Morgunblaðið - 07.08.2010, Side 38

Morgunblaðið - 07.08.2010, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2010 Ljóti andarunginn og ég kl. 1 - 4 - 6 (650 kr) LEYFÐ Shrek 4 3D íslenskt tal kl. 1 (950 kr) - 3:30 - 5:45 LEYFÐ Karate Kid kl. 1 (650 kr) - 5:10 - 8 - 10:50 LEYFÐ Shrek 4 2D íslenskt tal kl. 1 (650 kr) - 3:30 LEYFÐ Karate Kid kl. 2 - 5:10 - 8 - 10:50 LÚXUS Knight and Day kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára Predators kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára Grown Ups kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ Sími 462 3500 Ljóti andarunginn og ég kl. 3 (600 kr) - 4:40 - 6:10 LEYFÐ Karate Kid kl. 3 (600 kr) - 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Predators kl. 10 B.i. 16 ára Knight and Day kl. 8 B.i. 12 ára Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó S.V., MBL SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Jackie Chan kennir ungum lærling sitthvað um Kung fu í vinsælustu fjölskyldumynd ársins! Missið ekki af myndinni sem sló í gegn í Bandaríkjunum og fór beint á toppinn. L.A Times USA Today T.V., Kvikmyndir.is Börnin í einlægni sinni og sakleysi eru bæði yndisleg og sprenghlægileg -H.G., MBL Stórfín hugmynd sem útfærð er á einfaldan og áhrifaríkan máta -Ó.H.T. Rás 2 Stórskemmtileg teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali. Myndin er lauslega byggð á hinu sígilda ævintýri um ljóta andarungann. SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti teng AF TÓNLIST Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Ég er eins og margir Íslend-ingar að því leyti að ég hefmikinn áhuga á því hvað út- lendingum finnst um okkur. Það mætti jafnvel segja að ég hefði áhyggjur. Mér þótti umfjöllun er- lendra miðla um eldgosið í Eyja- fjallajökli til dæmis oft nokkuð stressandi. Það hefði mátt taka það fram að þetta væri ekki okkur að kenna. En ég vona að fólk átti sig á því. Eins tók ég umfjöllun um bankahrunið mjög inn á mig, þangað til ég áttaði mig á því að ákveðið æðruleysi er nauðsynlegt ef maður ætlar að vera stoltur Íslendingur. Ég get ekki gert annað en að vera sjálfur góður sendiherra lands og þjóðar. Þið hin verðið síðan að passa að klúðra þessu ekki.    Einn fyrsti snertiflötur margraútlendinga við íslenska menn- ingu er í gegnum tónlist. Flestir kannast auðvitað við Björk og marg- ir við Sigur Rós. Þegar ég hef verið spurður að því hvaða íslensk tónlist mér finnst skemmtilegust hef ég yf- irleitt nefnt það sem mér finnst lík- mælikvarða. Maður ætti kannski að leyfa áhugasömum útlendingum að hlusta á annað verk Magnúsar Kjartanssonar, „Sólarsömbu“, ef það væri ekki svona kvikindislegt.    Ég sat nýlega á kaffihúsi ogheyrði út undan mér lag sem ég hélt að hlyti að vera íslenskt. Lagði því ekki sérstaklega við hlust- ir. Sessunautur minn spurði þá hvort mér þætti þetta ekki gott lag, það væri af nýjustu plötu Arcade Fire. Þetta var töluvert áfall fyrir mig, aðdáanda sveitarinnar. Hvaða umskipti hafa eiginlega átt sér stað þegar erlendar sveitir, stórsveitir jafnvel, eru farnar að hljóma eins og þær gætu verið héðan norðan úr ballarhafi? Listamenn sem lifa á því að semja og flytja tónlist. Verkefni mitt næstu daga er því að end- urmeta afstöðu mína til þess hvernig ég vil að útlendingar upplifi íslenska tónlist. Og kannski ég sjálfur líka. Næstum nógu gott til að vera útlenskt Sendiherrar Magnús Kjartansson og félagar í Trúbroti leika á minningartónleikum um Karl Sighvatsson. legt að útlendingum líki. Ómeðvitað leita ég uppi lög sem hljóma eins og þau gætu verið útlensk sem er auð- vitað tóm vitleysa þegar fólk vill heyra tónlist sem mætti kalla ein- kennandi fyrir Ísland, hvað svo sem felst í því. Ég er farinn að hallast að því að þetta stafi af minnimátt- arkennd hjá mér, þörfinni fyrir að sýna fólki utan úr hinum stóra heimi að við getum gert tónlist eins og aðrir. Hún hljómi meira að segja eins.    Ég bjó erlendis um tíma og varþá oft spurður um mína uppá- haldstónlist frá Íslandi. Það leið ekki á löngu áður en ég var dottinn niður á það sem mér fannst vera besta kynningin á íslenskri tónlist: „To be grateful“, eftir hinn mikla Magnús Kjartansson. Það er næstum nógu gott til að geta verið útlenskt. Sem þýðir auðvitað að það hefur engin sérstök íslensk einkenni, önnur en kannski hreiminn í söng Magnúsar. Trúbrot skildi eftir sig mikið af perl- um en áðurnefnt lag er sennilega eitt af þeim íhaldssamari. Fyrir utan hvað lagið er gamalt. En það hljóm- ar einhvern veginn ekki eins og það sé frá Íslandi.    Hvað upplifunina varðar erþetta svolítið eins og að bjóða erlendum ferðamanni í Reykjavík upp á eldbakaða flatböku og spyrja hann síðan hvort honum finnist ís- lensk matargerð ekki á heims- »Ég get ekki gertannað en að vera sjálfur góður sendiherra lands og þjóðar. Þið hin verðið síðan að passa að klúðra þessu ekki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.