Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 18

Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 18
FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Nánast engar líkur eru taldar á því að Evrópusambandið fari að kröfum samtaka útgerðarmanna í ESB og Noregi og banni innflutning á sjáv- arafurðum frá Íslandi. Íslendingar mega hins vegar ekki landa makríl í ESB og Noregi þar sem ekki hefur tekist samkomulag um veiðar á makríl. Samkvæmt lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiði- landhelgi Íslands er útlendum skip- um óheimilt að landa afla hér á landi úr fiskistofnum sem ekki hefur verið samið um nýtingu á. Þetta þýðir að skipum ESB-landa og Noregs er óheimilt að landa hér á landi. Nor- egur og ESB eru með samskonar reglu gagnvart Íslandi og með sömu rökum, þ.e. að Ísland hafi ekki gert samning um veiðar á makríl. Þetta löndunarbann skiptir engu máli fyrir íslensk skip því veið- arnar eiga sér stað í íslenskri lög- sögu og landað er hér heima til vinnslu. Það sem samtök útgerðar- manna í ESB og Noregi eru að fara fram á er að innflutningur á sjáv- arafurðum frá Íslandi verði bannað- ur. Slíkt bann hefði auðvitað víðtæk áhrif hér á landi, en nánast er úti- lokað að ESB og Noregur grípi til svo harkalegra aðgerða. Slíkt bann væri brot á EES-samningnum og GATT-samningnum. Það mætti hugsa sér að ESB myndi banna innflutning á makríl frá Íslandi þótt slíkt bann fæli raunar líka í sér brot á þessum samningum. Áhrifin af slíku banni yrðu hins veg- ar afar takmörkuð vegna þess að mjög lítið af makríl er flutt til ESB. Mestallur makríll sem við flytjum út fer til Rússlands og fleiri landa í A- Evrópu eins og Litháens og Úkra- ínu. Einnig fer eitthvað til Afríku, Kína og Japans. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir enga ástæðu fyrir Íslendinga að láta hót- anir frá útgerðarmönnum í Noregi og ESB raska ró sinni. Veiðar ís- lenskra skipa á makríl séu fullkom- lega löglegar. Friðrik segir að veið- arnar hafi gengið vel og skipt miklu máli fyrir útgerðir uppsjávarskipa sem hafi mátt þola loðnuleysi og sýk- ingu í síld. Löndunarbann en ekkert innflutningsbann í gildi  Íslenskir útgerðarmenn flytja sáralítið af makríl til landa Evrópusambandsins Veiðar Makríll hefur veiðst í miklu magni víða um land í sumar. Þessar veið- ar vekja ekki mikla kátínu í Noregi og löndum Evrópusambandsins. Löndunarbann » Í fyrra fluttu Íslendingar út makríl fyrir 2.444 milljónir. Þar af fóru 1.866 milljónir til Rússlands. » Íslenskum skipum er bannað að landa makríl í höfn- um í Noregi og ESB vegna þess að ekki hefur verið samið um veiðar úr stofninum. » Ekkert bann hefur hins vegar verið sett á innflutning á íslenskum sjávarafurðum til ESB. 18 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 Hafðu samband sími 444 7000 • arionbanki.is Stjórnvöld virðast hafa takmarkað- an áhuga á að haldið verði áfram undirbúningi álvers á Bakka við Húsavík. Þetta kemur fram í yfirlýs- ingu sem Alcoa á Íslandi sendi frá sér í gær vegna ummæla Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra í Kast- ljósinu í vikunni þess efnis að það stæði upp á fyrirtækið að frekari hreyfing verði á því að álver rísi á Bakka og að stjórnvöld biðu eftir upplýsingum frá Alcoa á Íslandi um það hvort fyrirtækið hefði áhuga á að reisa álverið. Unnið að málinu Í yfirlýsingunni segir að það séu þvert á móti stjórnvöld sem hafi staðið málinu fyrir þrifum. Alcoa á Íslandi hafi enn fullan hug á að reisa álverið og hafi frá því verkefnið hófst unnið af heilum hug að því. Þannig hafi fyrirtækið þegar lagt einn og hálfan milljarð í undirbúningsvinnu vegna þess. Fram kemur að þessari vinnu sé hins vegar ekki lokið enda verði ákvörðun af þessari stærðargráðu ekki tekin fyrr en nauðsynleg und- irbúningsvinna sé að baki og „nokk- uð nákvæmar upplýsingar liggi fyrir um magn, verð og afhendingu á orku ásamt því að meta nákvæmlega öll hugsanleg áhrif á umhverfið“ eins og segir í tilkynningunni. Andmælir iðnaðar- ráðherra Hefur fullan hug á að reisa álver á Bakka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.