Morgunblaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 30
30 Minningar MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan í Reykjavík | Samkoma í
dag, laugardag, kl. 11 hefst með biblíu-
fræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á
ensku. Guðsþjónusta kl. 12, Eric Guð-
mundsson prédikar.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum |
Samkoma í dag, laugardag, kl. 11. Boð-
ið upp á biblíufræðslu fyrir börn og full-
orðna. Guðsþjónusta kl. 12. Bein út-
sending frá kirkju aðventista í Reykjavík.
Eric Guðmundsson prédikar.
Aðventsöfnuðurinn á Suðurnesjum |
Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 í
Reykjanesbæ hefst með biblíufræðslu.
Guðsþjónusta kl. 12, Þóra S. Jónsdóttir
prédikar.
Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Samkoma
á Selfossi í dag, laugardag, kl. 10,
hefst með biblíufræðslu fyrir börn og
fullorðna. Guðsþjónusta kl. 11. Manfred
Lemke prédikar.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Sam-
koma í Loftsalnum í dag, laugardag,
hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11.
Stefán Rafn Stefánsson prédikar. Biblíu-
fræðsla fyrir börn, unglinga og fullorðna
kl. 11.50. Boðið upp á biblíufræðslu á
ensku.
Samfélag Aðventista á Akureyri | Sam-
koma í Gamla Lundi í dag, laugardag,
hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir börn
og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 12.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Grillað á eftir. Umsjón hafa
Margrét Ólöf Magnúsdóttir og sr. Þór
Hauksson.
ÁSKIRKJA | Útvarpsmessa kl. 11. Séra
Sigurður Jónsson sóknarprestur prédik-
ar og þjónar fyrir altari ásamt Ásdísi Pét-
ursdóttur Blöndal djákna. Kór Áskirkju
syngur, organisti Magnús Ragnarsson.
Þórunn Elín Pétursdóttir syngur einsöng.
Sjá nánar um starfið á askirkja.is.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Juli-
an Isaacs, félagar úr Kór Breiðholts-
kirkju leiða söng.
BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Þórir Stephensen, fyrrum
dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Við-
ey. Kór Bústaðakirkju syngur. Kantor
Jónas Þórir við hljóðfærið. Heitt á könn-
unni eftir messu. Messuþjónar aðstoða.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur séra Gunnar Sigurjónsson. Org-
anisti Helga Þórdís Guðmundsdóttir. Fé-
lagar úr kór Digraneskirkju leiða söng.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Anna
Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyr-
ir altari, organisti er Kári Þormar. Há-
degisbænir á þriðjudögum, kvöldkirkjan
á fimmtudögum.
FELLA- og Hólakirkja | Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20. Prestur sr. Svavar Stef-
ánsson, organisti er Guðný Einarsdóttir.
Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng.
GARÐAKIRKJA | „Göngumessa“ kl. 20.
Prestur Friðrik J. Hjartar. Stutt helgi-
stund í kirkjunni en síðan genginn „Fóg-
etastígur“ um Gálgahraun. Gangan tek-
ur um 30 mínútur. Rifjaður upp
sögulegur fróðleikur. Hressing að leið-
arlokum við hringtorg neðan Sjálands.
Akstur verður ekki frá Vídalínskirkju
þennan dag.
GLERÁRKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
20.30. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjón-
ar, organisti er Valmar Väljaots.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar
og þjónar fyrir altari. Hildigunnur Ein-
arsdóttir og Egill Gunnarsson leiða
sönginn við undirleik Guðlaugs Viktors-
sonar.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11.
Altarisganga og samskot til ABC-
barnahjálpar. Messuhópur þjónar. Kirkju-
kór Grensáskirkju syngur, organisti er
Árni Arinbjarnarson og prestur sr. Guðný
Hallgrímsdóttir. Molasopi eftir messu.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og
þjónar fyrir altari, messuþjónar aðstoða.
Fermd verður Rebekka Ingibjartsdóttir.
Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja. Organisti er Kári Þormar. Sögu-
stund fyrir börnin. Að lokinni messu er
opnun myndlistasýningar Huldu Stef-
ánsdóttur á vegum Listvinafélags Hall-
grímskirkju. Alþjóðlegt orgelsumar: Tón-
leikar laugardag kl. 12 og sunnudag kl.
