Morgunblaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010 Potturinn og pannan voru pott-urinn og pannan í að núverandi ríkisstjórn komst til valda eins og menn muna. Búsáhaldabyltingin var brautryðjandi hennar.     En byltingin súétur börnin sín eins og hinar. Ríkisstjórnin, sem mótmælendurnir komu á laggirnar, hefur heldur bet- ur snúist gegn skapara sínum. Hún þolir ekki að einn mótmælandi taki sér stöðu fyr- ir framan hennar hús.     Kallað var á lögregluna til að fjar-lægja konuna, sem þar stóð með sitt spjald.     Sama fólkið sem dásamaði HelgaHóseasson þoldi ekki eina konu með spjald. Aðstoðarmaður forsætis- ráðherra sagðist ekki hafa þolað lengur við þegar konan bætti gráu ofan á svart og, auk spjaldsins, henti brauðbitum á stjórnarráðstúnið sem már, sem þar var, stakk í gogginn.     Mótmælandinn vissi ekki að Jó-hanna hafði ákveðið að hvorki þessi már né hinn fengi þann auka- bita, sem hann bað um og taldi sig eiga loforð til. Löggan var þó ekki látin hirða Má.     Það var fróðlegt að sjá lögreglu-manninn reyna að tala til hinn hættulega mótmælanda með spjaldið. Sá var auðvitað aðeins að gera skyldu sína.     En í rauninni hefði verið þarfara aðhann hefði reynt að róa aðstoð- armanninn, sem hafði ekki taugar til að horfa á eina konu með lítið spjald biðja ríkisstjórnina með frið- samlegum hætti um að sýna þá mildi og réttlæti sem hún hafði þó hástöf- um lofað. Hrannar Björn Arnarsson Velferðarstjórn ver sig Veður víða um heim 12.8., kl. 18.00 Reykjavík 14 skýjað Bolungarvík 17 skýjað Akureyri 19 skýjað Egilsstaðir 18 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 20 léttskýjað Nuuk 12 léttskýjað Þórshöfn 11 skýjað Ósló 22 léttskýjað Kaupmannahöfn 18 skúrir Stokkhólmur 23 heiðskírt Helsinki 23 léttskýjað Lúxemborg 21 léttskýjað Brussel 17 léttskýjað Dublin 15 skýjað Glasgow 20 léttskýjað London 17 skýjað París 21 skýjað Amsterdam 13 skýjað Hamborg 20 skúrir Berlín 21 skýjað Vín 28 léttskýjað Moskva 31 heiðskírt Algarve 37 heiðskírt Madríd 33 léttskýjað Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 30 léttskýjað Róm 27 léttskýjað Aþena 32 heiðskírt Winnipeg 22 skýjað Montreal 23 skýjað New York 22 skúrir Chicago 31 léttskýjað Orlando 31 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:14 21:53 ÍSAFJÖRÐUR 5:03 22:13 SIGLUFJÖRÐUR 4:46 21:56 DJÚPIVOGUR 4:39 21:26 Orkuveita Reykjavíkur mun bregðast við vatns- skorti í sumarhúsbyggðinni í Úthlíð í Biskups- tungum en hann er vegna lágrar vatnsstöðu í lind sem Úthlíðarveitan sækir vatn til. Hefur Orku- veitan gert samning við Bláskógaveitu um að tengjast vatnsveitu Úthlíðar. Að undanförnu hef- ur verið unnið að samtengingu veitnanna og er áformað að því verki ljúki á næstu dögum. Ástæða þess að vatn hefur verið af skornum skammti í Úthlíð þegar kom fram á sumar eru tví- þættar, að sögn Orkuveitunnar. Skýringin er ann- ars vegar sú að síðasti vetur var afar snjóléttur og því á litlum forða að byggja fyrir kaldavatns- lindina í Bjarnarfelli, sem er forðabúr vatnsveit- unnar. Hins vegar hefur úrkoma á svæðinu verið með minnsta móti í vor og sumar. Af þessum sök- um er vatnsstaða í lindinni lág og hafa sumarhúsa- eigendur liðið fyrir vatnsskort þegar kom fram á sumar, einkum í efri byggðum svæðisins, eins og fram kom í frétt hér í blaðinu í gær. Til þess að bregðast við þessu hefur OR samið um að tengjast vatnsveitu Bláskógabyggðar í Austurhlíð og er sú tenging komin á. Til þess að tryggja eins og kostur er nægjanlegt framboð af vatni í Úthlíð þarf að auka þrýsting með því að koma fyrir nýrri dælu á lögninni sem krefst þess að komið verði fyrir dæluhúsi auk heimtaugar frá Rarik sem flytur rafmagn sem knýr dæluna. „Nú sér fyrir endann á þessum framkvæmdum og bú- ast má við að viðunandi vatnsframboð með nægj- anlegum þrýstingi verði komið á Úthlíðarveitu á næstu dögum,“ segir í tilkynningu OR. Orkuveitan vekur athygli á því að vatnsveitur víða á landinu hafi átt í erfiðleikum með að tryggja nægjanlegt vatn þegar langvarandi þurrkar hafa orðið í kjölfar snjóléttra vetra. sisi@mbl.is Orkuveitan tryggir vatn í Úthlíð  Bláskógaveita tengist vatnsveitu Úthlíðar  Ný dæla sett upp á svæðinu Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Misvel gengur að finna pláss fyrir börn á leikskólum og er talsverður munur milli sveitarfélaga á því hve ung börnin eru þegar þau komast inn. Í Hafnarfirði og Garðabæ er búið að tryggja öllum börnum sem verða orðin 18 mánaða 1. september leikskóla- pláss. 