Morgunblaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 34
34 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010
Pauline Sachse lágfiðluleikari, Dani-
el Heide píanóleikari og Britte
Schwarz altsöngkona halda tónleika
í Salnum í Kópavogi í kvöld. Á efnis-
skránni eru verk eftir Benjamín
Britten, Johannes Brahms, Charles
Löffler, Robert Schumann og John
Dowland. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Þau eru öll prófessorar við Hanns
Eisler-tónlistarháskólann í Berlín og
eru stödd hér á landi í tilefni af Tón-
listarhátíð unga fólksins þar sem
þau hafa haldið masterclass fyrir
ungt íslenskt tónlistarfólk. Auk þess
að kenna við háskólann hafa þau
Sachse og Heide getið sér gott orð
sem einleikarar. Schwarz hefur
sungið með mörgum helstu hljóm-
sveitum heims.
Tónlistarhátíð unga fólksins hófst
3. ágúst sl. og stendur til 15. ágúst.
Haldnir eru tónleikar í Salnum nán-
ast á hverjum degi, en hátíðin er op-
in fyrir alla tónlistarskólanemendur.
Einnig taka nemendur frá Banda-
ríkjunum, Japan og Finnlandi þátt í
hátíðinni að þessu sinni.
Hátíð Pauline Sachse og Daniel
Heide.
Tónleikar
á tónlist-
arhátíð
Þýskir prófessorar í
Salnum í kvöld
Gagnrýnandi
breska blaðsins
The Times hrífst
mjög af enskri
útgáfu á skáld-
sögunni Ösku
eftir Yrsu Sig-
urðardóttur, en
umfjöllun um
bókina birtist í
blaðinu í vikunni.
Í umsögninni
segir gagnrýnandinn, Marcel Berl-
ins, svo: „Sigurðardóttir skapar al-
veg jafn hrollvekjandi andrúmsloft
á eyju undir glóandi hrauni og á
dimmum íslenskum vetrum eins og
hún gerði í tveimur fyrri bókum
sínum.“ Þess má geta að Berlins
hefur áður borið lof á Yrsu og skip-
að henni í fremstu röð norrænna
glæpasagnahöfunda.
Bók Yrsu fékk einnig lofsamlega
umfjöllun í breska fríblaðinu Metro
og fleiri dagblöðum; til að mynda
gaf gagnrýnandi Daily Mirror bók-
inni fjórar stjörnur og sagði söguna
frábærlega fléttaðan og hrollvekj-
andi trylli.
Aska Yrsu
lofuð á Bret-
landseyjum
Yrsa
Sigurðardóttir
Leiðsögn verður um sýn-
inguna Annað auga – Ljós-
myndaverk úr safneign Péturs
Arasonar og Rögnu Róberts-
dóttur á Kjarvalsstöðum á
morgun kl. 15:00. Leiðsögnina
annast sýningarstjórinn, Birta
Guðjónsdóttir.
Ljósmyndaverkin, sem sýnd
eru á Kjarvalsstöðum, eru um
sextíu talsins og spanna tíma-
bilið frá síðari hluta sjöunda
áratugarins fram til dagsins í dag. Verkin eru m.a.
eftir Cindy Sherman, Sigurð Guðmundsson, Roni
Horn, Roman Signer, Karin Sander, Kristján
Guðmundsson, Hrein Friðfinnsson, Gardar Eide
Einarsson, Carsten Höller og Birgi Andrésson.
Myndlist
Leiðsögn um sýn-
inguna Annað auga
Birta
Guðjónsdóttir
Leiðsögn verður um sumarsýn-
ingar Gerðarsafns kl. 15:00 á
morgun. Á sýningunni Lífs-
hlaup Kjarvals og fleiri úrvals-
verk í einkasafni Þorvaldar og
Ingibjargar eru verk úr einka-
safni Þorvaldar Guðmunds-
sonar og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur, sem er í vörslu
Gerðarsafns. Á neðri hæð
safnsins er sýningin Gerður og
Gurdjieff og eru verk Gerðar
Helgadóttur á sýningunni valin með það í huga að
sýna tengsl Gerðar við kenningakerfi armenska
dulspekingsins G.I. Gurdjieffs.
Sýningarnar standa til 29. ágúst. Safnið er opið
alla daga nema mánudaga kl 11:00-17:00.
Myndlist
Leiðsögn um sýn-
ingar í Gerðarsafni
Gerður
Helgadóttir
Í dag kl. 14 opna Guðrún Pál-
ína Guðmundsdóttir myndlist-
arkona og Kristín Þóra Kjart-
ansdóttir sagnfræðingur
sýninguna Húsmæður og
heimasætur í gistiheimilinu á
Skeiði í Svarfaðardal.
Kveikjan að sýningunni var
sú að ömmur þeirra beggja
bjuggu samtíða á Skeiði fyrir
um hundrað árum. Í sýning-
unni eru þessum formæðrum
gerð skil, en núverandi húsmóðir og heimasæta
koma líka fyrir. Kaffi og kökur verða til sölu á
opnuninni. Allir eru velkomnir. Sýningin mun
standa fram á haust og er þá opið samkvæmt sam-
komulagi við Myriam Dalstein á Skeiði.
Myndlist
Húsmæður og
heimasætur
Guðrún Pálína
Guðmundsdóttir
Fyrir stuttu var Kári Þormar ráðinn
dómorganisti í Reykjavík, en hann
hefur undanfarið starfað sem for-
stöðumaður Kirkju- og menningar-
miðstöðvarinnar í Fjarðabyggð.