17. Kári Þormar leikur.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Org-
anisti Katalin Lörincz. Prestur Tómas
Sveinsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl.
11. Sr. Sigurður Arnarson þjónar. Org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sjá einnig
á www.hjallakirkja.is.
HJARÐARHOLTSKIRKJA | Árleg guðs-
þjónusta í Hjarðarholtskirkju í Þverárhlíð
kl. 14, prestur sr. Elínborg Sturludóttir.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Umsjón hefur kafteinn Sig-
urður Hörður Ingimarsson. Bæn kl.
19.30.
HÓLADÓMKIRKJA | Prestur sr. Hildur Eir
Bolladóttir. Organisti Sigrún Magna Þor-
steinsdóttir og söngfólk úr kór Akureyr-
arkirkju leiðir kirkjusöng. Tónleikar kl.
14. Á tónleikunum leika saman Jón Þor-
steinn Reynisson á harmonikku og Jón
Bjarnason á orgel. Ókeypis aðgangur.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Lof-
gjörðar- og vitnisburðasamkoma kl. 11.
Hópur frá Youth with a Mission vitnar á
samkomunni. Alþjóðakirkjan með sam-
komu á ensku kl. 14. Brauðsbrotning.
Helgi Guðnason prédikar.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
20. Lofgjörð og fyrirbænir. Friðrik
Schram predikar. Einnig verður heilög
kvöldmáltíð. www.kristskirkjan.is
KAÞÓLSKA kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11
og laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11
og 19. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema
föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl.
14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er
messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa
kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laug-
ardaga er messa á ensku kl. 18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa laugardag kl. 18.
Bolungarvík | Messa kl. 16.
Suðureyri | Messa kl. 19.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 14. Sr.
Gunnar Sigurjónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Norræni kórinn í Osló syngur.
Stjórnandi er Kari Raff Reinemo. Org-
anisti er Lenka Mátéová. Eftir messuna
mun kórinn taka nokkur lög.
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landa-
koti kl. 14. Sr. Bragi Skúlason og Ing-
unn Hildur Hauksdóttir organisti.
LANGHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi eftir
stundina.
LÁGAFELLSKIRKJA | Kvöldmessa kl.
20. Prestur er sr. Skírnir Garðarsson og
organisti Guðmundur Ómar Óskarsson.
Forsöngvari leiðir safnaðarsöng.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Helgistund
kl. 14. Samstarf um helgihald meðal
safnaða Þjóðkirkjunnar í Kópavogi. Sr.
Sigurður Arnarsson þjónar.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr
kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Org-
anisti Sigrún Steingrímsdóttir. Sr. Örn
Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Samfélag og kaffisopi á Torginu
eftir messu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl.
17, ræðumaður sr. Kjartan Jónsson.
SELJAKIRKJA | Kvöldguðsþjónusta kl.
20. Sr. Jón Ómar Gunnarsson prédikar
og þjónar fyrir altari, félagar úr kór
Seljakirkju leiða safnaðarsönginn, org-
anisti er Tómas Guðni Eggertsson. Alt-
arisganga.
SELTJARNARNESKIRKJA | Ferming kl.
11. Prestur er sr. Sigurður Grétar Helga-
son.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl.
17, sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur
annast prestsþjónustuna. Ítalski kamm-
erkórinn Libera Cantoria Pisiani flytur
kirkjulega tónlist undir stjórn Filippo
Furlan.
VALÞJÓFSSTAÐARPRESTAKALL |
Útimessa kl. 14 í mynni Sanddals að
austan. Sr. Lára G. Oddsdóttir prédikar
og þjónar. Gylfi Björnsson spilar undir
sálmasöng. Páll Pálsson frá Aðalbóli
lýsir staðháttum og náttúrufari í kringum
Snæfell og á Eyjabökkum. Messugestir
taki með sér nesti og sameinast í kaffi
eftir messu.
VÍDALÍNSKIRKJA | „Göngumessa“ frá
Garðakirkju kl. 20. Prestur Friðrik J.
