Morgunblaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður
Bæjarhátíð Grundfirðinga „Á
góðri stund“ er nýafstaðin og líkt og
áður lék veðrið við Grundfirðinga og
gesti þeirra meðan hátíðin stóð yfir
síðustu helgina í júlí. Gilti einu þótt
veðurfræðingar hefðu keppst við að
spá sunnan hvelli með tilheyrandi
úrkomu, veðurguðirnir héldu sig við
þann samning sem gerður var í upp-
hafi, sögðu forsvarsmenn hátíð-
arinnar. Hátíðin þótti takast vel,
hæfilegur fjöldi gesta og allir
skemmtu sér hið besta. Endurbætur
og stækkun útivistarsvæðis í kring-
um höfnina sköpuðu fallega um-
gjörð um hápunkt hátíðarinnar
þegar litum prýddar skrúðgöngur
söfnuðust þar saman á laugardags-
kvöldið í veðurblíðunni.
Viðurkenningar eru oft meðal
atriða á dagskrá hátíðarinnar „Á
góðri stund“ í Grundarfirði og varð
engin undantekning þar á í þetta
sinn. Viðkenningar- og menning-
arverðlaunin Helgrindur sem
Grundarfjarðarbær veitir hlaut
Guðmundur Gíslason, fyrrverandi
íþróttakennari, fyrir framgöngu
sína við að auðga og bæta mannlífið
með uppákomum af ýmsu tagi.
Eyrbyggjar, Hollvinasamtök
Grundarfjarðar, veittu sína við-
urkenningu, Vitann, þeim sem legg-
ur sitt af mörkum við að koma
Grundarfirði á kortið. Það var Dögg
Mósesdóttir sem hlaut Vitann að
þessu sinni fyrir þrautseigju við
halda úti alþjóðlegri stuttmyndahá-
tíð í Grundarfirði á þeim tíma ársins
sem ferðamennska liggur að mestu
niðri en þátttaka hefur stöðugt farið
vaxandi.
Makrílveiðar og vinnsla í
Grundarfirði er ný atvinnugrein sem
þeir hjá G. Run hf. fóru af stað með í
síðasta mánuði. Togararnir Hringur
og Helgi hafa í sameiningu séð um
að veiða makrílinn í svokallað
tvíburatroll og aflinn hefur síðan
verið unninn í fiskverkun G. Run þar
sem unnið hefur verið á vöktum all-
an sólarhringinn. Reynslan af þess-
ari nýju vinnslulínu lofar góðu um
framhaldið.
Skemmtiferðaskipin hafa
komið eitt af öðru frá því í maí og
hafa nú 10 skip haft viðkomu í
Grundarfjarðarhöfn en þrjú eru
væntanleg til viðbótar áður en sumri
lýkur. Flestum ber saman um að
fleiri farþegar skipanna hafi verið á
rölti í bæjarfélaginu en oft áður og
verslað meira en áður. Hin nýja að-
staða og snyrtimennska á hafn-
arsvæðinu er rómuð af þeim sem þar
koma og eru Grundfirðingar stoltir
af þeirri framkvæmd.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Hlaut verðlaun Dögg Mósesdóttir hlaut Vitann fyrir þrautseigju.
Veðurblíða á
bæjarhátíðinni
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Samkvæmt upplýsingum frá stóru
viðskiptabönkunum þremur hafa
viðtökur við framkvæmdalánum, í
tengslum við átaksverkefni stjórn-
valda Allir vinna, verið góðar. Ná-
kvæmar tölur um fjölda umsókna
fengust ekki nema í einu tilviki en
talsmenn bankanna segja viðtök-
urnar hafa almennt verið betri en
búist var við.
Bjóða bankarnir samskonar
lán, allt að tvær milljónir króna til
fimm ára, en Landsbankinn býður
einnig lengra lán til stærri við-
haldsverkefna sem getur numið
allt að 70% af markaðsvirði fast-
eignarinnar. Tengjast þau lán
átakinu ekki beint en þó bjóðast
engin lántökugjöld af þeim til 1.
desember næstkomandi.
Íslandsbankinn reið fyrstur á
vaðið með þessi lán um miðjan júlí
sl. og Landsbankinn kom fáum
dögum síðar. Í lok júlí kynnti Ar-
ion banki samskonar lán.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu snýst átaksverk-
efnið um að koma hjólum atvinnu-
lífsins í gang að nýju, skapa fleiri
störf við framkvæmdir og auð-
velda húseigendum að ráðast í
endurbætur og viðhald á fasteign-
unum. Þeir sem ráðast í fram-
kvæmdir eiga rétt á 100% endur-
greiðslu á virðisaukaskatti af
vinnulaunum og skattafrádrætti
sem getur numið allt að 300 þús-
und krónum.
Standast þarf greiðslumat
Öll eiga lán bankanna það
sameiginlegt að ekkert lántöku-
gjald er tekið en hins vegar þarf
að greiða af þeim stimpilgjald og
þinglýsingargjald. Vextirnir eru
óverðtryggðir, á bilinu 5,75% til
5,8%, en sambærilegir vextir á
íbúðalánum eru yfirleitt 2-3%
hærri.
Hjá Landsbanka og Arion
banka er hægt að sækja um lánin
til 1. desember nk. en hjá Íslands-
banka til 30. september. Þar á bæ
fengust þau svör að miðað við við-
tökurnar til þessa væri mjög lík-
legt að lánin stæðu lengur til boða.
