Morgunblaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010
Salt kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára Karate Kid kl. 5:10 - 8 - 10:50 LEYFÐ
Salt kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS Shrek 4 2D íslenskt tal kl. 3:30 - 5:45 LEYFÐ
The Last Airbender 3D kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 10 ára Knight and Day kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Ljóti andarunginn og ég kl. 3:30 (650 kr) LEYFÐ
Sími 462 3500
The Last Arbeinder 3D kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
Salt kl. 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Stórskemmtileg
teiknimynd fyrir alla
fjölskylduna með
íslensku tali.
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Óttinn rís á ný...
Í þessum
svakalega
spennutrylli
SÝND Í SMÁRABÍÓSÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
HHH
„Jolie stendur sig vel sem kvenkyns
útgáfan af Jason Bourne og myndin er
hugsanlega ein sú hraðskreiðasta sem
ég hef séð í allt sumar.”
T.V. - Kvikmyndir.is
HHH
„Salt er þrælgóð...
Unnendur hasarmynda
fá hér eftirlætisverk“
-Ó.H.T., Rás 2
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með K
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓ
Geturðu lýst þér í fimm orðum?
Vondur, illur, afskræmdur, hrotti og
smekkmaður.
Hvað heitirðu fullu nafni?
Frederick Charles Krueger
Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir
stór?
Garðyrkjumaður eða rakari.
Hvernig rakarðu þig?
Mér vex ekki skegg eftir að ég brann í
andlitinu.
Áttu bara eina peysu?
Já, ég þarf ekki fleiri til að hræða líftór-
una úr fólki.
Þú ert með svo dýrslegt aðdrátt-
arafl, ertu á lausu?
Ég er á lausu eins og er en verð
að leita mér að fórnarlambi, nei ég
meina konu, í kvöld.
Hvað er best á morgnana?
Þá er best að skipuleggja hvað verr má
fara í martröðum fórnarlamba minna.
Uppáhaldsfórnarlamb?
Nancy Thompson, ekki spurning.
Hvar keyptirðu hanskann þinn?
Það mun ég aldrei gefa upp.
Uppáhaldshljómsveit?
Cannibal Corpse.
Hvað fær Freddy sér í morgunmat?
Innmat. T.d. nýru og svoleiðis eru lost-
æti.
Hvernig er best að slappa af?
Brýna hanskann yfir góðri hroll-
vekju.
Uppáhaldshrollvekja?
Texas Chainsaw Massacre með hon-
um Leatherface, góðvini mínum.
Freddy vs Jason?
Hvernig spyrðu maður, auðvitað
Freddy!
Hver er draumavinnan?
Sú sem ég er í.
Hverju sérðu mest eftir?
Að hafa vingast við Jason Voor-
hees.
Hvers viltu spyrja næsta að-
alsmann/konu?
Á ég að heimsækja þig í nótt?
Í dag er föstudagurinn þrettándi og því við hæfi að aðalsmaður
vikunnar sé sjálfur Freddy Krueger sem í aldarfjórðung hefur
stundað það að hræða líftóruna úr fólki í draumum og gera allt
vitlaust.
Sér eftir því að hafa vingast
við Jason Voorhees
Nýjasta kvikmynd í leikstjórn og
framleiðslu Sylvesters Stallone, The
Expendables, hefur vakið gífurlega
jákvætt umtal að undanförnu og
fengið mikið lof blóðþyrstra kvik-
myndaaðdáenda um allan heim. Sjálf-
ur hefur leikstjórinn sem leikur einn-
ig eitt aðalhlutverkanna ásamt
fylkingu frægra hasarhetja látið hafa
eftir sér að ef myndinni vegni vel
muni það einungis gera framleiðslu
framhaldsmyndarinnar auðveld-
ari. Þannig gaf hann til kynna að
til standi að búa til framhalds-
mynd.
„Fólk heldur að það sé einfaldasta
mál í heimi að búa til framhaldsmynd
en það er það alls ekki vegna þess að
maður þarf að búa yfir hinu óvænta.
Ég ætla að reyna að gera eitthvað
sem er ansi róttækt,“ segir leikarinn.
Stallone Hugsar framhaldsmynd.
Stallone vill
gera aðra