Hjartar. Stutt helgistund í kirkjunni en
síðan genginn „Fógetastígur“ um Gálga-
hraun. Sjá nánar: Garðakirkja.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Gunnhildur Halla Baldursdóttir org-
anisti spilar og stjórnar kór kirkjunnar.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14.
Minnst verður sr. Braga Friðrikssonar
fyrrum prófasts Kjalarnesprófastdæmis,
en til stóð að hann predikaði þennan
sunnudag á Þingvöllum. Benedikt Krist-
jánsson syngur einsöng. Organisti Guð-
mundur Vilhjálmsson. Kristján Valur Ing-
ólfsson predikar og þjónar fyrir altari.
(Lúk. 19)
Morgunblaðið/Golli
Reykholtskirkja.
ORÐ DAGSINS:
Jesús grætur yfir Jerú-
salem.
HÁGÆÐI
Sími: 565-7070
www.husavidgerdir.is
info@husavidgerdir.is
100% endurgreiddur vsk af vinnu
Húsaviðgerðir.is
Elsku besta amma
mín. Ég veit að þú
hvorki vildir umstang
né einhverjar upp-
talningar á lífsferli
eða nokkra dramatík. En ég get því
miður ekki sleppt því að skrifa eitt-
hvað en ég skal reyna að hafa það
stutt. Ég vona að þú samþykkir
það.
Ég vildi bara fá að nota þetta
tækifæri til þess að þakka fyrir það
að hafa kynnst þér og þakka fyrir
allar þær góðu stundir sem okkur
hefur hlotnast að eiga saman.
Dugnaður þinn og eljusemi verð-
ur mér alltaf hvatning. Þú hvorki
kveinkaðir þér né kvartaðir sama
hvað gekk á. Þú barst hag annarra
fyrir brjósti og hugsaðir meira um
okkur í fjölskyldunni en sjálfa þig.
Amma, tíma þínum hér í þessu
jarðlífi er lokið og ekkert fær því
breytt. Ég hefði viljað hafa hann
lengri en ég veit að það er eigingirni
Jarþrúður Soffía
Ásgeirsdóttir
✝ Jarþrúður SoffíaÁsgeirsdóttir
fæddist á Hömrum í
Eyrarsveit 3. apríl
1924. Hún lést á
Landspítalanum 27.
júlí sl.
Útförin hefur þeg-
ar farið fram í kyrr-
þey.
og því er það besta
sem ég geri að óska
þér velfarnaðar í nýj-
um heimkynnum og
óska ég þess að þú
munir þar finna allt
það sem þú þráir að
finna.
Ég ætla ekki að
hafa þetta lengra eins
og ég lofaði en sendi
hér með lítið ljóð sem
lætur í ljós óskir mín-
ar og hugsanir.
Löngum ferli lokið er,
lífsins bók er skráð,
upp þú skerð af akri hér,
eins og til var sáð.
Til ljóssins heima lífið snýr,
langt með dagsverk þitt,
Drottinn sem þér bústað býr,
barnið þekkir sitt.
Í margra huga er minning skær,
og mynd í hjarta geymd.
Stöðugt okkur stendur nær,
stund sem ekki er gleymd.
Nú komið er að kveðjustund,
klökkvi hjartað sker,
nú gengin ertu Guðs á fund,
sem góður líknar þér.
(Kristján Runólfsson.)
Guð blessi þig, amma mín.
Þinn,
Sævar.
Yndislega, fallega
mágkona mín, vinkona
og eiginlega systir,
Ingibjörg Kaldal, er
dáin. Hver hefði trúað
því fyrir tíu dögum.
Þetta kom eins og
reiðarslag yfir Kaldals-fjölskylduna.
Þegar ég kom inn í fjölskylduna
sem unnusta Jóns Kaldals yngri,
bróður Ingibjargar, fyrir rúmlega
44 árum var mér tekið opnum örm-
um sem aldrei hafa lokast síðan.
Tengdaforeldrar mínir, Guðrún og
Jón Kaldal, Nonni, maðurinn minn
og dæturnar tvær, Dagmar og Ingi-
björg voru mjög sterk heild og stóðu
alla tíð þétt saman ásamt „ömmu á
Skóló“, Dagmar móður Guðrúnar.
