Morgunblaðið - 07.08.2010, Page 14

Morgunblaðið - 07.08.2010, Page 14
FRÉTTASKÝRING Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Enn hefur Vegagerðin ekki samið við verktaka um tvöföldun fyrsta áfanga Suðurlandsvegar. Háfell ehf. kærði áform Vegagerðarinnar um að fela Ingileifi Jónssyni ehf. að vinna verkið en áður hefur kærunefnd útboðsmála hafnað áformum stofnunarinnar um að semja við annan bjóðanda, einnig eftir kæru Háfells. Áform hafa verið uppi um að tvö- falda hluta Suðurlandsvegar. Fyrsti áfanginn er 6,5 km kafli frá Foss- völlum ofan Lögbergsbrekku og að Litlu kaffistofunni. Verkið lenti undir niðurskurðarhnífnum á síðasta ári og þegar svo peningarnir fundust síðast- liðinn vetur tafðist útboð á meðan fjögur sveitarfélög þurftu að fjalla um skipulagið og gefa út framkvæmda- leyfi. Ætluðu að taka fjórða lægsta Verkið var boðið út í lok mars og var þá talið raunhæft að hefja fram- kvæmdir í lok maí. Það reyndist ekki rétt því samningar við verktaka hafa ekki gengið þrautalaust. Fimmtán verktakar buðust til að vinna verkið. Arnarverk átti lægsta tilboðið, 606 milljónir kr., en Vega- gerðin taldi fyrirtækið ekki fullnægja skilyrðum útboðsins og hugðist fela Vélaleigu AÞ vinnuna en það fyrir- tæki átti næstlægsta tilboðið. Háfell sem átti þriðja lægsta tilboðið, tæpar 630 milljónir, mótmælti því á þeim forsendum að Vélaleiga AÞ fullnægði ekki settum skilyrðum um tekjur á síðustu þremur árum. Kærunefnd út- boðsmála stöðvaði samningaferlið og kvað síðan upp þann úrskurð að Vegagerðinni væri ekki heimilt að semja við fyrirtækið. Í málinu fyrir kærunefndinni taldi Vegagerðin að Háfell ætti ekki lögvarinna hags- muna að gæta í málinu þar sem það hefði ekki fullnægt útboðsskilmálum um að leggja fram skilríki um að það stæði í skilum með lífeyrissjóðs- iðgjöld og skatta á tilsettum tíma. Háfell hafði lagt fram yfirlýsingu um að þessi gögn yrðu lögð fram ef geng- ið yrði til samninga við fyrirtækið og taldi sig hafa samþykki fyrir því. Úrskurðarnefndin taldi þó ljóst að til- boð Háfells væri ógilt. Vegagerðin gekk af þeim ástæð- um fram hjá Háfelli í næstu umferð og samdi við Ingileif Jónsson ehf. sem átti fjórða lægsta tilboð, bauð 642 milljónir. Þegar öðrum tilboðs- gjöfum var tilkynnt það mótmælti Háfell og er málið nú hjá útboðsnefnd kærumála. Samningar verði stöðvaðir Háfell telur að Vegagerðin hafi ekki gætt jafnræðis við framkvæmd útboðsins, að sögn Páls Rúnars M. Kristjánssonar, lögmanns Háfells, þar sem bjóðendum hafi ekki verið gert að skila gögnum á sama tíma. Vísað er til þess að þeim bjóðendum sem nú kemur til álita að semja við hafi gefist rýmri frestur en öðrum til að skila gögnum. Háfell krefst þess að samningar við Ingileif Jónsson verði stöðvaðir og kallað eftir umræddum gögnum á nýjan leik og þá á sama tíma frá öll- um. Enn tefjast framkvæmdir við Suðurlandsveg vegna kærumála  Háfell telur að Vegagerðin hafi ekki gætt jafnræðis við framkvæmd útboðsins Morgunblaðið/Ómar Umferð Miðað er við að fyrsti kafli Suðurlandsvegar með tveimur akgreinum í hvora átt verði opnaður fyrir umferð að ári. 14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 „Hestarnir hafa verið að hress- ast víðast hvar. Við vonum að þetta sleppi til,“ segir Lilja Lofts- dóttir, fjalld- rottning á af- rétti Gnúpverja. Göngur nálgast óðfluga og fjall- menn eru farnir að huga að reiðhestum sínum. Mjög hefur dregið úr smitandi hósta sem herjað hefur á hesta- stofninn á árinu. Kristinn Guðna- son, formaður Félags hrossa- bænda, segir að almennt séu hrossin að ná heilsu. Það pirri þó bændur að vita af hóstanum í stóð- inu. Kristinn telur ekki að skortur verði á hestum í Landsveit fyrir fjallferðir í haust. „Sumir eru óhressir með að þeirra traustu fjallhestar séu ekki alveg öruggir. Menn verða þá bara að taka aðra hesta,“ segir Lilja. Fjallmenn Gnúpverja halda af stað 1. september og fara alveg inn fyr- ir Arnarfell hið mikla, þeir sem lengst fara, og réttirnar eru 10. september. helgi@mbl.is Telja að flestir fjallhestarnir séu við góða heilsu Lilja Loftsdóttir Þess verður minnst við dagskrá á Ólafsdalshátíð á morgun, sunnu- dag, að 130 ár eru liðin frá stofnun fyrsta búnaðarskóla á Íslandi. Rögnvaldur Guðmundsson, for- maður Ólafsdalsfélagsins, setur bæ- inn í ljós frumkvöðlaseturs 21. ald- ar. