Morgunblaðið - 20.08.2010, Side 17

Morgunblaðið - 20.08.2010, Side 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010 Um þrjátíu manns slösuðust þegar naut stökk upp í áhorfendastúku nautaatsvallar í Tafalla á Spáni í fyrrakvöld og réðst á skelfingu lostna áhorfendur. Þrír slösuðust alvarlega og voru enn á sjúkrahúsi í gær, þeirra á meðal tíu ára drengur. Starfsmönnum vallarins tókst loks að ráða niðurlögum nautsins eftir um 15 mínútna viðureign. Það var drepið og síðan fjarlægt með kranabíl. Mjög sjaldgæft er að naut stökkvi upp í áhorf- endastúkur nautaatsvalla. Heitar umræður hafa verið á Spáni um hvort banna eigi nautaat eftir að slíkt bann var sett í Katalóníu í síðasta mán- uði. Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að um 60% Spánverja séu andvíg nautaati. Reuters Naut stökk upp í áhorfendastúkuna Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Í Svíþjóð hafa þingkosningar yfir- leitt snúist að mestu um málefni fremur en frambjóðendur en útlit er fyrir að í kosningunum eftir mánuð, þegar valið stendur í fyrsta skipti á milli tveggja formlegra kosninga- bandalaga, verði flokksleiðtogarnir í brennidepli. „Svíar kjósa yfirleitt flokka og ekki flokksleiðtoga,“ segir Fredrik Furtenbach, stjórnmálaskýrandi sænska ríkisútvarpsins. „En núna þegar valið stendur aðeins á milli tveggja helstu frambjóðendanna ber þetta keim af forsetakosningum.“ Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að lítill munur sé á fylgi bandalags borgaralegu flokkanna undir forystu Fredriks Reinfeldts forsætisráðherra og rauðgræna bandalagsins svokallaða undir for- ystu Monu Sahlin, leiðtoga Jafnaðar- mannaflokksins. Reinfeldt varð forsætisráðherra fyrir fjórum árum eftir að Hægri- flokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn, Miðflokkurinn og Kristilegir demó- kratar tóku höndum saman til að koma Jafnaðarmannaflokknum frá völdum. Jafnaðarmenn brugðust við ósigrinum með því að mynda banda- lag með Vinstriflokknum og Græna flokknum í von um að komast aftur til valda. Þjóðernissinnar í oddaaðstöðu? Nýleg könnun bendir til þess að fylgi borgaraflokkanna sé um 48% en rauðgræna bandalagsins rúm 46%. Verði þetta niðurstaða þing- kosninganna 19. september fær bandalag hægriflokkanna ekki meirihluta á þinginu þar sem Sænsk- um demókrötum, flokki þjóðernis- sinna, er spáð nógu miklu fylgi, 4%, til að fá sæti á þinginu. Ef marka má könnunina eru því horfur á að Sænskir demókratar komist í odda- aðstöðu á þinginu. Í könnuninni er fylgi Hægriflokks- ins 31,8% og Jafnaðarmannaflokks- ins 32,7%. Jafnaðarmenn fengu 35,3% atkvæða fyrir fjórum árum og það var minnsta fylgi flokksins í þingkosningum frá árinu 1914. Henrik Brors, stjórnmálaskýrandi sænska dagblaðsins Dagens Nyhe- ter, segir að Jafnaðarmannaflokkur- inn þurfi að sætta sig við að hann geti ekki komist til valda án stuðnings annarra flokka. „Þetta breytir auð- vitað stöðunni fyrir kjósendur. Þeir þurfa að velja á milli tveggja skýrra kosta.“ Jenny Madestan, stjórnmálafræð- ingur við Stokkhólmsháskóla, segir að þegar kjósendurnir velji á milli bandalaganna tveggja sé líklegt að þeir spyrji hvor leiðtoganna sé hæf- ari og betur til þess fallinn að stjórna landinu. Fréttastofan AFP hefur eftir Madestan að aukið vægi forsætisráð- herraefnanna í kosningabaráttunni sé líklegt til að styrkja bandalag borgaraflokkanna vegna þess að Reinfeldt hafi alltaf notið meiri stuðnings en Sahlin í skoðanakönn- unum, jafnvel þegar rauðgræna bandalagið hefur verið með meira fylgi en stjórnarflokkarnir. Reyndar er fylgi Sahlin jafnvel minna en allra annarra flokksleiðtoga að tveimur undanskildum, þ.e. formönnum Sænskra demókrata og