Morgunblaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 33
Dagbók 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010
Sudoku
Frumstig
4 2 1 7 3
7 5 4
1 3 9
5 4 7 6
2 3 9
5 7
9 2 4
1 9
5 2 7
5 9 7
3 6 2 5 4
4
7 4 6 8 5
9 8 2 7
4
3 4 7 6
8
9 5
3 7
5 6
9 4
6 3 9
3 5 6 7 9
4 7
6 9 8 4
5 3 8 1
8 6
9 6 8 3 1 2 7 5 4
3 5 2 8 7 4 9 1 6
7 1 4 6 9 5 2 8 3
5 8 6 1 4 7 3 2 9
1 4 9 2 3 6 5 7 8
2 7 3 5 8 9 4 6 1
6 3 7 4 5 8 1 9 2
8 9 1 7 2 3 6 4 5
4 2 5 9 6 1 8 3 7
5 6 8 4 2 3 1 9 7
9 4 2 7 1 8 5 3 6
7 1 3 5 9 6 4 2 8
8 7 5 6 4 2 9 1 3
4 3 6 9 5 1 7 8 2
1 2 9 3 8 7 6 4 5
3 5 1 8 6 9 2 7 4
2 8 4 1 7 5 3 6 9
6 9 7 2 3 4 8 5 1
3 9 6 8 1 4 2 5 7
4 1 2 6 7 5 8 3 9
8 7 5 9 2 3 4 1 6
7 3 4 2 5 9 1 6 8
6 5 9 7 8 1 3 2 4
2 8 1 4 3 6 7 9 5
5 4 7 3 9 2 6 8 1
1 2 8 5 6 7 9 4 3
9 6 3 1 4 8 5 7 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 13. ágúst, 225. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: Verðið heldur sjálfir heil-
agir í allri hegðun, eins og sá er heil-
agur, sem yður hefur kallað. (1Pt. 1, 15)
Víkverji er ferðaglaður maður oghefur ekið víða um heim, en
hvergi kynnst öðru eins agaleysi á
meðal ökumanna og ríkir í umferð-
inni hérlendis og ekki síst í Reykja-
vík. Með ólíkindum er að árekstrar
og slys skuli ekki vera fleiri en raun
ber vitni, miðað við háttsemina við
stýrið. Og samt virðast nánast allir
ökumenn vera allsgáðir.
x x x
Víkverji á oftast leið um Hring-braut og Miklubraut og nánast
í hvert sinn gengur umferðin ekki
sem skyldi vegna þess að einhver
heldur umferðinni niðri með því að
aka á hraða skjaldbökunnar. Oftar
en ekki er viðkomandi upptekinn við
að tala í síma og því ekki með hug-
ann við aksturinn. Sumir ökumenn
nota tækifærið og borða morgun-
matinn á leiðinni í vinnuna og ein-
hverjir fá sér kaffi og sígarettu, að
sjálfsögðu meðan á akstri stendur.
Ekki alls fyrir löngu fór Víkverji
framúr stúlku sem var upptekin við
að mála sig á meðan bíll hennar hélt
af gömlum vana austur Miklubraut.
Vonandi hafa vinnufélagarnir tekið
eftir því hvað hún leit vel út.
x x x
En það er ekki bara á malbikinusem ökumenn gleyma ábyrgð-
inni sem því fylgir að aka bíl. Í liðn-
um mánuði var Víkverji á hestbaki
upp til fjalla í Borgarfirði. Allt í einu
birtist jeppi á hestagötunni. Öku-
maðurinn hélt á ungu barni og þrír
krakkar voru í bílnum að auki. Þeg-
ar honum var bent á að hann æki ut-
an vegar sagði hann einfaldlega að
hann gerði þetta ekki aftur og hélt
áfram, með barnið í fanginu við stýr-
ið.
x x x
Á annatímum má oft sjá lögreglustanda vaktinu á fjölförnum
leiðum eins og Hringbraut og Miklu-
braut. Hún er þarna fyrst og fremst
til þess að hafa gætur á hraða og oft
má sjá lögregluna stöðva ökumenn
fyrir hraðaakstur en Víkverja finnst
að hún eigi ekki síður að hafa gætur
á fyrrnefndum atriðum.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | Lárétt: 1 hluti
fuglsmaga, 4 undirnar, 7
kynstur, 8 líkamshlutar,
9 kraftur, 11 geta gert,
13 ilmi, 14 bor, 15 spaug,
17 ágeng, 20 hryggur,
22 sælu, 23 sér, 24 vota,
15 þekki.
