Morgunblaðið - 26.08.2010, Síða 40

Morgunblaðið - 26.08.2010, Síða 40
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 238. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Andlát: Agnes Jóhannesdóttir 2. Jón Ólafsson aðstoðaði Ólaf 3. Hlýðir áfram tilkynningaskyldu 4. Svíakonungur á ferð »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Það er sögulegt starfsár sem hefst hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands 10. september næstkomandi því undir lok þess flytur sveitin í nýtt tónlistar- og ráðstefnuhús. Stór hljómsveit- arverk verða á dagskrá í ár. »31 Nýtt starfsár að hefj- ast hjá Sinfóníunni  Íslenska plötu- útgáfan Bedroom Community mun gefa út plötuna I Drink The Air Be- fore Me með tón- listarmanninum Nico Muhly í sam- vinnu við Decca Classics-útgáfufyrirtækið í sept- ember. En Decca mun einnig gefa út plötu Muhlys, A Good Understanding, sem er safn kórverka sem tekin voru upp í Disney Hall í Los Angeles. Tvær nýjar breið- skífur frá Nico Muhly  Uppselt er á hátíðartónleika Sin- fóníuhljómsveitar Norðurlands sem fram fara í menningarhúsinu Hofi á sunnudaginn. Á tónleikunum verður frumfluttur hátíð- arforleikurinn Hymnos eftir Hafliða Hall- grímsson. Auk þess mun Vík- ingur Heiðar Ólafsson leika ein- leik í píanókonsert eftir Edvard Grieg. Uppselt á hátíðartónleika Á föstudag Hæg vestlæg átt. Skýjað á vestanverðu landinu og dálítil væta um kvöldið, en bjart að mestu austanlands. Hiti 8 til 15 stig. Á laugardag Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skýjað og víða rigning með köflum um vestanvert landið en þurrt austantil. Hiti 10 til 15 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða hægviðri, skýjað með köflum og stöku skúrir, einkum suð- vestantil, en þurrt að mestu norðanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. VEÐUR Sölvi Geir Ottesen, lands- liðsmaður í knattspyrnu, var hetja FC Kaupmanna- höfn þegar félagið komst áfram í riðlakeppni Meist- aradeildar Evrópu. Sölvi skoraði eina mark liðsins gegn Rosenborg á Parken. „Ég er mjög ánægður mað- ur þessa stundina,“ sagði Sölvi Geir þegar Morg- unblaðið sló á þráðinn til hans í fagnaðarlátunum í gærkvöldi. »1 2 milljarða mark Sölva Geirs Aroni Pálmarssyni er ætlað stórt hlutverk í liði Þýskalands- og Evr- ópumeistara Kiel á komandi keppn- istímabili. „Ég verð að sýna að ég sé traustsins verður. Ég finn að það er meiri pressa lögð á mig núna og það er bara fínt,“ segir Aron í viðtali við Morgunblaðið í dag. »3 Aroni ætlað stórt hlutverk hjá Kiel í vetur Kvennalandsliðið í knattspyrnu vann öruggan 5:0 sigur á Eistlandi í síð- asta leik sínum í undankeppni HM í gærkvöldi en leikið var í Rakvere. Ís- land tapaði báðum leikjunum gegn Frökkum í keppninni en vann hina átta og fékk ekki á sig mark gegn öðrum andstæðingum en Frökkum. Margrét Lára og Sara Björk skoruðu tvö mörk hvor í gær. »4 Kvennalandsliðið hélt hreinu í áttunda skipti ÍÞRÓTTIR Guðni Einarsson gudni@mbl.is Birkisafi og birkisíróp, rabarbara- sulta með fjallagrösum eða vanillu, þurrkaðir og frystir lerki- og furu- sveppir. Þetta eru afurðir sem nátt- úran austur á Héraði gefur af sér og sprotafyrirtækið Holt og heiðar ehf. framleiðir. Mesta nýlundan er vinnsla birki- safans, en þetta mun vera í fyrsta sinn sem hann er nýttur hér á landi. Safinn er bæði seldur