Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 32

Morgunblaðið - 07.08.2010, Síða 32
32 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 Sudoku Frumstig 2 8 4 1 9 7 4 2 1 8 3 5 5 7 4 8 4 1 2 9 3 7 9 8 1 3 9 4 2 5 4 2 8 2 1 9 9 6 8 6 7 1 1 8 5 1 8 6 2 8 7 8 9 1 5 1 4 7 5 9 1 8 2 1 7 3 2 2 7 8 5 9 3 3 4 8 9 1 6 5 2 7 9 1 5 7 3 2 4 8 6 6 7 2 4 8 5 9 3 1 7 8 1 3 2 4 6 9 5 5 6 4 8 7 9 2 1 3 2 9 3 6 5 1 8 7 4 4 3 7 5 9 8 1 6 2 8 2 6 1 4 3 7 5 9 1 5 9 2 6 7 3 4 8 8 1 3 5 7 6 9 4 2 2 9 5 8 4 3 6 1 7 6 4 7 9 1 2 3 8 5 4 6 9 2 8 5 1 7 3 3 7 8 4 9 1 2 5 6 1 5 2 3 6 7 4 9 8 5 2 4 7 3 9 8 6 1 9 3 1 6 5 8 7 2 4 7 8 6 1 2 4 5 3 9 3 4 2 7 6 1 8 9 5 7 6 8 3 9 5 1 4 2 1 5 9 2 8 4 3 6 7 9 1 4 8 3 7 5 2 6 2 7 3 4 5 6 9 1 8 6 8 5 1 2 9 7 3 4 5 2 7 9 4 3 6 8 1 8 3 1 6 7 2 4 5 9 4 9 6 5 1 8 2 7 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 7. ágúst, 219. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: Á þeim degi skulu leif- arnar af Ísrael og þeir af Jakobs húsi, sem af komast, eigi framar reiða sig á þann sem sló þá, heldur munu þeir með trúfestu reiða sig á Drottin, Hinn heilaga í Ísrael. (Jesaja 10, 20.) Það er alltaf skemmtilegt þegarLaugavegurinn breytist til batnaðar, með nýjum fyrirtækjum, búðum, kaffihúsum eða öðru. Í vik- unni rak Víkverji nefið tvívegis inn á nýjan stað sem heitir Frú Sigurlaug. Frú Sigurlaug er nýtilkomin og er bæði veitingahús og kaffihús. Mjög notalegur staður. Ekki nætur- klúbbur. Matseðillinn lofar góðu þótt ekki hafi Víkverji enn látið slag standa og fengið sér kvöldmat þar. Humar er áberandi. Víkverja reik- ast til að Skarthúsið hafi áður verið þarna til húsa, en þetta er á gatna- mótum Laugavegar og Smiðjustígs. Meira svona! x x x Heimsókn risasnekkjunnar Octo-pus vakti athygli í Reykjavík, enda snekkjan ein sú stærsta í heim- inum. Athygli vakti að eigandinn, Paul Allen, er með tvær þyrlur á skipinu og tvo litla kafbáta líka. Vík- verji skrapp niður á bryggju og virti Kolkrabbann fyrir sér. Skipið var furðulega vel málað. Nánast eins og allur skrokkurinn hefði verið bón- aður hátt og lágt. Í umræðum um þetta skip vöknuðu pælingar um það hver tilgangurinn væri með því að reka einkaskip fyrir 2,5 milljarða króna á ári og vera sjaldnast sjálfur um borð. Þá sagði lífsreyndur maður við Víkverja að með þessu skipi og öðrum eigum sínum hefði Allen þessi öðlast mikið frelsi. Hann gæti siglt um heimshöfin hraðar en hval- irnir, kafað djúpt eins og fiskarnir og flogið um loftin blá eins og fugl- arnir. Að auki á hann fína bíla og getur keyrt þá hraðar en nokkurt dýr getur hlaupið. En hvernig ætlar þessi maður að bregðast við dauð- anum? Hvað ætlar hann að gera til að sleppa við hann? Kannski eru risasnekkjur og munaður á borð við einkaþyrlur og þotur bara aðferðir venjulegra lítilla manna til að finnast þeir um stund vera almáttugir og ódauðlegir. Þá er nú ódýrara að sættast við gang lífsins og lifa í lukku en ekki 3.000 tonna krukku sem flýtur á hafinu, með tvo inn- byggða kafbáta. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | Lárétt 1 óvin- áttu, 8 fer á hesti, 9 skúta, 10 forskeyti, 11 ákveð, 13 enn innar, 15 dælir, 18 kvartil, 21 eld- stæði, 22 ekið, 23 töfra- stafs, 24 erting í húð. Lóðrétt | Lóðrétt: 2 ysta brún, 3 líffærið, 4 súld, 5 skynfærin, 6 glæða, 7 til sölu, 12 þjóta, 14 eykta- mark, 15 poka, 16 held til haga, 17 upphafs, 18 ilmur, 19 þekktu, 20 blóma. Lausn síðustu krossgátu Lausn síðustu krossgátu. Lárétt: 1 múgur, 4 folum, 7 lufsa, 8 ýfður, 9 rær, 11 rýrt, 13 orri, 14 ýmsir, 15 skær, 17 fold, 20 far, 22 rolla, 23 eflir, 24 korti, 25 nöfin. Lóðrétt: 1 múlar, 2 gáfur, 3 róar, 4 flýr, 5 læður, 6 morði, 10 æðsta, 12 Týr, 13 orf, 15 sprek, 16 ætlar, 18 orlof, 19 dýrin, 20 fati, 21 regn. