Morgunblaðið - 26.08.2010, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2010
ALLAR SVÖLUSTU HASARHETJURNAR
Í EINNI FLOTTUSTU MYND ÁRSINS
HHHHH
Fyrir alla KARLMENN í heiminum þá er þessi mynd mesta veisla sem
hægt er að fara á. Það er einfaldlega upplifun að sjá þessa mynd.
Gillz - DV
HHH
T.V - Kvikmyndir.is
HHHH
„Magnad madur, magnad”
ÞÞ - FBL
TOPPMYNDIN Í DAG Á ÍSLANDI OG USA!
HHH
The Expendables uppfyllir
það sem hún lofar...
S.V. - MBL
2 VIKUR Á TOPPNUM Í
USA!
Scott Pilgrim kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Ljóti andarunginn og ég kl. 3:30 (650 kr) LEYFÐ
Expendables kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára The Last Airbender 3D kl. 3:20 B.i. 10 ára
Expendables kl. 5:40 - 8 - 10:20 LÚXUS Karate Kid kl. 5:10 LEYFÐ
Salt kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára Shrek 4 2D íslenskt tal kl. 3:30 LEYFÐ
Vampires Suck kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Sími 462 3500
Scott Pilgrim kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Vampires Suck kl. 6 B.i. 12 ára
The Expendables kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Salt kl. 6 B.i. 14 ára
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
Jackie Chan kennir
ungum lærling sitthvað
um Kung fu í vinsælustu
fjölskyldumynd ársins!
Missið ekki af myndinni
sem sló í gegn í
Bandaríkjunum og
fór beint á toppinn.
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
FRÁ LEIKSTJÓRA HOT FUZZ OG SHAUN OF THE DEAD
KEMUR EIN FYNDNASTA OG FRUMLEGASTA MYND ÁRSINS
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með K
AF LISTUM
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Jim Jarmusch, sem verður gest-ur kvikmyndahátíðar, RIFF,að þessu sinni, stökk fram á
sjónarsviðið í upphafi níunda ára-
tugar 20. aldarinnar með kröftug-
um og sláandi myndum, sem ekki
síst voru eftirminnilegar vegna
frammistöðu Johns Luries. Lurie
samdi tónlistina í fyrstu mynd Jar-
musch í fullri lengd, Permanent
Vacation, og lék í aukahlutverki. Í
kjölfarið fylgdu Stranger Than
Paradise og Down By Law þar sem
Lurie lét til sín taka.
Lurie var líka leiðtogi og saxó-fónleikari hljómsveitarinnar
Lounge Lizards, sem lék tónlist,
sem kölluð hefur verið djass-pönk.
„Frá 1984 til 1989 vildu allir í
miðbæ New York vera John Lurie.
Eða sofa hjá honum. Eða kýla hann
í andlitið,“ segir í upphafi greinar,
sem birtist í tímaritinu The New
Yorker um miðjan mánuðinn. Lurie
var ekki jafn áberandi á tíunda ára-
tugnum þótt honum tækist að næla
sér í tilnefningu til Grammy-
verðlauna fyrir tónlistina í mynd-
inni Get Shorty, en síðan hvarf
hann af sjónarsviðinu og kannski
helst að nú sé hann viðfang greina
með yfirskriftinni „Hvar eru þeir
nú?“
Í Down By Law lék Lurie meðítalska leikaranum Roberto
Benigni, sem sagði að hann væri
mikill leikari og tónlistarmaður, „á
milli Rays Charles og Brigitte Bar-
dot“.
Lurie hætti að leika, en fékkútrás í þætti, sem hann gerði
fyrir kapalsjónvarp og hét „Á veið-
um með John“. Eins og nafnið ber
með sér fór hann á veiðar í þætt-
inum og hafði með sér gesti á borð
við Dennis Hopper heitinn, Tom
Waits (þeim sinnaðist við gerð þátt-
arins og hafa ekki talað saman síð-
an) og Willem Dafoe (þeir fóru á ís-
veiðar og þulurinn tilkynnti að þeir
hefðu báðir soltið í hel, en það
reyndist ekki alls kostar rétt). Lur-
ie segir í greininni í The New York-
er að Matt Dillon hafi kvartað eftir
veiðiþáttinn og sagt: „Þú lést mig
líta heimskulega út.“ „Nei,“ svaraði
Lurie. „Guð sá til þess.“
Í byrjun þessarar aldar fékkLurie dularfullan sjúkdóm og
fór vart út úr íbúð sinni í SoHo á
Manhattan í sex ár. Hann fór aftur
á kreik, en 2008 slitnaði upp úr
sambandi hans við besta vin hans,
yngri listamann, John Perry að
nafni. Lurie óttaðist um líf sitt og
fór í felur, en hefur haft í sig og á
með því að mála. Í The New Yorker
segir að hann hafi hannað sína eig-
in vitnavernd og verið á faralds-
fæti, var um tíma á eyjunni Gren-
ada, svo í húsi vinar síns, Flea, úr
Red Hot Chili Peppers í Big Sur í
Kaliforníu, þá í afskekktu þorpi í
Tyrklandi. Í október í fyrra var
hann í Palm Springs í Kaliforníu og
svaf með ninja-kylfur og piparúða
sér við hlið. Aðeins sjö manns eru
með farsímanúmerið hans. Lurie
hringir í vini sína á síðkvöldum og
spyr: „Get ég komið heim?“
Í maí fór hann frá PalmSprings, en veit ekki hvað tekur
við, Kúba og Taíland koma til
greina. Hann hefur velt fyrir sér að
koma úr felum, til dæmis með því
að taka þátt í heimsmeistarakeppn-
inni í póker í Las Vegas. Hann hef-
ur ekki blásið í saxófónana sína frá
2001, en lét þó nýlega gera við þá
og er farinn að hugsa um að þjálfa
varirnar upp á nýtt. Honum dettur
þó ekki í hug að leggjast í tónleika-
ferðalög, en gæti hugsað sér að
spila úti á götu: „Það er staður á
Astor-torgi, á milli Broadway og
Lafayette – þar er ótrúlegt hljóð í
saxófóninum um sexleytið.“ Þá er
búið að gefa upp staðinn og tíma
dags. Það vantar bara dagsetn-
inguna.
Milli Rays Charles og Brigitte Bardot
» Aðeins sjö mannseru með farsíma-
númerið hans. Lurie
hringir í vini sína á síð-
kvöldum og spyr: „Get
ég komið heim?“
Á vonarvöl Tom Waits, John Lurie og Roberto Benigni í Down By Law.