frystur og unn- ið úr honum síróp. Reksturinn er aukageta hjá eigendunum, þeim Bergrúnu Örnu Þorsteinsdóttur garðyrkjufræðingi, Guðnýju Vé- steinsdóttur og Þórólfi Sigjónssyni matreiðslumanni. Bergrún og Guðný tóku þátt í verkefninu Vaxtar- sprotum sem haldið var á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins í fyrra. Þá fengu þær stöllur sérstaka viðurkenningu fyrir verkefni sitt „Holt og heiðar“. Margir kannast við hlynsíróp, sem unnið er úr safa sírópshlyns. Birki- safasíróp er unnið á líkan hátt. Raun- ar munu hlynur og birki vera einu norðlægu trjátegundirnar sem hægt er að nýta safann úr. Birkisafi inni- heldur mikil steinefni, andoxunarefni og sykrur. Hann er sykurminni en hlynsafi og talinn heilnæmari. Þá er birkisafi sagður bæla frjókornaof- næmi og hafa jákvæð áhrif á húð, hár og neglur. Yngjandi og kynörvandi „Við vorum búin að ganga lengi með það í maganum að nýta þetta,“ sagði Bergrún. Hún sagði að Finnar hefðu lengi nýtt birkisafa og m.a. flutt hann út til Japans og Kóreu þar sem menn tryðu að hann væri yngj- andi og kynörvandi. „Birkisafinn er allra meina bót. Sírópið er fullt af steinefnum,“ sagði Bergrún. Safinn er drukkinn eins og hann kemur úr trénu en sírópið er t.d. hægt að nota sem íssósu, á vöfflur eða í te. Rabarbarasultan frá Holti og heið- um er sykurminni en venjuleg sulta og bætt með fjallagrösum. Fyrir viku síð- an kom svo á markað rabarbarasulta með vanillu. Hún sagði að þau fengju að nýta þó nokkra stóra rabarbara- garða á Héraði sem ekki voru nýttir. „Við erum aðallega með þennan græna og rauðgræna rabarbara, en ekki með vínrabarbara,“ sagði Bergr- ún. Nú er sveppatíminn að ganga í garð. Bergrún sagði að sveppasprettan hefði verið lítil hingað til en nú er hún að fara af stað af krafti. Safnað er bæði lerkisveppum og furusveppum. Svepp- irnir eru ýmist frystir eða þurrkaðir í sérstökum þurrkofni og seldir þannig. Síróp unnið úr íslensku birki  Fjölbreyttar afurðir austan af Héraði á markað Ljósmynd/Þurý Bára Birgisdóttir Birkisafi Bergrún Arna Þorsteinsdóttir borar holu í stofn birkitrés til að tappa af því birkisafanum sem talinn er vera mjög heilnæmur. Úr safanum er svo soðið síróp, sem er notað svipað og hlynsíróp, eða safinn drukkinn. Hvernig er birkisafinn sóttur? Birkisafa er hægt að safna í 2-3 vik- ur á vorin. Þá er boruð hola í stofn birkitrjáa sem eru með sveran bol, að minnsta kosti 15 sentimetra í þvermál. Settur er krani í gatið og safanum safnað í brúsa. Tappað er af trénu fimm daga í senn. Að lok- um er gatinu lokað með trétappa. Safinn er m.a. sagður hafa jákvæð áhrif á vökvajafnvægi mannslíkam- ans og koma í veg fyrir bjúg. Hvað kemur mikill safi úr tré? Hvert birkitré getur gefið 1-6 lítra af birkisafa á sólarhring. Í vor var safnað safa úr 60 birkitrjám á Hall- ormsstað. Ekki eru teknir meira en 40-60 lítrar af safa úr hverju tré. Hvíla verður tréð í nokkur ár áður en aftur er hægt að tappa af því safa. Hvernig er sírópið búið til? Í birkisafa er frúktósi sem þolir ekki suðu. Því verður að hita safann við vægan hita til að eima hann. Þau í Holti og heiðum nota rafknúinn gufusuðupott og tekur einn og hálf- an sólarhring að sjóða síróp úr saf- anum. Til að fá lítra af hreinu birki- sírópi þarf 100-120 lítra af safa. Spurt & Svarað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.