Morgunblaðið - 07.08.2010, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.08.2010, Qupperneq 10
PRUFUTÍMINN Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Fyrir landkrabba er þaðheilmikið átak að fara út ábryggju, hvað þá að stígaum borð í bát. Hvala- skoðun er engin veiðiferð en það var alveg næg sjómennska í því fyrir mig. Það var síðdegis á fimmtudag- inn sem ég rölti niður á Reykjavík- urhöfn og steig um borð í Rósina, hvalaskoðunarbát Puffin Express. Þeir fara þrjár ferðir á dag í hvala- skoðun og bjóða líka upp á lunda- skoðun en samkvæmt Ingimari Finnbjörnssyni skipstjóra hafði þó lítið verið farið í lundaskoðun í sum- ar enda lítið um lunda á staðnum til að skoða. Ég var full tilhlökkunar þar sem ég sat uppi á dekki Rósarinnar og beið þess að haldið yrði úr höfn. Nokkuð var af farþegum auk mín, blanda af Íslendingum sem útlend- ingum, annars sagði Ingimar mér að Íslendingar kæmu ekki mikið um borð en nokkuð hefði þó verið um þá um verslunarmannahelgina. Það viðraði ágætlega til sjó- ferðar þennan dag, skýjað og smá- rok. Ég þorði ekki annað en að spyrja hvort ég gæti orðið sjóveik, „Já, ef þú hugsar út í það,“ var svar- ið sem ég fékk og ég ákvað að hugsa ekki út í það en hugsaði samt út í það, sjóveik varð ég ekki. Annað sjónarhorn Loksins héldum við frá landi og greindi ég nokkra spennu hjá sam- ferðamönnum mínum sem báru aug- ljóslega þá von í brjósti að sjá hvali. Þrír voru í áhöfninni hjá Puffin Express og enginn þeirra vildi lofa mér að ég sæi hval, einn hafði þó sést fyrr um daginn og var ég því vongóð um að hann myndi skjóta upp kollinum aftur. Sjórinn var samt aðeins úfinn sem gerir það að verk- um að erfiðara er að koma auga á hvali. Frá höfninni var siglt á fullri ferð í um þrjátíu mínútur út á Faxa- flóa, sú ferð var ekki viðburðalítil, ég fékk nýtt sjónarhorn á Reykjavík, tónlistarhúsið lítur t.d mjög skemmtilega út frá sjó séð. Við fór- um líka framhjá snekkju auðmanns- ins Pauls Allen og hægt var að láta sig dreyma í nokkurn tíma um að vera um borð í henni. Rósin var samt alveg nógu góð fyrir mig, mjög snyrtilegur bátur sem tekur 75 manns um borð og hentar vel í hvalaskoðun. Eftir nokkra stund og svolítinn sjó var hægt á ferðinni og farið að skima eftir hval. Allir farþegarnir röðuðu sér við borðstokkinn og störðu út á haf, flestir með mynda- vélina tilbúna. Áhöfnin var með kíki á nefinu og fararstjórinn þuldi upp Æsispennandi hvalaskoðun Hvalaskoðun er stór hluti af ferðamannaþjónustunni á Íslandi. Erlendir gestir flykkjast í bátana í von um að sjá einn bakugga eða sporð kíkja upp úr yfirborði sjávar. Íslendingar eru sjaldséðari gestir á hvalaskoðunarbátunum enda hvað er að sjá? Ýmsu komst blaðamaður að þegar hann skellti sér í hvalaskoðun frá Reykjavíkurhöfn með Puffin Express. Morgunblaðið/Eggert Á bryggjunni Blaðamaður ræðir við systur sína sem var komin um borð. Hvalur framundan? Komin út á Faxaflóa, báturinn stopp og skimað. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 Hver hannaði brúnu töskuna sem Jessica Alba sást með í LA á miðviku- daginn? Hvar er hægt að nálgast græna kjólinn sem Cameron Diaz klæddist við kynningarstörf í Þýska- landi í júlí? Það getur verið ansi erfitt, jafnvel ógerlegt, að leita einn síns liðs að ákveðinni flík eða skartgrip sem ein- hver stórstjarnan hefur klæðst eða borið. Vefsíðan Celebrity Fashion kemur þeim til hjálpar sem kannast við þessi hvimleiðu vandræði. Þar má finna aragrúa af stjörnum sem kunna að klæða sig (eða hafa efni á að ráða til sín góða stílista) og eru föt þeirra og fylgihlutir krufnir til mergjar. Upplýsingar eru til reiðu um hvar þeir fást, og jafnvel hvar hægt er að nálgast ódýrari útgáfuna. Það er nefnilega ekki á allra færi að fjár- festa í flíkum sem kosta meira en ut- anlandsferð. Síðan er vel skipulögð og því auð- velt að finna það sem leitað er eftir. Aðstandendur hennar eru með vökul augu og að því virðist alltaf vinnandi, því fjöldi færslna birtist þar á dag. Ef þú fylgist