Dagmar, Jón og Guðrún dóu öll
með stuttu millibili og eftir stóðu
systkinin þrjú. Þetta var stórt skarð
í ekki stærri fjölskyldu en saman
stóðu systkinin, sama hvað á bját-
aði.
Þegar ég sá Ingibjörgu fyrst
fannst mér hún algjör skvísa, svona
eins og Hollywood-stjörnurnar.
Flott klædd og greidd og grönn eins
og Twiggý.
Þvílík persóna, full af orku, algjör
stuðbolti. Já, það var skemmtilegt
að skemmta sér með Ingibjörgu.
Hún var listræn fram í fingurgóma,
fagurkeri og hafði einstakt lag á að
sjá hvað fór vel saman. Hvernig
myndir voru hengdar upp, húsgögn-
um komið fyrir og púðum og tepp-
um. Í þannig vinnu var hún síðast-
liðin tæp tuttugu ár. Fyrst hjá
Evu-Company síðan Tekk-Comp-
any.
Hún tók við Ljósmyndastofu Kal-
dals þegar pabbi hennar dó en
fannst það heldur einmanalegt starf,
hætti og fór til Mats Wibe Lund og
síðan á Nærmynd hjá Guðmundi Jó-
hannessyni. Hún var líklega ein sú
flinkasta á landinu í að „redúsera“
myndir á þessu tímabili.
Ég veit að við stórfjölskyldan eig-
um öll eftir að sakna Ingibjargar al-
veg óskaplega. Við vorum öll svo
miklir og góðir vinir, eldra fólkið,
Ingibjörg Kaldal
✝ Ingibjörg Kaldalfæddist 11. apríl
1947 í Reykjavík. Hún
lést þann 22. júlí 2010.
Útför Ingibjargar
var gerð frá Dóm-
kirkjunni 30. júlí
2010.
börnin okkar, sem
eiginlega voru öll alin
upp á sama blettinum,
í Laugarásnum, og
fjölskyldur þeirra. Ef
eitthvað er þá hefur
vináttan bara styrkst
með árunum.
Elsku hjartans
Ingibjörg mín. Þakka
þér fyrir samfylgdina
öll árin. Nonni fór fyr-
ir sjö árum og nú þú.
Hvað getum við sagt?
Við erum auðvitað al-
veg orðlaus. En oft
var fjör og gaman.
Guð blessi minningu yndislegrar
konu. Siggi minn og fjölskylda, Guð
veri með ykkur í þessari djúpu sorg.
Steinunn Kaldal Kristinsdóttir.
Það er undarlegt hvernig maður
bregst við, þegar maður fær fréttir
sem maður vill ekki heyra og koma
eins og þruma úr heiðskíru lofti. Til-
finningin er tómleiki, umkomuleysi.
Mats Wibe Lund, ljósmyndari og
vinur okkar, hringdi í mig þar sem
ég var að njóta veðurblíðunnar og
sagði tíðindin.
Þegar ég skrifa þessar línur er
það fyrir mér verulega óraunveru-
legt að Ingibjörg Kaldal sé farin.
Hún ætlaði að koma á stofuna
fljótlega aftur og staldra þá við
lengur. Ég hlakkaði alltaf til að fá
hana í heimsókn til að sýna henni
stafrænu myndirnar mínar, en að
öðrum ólöstuðum kenndi hún mér
mest. Við unnum saman hjá Mats
þegar ég var að læra og hjá mér eft-
ir að ég stofnaði Nærmynd. Ekki
með því að útskýra fyrir mér í orð-
um heldur að skilja, með framkomu
sinni og klassísku viðhorfi. Ég minn-
ist þess að hafa þurft að fara inn í
myrkraherbergi aftur og aftur að
kópera sömu myndina áður en ég
fékk brosið. Þannig lærði ég að kó-
pera. Svart-hvítt portrett ber að
umgangast með virðingu og að það
er dauðans alvara. Allir eru bara
nokkuð góðir þegar sálin er í lík-
amanum og egóið er ekki að amast
of mikið í manni. Að fá að kynnast
þér, Ingibjörg, eru forréttindi.
Ég þakka þér viðkynninguna og
leiðsögnina. Farð þú í friði, kæra
vinkona.
Guðmundur Kristinn Jóhann-
esson, ljósmyndari í Nærmynd.