Lóðrétt | Lóðrétt: 1
plönturíki, 2 duftið, 3
jarðávöxtur, 4 vitneskja, 5
tuskan, 6 galdrakvenndi,
10 aula, 12 elska, 13
erfðafé, 15 grasflöt, 16
Persi, 18 bækurnar, 19
fiskur, 20 flytja með erf-
iðismunum, 21 slungin.
Lausn síðustu krossgátu
Lausn síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 lofsyngja, 8 semur, 9 forða, 10 tin, 11 kerti, 13
apann, 15 Rafns, 18 sakna, 21 van, 22 svera, 23 áfeng,
24 skelfisks.
Lóðrétt: 2 ormar, 3 sorti, 4 nefna, 5 jarða, 6 ósek, 7
hann, 12 tin, 14 púa, 15 ræsi, 16 flesk, 17 svall, 18 snáði,
19 klerk, 20 angi.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 Bb4+ 4. Bd2
Be7 5. Bg2 d5 6. Rf3 0-0 7. 0-0 c6 8. Dc2
b6 9. Hd1 Ba6 10. Re5 Dc8 11. Rc3
Rbd7 12. Hac1 Rxe5 13. dxe5 Rd7 14.
cxd5 cxd5 15. Bf4 g5
Staðan kom upp á ofurskákmótinu í
Dortmund í Þýskalandi sem lauk fyrir
skömmu. Sigurvegari mótsins, Ruslan
Ponomarjov (2.734) frá Úkraínu, hafði
hvítt gegn Vladimir Kramnik (2.790)
frá Rússlandi. 16. Bxd5! exd5 17. Rxd5
Dd8 18. Rc7 Hc8 19. e6! fxe6 20. Dc6!
De8 21. Dxe6+ Df7 22. Dxf7+ Kxf7 23.
Rxa6 gxf4 24. Hxc8 Hxc8 25. Hxd7
hvítur er nú með léttunnið endatafl.
Framhaldið varð eftirfarandi:
25. … Hc2 26. Rb4 Hxb2 27. Rc6 Hxe2
28. Hxa7 f3 29. h4 h5 30. Hxe7+ Hxe7
31. Rxe7 Kxe7 32. g4 hxg4 33. Kh2
Ke6 34. Kg3 Kf5 35. a4 Ke4 36. Kxg4
og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Blindur leiðir blindan.
Norður
♠G10872
♥K3
♦ÁD103
♣ÁK
Vestur Austur
♠64 ♠5
♥109852 ♥ÁDG6
♦952 ♦KG7
♣D104 ♣G9863
Suður
♠ÁKD92
♥74
♦864
♣752
Suður spilar 4♠.
Vestur kom út með ♥10 og sagnhafi
fór strax upp með kónginn í blindum.
Ætlaði ekki að láta liðsmann undan-
ásafélagsins gera sig að fífli, auk þess
sem hann sá engan sérstakan tilgang í
því að dúkka. En þar var hann blindur.
Austur drap og spilaði litlu hjarta yf-
ir til makkers. Vestur skildi til hvers
var ætlast og skipti yfir í tígul. Sagn-
hafi svínaði fyrst ♦10, svo ♦D síðar, en
ekkert gekk. Einn niður.
Hvað gerist ef ♥10 er dúkkuð? Spili
vestur hjarta áfram og austur svo laufi,
mun sagnhafi stinga þriðja laufið, af-
trompa vörnina og endaspila austur
með tígli á tíuna.
Vestur verst betur með því að skipta
yfir í tígul í öðrum slag, en þá drepur
sagnhafi með ♦Á, hreinsar upp svörtu
litina og spilar hjarta. Sama nið-
urstaða.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Fjölskyldumálin þurfa að ganga
fyrir öðru í dag því að mörgu er að
hyggja. Líttu á atvinnutilboð sem vaxt-
armöguleika. Þú hefur lúmskt gaman af
karpi í vinnunni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Mikilvæg verkefni velta á þér. Þú
ert tvístígandi varðandi ástarsamband
sem er í gerjun, reyndu að hafa ekki of
miklar áhyggjur, það kemur dagur eftir
þennan dag.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Temdu þér að fara vel með þá
hluti sem þú eignast, hvort sem þeir eru
smáir eða stórir. Mundu að réttlætið sigr-
ar alltaf að lokum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Fyrir vinnuþjark eins og þig er
ekkert verra en að neyðast til að taka frí.
