Morgunblaðið - 07.08.2010, Page 44
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 219. DAGUR ÁRSINS 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Hundur bítur veika tá af eiganda…
2. Óvæntur gestur
3. Óheimilt að fara með bílana úr…
4. Táningsstúlka hindraði mansal
Hljómsveitin Amiina situr ekki auð-
um höndum um þessar mundir, en
sveitin hefur verið að vinna að nýrri
breiðskífu auk þess að spila á evr-
ópskum tónlistarhátíðum. »36
Mikið að gera hjá
krökkunum í Amiinu
Stuttmyndin
Knowledgy eftir
Hrefnu Hagalín og
Kristínu Báru Har-
aldsdóttur verður
frumsýnd á Al-
þjóðlegri kvik-
myndahátíð í
Reykjavík í haust.
Handritshöf-
undur myndarinnar er Hugleikur
Dagsson, en hún skartar meðal ann-
ars stórstjörnunum Leo Fitzpatrick,
Ingvari E. Sigurðssyni og Nínu Dögg
Filippusdóttur.
Ný íslensk stuttmynd
frumsýnd í haust
Á morgun opnar Hulda Stef-
ánsdóttir sýningu sína í Hallgríms-
kirkju, en hún mun standa til
loka nóvember. Sýningin
ber nafnið Upplausn, en
á henni beinir Hulda
sjónum að græna litnum
og auk verka í fordyri
kirkjunnar lýsir grænu
út um efsta hluta
kirkjuturnsins þegar
rökkvar. Hulda hefur
haldið fjölda einkasýn-
inga hér á landi og er-
lendis. »34
Hulda Stefánsdóttir í
Hallgrímskirkju
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, 8-13 m/s og rigning S-til, en annars mun hægari og
þurrt að kalla. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á N-landi.
Á sunnudag Norðaustlæg átt, 3-8 m/s og dálítil væta SA-lands fram eftir degi, en ann-
ars skýjað með köflum. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast SV-til.
Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag Hæg vestlæg eða breytileg átt og
bjart með köflum, en líkur á þokuloft við ströndina, einkum V-til. Áfram hlýtt í veðri.
Verulega óvænt úrslit urðu í Dem-
antamótinu í frjálsum íþróttum í
Stokkhólmi í gærkvöldi þegar Ólymp-
íumeistarinn og heimsmethafinn
Usain Bolt frá Jamaíku varð í 2. sæti í
100 metra hlaupi. Tyson Gay frá
Bandaríkjunum sigraði á 9,84 sek-
úndum en Bolt hljóp á 9,97 sek-
úndum. Asafa Powell hætti við þátt-
töku vegna meiðsla. »1
Tyson Gay hafði betur
gegn Usain Bolt
Leiknir úr Reykjavík tyllti sér á
topp 1. deildar karla í fótbolta
í gær eftir 1:0 sigur liðsins
gegn ÍA á Akranesi. Lið Leiknis
er til alls líklegt á lokasprett-
inum en það hefur aldrei leikið
í efstu deild. ÍR-ingar eru enn
með í baráttunni um efstu
sætin eftir 2:1 sigur gegn HK á
heimavelli í Mjóddinni í Breið-
holti. Gærkvöldið var því gott
fótboltakvöld fyrir íbúa Breið-
holts. »2
Leiknir vann ÍA
og fór á toppinn
Nína Björk Geirsdóttir úr Kili í Mos-
fellsbæ gerði sér lítið fyrir og fór holu
í höggi á Íslandsmótinu í holukeppni
á Garðavelli á Akra-
nesi. Tveimur um-
ferðum af alls þrem-
ur er lokið í
riðlakeppninni en í
dag kemur í ljós
hvaða kylfingar
komast í átta
manna úrslit í
karlaflokknum
og undanúrslit
hjá konunum.
» 1
Nína fór holu í höggi í
miðri holukeppni
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Gleðiganga Hinsegin daga hefst í dag
kl. 14 á Snorrabraut þar sem beygt er
inn á Laugaveg og endar á Arnarhóli.
