Morgunblaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 37
Menning 37FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Þann 27. ágúst kemur út glæsilegt
sérblað um Heilsu og lífsstíl sem
mun fylgjaMorgunblaðinu
þann dag.
Í blaðinu verður kynnt fullt af
þeimmöguleikum sem í boði eru
fyrir þá sem stefna á heilsuátak og
bættan lífstíl haustið 2010.
MEÐAL EFNIS:
Ný og spennandi námskeið
í heilsuræktarstöðvum
Hreyfing og líkamsrækt
Hvað þarf að hafa í ræktina
Andleg vellíðan
Afslöppun
Dekur
Svefn og þreyta
Mataræði
Skaðsemi reykinga
Hollir safar
Fljótlegar og hollar uppskriftir
Ásamt fullt af fróðleiksmolum
og spennandi efni
Heil
sa o
g líf
sstí
ll
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Heilsa og lífsstíll
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 23. ágúst.
Söngvarinn George Michael hefur
verið ákærður fyrir vörslu kannabis
og að vera ófær um að aka eftir að
hafa keyrt bílnum sínum inn í ljós-
myndarabúð í síðasta mánuði.
Stjarnan var leyst út gegn trygg-
ingu og hefur verið gert að mæta
fyrir dómara í Lundúnum 24. ágúst
næstkomandi.
„Georgios Panayiotou frá High-
gate, N6, hefur verið leystur út gegn
tryggingu í dag. Hann var ákærður
fyrir vörslu kannabisefna og að aka
undir áhrifum drykkjar eða vímu-
efna,“ segir í tilkynningu lögregl-
unnar sem kom heimspressunni í
opna skjöldu. Skakkur George Michael keyrði á.
George
Michael
handtekinn
Nýja plata Kanye West kann að hafa að geyma samstarf við hljómsveitina Bon
Iver, sem söngvarinn Justin Vernon leiðir en hann hefur líka nýlega látið frá
sér nýtt lag með Beyoncé.
Rapparinn lét víst nýlega fljúga með Justin Vernon til sín í Hawaii-stúdíóið
þar sem hann vinnur plötuna og svo virðist vera sem Kanye hafi látið í ljós vilja
sinn þess efnis að nota þekkt Bon Iver-
lag sem aðal-sampl í lagi.
Breiðskífan á að vera nefnd Go-
od Ass Job á að koma út 16. nóv-
ember næstkomandi í Banda-
ríkjunum en kemur út daginn
áður í Bretlandi.
Rapparinn hefur vísað í
Trent Reznor og Thom
Yorke úr Radioheads sem
áhrifavalda plötunnar.
Þeir sem bíða sem
spenntastir eftir
plötunni geta
kannski látið
sér nægja í
bili að sökkva
tönnunum í nýja lagið hans
með Beyoncé „See Me Now“
sem hefur verið sleppt á netheima.
Af nýrri plötu Kanye West
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Píanóleikarinn Don Randi hefur
leikið með mörgum helstu tónlist-
armönnum Bandaríkjanna, þar á
meðal þeim Sinatra-feðginum Frank
og Nancy. Hann rekur einnig þekkt-
an tónlistarklúbb í Hollywood, The
Baked Potato, og þangað bauð hann
Geir Ólafssyni að koma og syngja í
mars sl. Það lukkaðist svo vel að
Randi vildi endilega gera plötu með
Geir og síðan atvikaðist svo að Randi
er kominn hingað til lands með
hljómsveit sína og leikur á tvennum
tónleikum á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Með Randi í Quest leika trommu-
leikarinn Tom Brechtlein, sem hefur
meðal annars unnið með Wayne
Shorter og Chick Corea, gítarleik-
arinn John DePatie, bassaleikarinn
Chris Roye og Chuck Campers á
saxófón.
Fyrri tónleikarnir verða sann-
kallaðir stórtónleikar því þá munu
Don Randi og Quest leika með
söngvurunum Geir Ólafssyni, Agli
Ólafssyni, Ragnari Bjarnasyni,
Eddu Borg og Birgi Gunnarssyni, en
Birgir hefur verið búsettur vestan
hafs í áratugi. Kristján
Jóhansson verður sér-
stakur heið-
Spilað með stjörnunum
Morgunblaðið/Ernir
Don Randi og Quest Randi, Tom Brechtlein, John DePatie, Chris Roye og Chuck Campers.
ursgestur. Einnig munu Don Randi
og félagar falla inn í sannkallaða
stórsveitarsveiflu, því mynduð verð-
ur tuttugu og fimma stórsveit fyrir
tónleikana. Seinni tónleikar þeirra
Quest-félaga verða öllu settlegri, en
þá leikur kvintettinn á tónleikum í
Kaffi Rósenberg í næstu viku.
Gaman að spila með Geir
Don Randi segir að þeir félagar
séu aðallega að spila sér til gamans,
enda sé ekkert vit í að vera í hljóm-
sveit nema það sé skemmtilegt að
spila. „Við vinnum sem hljómsveit
og höfum gaman af að vera saman,
annars myndum við kála hver öðr-
um,“ segir Randi og félagar hans í
sveitinni skella uppúr. „Fé-
lagsskapurinn er góður, það er gam-
an að spila og tónlistin er stórkost-
leg þegar við náum vel saman.“
Randi segir að sveitin hafi starfað
saman í um áratug, en mannskap-
urinn sé ekki alltaf sá sami enda
hafa menn mikið að gera í öðrum
verkefnum.
„Það var gaman að spila með
Geir á The Baked Potato og gek
mjög vel. Það var líkara kabar-
ettstemmningu en stórsveitartón-
leikum, enda lögum við okkur að
mannskapnum sem við höfum. Við
renndum blint í sjóinn með Geir, það
var ómögulegt að sjá fyrir hvort
bandarískir áheyrendur kynnu að
meta hann en þeir voru stórhrifnir,
sem eru bestu meðmæli sem hægt er
að fá.“
Eins og Randi lýsir lífinu í
Quest þá vinna þeir hlutina í samein-
ingu og þó Don Randi sé leiðtoginn,
þá segjast félaga hans ekki muna til
þess að hann hafi sagt
þeim fyrir verkum; „hann
gefur okkur tóninn og svo
er undir okkur komið að
gera það sem þarf,“ seg-
ir Tom Brechtlein. „Það er aðal
djassins að menn hafa frelsi og ef
menn eru frumlegir eins og Tom, þá
kemur þetta af sjálfu sér.“
Don Randi lagði Geir líð við síð-
ustu breiðskífu hans, sá um undir-
leikinn á plötunni, og ein af ástæðum
heimsóknar hans hingað til lands að
þessu sinni er að nú er í smíðum
önnur breiðskífa sem Randi hyggst
taka upp með Geir. „Við erum að
velja lög og pæla í útsetningum,“
segir Randi. „Mér finnst að Geir
ætti að taka fyrir gamla smelli sem
ekki hafa verið teknir aftur, lög sem
Sinatra og Dean Martin sungu á
toppinn en fáir hafa sungið síðan og
við erum að velta þannig lögum fyrir
okkur núna.“
Hressir saman Geir Ólafsson í góðum félagsskap á
The Baked Potato í Hollywood.
Don Randi hefur
spilað með stjörnunum
vestan hafs í áratugi.
Nú er hann staddur
hér á landi og kemur
fram á stórtónleikum á
djasshátíð á sunnudag