Tillitssemi er dyggð.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Fáirðu ekki viðurkenningu fyrir
verk þín mun það valda þér vonbrigðum
og gera þig óánægða/n. Þú þarft ekki að
sanna þig á nokkurn hátt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það gerist ekkert meðan þú situr
með hendur í skauti. Baðaðu þig í sviðs-
ljósinu því þú átt það skilið.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú stendur á þröskuldi nýrra tæki-
færa. Rómantík og daður geta lífgað upp
á daginn en einnig er hugsanlegt að þú
hittir nýtt og skemmtilegt fólk.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Finndu út hvar þú best getur
komið skoðunum þínum á framfæri því þú
vilt að hlustað sé á þig. Aðrir treysta þér
til að vera nákvæm/ur.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þótt þér finnist í augnablikinu
erfitt að fóta þig fram á veg vinnur tíminn
í þína þágu. Það er bæði dýrt og tímafrekt
að finna til allt sem þarf í verkefni sem
bíður heima.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þér finnst erfitt að átta þig á
framkomu vinafólks þíns. Neyddu sjálfa/n
þig til að breyta út af vananum, þú ert bú-
in/n að vera of lengi í sömu hjólförum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér dugar lítt að sitja með
hendur í skauti því þannig kemurðu engu
í verk. Aðrir sjá um sig en þín verk vinnur
enginn nema þú sjálf/ur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur haldið nógu lengi aftur af
sterkum tilfinningum þínum í garð mann-
eskju sem heillar þig. Sumir hlutir eru
bara til þess að hlæja að þeim.
Stjörnuspá
13. ágúst 1950
Minningarhátíð um Jón biskup
Arason var haldin á Hólum í
Hjaltadal, tæpum fjórum öld-
um eftir að hann og synir hans
voru vegnir. Vígt var minn-
ismerki, 27 metra hár klukku-
turn.
13. ágúst 1951
Vinna við gerð Akureyr-
arflugvallar „á Eyjafjarð-
arárhólum“ hófst. Þá notuðu
Akureyringar flugvöllinn á
Melgerðismelum sem „þótti
óheppilegur fyrir margra
hluta sakir,“ að sögn Vísis,
enda „um þriggja stund-
arfjórðunga akstur til bæj-
arins.“ Nýi flugvöllurinn var
tekinn í notkun í desember
1954.
13. ágúst 1987
Verslunarmiðstöðin Kringlan
í Reykjavík var opnuð og
verslunarrými á höfuðborg-
arsvæðinu jókst um 9%. „Nýtt
skref inn í samtímann,“ sagði í
ritstjórnargrein Morgunblaðs-
ins. Um fjörutíu þúsund manns
komu í húsið fyrsta daginn. Þá
voru sjötíu verslanir og þjón-
ustufyrirtæki í Kringlunni.
13. ágúst 1993
Kvikmyndin Jurassic Park var
frumsýnd. Á tveimur mán-
uðum sáu 74 þúsund manns
myndina, en það var talið met.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Jörmundur
Ingi Reykjavík-
urgoði verður
sjötugur hinn 14.
ágúst.
Hann tekur á
móti gestum á
Næsta bar við
Ingólfsstræti á
afmælisdaginn
milli kl. 17 og 19 og vonast til að sjá
sem flesta vini og ættingja.
70 ára
Líf Magneudóttir vefritstjóri og þriggja barna
móðir í fæðingarorlofi er ánægð með að afmæl-
isdaginn hennar ber upp á föstudegi. „Það er allt-
af sérstakt gleðiefni í mínum huga þegar afmæl-
isagurinn lendir á föstudeginum þrettánda, enda
er ég alveg laus við alla hjátrú,“ segir Líf.
Hún segir ágúst vera stóra afmælismánuðinn í
hennar fjölskyldu, margir ættingjar eigi afmæli
og því þurfi samhæfingu svo allir geti mætt.
„Það er alltaf mikið samráð haft um afmælisp-
artíin í fjölskyldunni. Ég segist alltaf ætla að gera
ekki neitt á afmælinu mínu og þykist ekki nenna
neinu. Svo þegar nær dregur afmælinu þá einhvern veginn verður
þetta meira og meira planað og ég held óvart upp á afmælisdaginn,
sem endar með því að vera mjög skemmtilegt.
Ég efast þó um að það verði í ár þar sem ég er með eina nýfædda og
einn 17 mánaða.
En ég er búin að ákveða að láta manninn minn bjóða mér út að
borða í hádeginu í tilefni dagsins,“ segir Líf og bætir við að ágúst-
mánður verði þó ekki án veisluhalda á heimilinu því elsti sonurinn á
líka afmæli í ágúst. eyrun@mbl.is
Líf Magneudóttir er 36 ára í dag
Heldur óvart upp á afmælin
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is