Morgunblaðið - 07.08.2010, Side 19
Fréttir 19INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010
„Allir vinna“ er hvatningarátak sem miðar að því að hleypa krafti
í atvinnulífið á Íslandi. Þeir sem ráðast í framkvæmdir við eigið íbúðar-
húsnæði eða sumarhús eiga rétt á 100% endurgreiðslu á virðisauka-
skatti af vinnu á verkstað. Að auki fæst lækkun á tekjuskattsstofni,
sem getur numið allt að 300.000 krónum.
Arion banki býður nú viðskiptavinum sínum
hagstæð lán til að styðja við átakið.*
• Engin lántökugjöld.
• 5,75% óverðtryggðir vextir.**
• Fjárhæð allt að 2 milljónum kr. til allt að fimm ára.
• Umsóknarfrestur er til 1. desember 2010.
* Lánin eru veitt til einstaklinga með góða greiðslugetu.
** 3% lægra en óverðtryggðir kjörvextir Arion banka skv. vaxtatöflu.
Við ætlum að gera betur
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, 43
ára framkvæmdastjóri Nýprents á
Sauðárkróki, er þessa dagana að
ljúka þriðju lotu stofnfrumu-
meðferðar í Delhí á Indlandi, en hún
lamaðist í hestaslysi í apríl árið
2007.
Hægt hefur verið að fylgjast með
hvernig gengur í meðferðinni á
bloggsíðu Þuríðar, oskasteinn.com,
og samkvæmt frétt á vef Feykis
hefur meðferðin skilað merkj-
anlegum árangri að undanförnu.
„Ég fór í æfingar í dag og jú, enn
sá ég örlitla breytingu til þess
betra, svei mér þá ef mér tókst ekki
bara að lyfta bakinu það hátt og efri
hluta mjaðmanna að það loftaði und-
ir rassinn,“ skrifar Þuríður í gær.
„Shivanni brosti út að eyrum, þú
gast lyft þér, sagði hún, þetta er það
mesta hingað til. Boltaæfingin gekk
líka rosalega vel, mér leið bara vel á
boltanum full öryggis, auðvitað get
ég auðveldlega misst jafnvægið en
mér finnst ég líka auðveldlega geta
haldið því núna. Gönguæfingin gekk
líka áfallalaust, og þó ég vildi gjarn-
an geta farið hraðar og öruggar yfir
þá eru skrefin sem ég tek betri og
mér tekst að stýra göngunni betur,“
skrifar hún jafnframt.
Auk strangra hreyfiæfinga geng-
ur meðferðin út að fá tvær sprautur
með stofnfrumum á dag. Þuríður er
á heimleið eftir þriðju ferðina til
Indlands og samkvæmt frásögn
hennar hefur meðferðin skilað góð-
um árangri. Stefnir hún að því að
fara út tvisvar til þrisvar á ári
næstu tvö árin. Kostnaður við með-
ferðina alls er um 30 milljónir
króna. bjb@mbl.is
„Þú gast lyft þér“
Meðferð Þuríður Harpa bregður á
leik í Delhí á Indlandi.
Stofnfrumumeð-
ferð Þuríðar að
skila árangri
Kostnaðarsöm meðferð
» Söfnunarreikningar til
styrktar Þuríði eru í Lands-
bankanum, 0161-15-550165,
og í Sparisjóði Skagafjarðar,
1125-05-250067. Kennitala
viðtakanda er 010467-5439.
» Fylgjast má með meðferð-
inni á www.oskasteinn.com.
„Íslendingar ættu að taka Fær-
eyinga sér til fyrirmyndar og fríska
upp á lýsinguna í Hvalfjarðargöng-
unum því þau eru frekar dimm og
drungaleg,“ segir Sigurður Harð-
arson rafeindavirkjameistari, sem
nýverið átti leið um lengstu göng
Færeyja, Klakksvíkurgöngin svo-
nefndu á milli Straumeyjar og
Norðureyja. Í botni ganganna, sem
eru 6,2 km löng, er mikil litadýrð
þar sem komið hefur verið fyrir
marglitri lýsingu. Um er að ræða
listaverk eftir Trond Paturson.
Sigurður segist hafa ferðast um
flest göng Færeyinga en þessi skeri
sig úr og litirnir séu kærkomin til-
breyting og andleg upplyfting fyrir
ökumenn. Spalarmenn geti tekið
Færeyinga sér til fyrirmyndar og
bætt að auki lýsinguna í Hvalfjarð-
argöngunum og t.d. málað bygg-
ingarnar í botni ganganna.
Er þetta var borið undir Gísla
Gíslason, stjórnarformann Spalar,
segist hann hafa ekið um Klakks-
víkurgöngin og séð litadýrðina.
Gísli segist hafa rætt þetta á stjórn-
arfundi og málið verði einmitt tekið
upp á næsta fundi. „Að mínu viti
væri prýði að því að lífga upp á
Hvalfjarðargöngin með svipuðum
hætti,“ segir Gísli. bjb@mbl.is
Ljósmynd/Sigurður Harðarson
Litadýrð Svo litrík eru Klaksvíkurgöngin í Færeyjum að gleðigangan Gay Pride gæti þess vegna farið þar í gegn.
Til skoðunar að auka litadýrð
í Hvalfjarðargöngunum