„Gangan fer stundvíslega af stað og
við segjum alltaf að við bíðum ekki
eftir neinum,“ segir Þorvaldur Krist-
insson, forseti stjórnar Hinsegin
daga. Mikill undirbúningur hefur far-
ið í gönguna sem nú er farin í tólfta
sinn. Ásta Kristín Benediktsdóttir og
Helga K. Bjarnadóttir munu bera hit-
ann og þungann af göngunni og eru í
þeim hópi sem leiðir gönguna. „Þetta
verður glæsileg ganga og það er allt
að smella saman,“ segir Ásta. „Það
eru um 33 atriði í ár og það eru fleiri
bílar en gönguatriði.“ Páll Óskar
Hjálmtýsson verður aftastur í röðinni
og mun sjá um að trylla gesti með
flottum gjörningi en hann mun klæð-
ast stærsta kjól Íslandssögunnar.
Hugsanlega metþátttaka
Þátttakan í ár er mjög góð að sögn
Ástu Kristínar og segir Þorvaldur
Kristjánsson að mögulega sé um met
að ræða. „Við erum hugsanlega að slá
met í þátttöku, en við vitum aldrei
hvað birtist í göngunni, því atriðin
þar eru meira og minna á ábyrgð ger-
enda og heimatilbúin,“ segir hann.
„Atriðin eru ekki á okkar vegum
þannig að við vitum í raun nánast jafn
lítið og hinn almenni borgari um hvað
birtist.“
Nú á árinu voru ný hjúskaparlög
samþykkt á alþjóðlegum baráttudegi
samkynhneigðra og er það mikill sig-
ur. Hátíðin verður þó með sömu
áherslum og áður. „Við leggjum
áherslu á að undirstrika það hvað við
höfum á Íslandi. Þetta er fagnaðar-
hátíð og samstöðuhátíð,“ segir Þor-
valdur. „Við erum að sýna íslenskri
þjóð þakklæti okkar fyrir það að hafa
stutt mannréttindi okkar svona vel og
dyggilega eins og raun ber vitni. Við
vinnum talsverða vinnu á hverju ári
við það að sýna samstöðu með hinseg-
in fólki, hommum, lesbíum og trans-
fólki um allan heim sem á um sárt að
binda og undir högg að sækja og það
gerum við með stuðningsyfirlýs-
ingum, með því að bjóða fólki til okk-
ar og með því að fara sjálf í heimsókn
á þá staði þar sem stuðnings er þörf.“
Skýrasta dæmið um árangur þess-
arar hátíðar, að sögn Þorvalds, er allt
það unga fólk sem hefur tekið af skar-
ið og komið út úr skápnum á hátíðinni
eða eftir hana. Þess eru dæmi að
fólk sem hafi borið grímur í göng-
unni hafi tekið þær niður á miðjum
Laugavegi vegna þess hversu
mikla samstöðu það upplifir og vel-
viljinn sé svo sterkur.
Gleðigangan myndar samstöðu
Hinsegin dagar
eiga að lýsa þakk-
læti við íslenska
þjóð fyrir stuðning
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Undirbúningur í fullum gangi Ungliðar stóðu í ströngu í gærkvöldi við að skreyta bíl sinn fyrir Gleðigönguna.
Nú þegar ný hjúskaparlög hafa verið samþykkt munu Samtökin ’78
taka fyrir nýtt baráttumál. „Við erum að vinna með transgender, þá
sem fara í kynleiðréttingu,“ segir Þórunn Daða-
dóttir, formaður Samtakanna ’78. „Nú
hafa verið sumarfrí en í haust förum
við að stilla strengina og þá vitum
við nákvæmlega hvert við stefnum
með þetta.“ Þórunn segir að
samtökin fari víðsvegar í
fræðslustarfsemi og reyni að
sporna gegn fordómum.
Barátta fyrir leiðréttingu
SAMTÖKIN ’78