Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 23

Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 Siglir inn í sólsetrið Glæsisnekkjan Octopus hefur vægast sagt vakið mikla athygli borgarbúa. Nú fer hver að verða síðastur að berja fleyið augum en hermt er að það sigli frá landi eftir helgi. Jakob Fannar Á 135. löggjaf- arþingi fluttu nokkrir alþingismenn þings- ályktun um að stofna skáksetur í Reykjavík sem helgað yrði ská- kafrekum stórmeist- aranna Friðriks Ólafs- sonar og Bobbys Fischer. Þingsályktunin var samþykkt og send til ríkisstjórnarinnar sem ályktun Al- þingis. Menntamálaráðherra var falið að skipa sérstakan starfshóp til að útfæra hugmyndina. Málið er til meðferðar í menntamálaráðu- neytinu og kemur það í hlut Katr- ínar Jakobsdóttur ráðherra að full- vinna þetta stóra mál. Sú var tíð á Íslandi að allt fólk kunni deili á Friðrik Ólafssyni stórmeistara, fylgdist með sigrum hans og ár- angri í skák. Friðrik var um langt skeið einn snjallasti skákmaður veraldar og heimsfrægur sem slík- ur. Hann varð Íslandsmeistari 17 ára gamall og Norðurlandameistari 18 ára. Friðrik var útnefndur stórmeist- ari í skák 1958 rúmlega tvítugur. Friðrik atti kappi við þá stærstu og þykja margar viðureignir hans hrein snilld. Enn teflir Friðrik og þá þyrpast Íslendingar á skákmót- in til að fylgjast með þessum af- reksmanni sínum. Meistari meistaranna Róbert James Fischer, betur þekktur sem Bobby Fischer, varð heimsmeistari í skák 1972 eftir einvígi ald- arinnar sem svo hefur verið nefnt. Þar atti hann kappi við Boris Spassky í Reykjavík. Einvígið var einstakt um svo margt en einn- ig var það tengt átök- um milli stórveldanna Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, milli austurs og vesturs. Laugardalshöllin var miðdepill mikilla átaka, segja má að heimurinn hafi staðið á öndinni, ekki síst vegna snilli Fischers og framgöngu hans og háttalags. Um þetta mikla ein- vígi hafa verið skrifaðar 150 bæk- ur. Umfjöllunin er endalaus og hér á landi varð afraksturinn sá að við eignuðumst harðsnúna sveit ungra skákmanna sem juku hróður lands og þjóðar. Að ná einvígi aldarinnar hingað 1972 var afrek og þar komu margir að en nafn Guðmundar G. Þórarins- sonar, fyrrv. forseta Skák- sambandsins, er oftast nefnt í því sambandi. Borgarstjóri og borg- arstjórn Reykjavíkur var gerandi í málinu eins og ríkisstjórn landsins á þeim tíma. Ísland varð stórt nafn og er oft nefnt vegna þessa atburð- ar ekkert síður en leiðtogafund- arins sem haldinn var í Reykjavík í Höfða fjórtán árum síðar. Það var þar sem Ronald Reagan forseti Bandaríkjanna og Gorbatsjov for- seti Sovétríkjanna felldu tjaldið og kalda stríðinu lauk í raun, heim- urinn breyttist í framhaldinu. Við getum í dag ályktað að skák- einvígið hafi fært okkur þennan viðburð og gert þar með Ísland að ráðstefnulandi og fundarstað á al- þjóðavettvangi. Íslendingurinn Bobby Fischer Bandaríkjamenn áttu Bobby með húð og hári eftir sigurinn enda var hann Bandaríkjamaður og hafði rofið sigurgöngu óvinarins og lagt rússneska björninn að velli. Um tíma varð Fischer þeirra fræknasti og besti sonur. Bobby Fischer var enginn venju- legur maður og fór eigin leiðir. Hann var ofsóttur landflóttamaður í Bandaríkjunum fyrir þær sakir að fallast á að tefla í minningu einvíg- isins tuttugu árum síðar, aftur við Spassky og þá í Júgóslavíu, landi óvinarins. Eftir það einvígi reikaði hann landflótta um heiminn með þá ógn að verða varpað í tugthús ef til hans næðist. Sumir hafa nefnt þau tólf eða þrettán ár „eltingarleikinn endalausa.