Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Framkvæmdir við Dalskóla í Úlfarsárdal eru á lokastigi
og starfsmenn verktaka keppast við að ljúka sínum
verkþáttum. Enda ekki seinna vænna því starfsliðið
flytur inn eftir viku og nemendur mæta í skólann 23.
ágúst.
Húsið var upphaflega hannað sem leikskóli, en til að
byrja með verða þarna einnig yngri deildir grunnskóla
ásamt frístundaheimili. Starfsemin verður undir einni
stjórn og er Hildur Jóhannesdóttir skólastjóri. Leik-
skólinn verður á jarðhæð hússins en grunnskólinn á 2.
hæð.
Nú eru 27 grunnskólabörn skráð í 1.-5. bekk Dal-
skóla, en nokkuð er um að börn í hverfinu sæki áfram
þá skóla sem þau hafa verið í, samkvæmt upplýsingum
Júlíusar Sigurbjörnssonar, verkefnastjóra á mennta-
sviði Reykjavíkurborgar. Börnin hafa val um hvort þau
fara í Dalskóla eða ekki. Í fyrravetur var um 45 börn-
um ekið í skóla í Grafarvogi og Grafarholti og verður sú
þjónusta veitt áfram fyrir börn sem verða í Ingunnar-,
Sæmundar-, Engja- eða Rimaskóla.
Á heimasíðu borgarinnar kemur fram að reiknað sé
með að hátt í áttatíu börn samtals hefji nám í leik- og
grunnskólanum nýja í haust.
Hæg uppbygging í Úlfarsárdal
en nokkur fjölgun frá síðasta ári
Frá síðasta ári hefur börnum fjölgað í hverfinu og nú
búa 66 börn á grunnskólaaldri í Úlfarsárdal. Þar af eru
42 þeirra í 1.-5. bekk. Byggðin í Úlfarsárdal hefur
byggst hægar upp en upphaflega var áætlað. Gert var
ráð fyrir sérstökum grunnskóla í hverfinu en Júlíus
segir að grundvöllur sé ekki enn til slíkra framkvæmda.
Áherslur í skólastarfi í Dalskóla verða á læsi og les-
skilning, listir og sköpun, umhverfismennt og fé-
lagsfærni og virka þátttöku barna, segir á heimasíðu
Reykjavíkurborgar. Skólinn stendur við Úlfarsbraut,
mót suðri í skjóli Úlfarsfells. Arkitektar Dalskóla eru
Arkþing, Sérverk var verktaki við uppsteypu og fulln-
aðarfrágang skólahússins og SÁ-verklausnir sáu um
lóðagerð og leiktæki. Framkvæmdir hófust fyrir um
ári.
Líf færist í nýjan Dal-
skóla eftir tvær vikur
Leikskóli, grunnskóli og frístundaheimili undir einni stjórn
Morgunblaðið/Eggert
Dalskóli Nýjasti grunnskólinn í borginni tekur til starfa í haust og verður þá vinnustaður 27 nemenda og starfsliðs.
Samkeppniseft-
irlitið á von á
formlegri til-
kynningu um
samruna
svínabúanna á
Hýrumel og
Brautarholti við
Stjörnugrís á
Kjalarnesi. Páll
Gunnar Pálsson,
forstjóri eftirlits-
ins, segir að upplýsingaöflun sé haf-
in vegna rannsóknarinnar.
Fram hefur komið að Arion
banki yfirtók rekstur tveggja stórra
svínabúa í byrjun árs vegna skulda-
vanda. Sameinað bú mun að lík-
indum ráða yfir rúmlega 60% svína-
kjötsframleiðslunnar í landinu. Jón
Bjarnason, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, reyndi að koma í
veg fyrir sölu bankans á búunum.
Páll Gunnar segir að
Samkeppniseftirlitið hafi ákveðinn
frest til að taka afstöðu til málsins.
Ef samruni verði talinn hindra
samkeppni geti Samkeppniseft-
irlitið ógilt hann eða sett honum
skilyrði.
Samruni
svínabúa til
athugunar
Svín Breytingar í
kjötframleiðslu.
Búið er að skipa nefnd sem metur
hæfni umsækjenda um stöður for-
stjóra heilbrigðisstofnana.
Arneyju Einarsdóttur lektor hef-
ur verið falið að gegna formennsku
í nefndinni vegna umsókna um for-
stjórastarf LSH. Aðrir í nefndinni
eru Halldór Jónsson, forstjóri FSA
og Haraldur Briem sóttvarnalækn-
ir.
Þrír nefndarmenn viku sæti
vegna vanhæfis, þau Guðfinna
Bjarnadóttir, formaður nefndar-
innar, Anna Lilja Gunnarsdóttir,
varamaður Guðfinnu og Jóhannes
Pálmason, að því er fram kemur á
vef heilbrigðisráðuneytisins.
Umsóknarfrestur um starf for-
stjóra Landspítala rann út 30. júlí
sl. og sóttu sex um stöðuna. Nefnd-
in skal skila umsögn um umsækj-
endur til ráðherra innan sex vikna
frá því umsóknarfresti lauk.
