Morgunblaðið - 26.08.2010, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2010
HHH
-M.M., Bíófilman
HHH
„Óhætt að mæla með Salt sem
ofbeldisglaðari sumarafþreyingu“
S.V., MBL
SÝND Í SMÁRA-, HÁSKÓLA- OG BORGAR-
HHHH
„Salt er blautur draumur
hasarmyndafíkla“
-Þ.Þ., FBL
HHH
„Jolie stendur sig vel sem kvenkyns
útgáfan af Jason Bourne og myndin er
hugsanlega ein sú hraðskreiðasta sem
ég hef séð í allt sumar.”
T.V. - Kvikmyndir.is
HHH
„Salt er þrælgóð...
Unnendur hasarmynda
fá hér eftirlætisverk“
-Ó.H.T., Rás 2
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Sýnd kl. 6 og 10:10
POWE
RSÝN
ING
Á STÆ
RSTA
DIGIT
AL
TJALD
I LAN
DSINS
KL. 10
:15
HHHH
-Þ.Þ., FBL
HHH
-M.M., Bíófilman
Expendables kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára Karate Kid kl. 6 - 9 LEYFÐ
Salt kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára Babies kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Sýnd kl. 3:50 (3D) og 8 (2D)
HHH
S.V., MBL
Sýnd kl. 3:50, 6, 8 og 10:15 (POWER)
HHHHH
Fyrir alla KARLMENN í heiminum þá er þessi
mynd mesta veisla sem hægt er að fara á. Það
er einfaldlega upplifun að sjá þessa mynd.
Gillz - DV
HHH
T.V - Kvikmyndir.is
HHH
„James Bond í G-Streng”
-E.E., DV
HH
E.E., DV
HHHH
„Magnad madur, magnad”
ÞÞ-FBL
HHH
The Expendables uppfyllir
það sem hún lofar...
S.V. - MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓ SÝND Í SMÁRABÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÍÐUSTU SÝNING
AR
TOPPMYNDIN Í DAG Á ÍSLANDI OG USA!
ALLAR SVÖLUSTU HASARHETJURNAR
Í EINNI FLOTTUSTU MYND ÁRSINS
Sýnd kl. 3:50, 5:45, 8 og 10:15
FRÁ LEIKSTJÓRA HOT FUZZ
OG SHAUN OF THE DEAD
KEMUR EIN FYNDNASTA OG
FRUMLEGASTA MYND ÁRSINS
2 VIKUR Á TOPPNUM Í
USA!
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
www.laugarasbio.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Þannig séð er voða-
lega lítið hægt að
segja um þessa
plötu Toms Petty
og sveitar hans,
The Heart-
breakers. Þetta er
amerískt rokk eins og það gerist
hefðbundnast, í meðförum manna
sem hefðu líkast til getað spilað þessi
lög sofandi, slík er reynslan og hin
reiprennandi tök á tungu rokksins.
Petty spratt fram með sitt hreina
„ekkert kjaftæði“ rokk og ról í dög-
un pönks og nýbylgju og var slengt í
þann hóp sökum orkunnar og æð-
isins sem lék um fyrstu plöturnar.
Petty leitaði þó fyrst og fremst – og
algerlega skammlaust – í rætur og
hefðir og hefur haldið því áfram allar
götur síðan. Ekki ein tilraun hefur
verið gerð til að finna upp hjólið, að
hlusta á nýjar plötur Petty er meira
eins og að heimsækja gamlan og
góðan frænda sem man vel eftir
góðu dögunum og kann að segja af
þeim sögur. Semsagt: Rokk. Fínt
rokk. Traust rokk. Bara rokk. Og
nákvæmlega ekkert að því.
Tom Petty - Mojo
bbbnn
Traustur
Petty
Arnar Eggert Thoroddsen
Gríðarlegt „suð“
hefur verið í kring-
um kanadíska
rapparann Drake
undanfarið ár eða
svo en þessi frum-
burður hans á
breiðskífusviðinu kom út núna í
sumar. Risar eins og Jay-Z, Lil
Wayne og Alicia Keys eru á meðal
velgjörðarmanna þessa unga rapp-
ara og eru öll með á plötunni. Styrk-
ur hennar liggur þó ekki í framlagi
þessara stjarna heldur hinni mjög
svo persónulegu áferð sem Drake
tekst að ljá plötunni, sem er ekki lít-
ill árangur í heimi markaðsvæns
hipphopps. Þannig líður platan ró-
lega áfram; viðkvæmnisleg og silki-
mjúk rödd Drakes ber með sér
merkilega einlæga og úthugsaða
texta, þar sem gjald frægðarinnar
og efasemdir um eigin tilvist eru á
borð borin. Þetta er einslags gáfu-
mannarapp, í smekklegum og um
leið hlustendavænum búningi. Ekki
amalegur árangur það og Drake
sýnir hér listavel að það er hægt að
selja plötur án þess að selja sálina
um leið.
Með hjartað
á ermunum
Drake - Thank Me Later
bbbbn
Arnar Eggert Thoroddsen
Hún er fíngerður sellóleikari, söng-
kona og einn af stofnendum skosku
indí-sveitarinnar Belle and Sebastian.
Hann er gruggari af guðs náð. Einn af
stofnendum hljómsveitarinnar
Screaming Trees og á tímabili var
hann söngvari Queens of the Stone
Age. Það voru kannski ekki margir sem bjuggust við því
að samstarf þeirra Isobelu Campbell og Marks Laneg-
ans yrði jafn giftusamlegt og það hefur orðið. En eftir
einn ólíklegasta indí-rokkdúett síðari ára liggja einar
þrjár breiðskífur og er stykkið Hawk það nýjasta og
besta til þessa.
Þó að tónlistarmennirnir séu báðir skrifaðir fyrir plöt-
unni þá er það hin feimna og lágróma Campbell sem sit-
ur í bílstjórasætinu og hefur séð um að skipuleggja þetta
tónlistarferðalag þeirra. Megnið af lagsmíðunum og út-
setningar Hawk eru hennar á meðan Lanegan hefur
meira þurft að hugsa um að halda grófri rödd sinni í lagi
með nokkrum viskístaupum.
Lagasmíðar Campbell á Hawk setja hana í hóp með
tónlistarmönnum á borð við Will Oldham. Platan er í
senn kántrí-, blús- og sálarplata sem Campbell og La-
negan hafa soðið saman og er samlíking við samstarf
Nancy Sinatra og Lee Hazlewoods ekkert fjarri lagi. Til
dæmis í laginu „Sunrise“ þar sem Campbell syngur ein
síns liðs, sér maður Nancy sjálfa fyrir sér við míkrófón-
inn viið fyrstu nótu. Andar þeirra Johnny og June Cash
svífa um í „Cool Water“ sem er einn af dúettunum á plöt-
unni með Willy Mason. En auk hans kemur fyrrverandi
gítarleikari Smashing Pumpkins, fýlupúkinn James Iha
við sögu í nokkrum lögum. Í lokalagi plötunnar „Lately“
heiðrar Campbell meistara Bob Dylan og er eins og í
söng Lanegans séu samankomnir þeir Dylan og Leonard
Cohen. Það er því við hæfi að síðasta lagið á plötunni sé
jafnframt það besta.
Campbell er
fíngerð og
Lanegan grófur
Isobel Campbell and Mark Lanegan - Hawk
bbbmn
Matthías Árni Ingimarsson
Dúettinn Isobel Campbell og Mark Lanegan skipa einn
ólíklegasta indí-rokkdúett síðari ára.
Erlendir plötudómar