Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 25

Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 ✝ Bergur Guð-laugur Ólason fæddist í Þingmúla í Skriðdal 24. sept- ember 1919. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 1. ágúst 2010. Foreldrar hans voru Margrét Ein- arsdóttir húsfreyja og Óli Einarsson, bóndi og söðla- smiður, ábúendur í Þingmúla í Skriðdal. Óli og Margrét eign- uðust sjö börn: Sölva, Einar, Jón- ínu Salnýju, Berg Guðlaug, Metú- salem, Bergstein og Jóhann Kristin. Sex ára gamall var Berg- ur sendur í fóstur að Hátúnum í Skriðdal til móðursystkina og ömmu þar sem hann ólst upp. Þann 16. maí 1948 kvæntist Bergur eftirlifandi eiginkonu sinni, Svanhildi Sigurðardóttur, f. janúar 1962, gift Dagbjarti Harð- arsyni, f. 30. desember 1959. Börn þeirra eru Diljá, f. 22. febr- úar 1990, Bergur Einar, f. 23. febrúar 1997 og Svanhildur Ylfa, f. 9. apríl 2003. Fyrir átti Dag- bjartur soninn Davíð Þór, f. 13. maí 1986 með Hildi Sím- onardóttur. Bergur lauk námi frá Alþýðu- skólanum á Eiðum árið 1942, síð- ar stundaði hann iðnnám og fékk í framhaldi af því meistararétt- indi í bifvélavirkjun árið 1967. Í uppvexti vann Bergur öll almenn sveitastörf. Að loknu námi við Al- þýðuskólann á Eiðum starfaði hann lengst af sem bílstjóri og bifvélavirki, að hluta til sjálfstætt starfandi. Síðustu 20 ár starfsævi sinnar vann hann hjá Flug- málastjórn á Egilsstaðaflugvelli. Bergur var félagslyndur að eðlisfari og tók virkan þátt í kórastarfi, var mikill bridsspilari, einn af stofnfélögum Rót- arýklúbbsins á Héraði og einnig félagi í Lionsklúbbnum Múla ásamt því að taka þátt í ýmsum öðrum félagsstörfum. Bergur verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju í dag, 7. ágúst 2010, klukkan 14. 26. desember 1929 í Reykjavík. Börn Bergs og Svanhildar eru: 1) Þorgeir, f. 6. ágúst 1949, d. 10. desember 1967. 2) Bergljót, f. 21. júlí 1951. Dóttir Berg- ljótar og Jóns Gísla- sonar, f. 31. janúar 1953 (fráskilin) er Vala, f. 14. nóv- ember 1983 og eiga hún og sambýlis- maður hennar, Ósk- ar Ingi Guðjónsson, f. 17. júlí 1983, dótturina Heklu Rán, f. 23. desember 2009. 3) Sig- urður Halldór, f. 16. febrúar 1955, kvæntur Kristbjörgu Gunn- laugsdóttur, f. 16. september 1952. Sonur Kristbjargar er Atli Heiðar Gunnlaugsson, f. 14. jan- úar 1974. Dóttir Atla og Helgu Guðlaugsdóttur er Gabríella Sif, f. 23. maí 1993. 4) Anna, f. 21. Í dag kveðjum við elskulegan föður okkar sem þrátt fyrir háan aldur og veikindi undir það síðasta var fullur af lífsvilja og tilbúinn að berjast þar til yfir lauk. Hann var ótrúlega skýr og minnugur til síðasta dags, hafði áhuga á þjóðmálum og heimsmálum og fylgdist vel með því sem fram fór. Hann hafði mikinn áhuga á íþróttum, en fótboltinn og þá sérstaklega Man. Utd var í sérstöku uppáhaldi. Bílar hafa alltaf verið hans aðal- áhugamál og ævistarfið tengdist að mestu bílum og farartækjum, ýmist í formi aksturs, viðgerða eða annars. Í september síðastliðnum, kringum ní- ræðisafmæli hans, fórum við með honum að skoða gamlan bíl af Kaiser- gerð sem hann átti á 6. áratugnum og notaði til leiguaksturs. Aðeins örfáir bílar af þessari gerð voru fluttir til landsins og þóttu eðalvagnar. Honum var tíðrætt um þennan bíl og það gladdi hann mjög að sjá hann aftur og enn meir að til stendur að gera hann upp í sinni upprunalegu