Morgunblaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ernir Einn sá besti Júlían Jóhann Karl Jóhannsson hefur æft kraftlyftingar í tvö ár, hann er aðeins 17 ára. kraftlyftingum í mars í fyrra, eftir að hann hafði æft í um sjö mánuði. „Ég tók þá þátt í byrjendamóti kraftlyftingamanna og datt fljótlega út en ég kom þá bara sterkari inn næst. Ég hef oftast keppt í mínus 110 kg flokki, undir 18 ára. Ég er núna búinn að vera að þyngja mig svolítið og er því á leiðinni upp í hærri flokk þar sem eru erfiðari keppinautar sem verður gaman. Undanfarið hef ég unnið öll mót sem ég hef keppt á í mínum aldurs- og þyngdarflokki. Í heild er ég búinn að setja um þrjátíu Íslandsmet, í hné- beygju, bekkpressu og rétt- stöðulyftu. Samanlagður árangur úr því er kraftlyftingar. Það sem ég á best á móti eru 275 kg í hnébeygju, 140 kg í bekkpressu og 270 kg í réttstöðu. Núna er ég kominn með betri árangur á æfingum sem kemur í ljós á næsta móti.“ 1.000 kg markmiðið Hvert er markmiðið? „Ég stefni á að fara yfir þúsund kíló í samanlögðu, 400 kg í hné- beygju, 270 kg í bekk og 400 kg í rétt- stöðu. Þeir bestu eru að ná í sam- anlögðu um 1.000 kg og upp í og rétt yfir 1.100 kg. Ég hef enn ekki haft efni á því að fara út að keppa en á næsta ári stefni ég á að fara á Evrópu- og heims- meistaramótið,“ segir Júlían sem lyftir innan Kraftlyftingasambands ÍSÍ og er því lyfjaprófaður reglulega. „Árangurinn byggist allur á heilbrigðum lífsstíl og hundrað pró- sent metnaði. Maður þarf að vera einbeittur og ag- aður, höfuðið skiptir miklu máli, það þarf að vilja þetta og ætla að gera þetta. Svo þarf að mæta á æfingar og vera heilbrigður.“ Hvernig er mataræðið hjá þér? „Ég borða mikið, ég held að það sé málið. Mikið af mjólk, skyri og eggjum til að fá prótein og síðan ein- hver kolvetni með. Ég reyni að passa upp á að hafa rétt næringarhlutfall í máltíðum og spá í hvað ég er að gera.“ Ertu ekkert hræddur um að verða of sterkur? „Ég er nú ekki hræddur um það. Ég stefni hærra.“ Áttu þér önnur áhugamál? „Nei, kraftlyftingarnar eru númer eitt hjá mér. Svo stunda ég nám í Menntaskólanum við Hamra- hlíð.“ Fíla stelpurnar stráka sem eru í kraftlyftingum? „Það held ég, já já. Ég hef held- ur betur orðinn var við það,“ svarar Júlían og hlær. Eru vinir og ættingjar ekki allt- af að fá þig til að hjálpa sér að flytja og lyfta einhverju þungu? „Jú jú, maður er alltaf í því, bera sófa og svona. Það kemur líka fyrir að vinir mínir mani mig upp í að lyfta einhverju en það er ekki oft.“ Er áhugi innan fjölskyldu þinnar á kraftlyftingum? „Það voru einhverjir frændur mínir að lyfta þegar ég var krakki og mér þótti það rosalega flott. Svo sá ég allar þessar hetjur í sjónvarpinu, Jón Pál Sigmarsson, Auðun Jónsson og fleiri sem eru mínar fyrirmyndir í dag,“ segir þessi ungi og efnilegi kraftlyftingamaður að lokum. Þeir sem hafa áhuga á að fara að æfa kraftlyftingar geta kíkt inn á heimasíðu Kraft- lyftingasambandsins, www.kraft.is, þar má finna lista yf- ir öll félögin á landinu og hvernig má hafa samband við þau. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010 Chevrolet - Tangarhöfða 8-12 - Rvk.