Morgunblaðið - 20.08.2010, Qupperneq 39
Menning 39FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 2010
Kringlan s. 568 6244 Smáralind s. 544 4230
Samba toppur
3990
Nýjar haustvörur
Mili Blazer
5500
Papa kjóll
4500
So Cool buxur
2990
Doubleweave kjóll
4990
MTV-sjónvarpsstöðin hefur tilkynnt
að grínistinn Chelsea Handler verði
kynnir þegar bestu tónlistar-
myndbönd ársins verða verðlaunuð
tólfta september næstkomandi.
Verður hún þar með fyrsta konan
sem gegnir því starfi frá því að Ros-
anne Barr tók það að sér árið 1994.
Í tilkynningu sagði Handler að
hún vissi vel að þetta hefði verið gott
ár fyrir rapp- og hip-hopp-tónlist og
hún væri mjög tengd inn í samfélög
hennar og bætti við: „Ég, rapp- og
hip-hopp tónlist pössum jafnvel sam-
an og Warren Buffet og fjármál,
mínus kynlífið.“ Fetar hún í fótspor
grínista eins og Jimmy Fallon, Jack
Black og Russell Brand sem hafa
verið kynnar á hátíðinni í gegnum
árin. Handler er ekki óvön sviðsljós-
inu því hún hefur stjórnað spjall-
þættinum Chelsea Lately á E!-
sjónvarpsstöðinni undanfarin ár,
auk þess að hafa skrifað met-
sölubækurnar Are You There
Vodka?, It’s Me Chelsea“ og
Chelsea Chelsea Bang Bang.
Þá var einnig tillkynnt að tónlist-
armennirnir Kanye West, Justin
Bieber, Drake og Ne-Yo yrðu á með-
al þeirra sem afhenda verðlaun á há-
tíðinni í ár.
Handler kynnir bestu
myndbönd ársins á MTV
Grínarinn og spjallþáttastjórnand-
inn Conan O’Brien hefur ekki setið
auðum höndum eftir að honum var
skipt út fyrir Jay Leno í kvöldþætti
NBC-sjónvarpsstöðvarinnar fyrr á
þessu ári. O’Brien hefur ferðast um
Bandaríkin og troðið upp með nýtt
tónlistaratriði sem hann hyggst nú
gefa út á geisladiskum. Upptök-
urnar fóru fram í hljóðveri Jacks
White úr White Stripes í Nashville
og á þeim má m.a. heyra þá O’Brien
og White syngja saman lagið „20
Flight Rock“. O’Brien snýr aftur í
sjónvarpið áttunda nóvember næst-
komandi með þátt á TBS.
O’Brien gef-
ur út plötur
Reuters
Grínarinn Conan O’Brien syngur
dúett með Jack White á nýrri plötu.
Í nýlegu viðtal við tónlistar-
tímaritið NME segja meðlimir
hljómsveitarinnar Kings Of Leon
að þeir séu ekki tilbúnir að fórna
hugsjónum sínum þegar framleið-
endur sjónvarpsþátta sækist eftir
að nota tónlist sveitarinnar í vin-
sæla þætti.
Bassaleikari Kings Of Leon, Ja-
red Followill, segir í viðtalinu að
þeim hafi verið boðið að leika sjálfa
sig í þætti af Ugly Betty, þar sem
þeir áttu að aðstoða stjörnur þátt-
arins við að leysa úr vandamálum
en þeir hafi verið fljótir að segja nei
og sama hafi verið upp á teningnum
þegar framleiðendur Glee vildu
nota eitt af lögum sveitarinnar.
Hann bætti við að sveitin væri sí-
fellt að hafna tilboðum frá vinsæl-
um sjónvarpsþáttum.
Nei! Meðlimir Kings Of Leon vilja
ekki tónlist sína í sjónvarpsþáttum.
Ekki tilbúnir að fórna
hugsjónum sínum
Leikkonunni Betty White hefur
heldur betur tekst að lífga upp á
ferilinn sinn undanfarin ár og nú
hefur þessi 88 ára gamla leikkona
ákveðið að róa á ný mið og gert
tveggja bóka samning við útgáfu-
fyrirtækið G.P. Putnam’s Sons.
Fyrsta bókin Listen Up! kemur út á
næsta ári.
Talsmaður útgáfunnar sagði að í
bókunum yrði að finna skemmti-
legar sögur um það sem drifið hef-
ur á daga leikkonunar á ártatuga
löngum ferli í Hollywood og um-
fjöllunarefnið verði m.a. ást, kynlíf
og frægð. White er einna best þekkt
fyrir leik sinn í grínþáttunum The
Mary Tyler Moore Show og Golden
Girls. Í ár varð hún svo elsti kynnir
í sögu grínþáttarins Saturday
Night Live.
Rithöfundur Leikkonan Betty
White rær á ný mið.
Gullstelpan White
landar bókasamningi