Morgunblaðið - 20.08.2010, Síða 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Útgjöld ríkisins á fyrstu sex mán-
uðum þessa árs voru 63,9 milljörð-
um meiri en á sama tíma árið 2008,
sem er 32,2 prósenta aukning á
tveimur árum. Aukningin frá fyrri
helmingi ársins 2009 nemur 3,1
milljarði, eða 1,2 prósentum.
Aukningin skýrist að stórum
hluta af því að vaxtagreiðslur rík-
isins hafa vaxið mjög á þessum
tveimur árum. Voru þær 10,2 millj-
arðar árið 2008, en 43,6 milljarðar í
ár.
Þegar horft er framhjá vaxta-
greiðslum sést hins vegar að útgjöld
ríkisins á fyrri helmingi ársins í ár
eru 30,6 milljörðum meiri en á sama
tíma árið 2008, en 10,5 milljörðum
minni en þau voru árið 2009. Frá
árinu 2008 hafa ríkisútgjöld að frá-
dregnum vaxtagreiðslum því aukist
um 16,3 prósent.
Lítill vöxtur frá árinu 2009
Þegar útgjöld á fyrri helmingi
ársins 2010 eru borin saman við
sama tímabil í fyrra sést að útgjöld
vegna löggæslu, réttargæslu og ör-
yggismála hafa dregist saman um
3,3 milljarða eða 26,9 prósent og að
útgjöld vegna almannatrygginga og
velferðarmála hafa dregist saman
um 4,9 milljarða eða um 8,0 prósent.
Þá hafa útgjöld vegna efnahags- og
atvinnumála dregist saman um 3,1
milljarð, eða 10,1 prósent.
Vaxtagreiðslur jukust hins vegar
um 45,2 prósent eða 13,6 milljarða
og vegna menntamála um 1,9 millj-
arða eða 7,3 prósent. Þá hafa útgjöld
vegna heilbrigðismála dregist sam-
an um 1,2 milljarða eða 2,1 prósent.
Mikil aukning frá 2008
Þrátt fyrir þennan samdrátt eru
hins vegar aðeins þrír útgjaldaliðir
sem hafa dregist saman þegar árið í
ár er borið saman við árið 2008. Út-
gjöld til löggæslu, réttargæslu og
öryggismála eru nú um milljarði
minni en þau voru á þeim tíma og
nemur niðurskurðurinn 10,0 pró-
sentum. Þá hafa útgjöld til menning-
ar-, íþrótta- og trúmála dregist sam-
an um 650 milljónir, eða 7,3 prósent.
Útgjöld til almannatrygginga og
velferðarmála eru nú um 29,9 pró-
sentum meiri en árið 2008, útgjöld
til menntamála eru 24 prósentum
meiri og útgjöld til heilbrigðismála
eru 13,2 prósentum meiri. Almenn
opinber þjónusta, að frádregnum
vaxtagreiðslum, kostar ríkið 14,3
prósentum meira í ár en árið 2008.
Þessir fjórir liðir kosta ríkið um 27,6
milljörðum meira í ár en þeir gerðu
árið 2008.
Útgjöld ríkisins hafa
aukist um 32,2%
Útgjöld til löggæslu og öryggismála dragast saman, en
nær öll önnur útgjöld eru meiri nú en þau voru árið 2008
Morgunblaðið/Ómar
Heilbrigðismál Útgjöld ríkissjóðs vegna heilbrigðismála á fyrri helmingi
þessa árs voru 6,6 milljörðum meiri en þau voru á sama tíma árið 2008.
Formaður
bankastjórnar
Seðlabanka Hol-
lands, Nout Well-
ink, lætur af
störfum á næsta
ári en hann hefur
verið harðlega
gagnrýndur í
kjölfar krepp-
unnar. Meðal
annars fyrir Ice-
save og að bankinn hafi heimilað
DSB-bankanum að hefja starfsemi í
Hollandi.
Skipuð verður sveit sérfræðinga
sem á að geta gripið inn í strax ef
gjaldþrot ógnar stöðu banka í Hol-
landi í framtíðinni. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í áætlun sem
starfandi fjármálaráðherra, Jan
Kees de Jager, hefur kynnt.
