Morgunblaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 ✝ Björg AðalheiðurEiríksdóttir (Dídí) fæddist á Efri-Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd 8. nóvember 1931. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 28. júlí síð- astliðinn. Á fjórða ári hennar fluttist fjöl- skyldan að Rétt- arholti í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Eiríkur Ein- arsson, f. 1891, d. 1973, síðast bóndi í Réttarholti í Reykjavík, og Sigrún Benedikta Kristjánsdóttir, f. 1896, d. 1969, húsmóðir. Systur Dídíar eru Rannveig Ingv- eldur, f. 1920, Unnur Kristjana, f. 1921, d. 1976, Magga Alda, f. 1922, d. 1947, Jóna Kristjana, f. 1924, Auður Halldóra, f. 1925, d. 2004, Lára Brynhildur, f. 1926, Svava Beck, f. 1985, og Sigrún Að- alheiður, f. 1995. Sonur Arnar og Gyðu Örnu Halldórsdóttur er Ágúst Beck; fyrir átti Ingibjörg dóttur, Jóhönnu Beck, sem Eiríkur Örn ól upp, hennar sambýlismaður er Héðinn Rafnsson og þeirra sonur Þórólfur Beck. Börn Eyrúnar úr fyrra hjónabandi eru Dagur Ingi, f. 1989, og Jenna Karen, f. 1994. 2) Valur, f. 1957, 3) Guðmundur Krist- inn, f. 1959, kvæntur Sigrúnu Víg- lundsdóttur, þeirra börn eru Ýmir, f. 1988, og Mekkín, f. 1997. Dóttir Guðmundar og fyrri konu hans Rannveigar Biering er Herdís Bier- ing, f. 1979, í sambúð með Valdimar Þór Valdimarssyni, eiga þau tvo syni, Kormák og Höskuld. 4) Hösk- uldur Reynir, f. 1961, kvæntur Sig- ríði Herdísi Pálsdóttur. Þeirra börn eru Axel Björgvin, f. 1985, og Snæ- dís Birta, 1995. Axel Björgvin er í sambúð með Ellen Jónínu Sæ- mundsdóttur og hennar sonur er Sören. Lengst af bjuggu Dídí og Hösk- uldur að Grensásvegi 56 í Reykja- vík en frá árinu 1996 hafa þau búið að Breiðuvík 24 í Reykjavík. Útför Dídíar fór fram frá Grens- áskirkju 5. ágúst 2010. Guðrún, f. 1928, d. 2008, Erla Eyrún, f. 1929, Inga Ásta, f. 1930, d. 2008, Stef- anía Salóme, f. 1933, d. 1999, Magnfríður Dís, f. 1934, Ólöf Svandís, f. 1935, Lilja Ragnhildur, f. 1941, og Rafnhildur Björk, f. 1943. Árið 1955 á sum- ardaginn fyrsta gift- ist Björg eftirlifandi eiginmanni sínum Höskuldi Guðmunds- syni, f. 2.12. 1929. Synir þeirra fjór- ir eru: 1) Eiríkur Örn, 1955, kvænt- ur Eyrúnu Guðnadóttur; sonur Eiríks og Maríu Hreinsdóttur er Sigurjón Vigfús, f. 1974, kvæntur Kristínu Þóru Jóhannesdóttur og eiga þau tvo syni, Jóhannes Kára og Eirík Ara. Börn Eiríks og Ingi- bjargar Þórólfsdóttur eru Örn Að eiga systur er mikil blessun, að eiga 14 systur er ríkidæmi. Að fylgja ástkærri systur til grafar er erfitt. Hver og ein er sérstök og engin fyllir hennar skarð. Enn er höggvið stórt skarð í garð okkar systra frá Réttarholti í Sogamýri. Við kveðjum Dídí sem var sú tí- unda í röðinni af 15 systrum. Ég á margar góðar minningar um Dídí „syss“, eins og við segjum oft hver um aðra. Snyrtimennska var henni í blóð borin og ég minnist þess hve mamma var henni þakklát þegar hún óbeðin skúraði allt og gerði hreint heima í Réttarholti. Dídi og Stella systur mínar fóru á Húsmæðraskólann að Löngu- mýri í Skagafirði þar sem þær lærðu allt sem þá var talið að nýtt- ist konum best í lífinu. Ég man hvað mér fannst þær báðar fal- legar og skemmtilegar þegar þær komu heim. Þær sögðu okkur sög- ur úr skólanum og kenndu okkur gamanvísur sem við kunnum enn í dag. Dídí vann við aðhlynningu á Elli- heimilinu Grund og hafði hug á að læra hjúkrun. Ekki varð þó af því. Ungur og elskulegur maður, Hösk- uldur Guðmundsson, hennar gæfa í lífinu, var kominn til sögunnar. Dídí og Höskuldur gengu í hjónaband fyrir 55 árum. Synirnir urðu fjórir; allir mannkostamenn. Dídí var mikið ein með þá litla, þar sem Höskuldur var matsveinn á sjó. Ég man þegar hún var búin að baða drengina alla fjóra og svæfa, þá þvoði hún leikföngin og raðaði þeim í hillurnar – tilbúin til næsta dags og allt í röð og reglu. Dídí lagði áherslu á að klæða synina smekklega og oft hafði hún þá alla eins klædda. Ég lærði merkilega lexíu af Dídí eitt sinn. Strákarnir voru að leika sér og hlupu um með hávaða. Hún gekk til þeirra og þreif af þeim „sverðið“ sem þeir voru með og sagði: „Ekki með spýtu!