- 590 2000 - www.chevrolet.is / Spesbílar - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - 420 3300 / Bílasalan Ós - Óseyri 5 - Akureyri - 462 1430 Stofnað 1975 SPARK- AKSTUR Chevrolet SPARK er ekki bara massíft öruggur í akstri hann er líka skemmtilega skynsamlegur í rekstri: Eldsneytisnotkun: 4,2 L/100 km í blönduðum akstri. Spark L kr. 1.990 þús. Bíll á mynd: Spark LS kr. 2.290 þús. Chevrol et er me st seldi bíl linn á Íslandi í júlí. BB 11 .0 8. 20 10 -A lla ru pp lý si ng ar er u bi rta rm eð fy rir va ra um pr en tv ill ur og m yn da ví xl . Daglegt líf 11 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Fatahönnuðirnir Hildur Björk Yeoman og Thelma Björk Jónsdóttir halda nú um helgina námskeið í hönnun aukahluta á Seyðisfirði. Fyrr í vikunni opnuðu þær sýningu í bókabúðinni – verkefnarými hjá Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Austurlandi. „Við erum búnar að vera vin- konur lengi og höfum starfað saman áður, bæði hér heima og í París. Ég á hús á Seyðisfirði og er alltaf hér á sumrin og í ár bauð ég Thelmu með. Við vinnum á bistró Skaftfells í sum- ar,“ segir Hildur spurð af hverju hún og Thelma hafi ákveðið að halda námskeið og sýningu saman. „Þetta er aukahlutanámskeið, við einblínum á höfuðskart og háls- skart til dæmis hatta, spangir, spennur, hálsmen, kraga og klúta. Það hafa margar konur héðan úr bænum og sveitinni í kring skráð sig á námskeiðið,“ segir Hildur sem er kennari við Listaháskóla Íslands. Hún var einnig með námskeið á ung- listahátíðinni LungA á Seyðisfirði í sumar en þetta verður í fyrsta skipti sem Thelma kemur nálægt nám- skeiðshaldi að sögn Hildar. Innblástur og efniviður „Á námskeiðinu förum við með- al annars yfir hvernig á að leita sér að innblæstri, hvernig fólk vinnur á mismunandi hátt, fjöllum um efnivið og mismunandi leiðir til að stilla upp verkum sínum,“ segir Hildur um uppbyggingu námskeiðsins. Nem- endur munu framkvæma og klára að minnsta kosti einn aukahlut á nám- skeiðinu og verður honum stillt upp á skemmtilegan og spennandi hátt. Námskeiðið fer fram í sýningarrými bókabúðarinnar þar sem sýning Hildar og Thelmu verður uppi fram í næstu viku. „Við erum að sýna okkar hönn- un og ég er með útstillingu í glugg- anum. Við erum einnig með búð meðan á þessu stendur þar sem hönnun okkar er til sölu,“ segir Hild- ur að lokum. Hönnun Hildur og Thelma Þær hanna báðar fallega aukahluti. Hildur og Thelma halda aukahlutanám- skeið á Seyðisfirði www.skaftfell.is Morgunblaðið/Ómar Með aukahlut Hildur Björk Yeom- an er með sýningu og námskeið. Kraftlyftingar eru íþrótt sem snýst um að lyfta sem mestri þyngd með því að beita lík- amlegu afli eingöngu, í þremur greinum. Greinarnar eru hné- beygja, bekkpressa og rétt- stöðulyfta, segir á Wikipedia. Kraftlyftingar eru eftir sam- þykki framkvæmdastjórnar Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og skipan í stjórn fyrstu kraftlyftinganefndar Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, hinn 24. mars 2009, hluti af löglegum íþróttum á Ís- landi þ.e.a.s. íþróttum sem grundvallaðar eru á íþróttalög- um og þjóðréttarlegum samn- ingum um íþróttamál, m.a. um lyfjaeftirlitsmál í íþróttum sem skuldbinda Ísland að þjóðarétti og gildi hafa að íslenskum landsrétti. Kraftlyftinga- samband Íslands var stofnað í apríl 2010. Eingöngu líkamlegt afl KRAFTLYFTINGAR Lyfingar Auð- un Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.