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. c4 e6 2. Rc3 Bb4 3. e4 Re7 4. d4 O-O 5. Rf3 d5 6. e5 b6 7. Bd3 h6 8. O-O Ba6 9. cxd5 Bxd3 10. Dxd3 Rxd5 11. De4 Bxc3 12. bxc3 b5 13. Dg4 Kh7 14. a4 c6 15. Bg5 De8 16. Bd2 Rd7 17. Hfe1 R7b6 18. axb5 cxb5 19. Dh3 Rc4 20. Bc1 a5 21. He4 f5 22. exf6 Hxf6 23. Bg5 Hg6 24. Hae1 Ha6 25. Bd2 a4 26. Bc1 a3 27. Rg5+ Staðan kom upp á svissneska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Len- zerheide. Alþjóðlegi meistarinn Andreas Huss (2304) hafði svart og hefði getað innbyrt sigur gegn Viktori Kortsjnoj (2568) með því að leika 27… Hxg5 28. Bxg5 a2 29. Ha1 Dg6. Í stað þessa lék svartur 27… Kg8? og tapaði eftir: 28. Rxe6 a2 29. Rg5! Df8 30. He8 Hgf6 31. Dd7! a1=D 32. Dxd5+ Kh8 33. Rf7+ Kh7 34. Hxf8 Hae6 35. Hh8+ Kg6 36. Re5+ Rxe5 37. dxe5 Dxc3 38. Bd2 og svartur gafst upp. Svartur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Þreyta. Norður ♠K764 ♥K3 ♦ÁG4 ♣8643 Vestur Austur ♠G102 ♠ÁD8 ♥G ♥62 ♦KD105 ♦9876 ♣ÁKG52 ♣D1097 Suður ♠953 ♥ÁD1098754 ♦32 ♣-- Suður spilar 4♥. Líklega myndu flestir Standard- spilarar velja 1♣ sem fyrstu sögn vest- urs, en þeir eru líka til sem opna á 1♦ til að eiga endurmeldinguna 2♣ við hálitasvari makkers. Mun færri gera eins og Geoff Hampson – opna á 1G. En hvað sem líður opnun vesturs, þá enda sagnir í 4♥ og útspilið er ♣Á. Spilið er frá úrslitaleik bandarísku landsliðskeppninnar. Lew Stansby var við stýrið gegn Hampson og Greco. Hann trompaði ♣Á, spilaði strax tígli að blindum og dúkkaði ♦D vesturs. Hampson var greinilega þreyttur eftir sagnir og spilaði syfjulega ♣K um hæl. Stansby gat þá svínað ♦G og hent nið- ur einum spaða. Unnið spil. Fred Gi- telman fékk sama útspil, en frestaði því fram í rauðan dauðann að spila tígli, svo það var auðvelt fyrir vestur að skipta yfir í spaða. Einn niður. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú gætir fengið óvænta peninga eða gjöf, annaðhvort beint eða í gegnum einhvern nákominn. Eyddu samt ekki um efni fram. (20. apríl - 20. maí)  Naut Vinur gæti rétt þér hjálparhönd við að flytja búnað þinn eða eigur. Leggðu á ráðin um það hvernig þú getir bætt heim- ilisaðstæður þínar til langframa. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Vertu ekki stíf/ur og leyfðu vin- um þínum að koma þér til aðstoðar. Sér- stakar aðstæður verða til þess að varpa ljósi á dulda hæfileika þína. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú hefðir gott af því að breyta um umhverfi, en að umgangast nýtt fólk væri enn betra. Láttu allt slúður sem vind um eyru þjóta. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er eitt og annað í gangi í fé- lagslífinu en þig langar meira að halda þér til hlés. Til þess að skapa þarf maður fyrst að trúa því að það sé hægt. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú skarar fram úr jafningjum sín- um, en ekki athugasemdalaust. Nú er góður tími til þess að biðja um aðstoð, þú ert of hógvær. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Fátt er betra en góðir vinir svo leggðu þig fram um að eiga með þeim ánægjulega stund. Einhver fjarlægur er þér bókstaflega allt. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þér hefur vegnað vel og þú horfir nú horfir björtum augum fram á veginn. Forðastu magnleysið og óvissuna sem hrina rifrilda skapar. Láttu ekkert aftra þér. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er alltaf auðveldara að sjá hvað fór úrskeiðis eftir á. Til allrar ham- ingju er það á þínu færi. Gerir þú ekkert skaltu ekki reikna með því að fá neitt frá öðrum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það verður áfram svo mikið að gera hjá þér að á stundum finnst þér nóg um. Skoðaðu málin með opnum huga. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það er mikill kraftur í þér en það skiptir öllu máli að beina honum í rétta átt svo þú fáir því áorkað sem þú óskar. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Að hjálpa einhverjum úr klípu læt- ur þér líða mjög vel. Gildismat annarra er vissulega ekki hið sama og þitt. Reyndu að hvíla þig betur. Stjörnuspá 7. ágúst 1772 Útilegumennirnir Fjalla- Eyvindur (Jónsson) og Halla (Jónsdóttir) voru handtekin á Sprengisandi og færð til byggða í Mývatnssveit. Eyvind- ur slapp fljótlega og frelsaði Höllu skömmu síðar. Þau dvöldu víða á hálendinu í einn til tvo áratugi. 7. ágúst 1909 Matjurta- og skrautgarðurinn á Núpi við Dýrafjörð var form- lega stofnaður og honum gefið nafnið Skrúður. Upphafsmað- urinn, séra Sigtryggur Guð- laugsson, valdi þennan dag vegna þess að þá voru rétt 150 ár frá því að Björn Halldórsson í Sauðlauksdal setti niður kart- öflur hér á landi, fyrstur manna. 7. ágúst 1960 Vilhjálmur Einarsson stökk 16,70 metra í þrístökki og setti Íslandsmet sem enn stendur. Þetta var næstlengsta stökk í heimi á þessum tíma. 7. ágúst 1997 Fyrsti íslenski geimfarinn, Bjarni Tryggvason, fór í geimferð með Disco- very, sem skotið var á loft frá Canaveral-höfða á Flór- ída. Ferðin tók tæpa tólf sólar- hringa. Bjarni, sem fæddist í Reykjavík en flutti til Kanada sjö ára gamall, kom í heimsókn til Íslands í júní 1998. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist… Sigríður Inga Þorkelsdóttir, Engjavegi 21, Ísafirði, verður 80 ára þann 8. ágúst. Eigin- maður hennar er Kristján J. Krist- jánsson. Ætt- ingjum og vinum er boðið til kaffisamsætis í Hásölum við þjóðkirkjuna í Hafnarfirði sunnudaginn 8. ágúst kl. 14-18. 80 ára „Við erum nú þegar búin að halda rosapartí í sveitinni, ég og maðurinn minn, Brynjar Freyr Stefánsson, sem varð fimmtugur fyrr í sumar. Við erum með lítið sumarhús í Landsveit og þangað komu vinir okkar og fjölskylda, 120 manns í heild, tjölduðu, sungu og gæddu sér á sjávarréttarsúpu með okkur. Það var rosalega gaman og glampandi sól allan tímann,“ segir Harpa Harðardóttir söng- kona sem er fimmtug í dag. „Við erum jafnframt svo heppin að vera umkringd hæfileikafólki í söng og dansi og höfum notið góðs af því í hátíðarhöld- unum.“ Á afmælisdaginn sjálfan ætla hjónin að skella sér í ærlegt nudd um morguninn. „Svo ætlum við að fá okkur létt að borða og fara svo að sjá Gleðigönguna. Ætli við sjáum svo ekki bara hvert dagurinn leiðir okkur.“ Harpa hefur starfað sem söng- kenni í Söngskólanum í Reykjavík í fimmtán ár. „Ég hef líka mikinn áhuga á útivist og finnst rosalega gott að vera úti í sveit. Svo bara nýt ég sumarsins alveg í botn, ég er búin að vera í golfi í nokkur ár og stunda það eins og ég get.“ Harpa er búsett í Kópavogi og er úr Voga- hverfinu í Reykjavík. Hún á fjögur börn; Aðalheiði, Arnór, Hörð Frey, Hrefnu Borg og fóstursoninn Arnar Smára. haa@mbl.is Harpa Harðardóttir er fimmtug í dag Ærlegt nudd og Gleðiganga Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.