Morgunblaðið - 07.08.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
getur ekki boðið upp á vetrardvöl í
Reykjadal í vetur vegna fjárskorts og
niðurskurðar. Vilmundur Gíslason,
framkvæmdastjóri styrktarfélagsins,
kveður mikinn halla á rekstrinum.
„Nú lækka fjárveitingar og þó að
starfsmenn okkar séu bara láglauna-
fólk koma hækkanir á grunnlaunum
mjög illa við reksturinn. Þær vega
hátt í prósentum þó að þetta séu bara
láglaunastörf. Þetta eru ungir krakk-
ar sem vinna þarna á lágum töxtum
svo að allar krónutöluhækkanir koma
sér illa fyrir okkur þannig að við
treystum okkur ekki til þess að vera
með vetrardvölina,“ segir Vilmundur
sem kveður þá ákvörðun hafa verið
tekna að skerða þess í stað ekki sum-
ardvöl í Reykjadal.
Hann kveður um níutíu einstak-
linga koma til vetrardvalar í eina
helgi tvisvar sinnum að vetri til.
Móðir fatlaðs barns segir þetta
sorgarfréttir í samtali við Morgun-
blaðið. „Nú fáum við ekki hvíldar-
helgi. Þetta er hugsað sem slíkt bæði
fyrir foreldra og fjölskyldu. Þetta er
líka mikil tilbreyting fyrir barnið að fá
að vera innan um jafnaldra. Þarna eru
krakkar sem þau hafa kynnst í gegn-
um árin og starfsfólkið hefur unnið
virkilega gott starf.“
Hún kveður starfsfólkið hafa unnið
af mikilli elju í gegnum árin og telur
vetrardvölina í Reykjadal mikinn
missi. „Það er unnið af mikilli gleði og
hjartagæsku. Það gefa allir mikið af
sér þarna. Starfsfólkið er einvalalið,
þetta eru því sorgarfréttir.
Þetta er svo áríðandi og mikilvæg
starfsemi þótt hún hafi lítil efni. Það
er enginn lúxus þarna en það er bara
gleðin sem ríkir.“
jonasmargeir@mbl.is
Vetrardvölin lögð af
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra getur ekki boðið upp á
vetrardvöl í Reykjadal vegna fjárskorts og niðurskurðar
Reykjadalur
» Nú eru starfræktar sumar-
búðir fyrir fatlaða og lamaða
einstaklinga í Reykjadal.
» Hingað til hefur verið boðið
upp á helgarlanga vetrardvöl
fyrir þessa einstaklinga en nú
verður hún lögð niður vegna
fjárskorts og niðurskurðar.
Valskonur sigruðu Þór/KA örugglega 3:0 í
Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi.
Mörkin skoruðu Rakel Logadóttir, Helga
Sjöfn Jóhannesdóttir og Hallbera Guðný Gísla-
dóttir. Þar með hefur Valur sex stiga forystu á
Breiðablik á toppi deildarinnar. » Íþróttir
Morgunblaðið/Ómar
Valskonur með sex stiga forskot á toppi deildarinnar
Helgi Magnús-
son, formaður
Samtaka iðnað-
arins, segir fram-
komu margra
stjórnmála-
manna í Magma-
málinu svo-
nefnda ekki til
þess fallna að
auka traust á ís-
lensku samfélagi og ekki verða til
þess að hraða endurreisn efnahags-
lífsins hér á landi.
Haft er eftir Helga á vef SI að
það sé ekki rétt mat hjá Katrínu
Júlíusdóttur iðnaðarráðherra að
Alcoa hafi ekki sýnt þann áhuga
sem búist var við varðandi nýtt ál-
ver á Bakka.
Hins vegar þurfi stjórnvöld að
upplýsa hve mikil orka verði í boði
á svæðinu og á hvaða verði. Enginn
fjárfestir geti ráðist í verkefni í
orkufrekum iðnaði án þess að hafa
fullvissu fyrir því að orka sé til
staðar á samkeppnishæfu verði.
Boltinn sé því hjá stjórnvöldum.
Eykur ekki traust á
íslensku samfélagi
Helgi Magnússon
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Við ákváðum að fara þessar
mjúku leiðir og höfða til samvisku
manna, en það verður ekki þannig
næsta föstudag,“ segir Valdimar
Leó Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Landssambands slökkviliðs-
og sjúkraflutningamanna en öðru
verkfalli sambandsins lauk á mið-
nætti í gærkvöld. Það næsta er
fyrirhugað á föstudaginn eftir
viku.
Hann segir sína menn ekki hafa
viljað beita mótmælaaðgerðum í
gær til þess að sýna andstöðu við
að Flugfélag Íslands flygi til
Húsavíkur í stað þess að nota Ak-
ureyrarflugvöll þar sem Slökkvilið
Akureyrar sinnir flugvallarslökkvi-
liðsþjónustu.