“ Þarna lærði ég á svip- stundu muninn á leikjum stráka og stelpna; áflog og hasar eru eðlileg- ir leikir hjá strákum og maður grípur ekki inn í nema þeir séu komnir með vopn. Að koma í heim- sókn til Dídíar og Höskuldar var sannkölluð veisla. Dídí átti alltaf góðgæti með kaffinu og Höskuldur eldaði veislumat þegar hann var í landi. Dídí elskaði börn og um tíma var hún dagmamma. Þar voru börnin okkar í góðum höndum. Hún hafði ríka kímnigáfu og var hnyttin auk þess sem hún var hagmælt. Þegar hún hló eða brosti ljómuðu augun alltaf eins og þegar hún var ung stúlka. Dídí gladdist mjög þegar barna- börnin fæddust og fylgdist vel með þeim. Hún safnaði myndum eins og ömmur gera og sýndi okkur, alltaf með hugann við þau. Líf Dídíar og Höskuldar hefur ekki verið áfallalaust en alltaf hafa þau staðið saman. Dídi átti í mörg ár við mikinn heilsubrest að stríða og Höskuldur hefur hjúkrað henni af umhyggju og kærleika, og auk þess séð um heimilið af óendan- legri þolinmæði, trúfesti og styrk. Valur, sonur þeirra, hefur undan- farin ár glímt við erfiðan lömunar- sjúkdóm, en samt verið móður sinni mikill stuðningur í gegnum árin og var það foreldrum hans mikils virði. Ég bið guð að blessa Höskuld, synina og fjölskyldur þeirra. Minningin um góða konu og elskulega systur lifir. Rafnhildur Björk Eiríksdóttir (Björk systir.) Björg Aðalheiður Eiríksdóttir✝ KRISTJANA GUÐRÚN HARALDSDÓTTIR, frá Breiðavaði í Langadal, lést þriðjudaginn 27. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma okkar, SIGURRÓS MARGRÉT SIGURJÓNSDÓTTIR, Gullsmára 9, Kópavogi, sem lést laugardaginn 31. júlí, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 10. ágúst kl. 15.00. Jónas Gunnar Guðmundsson, Sigurbjörn Rúnar Jónasson, Reynir Jónasson, Hrafnhildur Rós Valdimarsdóttir, Daníel Björn Sigurbjörnsson, Matthías Sigurbjörnsson, Þórunn Sigurrós Sigurbjörnsdóttir, Bergdís Heiða Reynisdóttir, Friðbjörn Víðir Reynisson. ✝ Eiginmaður minn, EINAR EINARSSON vélstjóri, Stuðlaseli 31, 109 Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fimmtudaginn 29. júlí. Útförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 9. ágúst kl. 15.00. Margrét Sigurðardóttir. ✝ Ástkær bróðir okkar, vinur og frændi, SIGURJÓN JÓNSSON fyrrv. bóndi, í Þverspyrnu, Hrunamannahreppi, lést mánudaginn 2. ágúst á Kumbaravogi. Útförin fer fram frá Hrunakirkju laugardaginn 14. ágúst kl. 14.00. Systkini og aðrir vandamenn. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GRÉTAR SIGURÐSSON, Hjaltabakka 14, Reykjavík, lést að morgni fimmtudags 5. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Sigríður Þóra Ingadóttir, Rósa Dagný Grétarsdóttir, Guðni Þór Arnórsson, Laufey Grétarsdóttir, Eyþór Harðarson, Ingi Grétarsson, Svandís Geirsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN KRISTVARÐSSON fyrrv. kaupmaður, lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 4. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Ragnar V. Kristinsson, Gunnhildur K. Kristinsdóttir, Helga E. Kristinsdóttir, Þór Þórisson, afabörn og langafabörn. ✝ HELGA HAUKSDÓTTIR, frá Kvíabóli, sem lést fimmtudaginn 29. júlí, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 12. ágúst kl. 13.30. Sigurður Marteinsson, Marteinn Sigurðsson, Kristín Björg Bragadóttir, Gísli Sigurðsson, Þórunn Sigtryggsdóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir, ömmu- og langömmubörn. ✝ Elskulegi faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI HANS BJARNASON múrari, Miðtúni 20, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 9. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Umhyggju, félag langveikra barna. Sigmar Þór Óttarsson, Helga Konráðsdóttir, Guðrún Sóley Guðnadóttir, Helgi Harðarson, Garðar Guðnason, Sigríður Sigurðardóttir, Friðrik Guðnason, Elísa Sigrún Ragnarsdóttir, Ásgeir Ævar Guðnason, Guðbjörg Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Að skrifa minningagrein Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til birtingar á mánudag og þriðjudag. Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000 tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum, þar sem þær eru öllum opnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.