Bankarnir setja jafnframt þau
skilyrði að viðskiptavinir þurfi að
hafa trausta viðskiptasögu og góða
greiðslugetu. Þurfa lántakar yfir-
leitt að standast greiðslumat.
Lánin eru síðan afgreidd
gegn framvísun reikninga, þar
sem virðisaukaskattur er gefinn
upp til að fá hann endurgreiddan
af vinnulaunum, þannig að ekki
dugir að eiga viðskipti við iðn-
aðarmenn „á svörtu“ eins og víða
hefur viðgengist gegnum tíðina.
„Viðtökurnar hafa verið betri
en við bjuggumst við. Mikið hefur
verið spurt út í lánin og svo virðist
sem margir séu að hugsa sinn
gang,“ segir Anna Sigurðardóttir,
framkvæmdastjóri viðskipta-
bankasviðs Landsbankans, en hún
segir tölur ekki tiltækar um fjölda
lánsumsókna.
120 lán hjá Íslandsbanka
„Viðtökur viðskiptavina hafa
verið mjög góðar og við höfum
fundið fyrir því að ýmsir, sem ekki
höfðu hugsað sér til hreyfings í
framkvæmdum, hafa tekið við sér
en það var einmitt markmiðið,“
segir Már Másson, upplýsinga-
fulltrúi Íslandsbanka, en samtals
hafa um 120 viðskiptavinir sótt um
framkvæmdalán hjá bankanum.
Hildur Ottesen Hauksdóttir,
upplýsingafulltrúi Arion banka,
segir viðtökur við lánunum hafa
verið góðar. „Við höfum fengið
fjölmargar fyrirspurnir frá við-
skiptavinum en eðli málsins sam-
kvæmt eru afgreiðslur fáar enn
sem komið er þar sem lánað er
fyrir útlögðum kostnaði. Miðað við
fyrirspurnirnar má búast við tölu-
verðum afgreiðslum,“ segir Hild-
ur.
Morgunblaðið/Ernir
Viðhald Vonast er til þess að átak stjórnvalda skili sér í aukinni vinnu fyrir iðnaðarmenn. Sýna þarf bönkum alla reikninga fyrir vinnu og efni.
Margir að spá í viðhaldið
Framkvæmdalánum bankanna til viðhaldsverkefna almennt verið vel tekið
Skila þarf reikningum fyrir keypta vinnu og efni og ekkert unnið „á svörtu“
Hámarkslán Hámarks-
lánstími
Vaxtakjör2 Umsóknar-
frestur
Landsbankinn A 70% af markaðsvirði íbúðar 30 ár breytileg 1.des.2010
Arion banki 2 milljónir kr. 5 ár 5,75% 1.des.2010
1 Lán gegn veði en lán veitt án veðs að 750 þús. kr.
2 Óverðtryggðir vextir
3 Mögulega framlengt
4 Lán gegn veði en lán veitt án veðs að 1 milljón kr.
Íslandsbanki 1,5 milljónir kr.1 5 ár 5,75% 30.9.20103
Landsbankinn B 2 milljónir kr.4 5 ár 5,80% 1.des.2010
Framkvæmdalán bankanna
Persónuvernd
hefur úrskurðað
að Creditinfo-
Lánstrausti hafi
verið óheimilt að
reikna út og selja
mat á lánshæfi
manns án hans
samþykkis. Fyr-
irtækið hafði selt
lánshæfismat hans til þriðja aðila og
taldi hina heimildarlausu vinnslu
vera á ábyrgð þess aðila. Í úrskurði
Persónuverndar kemur fram að
Creditinfo-Lánstraust beri ábyrgð á
þeirri vinnu sem það sjálft fram-
kvæmir og skuli því tryggja að heim-
ild standi til þeirrar vinnslu sem það
hefur með höndum.
Eintaklingur sem átti í hlut leitaði
til Persónuverndar vegna málsins.
Í bréfi mannsins til Persónu-
verndar sagði: „Þennan spádóm sinn
hefur Lánstraust/Creditinfo gert að-
gengilegan þriðju aðilum sem mér
er hvorki kunnugt um hverjir né
heldur hve margir, og þeir hafa tekið
tilboðinu í andstöðu við vilja minn og
í heimildarleysi af minni hálfu. Þetta
tel ég vera með öllu ólíðandi og ósið-
legt.“ jonasmargeir@mbl.is
Creditinfo
óheimilt að
selja mat
Persónuvernd
úrskurðar í málinu
Lokað verður fyr-
ir akandi umferð
um nokkrar göt-
ur í miðborg
Reykjavíkur í
dag vegna Gleði-
göngunnar.
Þannig verður
eystri akrein
Snorrabrautar
lokuð frá Berg-
þórugötu að
Laugavegi frá um klukkan tólf á há-
degi og fram til klukkan hálf þrjú.
Laugavegur verður lokaður af lög-
reglu á meðan gangan á leið um
hann.
Þá verður Lækjargötu og aðliggj-
andi götum lokað frá Geirsgötu og
að Laugavegi frá klukkan tvö til hálf
sex. Að sögn Ástu Kristínar Bene-
diktsdóttur göngustjóra er gert ráð
fyrir að gangan verði komin niður í
Lækjargötu um klukkan hálf fjögur.
Fólk er hvatt til að leggja ekki bílum
sínum við þær götur sem gangan fer
um á meðan á henni stendur.
Lokað á um-
ferð um götur
í miðborginni
Ásta Kristín
Benediktsdóttir