mynd. Foreldrar okkar voru meðal frum- byggja á Egilsstöðum. Var oft mann- margt á heimili þeirra og var það í minningunni eins konar samkomu- staður í þorpinu enda opið fyrir gesti og gangandi hvort sem um var að ræða gistingu, næringu, spjall eða spilamennsku en hún skipaði ávallt stóran sess í hans lífi. Einstök gest- risni hefur ávallt einkennt heimili þeirra og á móðir okkar ekki síður þátt í því. Hann tók einnig virkan þátt í fé- lags- og kórastarfi gegnum tíðina og hafði gaman af en brids og lomber spilaði hann fram á síðustu ár. Hann hafði gaman af því að ferðast, var mjög fróður um landafræði Íslands og nutum við góðs af því á ferðalögum um landið með fjölskyldunni. Sumar- ið 1944 lagði hann upp í ævintýraferð ásamt félaga sínum, Þórarni Ólafs- syni, þegar þeir gengu frá Brú á Jök- uldal, þvert yfir hálendið, yfir Lang- jökul og komu niður í Kalmanstungu í Borgarfirði eftir 11 daga, orðnir skó- lausir og hraktir. Þessi ferð var í raun talsvert þrekvirki á þessum tíma þar sem sá búnaður sem þeir höfðu til far- arinnar hefur verið mun fábrotnari en það sem við eigum að venjast í dag. Alla tíð hafa foreldrar okkar verið mjög samrýnd hjón. Móðir okkar reyndist pabba afskaplega vel og studdi hann af fremsta megni til síð- asta dags. Var hann mjög þakklátur fyrir að geta verið svo lengi heima í veikindum sínum. Hvíl í friði, elsku pabbi. Minning þín lifir í hugum okkar. Þín börn, Bergljót, Halldór og Anna. Elsku afi. Það er með mikilli sorg í hjarta sem við sitjum hér og skrifum þessi orð til þín. Margar góðar minn- ingar renna í gegnum hug okkar barnabarnanna þegar við rifjum upp gamla tíma með þér og ömmu. Þú varst alltaf svo glaður og léttur í lund, fékkst okkur til að brosa og varst ávallt tilbúinn í grín og glens með okkur. Það fylgdi því mikill spenn- ingur að koma til Egilsstaða og geta setið úti í garði á Selásnum með dót foreldra okkar sem við fengum að grafa upp úr geymslunni á meðan amma bakaði pönnukökur og afi sló grasið í góða veðrinu. Við rúntuðum mikið með þér í leigubílnum sem gegndi stundum hlutverki húsbíls, en í honum eyddum við ófáum nótt- um á ferðalögum okkar um landið. Við elstu stúlkurnar munum vel eftir þeim degi þegar húsbíllinn var seld- ur. Þar áttum við góðar stundir sam- an. Þú hafðir alltaf gaman af því að spila og gafst ekkert eftir þó við vær- um ung. Þeir sem töpuðu í svarta- pétri fengu sót á nebbann og sá sem gaf vitlaust í kasínu þurfti að gefa aftur svo hægt væri að telja stigin. Rétt skal vera rétt! Í seinni tíð fóru þið amma að hafa gaman af míní-golfi og fóruð að pútta með yngstu barnabörnunum sem hafa gaman af golfinu í dag. Við elstu afastelpurnar þínar fluttumst tíma- bundið til útlanda hvor í sínu lagi á síðustu árum og komum í heimsókn austur eftir að við komum aftur heim. Þegar við litum á skrifborðið þitt sáum við sitt hvort landakortið, eitt af Malasíu og annað af Ítalíu þar sem þú varst búinn að merkja inn á kortið hvar við áttum heima. Það gladdi lítil stúlkuhjörtu að sjá að þú fylgdist með okkur á heimskortinu hvar sem við vorum staddar í lífinu. Við hefðum ekki getað óskað okk- ur betri afa og þín verður sárt sakn- að. Við munum minnast þeirra fjöl- mörgu góðu stunda sem við áttum öll saman um ókomna tíð. Þetta var afi minn hann afi gaf mér kossa á kinn þó að líkaminn fer þá um kjurt sálin er