Morgunblaðið - 07.08.2010, Qupperneq 29
Minningar 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010
✝ Friðrik BenónýSigurbjörnsson
fæddist í Reykjavík
7. október 1921.
Hann lést á gjör-
gæsludeild Landspít-
alans í Fossvogi 14.
júlí sl.
Foreldrar hans
voru hjónin Þuríður
Benónýsdóttir, f.
1892, d. 1973 og Sig-
urbjörn Jónasson, f.
1885, d. 1929. Systk-
ini Friðriks voru:
Anna Margrét, f.
1917, d. 1939 og Ingólfur, f. 1923,
d. 1999.
Friðrik kvæntist 12. desember
1969 Kristbjörgu Kristjánsdóttur,
f. 15. ágúst 1924. Foreldrar
Kristbjargar voru Kristján Þórð-
arson, f. 1893, d. 1959 og Ágústa
Ingibjörg Sigurðardóttir, f. 1892,
d. 1981. Dóttir Friðriks er Svana,
f. 1951, móðir hennar var Svan-
fríður Friðjónsdóttir, f. 3. janúar
1929, d. 22. janúar 1952. Svana
er gift Jóhanni Pétri Malmquist,
f. 1949, þeirra börn eru: a) Skúli
Friðrik, f. 1973,
kvæntur Aðalheiði
Ingu Þorsteins-
dóttur, f. 1974; dótt-
ir þeirra er María
Svanfríður, f. 2006
en Aðalheiður Inga
á dótturina Ingi-
björgu Þórunni
Ingvadóttur, f. 2002;
b) Ari Benóný, f.
1978, sonur hans er
Friðrik, f. 2003; c)
Ásta Berit, f. 1980,
unnusti hennar er
Snorri Páll Sigurðs-
son, f. 1979, sonur þeirra er Bald-
ur Páll, f. 2009.
Friðrik var ungur að árum
þegar hann hóf störf hjá Land-
síma Íslands, þar vann hann sem
verkstjóri um áratuga skeið. Síð-
ari hluta starfsævinnar var hann
verkstjóri hjá Rafmagnsveitum
ríkisins; hjá Rafmagnsveitunum
starfaði hann þar til hann fór á
eftirlaun.
Útför Friðriks fór fram í kyrr-
þey frá Fossvogskapellu 23. júlí
2010.
Við systkinin erum öll komin á
fertugsaldurinn þegar við kveðjum
afa okkar. Síðan við munum eftir
okkur hafa afi og Kiddý amma bú-
ið í fallegu húsi við Bárugötuna í
gamla Vesturbænum.
Afi var bæði virðulegur og
myndarlegur maður, alltaf þegar
hann fór út úr húsi setti hann upp
hatt, hann átti líka sérstakan
vinnuhatt sem hann notaði þegar
hann var að vinna úti við. Afi var
vinnusamur maður og oft þegar
við komum í heimsókn var hann
annaðhvort uppi í stiga að dytta að
húsinu eða í kjallaranum en þar
hafði hann komið sér upp litlu
verkstæði þar sem hver hlutur var
á sínum stað. Þar naut hann sín
vel við að sinna ýmsum verkefnum
sem sneru að heimillinu og bílnum.
Afi átti mjög lengi bláan, flottan
Bens sem var alltaf hreinn og fínn
að innan sem utan, og fimmtíukall-
arnir voru á sínum stað ef hann
þyrfti að greiða í stöðumæli. Það
var því mikill heiður að fá að sitja
undir stýri í Bensanum hans afa.
Á síðustu árum þegar heilsu afa
tók að hraka átti hann erfiðara
með að sinna húsinu og öðrum
þeim störfum sem hann var vanur
að vinna, þá kallaði hann það leti í
sjálfum sér að vera bara inni en
ekki úti við að sinna einhverjum
verkefnum. Þetta fannst afa mjög
erfitt og þá sagði hann stundum að
nú væri hann eins og algjört gam-
almenni!
Afi var alla tíð mjög heimakær
og leið honum best heima á Báru-
götu, þar sem hann og Kiddý
amma eiga sitt fallega heimili.
Alltaf fylgdist afi vel með frétt-
um, hann las blöðin, fylgdist með
textavarpinu, horfði á erlendar
stöðvar eins og hinar ýmsu stöðv-
ar frá Evrópu og Mið-Austurlönd-
um. Það voru góðar stundir að
sitja með afa í rólegheitum og
horfa á ARTE, RAI, Euronews
eða Al Jazeera. Hann þóttist ekki
skilja mikið í þessum tungumálum
öllum, en við erum viss um að
hann skildi meira en hann vildi
vera láta. Við systkinin höfum öll
verið búsett erlendis og alltaf
vissi afi hvernig veðrið var hjá
okkur og hvað var fréttnæmt að
gerast í kringum okkur.