Sjóræn- ingjaflokksins. Sahlin hefur verið leiðtogi jafnaðarmanna frá árinu 2007 og fer- ill hennar hefur verið skrykkjóttur. Hún sagði af sér ráðherradómi 1995 vegna Toblerone-málsins svonefnda, eftir að í ljós kom að hún hafði notað krítarkort sitt, sem aðeins var ætlað til notkunar vegna stjórnmálastarfa, m.a. til að kaupa súkkulaði, föt og annan varning. Flokksleiðtogarnir í brennidepli  Kosningabaráttan í Svíþjóð þykir bera keim af forsetakosningum  Valið stendur á milli tveggja for- sætisráðherraefna kosningabandalaganna  Reinfeldt nýtur meiri vinsælda en Mona Sahlin Fredrik Reinfeldt Mona Sahlin Frönsk stjórnvöld hófu í gær brottflutning sígauna með skipu- lögðum hætti úr landi. Brottflutn- ingurinn er liður í umdeildum að- gerðum sem Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, boðaði í síð- asta mánuði gegn sígaunum og öðrum sem hafa dvalið þar án landvistarleyfis. Um sjö hundruð sígaunar verða fluttir til „heimalands“ síns á næstu vikum. Flestir þeirra verða fluttir með flugvélum til Rúmeníu og Búlgaríu. Hátt í 100 sígaunar voru fluttir til Búkarest í gær og þeir fóru af fúsum og frjálsum vilja. Flogið verður með 132 til Timisoara í vesturhluta Rúmeníu og Búkarest í dag. Um 160 verða síðan sendir til Rúmeníu og Búlg- aríu á fimmtudaginn kemur. Hver fullorðinn sígauni fær 300 evrur, sem svarar 46.000 krónum, ef hann samþykkir að fara frá Frakklandi en börn fá 100 evrur hvert. Samþykki sígaunarnir ekki að fara úr landi verður þeim skip- að það. Fari þeir ekki innan mán- aðar verða þeir fluttir brott með valdi og án greiðslu. Um 10.000 sígaunar voru fluttir frá Frakklandi til Rúmeníu og Búlgaríu í fyrra en frönsk yfirvöld viðurkenna að flestir þeirra hafi snúið aftur til Frakklands síðar og notfært sér ferðafrelsið milli landa Evrópusambandsins. Mannréttindasamtök hafa gagn- rýnt aðgerðirnar og andstæðingar Sarkozys saka hann um að hafa látið til skarar skríða gegn sígaun- um til að auka fylgi sitt í skoð- anakönnunum eftir að hafa átt undir högg að sækja síðustu mán- uði. Flestir sígaunarnir komu aftur  Mannréttindasamtök gagnrýna stjórn Sarkozys Frakk- landsforseta fyrir að vísa hundruðum sígauna úr landi Reuters Vísað brott Kona úr röðum sígauna við tjald nálægt Lille eftir að frönsk yfirvöld lögðu hald á hjólhýsi hennar og fleiri sígauna fyrir tveimur vikum. Um fimmtungur Bandaríkja- manna telur að Barack Obama Bandaríkja- forseti sé músl- ími, ef marka má tvær skoðanakannanir sem birtar voru í gær. Um 30% Bandaríkja- manna eru þeirrar skoðunar að banna ætti múslímum að bjóða sig fram í forsetakosningum eða gegna dómaraembætti í hæsta- rétti, samkvæmt könnun tímarits- ins Time. 20% telja Obama vera múslíma Barack Obama BANDARÍKIN Bretar eyða að meðaltali tæp- lega helmingi þess tíma sem þeir eru vakandi, eða 45%, í að horfa á sjónvarp, hlusta á útvarp, sitja fyrir framan tölvu, í símanum eða í notkun ann- ars samskipta- búnaðar, í vinnunni eða heima hjá sér. Rannsókn eftirlitsstofnunar- innar Ofcom leiddi þetta í ljós. Eyða helmingi tím- ans í samskiptatæki Tímaþjófur? BRETLAND Leiðtogar sænsku kosninga- bandalaganna tveggja hófu kosningabaráttuna um liðna helgi með því að leggja áherslu á ágreining þeirra í skatta- málum. Fredrik Reinfeldt, for- sætisráðherra stjórnar borgaraflokkanna, lofaði að lækka skatta, einkum á ellilífeyrisþega, þegar efna- hagur landsins fer að vænkast að nýju. Mona Sahlin sagði að slíkar skattalækkanir myndu grafa undan velferðarkerfinu og lagði áherslu á að draga þyrfti úr at- vinnuleysi meðal ungs fólks og vaxandi ójöfnuði í samfélaginu. Karpað um skattamál ÓLÍKAR ÁHERSLUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.