Morgunblaðið - 07.08.2010, Qupperneq 21
Fréttir 21ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Eldarnir í vestur- og miðhluta Rússlands eru
taldir vera þeir mestu sem um getur í sögu
landsins og tjónið gífurlegt. Ráðuneyti neyð-
araðstoðar sendi í gær frá sér hvatningu til sjálf-
boðaliða um að gefa sig fram til starfa við að
slökkva eldana. Stjórnvöld sögðu þó í gær að
tekist hefði að stöðva að mestu frekari útbreiðslu
eldanna og ná tökum á ástandinu. Tæplega 800
þúsund hektarar eru brunnir og er vitað um 588
elda sem nú brenna. 50 manns hafa týnt lífi
vegna hamfaranna og um 3.000 misst heimili sín.
Ekki bætir úr skák að yfir landið ríður nú
hitabylgja, að sögn sú mesta sem mælst hefur
frá því að mælingar hófust fyrir 130 árum og
þurrkar hafa eyðilagt mikið af hveiti á ökrunum.
Hitabylgjan hefur staðið yfir frá því í júní og
ekki spáð að breyting verði þar á næstu daga.
Reykjarmökkur frá eldi í skógum og þurrum
mógröfum liggur nú yfir Moskvuborg og mælist
mikil aukning á eiturefnum í andrúmsloftinu.
Svifryksmengun er tuttugu sinnum meiri en
eðlilegt má teljast og tíðni dauðsfalla í borginni
hækkaði um 50% í júlí miðað við sama mánuð í
fyrra og vegfarendur í Moskvu bera margir
grímur fyrir vitunum.Truflun hefur orðið á flug-
umferð á Domodedovo-flugvelli við Moskvu
vegna reykjarmisturs.
Flugskeyti flutt á öruggara svæði
Menn hafa einnig vaxandi áhyggjur af áhrif-
um eldanna á svæði sem hýsa geislavirk efni og
kjarnorkuvopn. Varnarmálaráðuneyti Rúss-
lands hefur fyrirskipað flutning á flugskeytum
frá birgðageymslu skammt frá Moskvu. Einnig
er varað við því að eldarnir geti þyrlað upp
geislavirkri mengun í jarðvegi í Brjansk-héraði,
frá Tsjernóbýl-kjarnorkuslysinu 1986. Héraðið
er rösklega 300 km austan við höfuðborgina.
„Kvikni eldar þar gætu geislavirkar agnir
losnað úr jarðveginum og borist um loftið með
ögnum úr eldunum, nýtt mengunarsvæði yrði
til,“ sagði Sergei Sjogu, ráðherra neyð-
araðstoðar, í samtali við sjónvarpsstöð.
Segjast hafa stöðvað útbreiðslu eldanna
Nær 800 þúsund hektarar lands hafa brunnið í Rússlandi í mestu eldum í sögu landsins
Óttast að geislavirk efni síðan í Tsjernóbýl-slysinu geti þyrlast upp og mengað andrúmsloftið
Reuters
Mengun Kona úr starfsliði innanríkisráðuneyt-
isins í Moskvu með rykgrímu í gær.
Hitabylgja
» Spáð er 35-38 stiga hita
næstu daga í Moskvu. Að sögn
veðurfræðinga gæti þetta
ástand varað fram yfir miðjan
mánuðinn.
» Eldar nærri borginni Sarov
valda yfirvöldum sérstökum
áhyggjum en þar er aðalmiðstöð
kjarnorkurannsókna landsins.
» Geislavarnir Rússlands segja
þó að allt sprengiefni og geisla-
virkt efni hafi verið fjarlægt úr
miðstöðinni.
» Slökkviliðsmenn frá nokkrum
ríkjum Evrópu og Mið-Asíu eru
þegar komnir til aðstoðar.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ráðamenn í Washington hafa vax-
andi áhyggjur af því að ekki skuli
hafa tekist að mynda nýja ríkisstjórn
í Írak, en þingkosningar fóru fram í
landinu í mars sl. Joe Biden, varafor-
seti Bandaríkjanna, fór í byrjun júlí
til Bagdad til að reyna að þrýsta á
um sættir milli stærstu flokkanna,
en tilraunin bar engan árangur.
Tímaritið Foreign Policy skýrði
frá því í gær að Barack Obama for-
seti hefði skömmu síðar sent ajatol-
lah Ali al-Sistani, virtasta og áhrifa-
mesta klerki sjía-múslíma í Írak,
bréf og beðið hann um að telja
þrætugjarna pólitíkusana á að finna
málamiðlun og koma á fót nýrri rík-
isstjórn. Ritið vitnaði í ónafngreind-
an heimildarmann sem rætt hefði
málið við fólk úr fjölskyldu klerksins.
Flokkur Iyads Allawis, fyrrver-
andi forsætisráðherra, fylking sem
einkum er skipuð veraldlega sinnuð-
um Írökum auk trúaðra súnníta og
sjíta, vann nauman sigur og hefur
flesta þingmenn en skorti verulega
upp á meirihluta. Samtök Nuri al-
Malikis, starfandi forsætisráðherra,
hlutu ívið færri sæti og reyna þau
enn að mynda meirihluta án þátt-
töku Allawis og manna hans.
Óttast ringulreið
Þegar hefur verið samið um að
Bandaríkjamenn hverfi á brott með
herafla sinn frá Írak á næsta ári og
strax um næstu mánaðamót er búist
við að ekki verði nema um 50.000
manns eftir. En stöðugt berast frétt-
ir af deilum og pólitískum hryðju-
verkum. Margir óttast því ringulreið
og jafnvel borgarastríð þegar
Bandaríkjamenn verði á braut.