Aðgerðum Isavia mótmælt
Isavia, sem heldur utan um
rekstur flugvalla á Íslandi, gaf í
gær Flugfélagi Íslands leyfi til
þess að lenda á flugvellinum á
Húsavík. Var slökkviliðsbifreið
Isavia sem allajafna er staðsett á
Akureyrarflugvelli send til Húsa-
víkur vegna þess. Þessum aðgerð-
um Isavia hefur verið mótmælt
harðlega, m.a. af stéttarfélaginu
Framsýn á Húsavík, og þær sagð-
ar brot gegn vinnulöggjöf. Hefur
Framsýn ekki útlokað aðgerðir
vegna málsins að sögn formanns
félagsins.
Þessum ásökunum um lögbrot
hefur Isavia hins vegar hafnað
með tilvísun í lögfræðiálit frá Sam-
tökum atvinnulífsins.
Engin alvarleg atvik
„Það er ekkert að frétta. Við er-
um bara að fara yfir tölur,“ segir
Sverrir Björn Björnsson, formaður
Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna. Hann segir
enga fundi fyrirhugaða í kjara-
deilu sambandsins.
Aðspurður sagðist Sverrir ekki
vita til þess að nein alvarleg mál,
líkt og slys eða annað þess háttar,
hefðu komið upp á meðan á verk-
falli slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna stóð í gær.
Í hart í næsta verkfalli
Engir fundir eru fyrirhugaðir í kjaradeilu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Segja að mjúku leiðirnar hafi verið fullreyndar og ætla í hart í næsta verkfalli
Morgunblaðið/Ernir
Árekstur Slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamenn að störfum.
Að sögn læknis á bráða-
móttöku Landspítalans í Foss-
vogi komu ekki upp nein al-
varleg atvik í gær í tengslum
við starfsemi hennar vegna
verkfalls slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna. Hins
vegar hefði verkfallið hægt
talsvert á starfseminni. Þann-
ig hefðu orðið umtalsverðar
tafir á því að koma sjúkling-
um á milli staða sem t.a.m.
hefðu þurft að fara með
sjúkrabifreið annaðhvort heim
til sín eða á aðrar deildir inn-
an Landspítalans.
Hægði á
starfseminni
BRÁÐAMÓTTAKAN
Landspítalinn (LSH) hefur í sparn-
aðarskyni sagt upp áskrift að Stöð 2
og öðrum sjónvarpsrásum 365 miðla.
Til skoðunar er að bjóða sjúklingum
upp á aðgang að Stöð 2 á biðstofum
spítalans en samningar um það við
365 eru í vinnslu, að sögn Kristjáns
Erlendssonar, starfandi forstjóra
Landspítalans.
„Við reynum að leita allra hugs-
anlegra leiða til að spara, án þess að
það bitni á meðferð sjúklinga. Öllum
steinum er velt við,“ segir Kristján
en aðspurður segir hann sparnað
spítalans vera tæpar þrjár milljónir
króna á ári, með því að segja upp
Stöð 2 og öðrum rásum 365. „Við
höfum ekki orðið vör við sérstök við-
brögð frá sjúklingum við þessu en
ekki er komin mikil reynsla á þetta
ennþá. Við þurfum einfaldlega að
forgangsraða með þessum hætti,“
segir Kristján en þar með hefur
Landspítalinn ekki áskrift að nein-
um fjölmiðlum lengur. bjb@mbl.is
Spítalinn
segir upp
Stöð 2
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Sjúklingar hafa nú
aðeins RÚV, ÍNN og Omega.
LSH ekki lengur með
áskrift að fjölmiðlum
Brotist var inn á
þremur stöðum á
höfuðborgar-
svæðinu í gær.
Þar af voru tvö
þeirra framin í
Grafarvogi og
eitt í Kópavogi.
Stolið var ýmsum
rafmagnsbúnaði
af heimilunum s.s. sjónvörpum,
tölvubúnaði og öðru slíku.
Í einu tilfelli var húsið ólæst og
brýnir lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu fyrir fólki að tryggja það
að húsakynni þess séu læst þegar
enginn er heima.
Þrjú innbrot á höf-
uðborgarsvæðinu
Samkeppniseft-
irlitið gerir al-
varlegar at-
hugasemdir við
frumvarp um
breytingar á bú-
vörulögum þar
sem fyrirhugað
er að lögfesta
refsifyrir-
komulag gagnvart tilteknum
rekstraraðilum sem hafa hug á að
framleiða mjólkurvörur fyrir ís-
lenska neytendur. Þetta kemur
fram í umsögn Samkeppniseft-
irlitsins sem send hefur verið
sjávarútvegs- og landbúnað-
arnefnd.
Telur Samkeppniseftirlitið að
með frumvarpinu sé verið að
þrengja enn frekar að samkeppni.
Það hafi hamlandi áhrif á fram-
leiðslu- og hagræðingarmöguleika
bænda og takmarki samkeppni í
vinnslu og sölu mjólkurafurða
neytendum til tjóns.
Frumvarpið haml-
andi fyrir neytendur