og ég kveð þig nú, afi minn kær. (Karl Pálsson.) Megir þú hvíla í friði, elsku afi. Þín barnabörn, Vala, Diljá, Bergur Einar og Svanhildur Ylfa. Nú þegar Bergur, mágur minn, er fallinn frá hvarflar hugurinn til baka. Ég kom á heimili hans og Svönu, systur minnar, þegar ég var 9 ára þá nýbúinn að missa móður mína. Ég var hjá þeim í nokkur ár. Þau tóku mig til sín sem ekki var sjálfgefið, þau nýfarin að búa en voru þó búin að koma sér upp notalegu heimili og byrjuð að byggja sér framtíðarheim- ili. Ég flutti með þeim í nýja húsið sem þau nefndu Reynihlíð. Það má segja að Reynihlíð hafi staðið um þjóðbraut þvera. Mikill gestagangur hefur einkennt heimili þeirra Bergs og Svönu. Mér fannst að allir sem áttu leið í þorpið kæmu við hjá þeim og ég veit að vel var tekið á móti öll- um og aldrei heyrði ég kvartað yfir gestaganginum því allir voru þeir velkomnir. Bergur var afskaplega hlýr maður, hláturmildur og fróður. Nú síðustu ár hefur hann verið að rifja upp með mér þegar þorpið var að byggjast og man ég eftir mörgum sem þá komu við sögu. Ég mun ætíð minnast hans með þakklæti. Hilmir. Ég vil með fáeinum orðum minnast elskulegs mágs míns og vinar, Bergs Ólasonar. Um þessar mundir eru 55 ár síðan ég hitti tilvonandi tengdafólk mitt í fyrsta sinn, þá nýtrúlofuð yngsta bróðurnum frá Þingmúla. Mér er í fersku minni veðurblíðan á Egilsstöð- um þetta sumar. Tengdafólk mitt bjó flestallt á Egilsstöðum og voru á með- al frumbyggja þar. Það var ekki stórt Egilsstaðaþorpið, nokkur hús við þrjár eða fjórar götur. Fjölskyldan bjó við Selásinn, bræðurnir þrír og fjölskyldur þeirra, systirin og fjöl- skylda hennar, foreldrarnir og tvö móðursystkini. Mér var tekið opnum örmum af öllu tilvonandi tengdafólki mínu og mynduðust strax mikil og góð tengsl okkar á milli. Þar átti Bergur og fjölskylda hans sinn stóra þátt. Samband okkar Bergs var alla tíð mjög einlægt og mér leið alltaf vel í návist hans. Hann var einstaklega hlýr og glaðlyndur maður. Það hafa skipst á skin og skúrir í ævi okkar eins og gerist í lífi flestra. Þá er gott að eiga góða að. Síðan maðurinn minn dó eftir 14 ára sambúð, hefur þetta góða sam- band haldist við mig og manninn minn núverandi. Við höfum átt marg- ar góðar stundir á heimili þeirra hjóna á Egilsstöðum og með fjöl- skyldunni á hátíðisdögum í lífi þeirra. Við hugsum alltaf til þeirra samveru- stunda með þakklæti og gleði. Okkur er mjög minnisstæð ferð sem við fór- um í september 2003 að frumkvæði Bergs með þeim hjónum upp að Kárahjúkum, síðan að Laugarvöllum og áfram niður í Jökuldal. Sérstök og náin vinátta hefur verið um margra ára skeið á milli okkar og Bergljótar dóttur þeirra. Við Guttormur sendum Svönu og allri fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Hugur okkar verður hjá ykkur í dag Blessuð sé minningin um góðan og einlægan vin. Guðrún H. Guðbrandsdóttir og Guttormur Þormar. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að tengjast og kynnast Bergi Ólasyni sem í dag verður jarðsunginn á Egils- stöðum. Bergur var góður vinur, mik- ið ljúfmenni í allri umgengni en stóð fastur fyrir þegar þannig stóð á. Það var ætíð gott að heimsækja þau hjón- in Berg og Svönu og saman áttum við margar góðar stundir. Það var stjan- að við okkur frá morgni til kvölds, spilin voru oft dregin fram og þær voru ófáar ánægjustundirnar sem Bergur átti með kort í hönd. Við ferð- uðumst um Noreg þegar Bergur og Svana komu þangað í heimsókn og ég minnist einnig margra veiðiferða og skoðunarferða um Austurland, þar sem landið skartaði sínu fegursta og sól skein í heiði. Jól og áramót voru ekki síður ánægjulegar samveru- stundir. Í minningunni var það aðeins kveðjustundin sem var erfið, ekki síst eftir að Vala, fyrsta barnabarnið, kom í heiminn. Þá mátti oft sjá tár í augum þegar við yfirgáfum Egilsstaði og héldum heim á leið. Nú er fyrsta barnabarnabarnið komið í heiminn og ég veit að þær mæðgur Vala og Hekla Rán verða ásamt ættingjum og vin- um mikill stuðningur fyrir Svönu þegar sorgin sækir á. Þegar ég hitti Berg fyrr á þessu ári var ljóst að farið var að halla undan fæti, en einhvern veginn er maður aldrei við því búinn að fá fréttir af láti góðs vinar. Bergur átti langa og far- sæla ævi og heimili hans og allt um- hverfi bar þess merki að þar var vandað til verka. Ég veit að hans verður sárt saknað og um leið og ég þakka fyrir vináttu og samverustund- ir vil ég votta Svönu, börnum þeirra og öðrum ættingjum og vinum inni- lega samúð. Minningin um góðan dreng lifir með okkur. Jón Gíslason. Nú þegar Bergur frændi minn Óla- son er fallinn frá sækja að bernsku- minningar frá upphafsárum þorpsins á Egilsstöðum. Bergur var einn af tákngervingum þessarar landnáms- tíðar; settist hér að rétt þrítugur eftir stutta dvöl í Reykjavík með ungri konu sinni Svanhildi fæddri þar og uppalinni, og saman byggðu þau sér hús sem þau nefndu Reynihlíð á ásn- um sunnan við Gálgaklettinn. Um svipað leyti settust hér að þrjú systk- ini hans, foreldrar og fósturforeldrar. Hér var því þéttur frændgarður og samheldinn. Oft hef ég hugsað um það hvernig þetta unga fólk sá fyrir sér framtíðina þegar það settist hér að. Hvernig ætl- aði það að sjá fyrir sér og sínum? Þetta var flest sjálfmenntað fólk, en óhrætt við að takast á við bílaöld og nýja tækni, sem henni fylgdi. Bergur var véla- og bílamaður og stundaði til að mynda leigubílaakstur á þessum fyrstu árum og átti til þess forláta drossíu; brúnan „Kaiser“ með U 79 á krómuðum stuðurunum og ég er nokkuð viss um að gírskiptingin var í stýrinu! Bergur fór einnig snemma að stunda viðgerðir á vélum og bílum og rétt skriðinn á fimmtugsaldurinn fór hann í iðnskóla, sem hér starfaði skamman tíma, og sat þar á skóla- bekk með meðal annarra bróður sín- um, mági og systursyni og lauk námi í bifvélavirkjun, sem hann vann við lengi síðan. Starfsævi sinni lauk hann sem yfirmaður tækjadeildar flugvall- arins og hafði lengst af yfir sér einum að ráða. Við Halldór sonur Bergs og Svönu erum mjög jafnaldra og uppaldir í nánu sambýli og urðum því snemma óaðskiljanlegir, svo að það þóttu stór- merki í þessu litla þorpi ef til annars sást og hinn var þá ekki nærri. Ég var því frá fyrstu tíð heimagangur hjá Svönu og Bergi og leit á þeirra hús sem mitt annað heimili. En þrátt fyrir það man ég ekki mikið eftir Bergi frænda mínum frá þessum árum. Helst man ég eftir Bergi með skelm- isbros eitthvað að stríða okkur strák- unum og svo auðvitað spilandi við stofuborðið í Reynihlíð. Bergur var mikill spilamaður, heimafyrir voru alls kyns spil spiluð við gesti og gang- andi og lengi spilaði hann brids með Bridsfélagi Fljótsdalshéraðs, þar sem leiðir okkar lágu saman við spila- borðið í Valaskjálf. Síðar