Það gerir einnig maður sem fáir
hefðu trúað til að hvetja Bandaríkja-
menn til að yfirgefa ekki landið
strax: Tariq Aziz, fyrrverandi stað-
gengill Saddams Husseins, er situr
nú í fangelsi og harmar enn örlög
einræðisherrans.
Aziz segir í viðtali við Guardian í
Bretlandi að Bandaríkjamenn og
Bretar hafi misskilið Saddam sem
hafi verið sannur ættjarðarvinur. En
vesturveldin tvö hafi eyðilagt Írak
og Bandaríkjamenn hafi engan rétt
til að fara núna frá landinu. „Þegar
menn gera mistök verða þeir að leið-
rétta þau, ekki skilja Íraka eftir á
köldum klaka.“
Stál í stál í Írak
Einn af æðstu liðsmönnum Saddams Husseins vill að
Bandaríkjamenn fari ekki strax með her sinn frá landinu
Forseti Filippseyja, Benigno
Aquino, rak í gær veðurstofustjóra
landsins, Prisco Nilo, og sakaði
hann um að hafa ekki varað nógu
kröftuglega við fellibylnum Conson
sem varð 11 manns að bana í júlí.
„Ég treysti sjálfur öllum sem komu
að málinu svo að þegar [Conson]
lenti á okkur varð ég undrandi,“
sagði Aquino. Forsetinn sagði að
gerðar yrðu ýmsar breytingar á
stofnuninni.
Veðurstofustjórinn
látinn fjúka
FILIPPSEYJAR
Yfirmaður
barnahjálparsjóðs
Nelsons Mandela,
Jeremy Ratcliffe,
segist hafa tekið
við óslípuðum
demöntum fyr-
irsætunnar
Naomi Campbell
árið 1997. Hún
fékk steinana að gjöf hjá Charles
Taylor, fyrrverandi Líberíuforseta
sem nú er fyrir rétti í Haag, sak-
aður um stríðsglæpi og viðskipti
með blóðdemanta. Ratcliffe sagðist
ekki hafa viljað láta bendla stofn-
unina við blóðdemanta og því hald-
ið þeim sjálfur.
Demantar Campbell
komnir í ljós
Óslípaður
demantur.
SUÐUR-AFRÍKA
Hver er Tariq Aziz?
Hann var einn af þekktustu ráða-
mönnum Íraks út á við, var meðal
annars utanríkisráðherra um nokk-
urra ára skeið og einnig staðgengill
Saddams. Aziz er úr röðum kristna
þjóðarbrotsins en langflestir lands-
menn eru annaðhvort sjía-múslímar
eða súnní-múslímar.
Fordæmir hann Saddam?
Aziz er í fangelsi og ver Saddam. En
hann segist í viðtalinu ekki vilja
gagnrýna Saddam fyrr en hann sé
orðinn frjáls maður. Ef hann lýsi
núna iðrun vegna starfa fyrir Sadd-
am muni menn kalla sig tækifær-
issinna sem snúi fyrst bakinu við
leiðtoganum þegar hann sé látinn.
Spurt&svarað
Fólk í borginni Nowshera í norð-
vesturhluta Pakistans í rústum
heimilis síns í gær. Ekkert lát er á
rigningu og flóðum í landinu og
hafa stjórnvöld látið flytja hálfa
milljón íbúa í héraðinu Sindh í skjól
en þar voru flóðgarðar að bresta.
Milljónaborgin Karachi er í Sindh.
Þeim sem búa í grennd við stór-
fljótið Indus hefur verið sagt að
forða sér þar sem spáð er meiri
rigningu næstu daga.
Talið er að um 250 þúsund heimili
hafi eyðilagst í flóðunum og hundr-
uð þúsunda manna séu á vergangi.
Yfir 1.600 eru látnir í flóðunum og
tugir manna hafa einnig látið lífið í
indverska hluta Kasmírhéraðs.
Flóðin raska með einhverjum hætti
lífi 12 milljóna manna í Pakistan og
æ fleiri þurfa nú á neyðaraðstoð að
halda, sums staðar er skortur á
brýnustu nauðsynjum. Stjórnvöld
sæta harðri gagnrýni vegna þess
hve seint þau hafa brugðist við.
Hundruð
þúsunda
á flótta
Reuters
Bandaríkjamenn krefjast þess nú að
vefsíðan Wikileaks fjarlægi af síð-
unni tugþúsundir leyniskýrslna um
stríðið í Afganistan. Gögnin geti nýst
talibönum og þannig stefnt lífi bæði
hermanna og óbreyttra borgara í
Afganistan í mikla hættu.
Gögnunum mun vera dreift með
hjálp netfyrirtækis í Solna í Svíþjóð.
Dagens Nyheter vitnar í Anders
Hellner, sérfræðing hjá sænsku al-
þjóðamálastofnuninni sem segir að
málið geti haft alvarlegar afleiðingar
fyrir samskipti Bandaríkjamanna og
Svía. En jafnframt bendir hann á að
Svíar séu sjálfir með herlið í Afgan-
istan og eigi því hagsmuna að gæta.
Vel vopnaðir Sænskir hermenn í
alþjóðaliðinu í Afganistan.
Stöðva
Svíar
Wikileaks?