Morgunblaðið - 16.09.2010, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2010
Vátryggingafélag Íslands hf. | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis.is
Hvað sem á bjátar og hvað sem á dynur
hvernig sem veröldin dæsir og stynur
skaltu aðstoð okkar þiggja
því alla þá sem landið byggja
– okkar hlutverk er að tryggja.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru í óðaönn að
breyta Suðurgötunni í Reykjavík í einstefnugötu
í gær. Hér eftir verður einstefna í suður frá
Kirkjugarðsstíg en leyfilegt verður að hjóla í
báðar áttir að sögn Pálma F. Randverssonar,
verkefnastjóra hjá umhverfis- og samgöngusviði
borgarinnar.
Hann segir breytinguna á Suðurgötunni vera
lið í því að fylgja eftir hjólreiðaáætlun sem sam-
þykkt var í borgarstjórn í vetur en samkvæmt
henni verður tíu kílómetrum af hjólastígum bætt
við í ár.
Að sögn Pálma eru frekari breytingar í far-
vatninu sem auðvelda munu hjólreiðamönnum
lífið. Þegar sé tilraun í gangi á Hverfisgötu með
hjólarein og verið sé að hanna útfærslu fyrir
reiðhjól á Hofsvallagötu í Vesturbænum.
Þá segir hann að skoðaður verði sá möguleiki
að halda Hafnarstræti sem göngugötu áfram en
hún hefur verið lokuð fyrir umferð bíla og hefur
það vakið mikla lukku, segir Pálmi.
Morgunblaðið/Golli
Suðurgatan grænkar með haustinu
Pétur Guðgeirs-
son, dómari í
máli ákæruvalds-
ins gegn níu ein-
staklingum sem
m.a. eru ákærðir
fyrir árás á Al-
þingi, skar úr um
kröfu verjanda
fjögurra af níu
sakborningum í
gærmorgun.
Krafan var þess efnis að vísa bæri
málinu frá vegna vanhæfis setts
ríkissaksóknara, Láru V. Júlíus-
dóttur. Kröfunni var synjað og
Lára talin hæf. Verjandinn, Ragnar
Aðalsteinsson, mun kæra úrskurð-
inn til Hæstaréttar.
Um er að ræða aðra frávísunar-
kröfu sem hafnað er, en áður hafði
verið tekist á um hæfi dómarans í
málinu. Ragnar segir ágreinings-
mál enn standa útaf borðinu, m.a.
vegna þess að saksóknari hafi ekki
látið skjólstæðingum hans gögn í
té, s.s. skýrslu þess sem rannsakaði
málið hjá lögreglu höfuðborgar-
svæðisins sem neitað hefur verið
um aðgang að. Hann hyggst fá úr-
skurð um það, að fá aðgang að
gögnunum.
Einnig var tekist á um í gær hve-
nær aðalmeðferð skuli fara fram.
Ragnar mótmælti tillögu dómara
um að hún færi fram í lok nóv-
ember þar sem einn skjólstæðinga
hans á von á barni á sama tíma.
Þrátt fyrir mótbárur Ragnars er
gert ráð fyrir að aðalmeðferð fari
fram 29. nóvember, 1. desember og
hugsanlega 4. desember. Dómari
tók fram að hægt væri að taka
skýrslu af sakborningnum barns-
hafandi á öðrum tíma. andri@mbl.is
Kröfu níumenn-
inga um frávísun
hafnað öðru sinni
Ragnar
Aðalsteinsson