20-30 börn sem náð hafa þeim aldri á Akureyri bíða þess nú að fá pláss og í Kópavogi gera menn ráð fyr- ir að þriðjungur barna fæddra 2009 fái inni á leikskóla. Í Reykjavík og Reykjanesbæ er hins vegar miðað við að börn sem verða 2 ára á árinu komist í leikskóla og tekst sveitarfélögunum að mæta þeim viðmiðum. „Við vildum vissulega geta boðið þeim börnum pláss sem fædd eru fyrri hluta árs 2009, en börnum í Reykjavík er að fjölga,“ segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðstjóri leikskólasviðs Reykjavíkurborgar. Búið er að tryggja börnum sem fædd eru 2008 eða fyrr leikskólapláss, þó það sé e.t.v. ekki öllum tilfellum í þeim leikskóla sem foreldrar óskuðu. Misjafnt er eftir hverfum hversu auðvelt er að verða við þeim óskum og kjósa því sumir for- eldrar að bíða eða láta barnið byrja á leikskóla og óska svo flutnings. Reynt er að bjóða börnunum vist í sama hverfi, en takist það ekki þá er reynt að velja leikskóla í nágrenni við vinnu- stað foreldra. Innan við 15 eru nú á lista yfir börn sem strax var óskað eft- ir flutningi á. Elstu börnin í grunnskóla Mestur var vandinn að finna börn- um leikskólarými í Norðlingaholti, en við því var brugðist með því að nýta bráðabirgðahúsnæði við Norðlinga- skóla fyrir elstu leikskólabörnin. Segir Ragnhildur Erla að með þessu móti takist að ráða niðurlögum vandans að mestu. Svipuð leið var valin í Garðabæ þar sem elsti árgangur eins leikskól- ans var fluttur yfir í Flataskóla. Einnig hefur verið erfitt að tryggja öllum börnum í Grafarholtinu pláss. „Í einhverjum tilvikum eru börnin þar að fara í nýja Dalskóla í Úlfarsárdalnum eða þá í leikskóla sem eru í jaðrinum á Grafarvogi.“ Hjá Akureyrarbæ er unnið að því að leysa biðlistavandann. „Skólanefnd muni líklega fjalla um leiðir til lausnar á fundi sínum næsta mánudag og við gerum ráð fyrir að ná að eyða biðlist- um,“ segir Gunnar Gíslason, fræðslu- stjóri Akureyrarbæjar. Langt sé síðan bærinn hafi ekki getað tekið á móti öll- um börnum, en óvenjumikið hafi verið um aðflutning barna á leikskólaaldri á upphafsmánuðum þessa árs. „Þetta setti áætlanir aðeins úr skorðum. Síð- an vitum við líka að árgangarnir sem koma inn haustin 2011 og 2012 eru stærri en venjulega og því förum við í að undirbúa það núna á haustmán- uðum.“ Leikskólasviði Reykjavíkur hafa borist frá því í maímánuði 190 nýjar umsóknir um leikskólapláss fyrir börn sem eru fædd 2008 eða fyrr. „Þetta var meiri fjöldi en við reikn- uðum með þegar við vorum að úthluta plássum í apríl,“ segir Ragnhildur Erla. Fjölgunin virðist til komin vegna flutninga fólks til Reykjavíkur. „Ég er því mjög ánægð með að þrátt fyrir þessar 190 umsóknir þá náum við samt að dekka þetta.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Í leik Með því að flytja elstu börnin á Rauðhóli yfir í bráðabirgðahúsnæði við Norðlingaskóla skapast 30 ný leikskólapláss á Rauðhóli. Lítið um biðlista eftir leikskólarými Leikskólapláss » 1300-1400 börn eru að hefja leikskólagöngu hjá leik- skólum borgarinnar nú í haust. » Tæplega 200 umsóknir um leikskólavist fyrir börn fædd 2008 og fyrr hafa bæst við undanfarna mánuði. » Borgarráð samþykkti auka- fjárveitingu til að fjölga leik- skólaplássum um 100 svo standa mætti við loforð um að börn fædd 2008 og fyrr kæm- ust inn.  Misjafnt er við hvaða aldur er miðað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.