“ Fyrir rest var meistarinn hand- samaður í Japan og dvaldi þar við illa prísund í tugthúsi eftir að vega- bréf hans var ógilt með aft- urvirkum hætti á Filippseyjum. Aftur koma Íslendingar við sögu meistarans, nokkrir afburðamenn fara fram á að Fischer verði með sérstökum lögum veittur ríkisborg- araréttur á Íslandi og samþykkti Alþingi það að tillögu þáverandi ut- anríkisráðherra Davíðs Oddssonar. Fischer frelsaður úr tugthúsi Enn gerast undrin þegar nokkrir Íslendingar, vinir meistarans, fara hreinlega til Japans í framhaldinu og sækja Fischer inní tugthúsið og koma með hann hingað. Loksins varð þessi einstæði maður frjáls og hér átti hann friðsæl og góð ár. Bobby Fischer er Íslendingur og verður það í allri umræðu og til Ís- lands munu fjölmiðlar og þær her- sveitir sem um líf hans og afrek fjalla snúa sér í framtíðinni. Bobby Fischer í þúsund ár Skák er tefld í öllum löndum ver- aldar og mun svo verða. Fischer verður því tefldur aftur og aftur, nafn hans mun uppi meðan skák verður tefld í heiminum. Hann varð Íslendingur, nafn hans og afrek rísa hæst hér. Sakir baráttu góðra manna bjó hann á Íslandi og lifði í friði og kaus sér legstað í friðsælli sveit austur í Laugardælum í Flóa. Nafn hans mun uppi eins og margra annarra snillinga í þúsund ár. Hann á sér stóran sess í verald- arsögunni. BBC World taldi einvíg- ið 1972 til tíu merkustu viðburða á öldinni sem leið. Enn prýðir Fisc- her forsíður heimspressunnar sem skákmeistarinn mikli. Kvikmyndir eru gerðar um líf og snilli og hátta- lag þessa manns. Jafnvel Bandaríkin sem fórnuðu kónginum vilja eignast hann á ný. Íslensk skáksaga er stór og merk, henni verður að gera góð skil. Eitt stærsta málið er þó sú skylda að koma vilja Alþingis fram um að hér rísi skáksetur helgað lífi og afrek- um Friðriks okkar Ólafssonar og Bobbys Fischer. Fjármagn í slíkt setur mun koma úr mörgum áttum frá aðdáendum meistaranna bæði hér heima og um allan heim. Engum manni treysti ég betur til að fara fyrir slíku verkefni en Ein- ari S. Einarssyni, fyrrum forseta Skáksambandsins. Skáksetrið mun reka sig og augu skákmanna og ferðamanna munu beinast að afrek- um skákmeistaranna og hinum stóru viðburðum þar sem kjarkur og stórhugur Íslendinga reis hæst. Gröf meistarans er viðkomustaður ferðamanna og þar þarf að hafa meiri viðbúnað, annaðhvort í Laug- ardælum eða á Selfossi. Reykjavík hefur útnefnt sig sem skákhöfuðborg heimsins og hennar hlutverk er því stórt. Það er mikil- vægt innsigli og viðurkenning að Alþingi og ríkisstjórn styðji verk- efnið. Fjármagnið verður hins- vegar sótt að langstærstum hluta til einkaaðila um víða veröld. Við Íslendingar eigum skyldu í þessu máli og gnægð tækifæra til að aug- lýsa mannleg afrek og sérstætt land sem um aldir hefur teflt manntafl við ysta haf. Reisum glæsilegt alþjóðlegt skáksetur helgað minningu skákafreka Fisc- hers og Friðriks í Reykjavík sem fyrst. Eftir Guðna Ágústsson » Við Íslendingar eig- um skyldu í þessu máli og gnægð tækifæra til að auglýsa mannleg afrek og sérstætt land sem um aldir hefur teflt manntafl … Guðni Ágústsson Höfundur er fyrrverandi alþing- ismaður og ráðherra. Skáksetur Fischers og Friðriks

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.