Afi var mjög vel lesinn og naut
þess að lesa bækur alla tíð. Hall-
dór Laxness var í miklu uppá-
haldi hjá honum en margar bæk-
ur hans kunni afi nánast
utanbókar. Afi lumaði einnig á
vísum sem hann hafði lært á lífs-
leiðinni og ýmsum frásögnum um
fólk og staðhætti. Hann þekkti
landið okkar mjög vel vegna
starfa sinna, einnig þekkti hann
gamla Vesturbæinn einstaklega
vel enda var hann fæddur og upp-
alinn þar.
Á fallegum sumardegi kvaddi
afi þennan heim. Við erum þakk-
lát fyrir að hann gat búið alla tíð
heima þar sem honum leið best og
amma Kiddý hugsaði svo vel um
hann. Frá Bárugötunni eigum við
margar góðar minningar sem við
munum geyma í okkar hugskoti.
Við erum þakklát fyrir að við gát-
um öll kvatt hann og fyrir þá
staðreynd að fram á síðasta dag
gátum við hlustað á sögur og sótt
fróðleik til hans.
Þar sem jökulinn ber við loft
hættir landið að vera jarðneskt
en jörðin fær hlutdeild í himninum
þar búa ekki framar neinar sorgir
og þessvegna er gleðin ekki nauð-
synleg
þar ríkir fegurðin ein
ofar hverri kröfu.
(Halldór Laxness.)
Skúli Friðrik, Ari Benóný
og Ásta Berit.
Friðrik Benóný
Sigurbjörnsson
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
ástkæra stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS ÁRNASONAR,
Brúnavegi 9,
áður Njörvasundi 34.
Sigurður Halldórsson, Sigrún Þorsteinsdóttir,
Sif Sigurðardóttir, Rafn Rafnsson,
Anna Birna Rafnsdóttir,
Jón Emil Rafnsson,
Atli Rafnsson,
Eyþór Rafnsson.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
SNORRA ARINBJARNARSONAR,
Mýrarvegi 111,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyfjadeildar
Sjúkrahússins á Akureyri fyrir hlýja og góða
umönnun.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Unnur Snorradóttir, Bjarki Kristinsson,
Helga Snorradóttir, Kristján Ólafsson,
Arinbjörn Snorrason, Friðný Møller,
Guðmundur Hoff-Møller, Marianne Hoff-Møller,
Bjarki Heiðar Ingason, Hildur Soffía Vignisdóttir,
Helga Þórey Ingadóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður
og afa,
GÍSLA SIGURÐSSONAR,
frá Úthlíð.
Jóhanna Bjarnadóttir,
Hrafnhildur Gísladóttir,
Bjarni Már Gíslason, Hrafney Ásgeirsdóttir,
Jóhanna Bjarnadóttir,
Sverrir Már Bjarnason.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
VALBORG SIGURBERGSDÓTTIR,
Hábæ 36,
Reykjavík,
sem lést mánudaginn 2. ágúst, verður jarðsungin
frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 10. ágúst kl. 13.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknarfélög.
Páll Bergmann Reynisson, Guðrún Eiðsdóttir,
Grétar Reynisson, Lilja Ruth Michelsen,
Sóley Reynisdóttir, Sigurður Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn. ✝
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og
útför,
EMMU HANSEN,
frá Hólum í Hjaltadal.
Starfsfólk Droplaugarstaða fær sérstakar þakkir
fyrir notalegt viðmót og góða umönnun.
Björn Friðrik Björnsson, Oddný Finnbogadóttir,
Ragnar Björnsson,
Sigurður J. Björnsson, Thuy Thu Thi Nguyen,
Gunnhildur Kr. Björnsdóttir, Sveinn Agnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
vináttu, ást og hlýju við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR SVEINS JÓNSSONAR,
Sléttuvegi 23.
Öllum þeim sem önnuðust hann í veikindunum
færum við hlýjar kveðjur. Alúðar þakkir til
Sr. Sigurðar Jónssonar.
Rakel Margrét Viggósdóttir,
Viggó Sigurðsson, Guðmundína Ragnarsdóttir,
Unnur Kristín Sigurðardóttir, Þórður Georg Lárusson,
Edda Björg Sigurðardóttir, Konráð Jón Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýjar
kveðjur við andlát og útför okkar elskulegu,
ERNU BJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Tjarnarhólma 2,
Stykkishólmi.
Sérstakar þakkir færum við Lionsfélögunum í
Stykkishólmi.
Guðþór Sverrisson,
Guðmundur Þór Guðþórsson, Jóhanna María Ríkharðsdóttir,
Kristján Valur Guðþórsson,
Guðmundur Rúnar Guðþórsson,
Sólveig Þóra Ásgeirsdóttir,
Guðríður Guðmundsdóttir, Þorsteinn Svavar McKinstry,
Guðrún Guðmundsdóttir, Sveinn Einar Magnússon,
Björgvin Trausti Guðmundsson, Nína Berglind Sigurgeirsdóttir,
Arndís Þórðardóttir,
barnabörn og systkinabörn.