Morgunblaðið/ÞÖK
Landspítali Sex sóttu um starf forstjóra.
Arney fer fyrir
hæfisnefndinni
Um miðjan apríl var efnt til nafna-
samkeppni á vef Reykjavíkur-
borgar og meðal íbúa í Úlfars-
árdal. Alls bárust 127 tillögur að
nafni á skólann, þar af þrjár þar
sem lagt var til að skólinn skyldi
heita Dalskóli. Starfshópur fór yfir
allar tillögur og valdi skólanum
nafn. Dalskóli þótti nafn við hæfi
þar sem það tengist m.a. stað-
háttum.
Nafnið tengist stað-
háttum í Úlfarsárdal
NAFNASAMKEPPNI
Hverfið hefur
byggst hægt.
Runólfur
Ágústsson skil-
aði í gær félags-
og trygginga-
málaráðuneytinu
umbeðnum
gögnum um fjár-
mál sín og fé-
laga í hans eigu
sem ráðherra
óskaði bréflega
eftir sl. þriðju-
dag, Gagnanna var óskað í
tengslum við skipun hans sem um-
boðsmanns skuldara sem Runólfur
síðan sagði lausu.
„Í gær svaraði ég sömuleiðis
fyrirspurn ráðuneytisins um laun í
uppsagnarfresti á þá leið að ég af-
þakkaði slíkt,“ segir í tilkynningu
frá Runólfi.
Afþakkar laun
í uppsagnarfresti
Runólfur
Ágústsson
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Handverkshátíðin við Hrafna-
gilsskóla er haldin í átjánda sinn
nú um helgina. Á hátíðinni verð-
ur íslenskt handverk til sýnis en
margt fólk kemur til að sýna og
kynna vinnu sína og verk.
Tískusýningar á íslenskum
hannyrðum verða haldnar dag-
lega en fjölmargir hönnuðir og
framleiðendur taka þátt í þeim.
Á sýningunni verður ís-
lensku landnámshænunni gert
hátt undir höfði en félag land-
námshænsna verður með sýn-
ingu á sjötíu fuglum. Þá verður
keppt um fallegasta fuglinn en
gestir hátíðarinnar munu kjósa
hann. Titillinn þykir eftirsókn-
arverður enda hörð samkeppni
meðal fuglanna.
Þá munu sveitarstjórnir á
Eyjafjarðarsvæðinu etja kappi hver
við aðra í brunaslöngubolta en það
er einn af föstum liðum hátíð-
arinnar. Brunaslöngubolti er að
mestu leyti eins og venjulegur fót-
bolti en í stað hins hefðbundna
knattar er notast við stóran upp-
blásinn sundbolta. Markmaður
hvors liðs fær þá brunaslöngu sem
nýta skal til varnar. Liðin eiga svo
að keppast við að skora mark og þá
sérstaklega að komast framhjá
kraftmikilli vatnsbunu brunaslöng-
umarkmannsins.
Fegursti fuglinn kosinn um helgina
Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla haldin í átjánda sinn Félag landnámshænsna verður
með sýningu Sveitarstjórnir á Eyjafjarðarsvæðinu keppa hver við aðra í brunaslöngubolta
Skrautlegur Ingi Vignir Gunnlaugsson með skrauthana sinn í Hrafnagili.
Landnámshænan
» Landnámshænan kom
til Íslands með landnáms-
mönnum á tíundu öld.
» Rannsóknir á vefja-
flokkagerð hennar sýnir ein-
ungis skyldleika með göml-
um norskum hænsnum.
» Ekki eru margir fuglar
eftir af stofni íslensku land-
námshænunnar sem telur
einungis nokkur hundruð
fugla.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Heildarfjöldi frjókorna í júlí reyndist
langt yfir meðallagi samkvæmt til-
kynningu frá Náttúrufræðistofnun
Íslands og sló út metsumarið 1991
þegar ríflega 2.500 frjó mældust í
júlí samanborið við um 4.000 frjó nú.
Grasfrjó urðu nærri 3.600, frjótal-
an fór yfir hundrað alls tíu sinnum í
mánuðinum, í fyrsta skipti hinn 9.
júlí. Hefur það ekki gerst svo
snemma áður að því er segir í til-
kynningunni.
Ólík staða á Akureyri
Staðan var talsvert önnur norðan
heiða en heildarfjöldi frjókorna á
Akureyri var langt undir meðallagi
þar eða 378 frjó miðað við meðaltalið
772. Grasfrjó voru færri en í meðal-
ári, urðu 274 sem þó er talsvert fleiri
en í fyrrasumar þegar grasfrjó
reyndist í lágmarki.
Fram kemur að þótt gras sé víða
tekið að sölna eru nokkrar grasteg-
undir enn í blóma sem dreifa frjó-
kornum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Frjó Frjókorn á flugi í Reykjavík.
Langt yfir
meðaltali í
Reykjavík
Frjókorn í Reykjavík
og á Akureyri í júlí