með fræga fólkinu í Hollywood og hefur áhuga á tísku þá er vefsíðan Celebrity Fashion fyrir þig. Vefsíðan: www.celebrityfashion.onsugar.com Klæddu þig eins og stjörn- urnar Handverkshátíðin í Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit er haldin nú um helgina. Þar eru 140 sýn- endur með handverk sitt og því margt að sjá. Það er líka fleira í boði, t.d. söguþorp – landnám til dagsins í dag, tískusýningar, fegurðarsamkeppni landnáms- hænsna, forndráttarvélasýn- ing, verksvæði handverks- manna, rúningur, lottó og norrænir handverksdagar. Meðal viðburða í tengslum við hátíðina verður bruna- slöngubolti þar sem sveit- arstjórnir á Eyjafjarðar- svæðinu munu takast á. Leikirnir fara fram á fótbolta- vellinum við hátíðarsvæðið á morgun og hefjast kl. 14.30. Hátíðin er opin til mánu- dagsins frá kl. 12-19 alla dag- ana. Sjá nánar á www.hand- verkshatid.is. Endilega… … farið á handverkshátíð Áhugavert Frá Handverkshátíð. una ásamt hefðbundnum íslenskum handprjónuðum lopapeysum. Teppapeysan er svo til sýnis og mátunar í tveimur verslunum í Hafnarfirði, HB búðinni og Kaki,“ segir Kristín. Frá toppi til táar Hugsunin á bak við teppapeys- Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Hugmyndina að Koffort- teppapeysunni hef ég gengið með í maganum í nokkur ár. Ég starfa sem flugfreyja hjá Icelandair og er mjög umhugað um að fólki líði vel, sé hlýtt og hafi það notalegt. Mér var bent á hönnunarkeppni hjá Innovit sem heitir Gulleggið og það var hvatinn að því að ég lét loksins verða af því að koma þessari hug- mynd á koppinn,“ segir Kristín Unnur Þórarinsdóttir sem hefur hannað teppapeysuna Koffort ásamt Ingibjörgu Þóru Gests- dóttur, vinkonu sinni. „Ég fékk Ingu með mér í þetta verkefni en hún er fatahönn- uður. Við höfum verið með teppa- peysuna og alla umgjörðina í kring- um hana í þróun síðan í febrúar. Þetta er búin að vera mikil vinna en jafnframt mjög skemmtileg. Út- koman er sem sagt þessi og við er- um fyrst núna að sleppa hendinni af henni. Bróðir minn hannaði fyrir okkur heimasíðuna Koffort.is þar sem hægt er að kaupa teppapeys- una er hlýja frá toppi til táar að sögn Kristínar. „Hugsunin er að geta haft það virkilega notalegt. Ermarnar gera það að verkum að hægt er auðveld- lega að athafna sig t.d. lesa bók eða matast án þess að fórna hlýj- unni og huggulegheitunum. Hettan gefur ákveðið andrými og næði í hvíld og svo er gott að geta haft fæturnar ofan í pokanum, það tryggir heitar tær. Ef standa þarf upp og athafna sig er hægt að hengja teppið upp með lykkjunum sem eru neðst á pokanum á tölur á peysunni innanverðri, þar með er teppið orðið að fallegri peysu. Teppapeysunni er svo hægt að rúlla upp inn í hettuna og þá ertu komin með poka sem auðvelt er að ferðast með eða nota sem kodda,“ segir Kristín sem er mjög ánægð með að þessi hugmynd sé nú komin í loftið. Peysurnar eru bæði fyrir kon- ur og karla, í tveimur litum og tveimur lengdum, breiddin er alltaf sú sama. Allt unnið á Íslandi Hluti af viðskiptaáætlun Krist- ínar og Ingibjargar var að hafa ferlið íslenskt frá upphafi til enda. „Peysan er úr íslenskri ull, töl- urnar úr völubeini og horni frá bændum í Borgarnesi, prjónað er hjá Glófa og við Inga saumum svo hverja peysu sjálfar heima hjá okk- ur. Það kæmi ekki til greina að senda þetta í verksmiðju erlendis,“ segir Kristín. Þær stöllur hafa fengið hönnunarvernd á teppapeys- una og eru með fleira spennandi og nýtt af nálinni á teikniborðinu. Koffort-peysan hefur fengið mjög góðar viðtökur enda segir Kristín hana virka vel. „Við höfum báðar prófað hana í útilegum í sumar og hún virkar vel fyrir kuldaskræfur eins og okkur. Þetta er bara yndislegt hvort sem er á ferðalögum eða uppi í sófa á kvöld- Hönnun Alíslensk teppapeysa Koffort Teppapeysan er hlý frá toppi til táar auk þess að vera flott.Hönnuðir Ingibjörg og Kristín. 10 Daglegt líf Skyndilega gerðist eitt- hvað, skipstjórinn sagð- ist hafa séð hval

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.