seðlabankinn komst ekki að niðurstöðu Af minnisblaði » „[Seðlabankinn] hafði í höndum eitt lögfræðiálit þess efnis að það væri ekki ólíklegt að svo væri. Á móti stóðu álit ýmissa annarra lögfræðinga sem gengu í aðra átt.“  Vegagerðin hefur enn ekki samið við verktaka um tvöföldun fyrsta áfanga Suðurlandsvegar. Á ýmsu hefur gengið síðan verk- ið var boðið út. Háfell ehf. kærði áform Vegagerðarinnar um að fela Ingileifi Jónssyni ehf. að vinna verkið, en áður hafði kærunefnd út- boðsmála hafnað áformum stofn- unarinnar um að semja við annan bjóðanda, einnig eftir kæru Háfells. Hreinn Haraldsson vegamála- stjóri sér ekkert því til fyrirstöðu að upphafleg áætlun um að opna veginn fyrir lok september á næsta ári geti staðist. Hins vegar geti vinna við frágang vegarins frestast yfir þann tíma. »14 Framkvæmdir tefj- ast vegna kærumála Suðurlandsvegur Fimmtán verktakar buðu í fyrsta áfanga tvöföldunarinnar.  Ólíklegt er tal- ið að ESB fari að kröfum sam- taka útgerð- armanna í ESB og Noregi og banni innflutn- ing á sjávaraf- urðum frá Ís- landi. Íslend- ingar mega hinsvegar ekki landa makríl í ESB og Noregi þar sem ekki hefur tekist samkomulag um veiðar á makríl. Samkvæmt íslenskum lögum er útlendum skipum óheimilt að landa afla hér á landi úr fiski- stofnum sem ekki hefur verið sam- ið um nýtingu á. Skipum ESB- landa og Noregs er því óheimilt að landa hér á landi. »18 Bann við innflutn- ingi talið ólíklegt „Fólk sem ekki vildi láta nafns síns getið vegna þess að það er hrætt um að geta misst vinnuna kom þessum upplýsingum til mín,“ segir Björk Guðmundsdóttir söngkona m.a. í viðtali í Sunnudagsmogganum sem fylgir Morgunblaðinu í dag aðspurð hvað hún hefði fyrir sér í því að Magma Ísland hefði áhuga á að virkja á fimm stöðum á Íslandi. Björk segir fáránlegt að fólk þurfi að hafa slíkar áhyggjur enda ætti svona lagað að fara fram fyrir opn- um tjöldum. Hún segir Ross Beaty, forstjóra Magma Energy, móð- urfélags Magma á Íslandi, ekki hafa neitað því að fyrirtækið hefði áhuga á að auka umsvif sín á Ís- landi. Hann hafi í erlendum miðlum gefið slíkt til kynna og horft til Kínverja í því sambandi en þeir hafi sóst eftir því að fjárfesta í ódýr- um orkuauðlindum nú þegar efna- hagserfiðleikar séu víða. Segir fólk vera hrætt við að missa vinnuna Björk Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.