urðum við oft samferða í lomber á Skriðu- klaustri. Bergur varð gamall maður og lifði ótrúlega breytta tíma. Hann var fæddur í torfbæ þegar hestar voru helstu farartækin. Hann var einn upphafsmaður bílaaldar á Héraði og frumbyggi þéttbýlisins á Egilsstöð- um, sem hann lifði að sjá flæða um tún og ása, og flutti sjálfur á gamals aldri neðan úr Þorpi og langleiðina upp í Skóg. Hann lést síðan á sjúkra- húsinu hér, viðbyggingu við gamla sjúkraskýlið, sem hann tók þátt í að byggja á upphafsárum þorpsins. Ekki veit ég hvernig Bergur frændi minn flutti sína ungu konu hingað með sér austur, en ég sé þau alltaf fyrir mér keyrandi um fjöll og dali á brúnum „Kaiser“. Eins sé ég hann nú á leið til „betri veiðilenda“, eins og indjánarnir sem við Halldór dáðum svo mjög í æsku orðuðu það, á brúnum „Kaiser“ U 79 og sólin glampar á krómaða stuðarana. Meira: mbl.is/minningar Óli Grétar Metúsalemsson. Einn af frumbýlingum Egilsstaða- kauptúns, Bergur Ólasson frá Þing- múla í Skriðdal, er látinn. Þessi vinur minn, mágur og félagi er farinn á ann- að tilverustig eftir erfið veikindi. Bergur kynntist Svönu, systur minni, í Reykjavík er hann var þar bílstjóri. Þau felldu hugi saman og fluttu aust- ur á Egilsstaði þar sem þau byggðu sér húsið Reynihlíð, sem seinna varð Selás 10. Fyrir nokkrum árum fórum við Bergur, ásamt fleirum, um þessar frægu bernskustöðvar hans, en þar var áður þingstaður fjórðungsins og er sýslan kennd við múlann. Þarna sagði hann okkur öll örnefni og eykt- armörk, enda minnugur og klár. Þessi fáu minningarorð eru fyrst og fremst þakkir fyrir að hafa fengið að kynnast góðum dreng, manni sem lifði eftir reglunni: „Glaður og reifur skyli gumna hver uns sinn bíður bana.“ Líf Bergs var þannig að fá- mennt mjög væri í lögfræðingastétt- inni ef allir lifðu sem hann. Margar ferðir fórum við hjónin austur til Bergs og Svönu og alltaf mættum við sömu hlýju og elskulegheitum í við- tökum. Íslensk gestrisni í öllu sínu veldi. Megi sá er tunglið skóp, sólina og endilanga vetrarbrautina, blessa minningu Bergs, eftirlifandi konu hans og allan ættbogann. Jóhanna og Sigurður Sigurðarson. Nú er komið að kveðjustund. Því miður getum við fjölskyldan ekki ver- ið við útförina hans Bergs í dag en hugsum hlýtt til fjölskyldunnar hans þess í stað. Ég vil kveðja hann með þakklæti fyrir þá hlýju sem hann alltaf sýndi mér og börnunum mínum. Alltaf bros og hlýtt faðmlag, auk þess sem hann fylgdist með því hvað þau voru að gera. Hann var afar stoltur af sínum barnabörnum og leyndi því ekki. Að koma á heimili þeirra hjóna Bergs og Svönu var einstakt. Ef við kíktum að- eins upp meðan við bjuggum á neðri hæðinni var boðið uppá kaffisopa og með því en sennilega er eftirminni- legast þó hve mikla hlýju maður fann frá þeim hjónum. Ég veit að hann heldur áfram að fylgjast með og hver veit nema hann geti haldið áfram að pútta örlítið þarna hinum megin. Elsku Svana, Anna, Bella, Halldór og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur sendum við ykkur. Minning um einstakan mann lifir í hjörtum okkar, mann sem án efa hef- ur núna hitt hann Dodda ykkar á ný. Guð veri með ykkur. Hafdís Erla Bogadóttir og börn. Bogi og Erla. Bergur Guðlaugur Ólason Legsteinar ehf, Gjótuhrauni 3 Hafnarfirði, Sími: 822 4774 legsteinar@gmail.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.