De Jager segir að skipulag Seðla-
banka Hollands verði styrkt og um
leið boðar hann meira gagnsæi í
störfum bankans.
Líkt og kom fram í byrjun júlí
viðurkenndi Wellink fyrir hol-
lenska þinginu að DSB-bankinn
hefði aldrei átt að fá starfsleyfi.
Bankinn varð gjaldþrota síðastliðið
haust.
Í júní var birt skýrsla sem unnin
var vegna falls DSB-bankans. Þar
er Seðlabankinn harðlega gagn-
rýndur fyrir hlut sinn í tengslum
við gjaldþrot bankans.
Meira
gagnsæi
boðað
Seðlabankastjóri
Hollands víkur
Nout
Wellink
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Ekki er útlit fyrir að þörf sé á skatta-
hækkunum á næsta ári til að ná
markmiðum samstarfsáætlunar rík-
isstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins um tekjuafgang ríkissjóðs.
Samkvæmt áætluninni er gert ráð
fyrir því að tekjuafgangur árið 2011
verði neikvæður um 5,3% af vergri
landsframleiðslu, sem áætlað er að
verði 1506 milljarðar króna á næsta
ári, samkvæmt nýútkominni spá
Seðlabankans. Jafnframt er gert ráð
fyrir því að svokallaður frumjöfnuð-
ur, það er að segja tekjujöfnuður án
tillits til vaxtajöfnuðar, verði orðinn
jákvæður.
Mikill niðurskurður framundan
Samkvæmt yfirlýsingum ríkis-
stjórnarinnar er stefnt að 9% niður-
skurði á útgjöldum ríkisins á næsta
ári. Gjöldin í ár, samkvæmt fjárlög-
um, eru 460 milljarðar að undan-
skildum vaxtagreiðslum. Á næsta ári
má því gera ráð fyrir að heildar-
gjöldin verði 520 milljarðar.
Sé gert ráð fyrir óbreyttum
tekjum ríkissjóðs verða þær 460
milljarðar, og hallinn þannig 60
milljarðar, en í áætlun AGS er hins
vegar gert ráð fyrir því að hallinn
verði 80 milljarðar. Ef svo fer sem
horfir myndast því 20 milljarða slaki.
Greiðsluafkoma á áætlun
Greiðsluafkoma ríkissjóðs það
sem af er þessu ári bendir til þess að
markmið um tæplega 100 milljarða
halla náist. Einskiptishagnaður
vegna sölu á sendiráðsbústað og við-
skipta Seðlabanka Íslands við lífeyr-
issjóði hefur gert það að verkum að
afkoman er betri en fjárlög gerðu
ráð fyrir. Þannig var greiðslujöfnuð-
urinn jákvæður í febrúar og júní, en
neikvæður um tæplega 30 milljarða
á fyrstu sex mánuðum ársins.
Frekari sala ríkisins á fasteignum
erlendis er heimil samkvæmt fjár-
lögum ársins í ár.
Frekari skattahækkanir óþarfar
Ef áætlanir standast myndast 20
milljarða slaki á fjárlögum næsta árs
Morgunblaðið/Ásdís
Fjármálaráðuneyti Skattar hafa
hækkað mikið undanfarið.
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Kreppan í Grikklandi dýpkaði enn
meira á öðrum fjórðungi þessa árs,
samkvæmt bráðabirgðatölum frá
grísku hagstofunni. Gerir hún ráð
fyrir að landsframleiðsla í Grikklandi
hafi dregist saman um 1,5 prósent frá
því í fjórðungnum á undan og 3,5 pró-
sent frá öðrum ársfjórðungi í fyrra.
Þá hefur atvinnuleysi aukist til
mikilla muna. Í maí í fyrra mældist
það 8,5 prósent en telst nú 12,5 pró-
sent og kemur fækkunin aðallega til
vegna uppsagna hjá smáum og með-
alstórum fyrirtækjum.
