Morgunblaðið - 20.08.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.08.2010, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 2 0. Á G Ú S T 2 0 1 0  Stofnað 1913  193. tölublað  98. árgangur  JÓHANN KJARTANSSON GEFUR ÚT BÓK HVETJANDI OG JÁKVÆÐ SKÓLAGANGA FATATÍSKAN Í GRUNNSKÓLANUM SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ 20 BOLIR OG FLEIRA 10MYNDAVÉLIN ÆTÍÐ MEÐ 32 Köflótt og litríkt haust og gallabuxur vinsælar Selfyssingar vígðu nýjan knattspyrnuvöll og áhorfendastúku í gærkvöld með því að vinna ævintýralegan sigur á Keflvíkingum, 3:2, eftir að hafa verið 0:2 undir í hálfleik. Viðar Örn Kjartansson skoraði sigurmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok og Björn Gíslason, rakari á Selfossi og afi Viðars, fagnaði innilega ásamt öðrum stuðningsmönnum Selfossliðsins sem troðfylltu nýju stúkuna og mikið meira en það. » Íþróttir Ljósmynd/Guðmundur Karl Ævintýralegur sigur Selfyssinga í vígsluleiknum  Reiknað er með að starfshópur um endurskoðun fiskveiðistjórn- unar skili tillögum í lok næstu viku. Jón Bjarnason skrifaði formanni nefndarinnar bréf í vikunni og lagði áherslu á að hópurinn skilaði af sér svo fljótt sem verða mætti. Í bréfi ráðherra til Guðbjarts Hannessonar, formanns starfs- hópsins, er lýst skilningi á því að nefndinni hafi ekki tekist að skila af sér álitsgerð fyrir 1. nóvember 2009 en nú sé svo komið málum að vart verði lengur beðið. Ráðuneytið þurfi tíma til að undirbúa lagabreyt- ingar og annað í framhaldi máls- ins. Síðustu daga hefur starfshóp- urinn einkum rætt tvær meginhug- myndir um innköllun og úthlutun aflaheimilda, það er að segja til- boðsleið og samningsleið. Báðar gera ráð fyrir leigu á afnota- rétti. »12 Ráðherra leggur áherslu á að starfshópur um fiskveiðistjórnun skili af sér sem fyrst Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Sé gert ráð fyrir 9% niðurskurði á útgjöldum hins opinbera á næsta fjárlagaári, eins og yfirlýsingar gefa tilefni til, má reikna með að halli á ríkissjóði á árinu 2011 verði um 60 milljarðar. Þetta er töluvert undir markmiði samstarfsáætlunar ríkis- stjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, sem gerir ráð fyrir 80 millj- arða halla, eða um 5,3% af vergri landsframleiðslu. Gangi þetta eftir myndast slaki upp á 20 milljarða króna, sem dregur úr þörfinni á auknum tekjum ríkissjóðs gegnum skattheimtu. Áætlun AGS gerir ráð fyrir að tekjuafgangur verði af rík- issjóði á næsta ári ef frá eru skildar vaxtagreiðslur. Árið 2013 verði rík- issjóður hallalaus. »16 Skattahækkanir óþarfar ef svo fer fram sem horfir  Greiðsluafkoma ríkisins það sem af er ári í takt við áætlanir Morgunblaðið/Árni Sæberg Skúli Á. Sigurðsson skulias@mbl.is Nauðungaruppboð hjá sýslumann- ingum í Reykjavík eru þessa dagana um tvöfalt fleiri á dag en þau voru í júní. Þá voru þrjú til fjögur uppboð á dagskrá dag hvern en undanfarið hafa þau verið um átta. Sigríður Eysteinsdóttir, deildar- stjóri fullnustudeildar sýslumanns- embættisins í Reykjavík, býst við mörgum uppboðum á næstunni en starf deildar hennar hófst fyrir skömmu að nýju eftir sumarleyfi. Nokkuð hefur verið um að beiðnir um nauð- ungarsölur hafi verið afturkallað- ar og því hefur ekki orðið af eins mörgum uppboð- um og ráðgerð voru. Til dæmis varð ekki af fimm af átta nauðung- aruppboðum sem ráðgerð höfðu ver- ið á mánudag og sama gerðist í gær. Sigríður segir mjög mismunandi hversu margar beiðnir séu afturkall- aðar og því sé ekki hægt að segja til um hvort þær séu óvenjumargar um þessar mundir. Dómar ekki haft áhrif Sigríður segir að dómar um ólög- mæti gengistryggingar íslensks lánsfjár sem féllu í júní hafi ekki haft merkjanleg áhrif á fjölda afturkall- ana aðfararbeiðna. „Það getur verið að kröfuhafar haldi að sér höndum við að senda nýja beiðni til okkar en við höfum ekki orðið vör við að mikið hafi verið afturkallað,“ segir Sigríð- ur. Tvöfalt fleiri nauðungarsölur  Þrjú til fjögur uppboð á dag í júní en átta á dag í ágúst  Ekki vart við að hætt sé við aðför í kjölfar gengisdóma Samkvæmt bráðabirgðaákvæði laga um nauðungarsölu sem sett var í kjölfar bankahruns er hægt að óska þriggja mánaða frestunar á nauðungarsölu heimila. Fyrstu frestirnir sem veittir voru tóku að renna út í júní en hægt er að sækja um frest út október og renna þeir út í lok janúar. Ekki verða veittir frekari frestir. Frestir liðnir HEIMILI FENGU SVIGRÚM  Grunn- og neysluvatn í landi Kárastaða í Þingvallasveit er mengað eftir að starfsmenn Hol- ræsa- og stífluþjónustu Suðurlands losuðu seyruvökva í mosavaxinn kjarrmóa innan vatnsvernd- arsvæðis Þingvallavatns. Niðurstöður mælinga sem Heil- brigðiseftirlit Suðurlands lét gera sýna að veruleg saurkólímengun er í vatninu. Sumarbústaðaeigendur á svæðinu þurfa að sjóða neysluvatn og fólk er varað við að tína þar ber. Forstjóri Umhverfisstofnunar segir að aðeins sé heimilt að losa seyruvökva á tilteknum urðunar- stöðum og að stofnunin líti málið al- varlegum augum. »9 Vatnið er ódrykkjar- hæft og mengun getur verið í berjum  Hagfræðingur ASÍ telur hugs- anlegt að skýra megi dýrar vörur og þjónustu á fjölsóttum ferða- mannastöðum með því að þá sæki erlent ferðafólk sem hafi meiri kaupmátt en landinn. „Kaupmáttur útlendinga hér á landi er alveg ágætur þannig að fyrir þá er þetta ekki endilega svo hátt verðlag. Kaupmáttur okkar Íslendinga hef- ur hins vegar rýrnað mjög mikið,“ segir Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ. Dæmi eru um að íspinni á vin- sælum stað kosti 500 krónur. »12 Kaupmáttur útlend- inga hækkar verð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.