Hann gegnir enn báðum þessum
störfum, en lætur brátt af starfinu
fyrir austan. Þar hefur hann gert
mikið af því að koma fram með kór-
um sem píanóleikari, en segir org-
elleikinn nánast hafa legið í dvala
síðustu þrjú ár.
Í dag og á morgun heldur Kári
tónleika í Hallgrímskirkju þar sem
hann hyggst leika verk eftir Dubois,
Mozart, Boyce, Karg-Elert, Þorkel
Sigurbjörnsson, Bach og Widor.
Tónleikarnir, sem eru næstsíðustu
helgartónleikar Alþjóðlegs orgel-
sumars, hefjast kl. 12:00 á laugardag
og kl. 17:00 á sunnudag.
Kári segir að það sé alltaf snúið að
velja saman dagskrá fyrir tónleika,
því þar verði að fara saman það sem
orgelleikarann langar að spila og
það sem fólk hefur gaman af að
heyra. „Það verður að vera pró-
gramm sem byggt er þannig upp að
öllum líki og þungamiðja tón-
leikanna, orgelsinfónía Widors, er
einmitt dæmi um þetta; virtúósa-
verk og glæsileg músík sem er líka
mjög þakklát áheyrnar. Það skilar
sér í tónlistinni ef það er skemmti-
legt að spila hana og þá er líka gam-
an fyrir áheyrendur.“
Á efnisskránni er verk eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson og Kári segist
hafa það fyrir sið að spila að minnsta
kosti eitt íslenskt orgelverk á hverj-
um tónleikum. „Þetta verk hefur
ekki heyrst að ráði lengi, en ég spil-
aði það sem lokaverkefni frá Tón-
skóla Þjóðkirkjunnar 1993 og það er
gaman að rifja það upp.“
Prógramm sem öllum líkar
Næstsíðustu helgartónleikar Alþjóðlegs orgelsumars
Orgelsumar Kári Þormar heldur
tónleika í Hallgrímskirkju.
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Á morgun opnar Hulda Stefáns-
dóttir sýningu í Hallgrímskirkju og
nefnir hana Upplausn. Á sýningunni
beinir hún sjónum að græna litnum
og auk verka í fordyri kirkjunnar
lýsir grænu út um efsta hluta kirkju-
turnsins þegar rökkvar, en eins og
Hulda lýsir því þá verður það sem
þar smjúgi út grænn bjarmi upp-
lausnar fordyrisins.
Hulda segir að hugmyndin að sýn-
ingarröðinni, sem hefur yfirskriftina
Kristin minni, sé komin frá Guðrúnu
Kristjánsdóttur, sem er sýningar-
stjóri. „Hún hefur bent á það hve
tónlist og kirkjan séu nátengd í dag
en aftur á móti hefur myndlistin
fjarlægst kirkjuna. Þetta er því við-
leitni til að endurvekja eða koma á
sambandi milli myndlistar og kirkj-
unnar. Umgjörðin er Hallgríms-
kirkja en samhengið er kirkjan sem
menningarstofnun.
Ég kem að þessu verkefni sem
myndlistarmaður í Reykjavík í dag
og nálgast Hallgrímskirkju út frá
mínum forsendum,“ segir Hulda.
„Ég ákvað að skoða blæbrigði
græna litarins og hugsa þá ekki síð-
ur um hvernig hann tengist menn-
ingu okkar og samfélagi.
Mig langar að mæta mikilfeng-
legri lóðréttu kirkjubyggingarinnar
með lágréttunni og grámynd hennar
með afgerandi litasamspili. Mér var
sérstaklega hugsað til altaristaflna
fyrri tíma þar sem gjarnan var mál-
að í grátónum á framhliðina en þeg-
ar þeim var lokið upp flæddu litirnir
fram. Hvernig grámyndin stendur
fyrir framhlið, meðvitund og ein-
hvern veruleika, en litirnir eru í
þessum beina og milliliðalausa
kjarna skynjunar okkar og þar með
undirvitundarinnar. Þessu tvennu
leitast ég við að spila saman í fordyri
kirkjunnar. Annars vegar í mál-
verkum þar sem ég legg áherslu á
gjörning þess að færa liti á flöt en
hins vegar hef ég sett upp grá afrit
ljósmynda sem ég tók inni í kirkju-
skipinu sem eru eins og andstæða
þess, ímyndir sem eflaust allflestir
gestir kirkjunnar hafa fest sér í
minni, ef ekki á stafrænt myndavéla-
minni til endurlits. Ytra byrðið er
hægt að fjölfalda í ótal myndum. En
upplifunin, lífið og gróskan kemur
frá fólkinu og er alltaf einstök.“
Grænt í
láréttum
formum
Upplausn Huldu í Hallgrímskirkju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Upplausn Hulda Stefánsdóttir opnar sýningu í Hallgrímskirkju á morgun.
Hulda Stefánsdóttir
» Hulda Stefánsdóttir stund-
aði nám við Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og lauk
meistaranámi frá School of
Visual Arts í New York.
» Hún hefur haldið fjölda
einkasýninga hér á landi og er-
lendis.
» Hulda hefur verið prófessor
við myndlistardeild Listahá-
skóla Íslands frá hausti 2008.
»Sýning Huldu stendur til loka
nóvember.
Hvað upplifunina
varðar er þetta svo-
lítið eins og að bjóða erlend-
um ferðamanni í Reykjavík
upp á eldbakaða flatböku 38
»