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ávarpar samkomuna og undirritaður verður samningur. Þá koma Ellen Krist- jánsdóttir og Eyþór Gunnarsson fram á söngskemmtun. Dagskráin hefst klukkan 13. Efnt verður til Ólafsdalsmarkaðar með matvælum og handverki af svæðinu. Tvær sýningar eru í Ólafsdals- húsinu, afmælissýning um skólann og listsýningin „Dalir og Hólar – ferðateikningar“. Ólafsdalur Unnið hefur verið að lagfær- ingum á Ólafsdalshúsinu og umhverfi. Ólafsdalshátíð hald- in á 130 ára afmæli Texti Gísli Baldur Gíslason Myndir Ernir Eyjólfsson Fólk á förnum vegi Hversu mik- ið notar þú Facebook? Rannsóknir hafa sýnt að breskir starfsmenn nota samskiptasíður í vinnunni og eyðir þriðjungur þeirra, eða um sex milljónir, meira en hálftíma af vinnutíma á síðunum. Ætli þetta eigi einnig við um Íslendinga?  Ef ég er ekki að vinna er ég eig- inlega alltaf skráð- ur inni. Það er sama hvað ég er að gera, að elda eða horfa á kvikmynd. Ég er sennilega á vefnum í um átta klukkustundir dag- lega. Kristinn Árni Lár Hróbjartsson fatasölumaður  Ég nota aðgang barnanna minna til að geta skoða myndir af barna- börnunum. Ég fer ekkert inn á síðuna í vinnunni. Ég hef íhugað að fá mér aðgang sjálf upp á síðkastið en ég er ennþá tvístígandi. Málfríður Gísladóttir kennari  Ef ég er í vinnunni þá er ég rosalega oft skráð inni á meðan og kíki reglulega. Ég er nokkurn veginn skráð inni allan vinnudaginn, þótt ég skoði ekki síð- una á meðan ég af- greiði. Hildur Kristín Stefánsdóttir afgreiðsludama  Ég myndi segja að ég noti Facebook í hátt í klukkutíma á hverjum degi. Þar af er ég sennilega skráður inni á síð- unni í tæpan hálf- tíma á dag í vinnunni. Ég nota þetta aðallega í frí- tímanum. Agnar Sigmarsson atvinnurekandi  Ég vann við tölvu- bókhald og eftir að ég fór á eft- irlaun kveiki ég ekki á tölvu. Ég nenni því ekki. En það er ósköp kjánalegt að nota þetta ekki. Ég við- urkenni það fús- lega. Sigurður Samúelsson eftirlaunaþegi  Ég kíki daglega inn á Facebook en það er aldrei í langan tíma í senn. Ég rétt lít inn á síðuna og fer svo út af aftur. Það er ekki nema ef ég er erlendis sem ég kíki ekki neitt yfir daginn. Sif Björk Hilmarsdóttir flugfreyja  Ég nota Facebook aldrei. Ég er ekki þar. Ég er ekki al- veg viss hvers vegna ég nota ekki Facebook. Ég vil bara ekki að aðrir viti allt um mig og ég vil held- ur ekki vita allt um aðra. Hafrún Traustadóttir lífeindafræðingur  Ég nota Facebook í svona hálftíma á hverjum degi. Nei, ég verð að játa að það er sennilega nær klukkustund á dag. Ég fer inn á bæði heima hjá mér og í vinnunni ef það er ekkert að gera þar. Hilmar Birgir Ólafsson fatasölumaður Ef kærunefnd útboðsmála hafnar kröfum Háfells mun Vegagerðin fela Ingileifi Jónssyni ehf. tvöföld- un Suðurlandsvegar. Verkáætlun sem samkomulag er orðið um ger- ir ráð fyrir að vinna hefjist í þess- um mánuði. Hreinn Haraldsson vegamála- stjóri sér ekkert því til fyrirstöðu að upphafleg áætlun um að opna veginn fyrir lok september á næsta ári geti staðist. Hins vegar geti þær tafir sem orðið hafi á samningum leitt til þess að vinna við frágang vegarins frestist fram yfir þann tíma, til dæmis lagning nýs slitlags á núverandi veg. Verði kæra Háfells tekin til greina þarf Vegagerðin að fara nýj- an hring í samningum og ef miðað er við hvernig gengið hefur til þessa má búast við frekari töfum. Á móti kemur að ef allir geta lagt fram tilskilin gögn getur Vega- gerðin tekið lægra tilboði en hún ætlaði sér og sparað tugi milljóna. Spurning um tíma og peninga ENN STEFNT AÐ OPNUN VEGARINS NÆSTA HAUST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.