Meiri samdráttur framundan
Í frétt Financial Times er haft eftir
gríska hagfræðingnum Platon Mo-
nokroussos að síðari helmingur árs-
ins verði Grikkjum afar erfiður.
Byggingariðnaðurinn hafi dregist
mikið saman og á fjórða ársfjórðungi
muni ferðamannaiðnaðurinn ekki
halda hagkerfinu uppi.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir
því að gríska hagkerfið muni skreppa
saman sem nemur fjórum prósentum
í ár, vegna skattahækkana og niður-
skurðar í opinberum útgjöldum, en
fjármálaráðherra landsins, George
Papaconstantinou er öllu bjartsýnni.
Gerir hann ráð fyrir samdrætti upp á
um 3,0-3,5 prósent í ár.
Í gær var einnig greint frá því að
Grikkland muni nú fá níu milljarða
lánafyrirgreiðslu hjá Evrópusam-
bandinu, eftir að framkvæmdastjórn
sambandsins samþykkti annan
áfanga í björgunaráætlun ESB.
Kreppan í Grikklandi
fer enn versnandi
Atvinnuleysi í maí var 12,5 prósent, en var 8,5% í fyrra
Reuters
Grikkland Fjármálaráðherra Grikklands, George Papaconstantinou.
● Þýski seðlabankinn, Bundesbank,
spáir því að hagvöxtur í Þýskalandi
verði 3% á þessu ári. Kemur spáin í
kjölfar niðurstaðna um að þýska hag-
kerfið, sem er það stærsta í Evrópu,
hafi vaxið um 2,2% á öðrum ársfjórð-
ungi. Fyrri spá bankans gerði ráð fyrir
1,9% hagvexti á þessu ári.
Bundesbank sagði að hagstæðar að-
stæður, bæði á heimamarkaði og í öðr-
um löndum, hefðu gert það að verkum
að hagvöxtur væri meiri en spáð var.
Býst hann við að áhrifa af þessum
aukna vexti muni gæta í öðrum hag-
kerfum Evrópu á næstunni, að því er
fram kemur í frétt Financial Times. Á
síðasta ári dróst þýska hagkerfið sam-
an um 4,7% og var það mesti sam-
dráttur á einu ári, sem hefur mælst frá
lokum síðari heimsstyrjaldar.
Spáir 3% hagvexti í
Þýskalandi á árinu
● Karl Óðinn Guð-
mundsson hefur
verið ráðinn stöðv-
arstjóri Icelandair
Cargo á JFK-
flugvelli í New York.
Jón Theodorsson,
núverandi stöðvar-
stjóri Icelandair
Cargo, mun halda
starfi sínu áfram til
loka febrúar 2011,
en þá mun Karl taka við.
Karl mun ganga til liðs við starfsfólk
fyrirtækisins í Bandaríkjunum frá og
með 1. september sem almennur
starfsmaður og í framhaldi af því sem
stöðvarstjóri þegar Jón hættir störfum.
Karl er fæddur árið 1983 og er við-
skiptafræðingur frá Háskólanum á Ak-
ureyri.
Nýr stöðvarstjóri á JFK
Karl Óðinn
Guðmundsson
● Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI
heldur áfram að hækka og hækkaði um
0,5% í gær, í 13,5 milljarða króna við-
skiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar,
GAMMAi: Verðtryggt, hækkaði um
0,4% í 4,5 milljarða króna veltu og sá
óverðtryggði, GAMMAxi: Óverðtryggt,
hækkaði um 0,7% í 9 milljarða króna
viðskiptum.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,37% í
gær, í 60 milljóna króna viðskiptum.
Hækkaði gengi bréfa Icelandair Group
um tæp 3%.
Skuldabréf hækka
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
++,-./
+/0-12
++0-30
.3-14/
+,-451
+0-.32
++5-20
+-4,40
+/3-11
+14-35
++,-10
+/2-3.
++0-5
.3-1,/
+,-53.
+0-.15
++1-3/
+-4,22
+/+-3,
+14-52
.3/-331+
++,-/5
+/2-52
++0-25
.3-01/
+,-51,
+0-43+
++1-5
+-53+/
+/+-04
+14-,